Tíminn - 27.08.1994, Page 19
19
tv-l 1-i i i \v • '•:i »rrc| « « v' 'f h f i
Laugardagur 27. ágúst 1994 @$ÍBÍ1|ÍÍÍ
mér aö vitna í minningar
hennar, er hún skrifar í ritið ís-
lenskar ljósmæöur:
„Ljósmóöurstarfiö er erfitt og
ábyrgöarmikiö, en þaö er líka
dásamlegt aö finna, aö veriö er
aö vinna gott verk og ósjaldan
að bjarga mannslífum. Þetta
starf getur ekki annað en hrært
við öllu því hlýjasta og besta í
hverju konuhjarta."
Áriö 1928 giftist Magðalena
Magnúsi bróöur mínum og
hófu þau þaö ár búskap á
Þambárvöllum á móti foreldr-
um okkar. Bættist þá við hús-
móðurstarf á annasömu heim-
ili og mun þá oft hafa verið erf-
itt að komast að heiman meö-
an börnin voru ung, en hún
naut þess að tvíbýli var á jörö-
inni og öll sú hjálp, sem unnt
var að inna af hendi, var fús-
lega veitt.
Gestrisin voru þau hjón,
Magðalena og Magnús, og
nutu margir þess, enda jörðin í
þjóöbraut. Áttu margir erindi
viö ljósmóöurina og mann
hennar, sem gegndi ýmsum
trúnaöarstörfum fyrir sveit
sína. Reynt var hvers manns
vandræöi að leysa.
En ljúfastar eru mér minning-
arnar um Magöalenu sem eldri
uppeldissystur er jafnan vék að
mér góöu og sendi mér oft fal-
leg kort og gjafir, þegar hún
var fjarverandi við nám eða
störf á yngri árum. Og síðan
endurtók sig vináttan við börn-
in mín og barnabörnin. Sum
dvöldu þar sumarlangt og áttu
þar góöu atlæti aö fagna. Og
ánægjulegar eru minningarnar
um heimsóknir okkar hjóna
meö alla fjölskylduna, hversu
hjartanlega var alltaf tekið á
móti okkur og ekkert til sparað
að við nytum heimsóknarinnar
sem best.
Fyrir þetta og allt elskulegt
þakka ég þegar langri samfylgd
er lokið.
Bróöur mínum og börnum
hans vottum við Sólveig og
fjölskylda okkar innilega sam-
úö.
Ólafur H. Kristjánsson
í dag verður Magga á Þambár-
völlum lögð til hinstu hvílu.
Með henni er gengin mikilhæf
kona, og án hennar verður
Bitran aldrei söm og áður. En
slíkur er gangur lífsins.
Æviferill Möggu, eða Magða-
lenu Guðlaugsdóttur eins og
hún hét fullu nafni, verður
ekki rakinn í þessum línum.
Hér verða aðeins tínd saman
örfá fátækleg orð til að lýsa
þakklæti fyrir þennan tíma —
sem nú er liðinn.
Það má til sanns vegar færa,
að ég hafi fyrst kynnst Möggu
á Þambárvöllum undir súðinni
heima um miðja vetrarnótt fyr-
ir rúmlega þremur, eða etv.
tæplega fjórum áratugum. Hún
hafði þá um alllangt skeið
starfað sem ljósmóðir í Bit-
runni, en var hætt á þeim vett-
vangi þegar hér var komið
sögu. Þá bar svo viö, að hjón
nokkur þar í sveit áttu von á
barni, sem ekki var svo mjög í
frásögur færandi á þeim árum.
Aðstæður voru hins vegar
þannig, að erfitt var um ferða-
lög; allir vegir ófærir vegna
snjóa. Því var leitað til ljós-
móðurinnar um aðstoð, og
með hjálp bændanna í sveit-
inni tókst að moka nógu mikl-
um snjó til að ljósmóöirin
kæmist á vettvang. Og allt fór
vel að lokum þó að enginn
væri læknirinn.
Magga á Þambárvöllum var
sérlega hjálpsöm og úrræðagóö
kona, eins og m.a. kom fram
þessa vetrarnótt í Bitrunni um
árið. Og hún var líka höföingi
heim að sækja. Ég held aö á
engan sé hallað, þótt ég haldi
því fram að hvergi hafi veriö
betra að koma en til þeirra
hjónanna Möggu og Magnúsar
á Þambárvöllum. Þetta upp-
götvaði ég sem barn, og eftir að
ég komst til fullorðinsára gáf-
ust mér nokkur tækifæri til að
rifja þetta upp. Og þá komust
börnin mín líka að sömu niöu-
stöðu. Þetta snerist ekki aðeins
um líkamlegt fóður, því að þó
að kaffið og meðlætið hafi allt-
af verið sérlega rausnarlegt og
fallega fram borið, þá var and-
lega fóðrið enn minnisstæðara.
Á Þambárvöllum kom maður
aldrei aö tómum kofunum.
Umræðan gat snúist um allt
milli himins og jarðar, og oft
virtist mér fróðleikur þeirra
hjóna á ólíkustu sviðum með
ólíkindum. Það er heldur engin
tilviljun, hversu gestkvæmt
hefur löngum verið á Þambár-
völlum.
Þrátt fyrir að líkamlegri heilsu
Möggu á Þambárvöllum hafi
tekið að hraka fyrir mörgum
árum, var ekki nokkurn bilbug
á henni að finna á andlega
sviðinu. Þar voru öll sambönd í
lagi, allt fram á síðasta dag,
hvort heldur sem talið barst að
gamla tímanum eða atburðum
líðandi stundar. Og þegar lík-
aminn gat ekki starfað lengur,
var andinn enn í fullu fjöri. Þar
hefur ekkert breyst.
Á þessum tímamótum í lífi
Möggu á Þambárvöllum, er
okkur sem fengum að kynnast
þessari stórkostlegu konu, efst í
huga innilegt þakklæti fyrir
ómetanlegar samverustundir.
Án þeirra hefði líf okkar allra
orðið mun fátæklegra.
Þessum fátæklegu þakkarorð-
um fylgja samúðarkveðjur fjöl-
skyldunnar minnar til Magnús-
ar á Þambárvöllum og allra af-
komenda. Þau hafa misst mik-
ið, en eftir stendur dýrmæt
reynsla og ómetanlegar minn-
ingar.
Guð blessi minningu Magða-
lenu Guðlaugsdóttur.
Stefán Gíslason
frá Gröf
DAGBÓK
IV-AJWVAAAAAJUVJUUI
Lauqardaqur
X
uqardaqi
2/
ágúst
239. dagur ársins ■ 126 dagar eftir.
34. vika
Sólris kl. 5.54
sólarlag kl. 21.02
Dagurinn styttist
um 7 mínutur.
Kristinn Sigmunds-
son á Akranesi
Kristinn Sigmundsson og Jón-
as Ingimundarson halda tón-
leika í Safnabarheimilinu Vina-
minni, Akranesi, mánudaginn
29. ágúst.
Á tónleikunum á mánudags-
kvöldib flytja þeir íslensk og er-
lend lög og aríur af ýmsu tagi.
Félag eldri borgara
í Reykjavík og
nágrenni
Sunnudagur í Risinu, brids-
keppni, tvímenningur kl. 13 og
félagsvist kl. 14.
Dansab í Risinu kl. 20 til
23.30 sunnudagskvöld.
Kvöldganga
Hana nú
Síðasta kvöldganga sumarsins
hjá Frístundahópnum Hana-nú
veröur mánudagskvöldið 29.
ágúst og lagt veröur af stað
með rútu frá Félagsheimilinu
Gjábakka, Fannborg 8, Kópa-
vogi, kl. 19.00.
Farið verður um Lækjarvelli á
Reykjanesi að Djúpavatni og
upp á Grænudyngju en þar er
m.a. fallegur sigdalur.
Leiðsögumaður verður Stein-
unn Harðardóttir.
Panta skal far í síma 45700 og
í Gjábakka í síma 43400 fyrir
hádegi brottfarardag.
Fólk er bebiö um að taka með
sér nesti og hafa í huga að
brottfarartími er kl. 19.00.
Tilvalin ferb fyrir alla fjöl-
skylduna.
Síbustu orgeltón-
leikar sumarsins í
Hallgrímskirkju.
Sunnudaginn 28. ágúst verða
síðustu tónleikarnir að þessu
sinni í orgeltónleikaröðinni
Sumarkvöld við orgelið í Hall-
grímskirkju. Að þessu sinni er
það Katalin Lörincz, organisti
Akranesskirkju, sem leikur á
orgelið.
Efnisskrá Katalinar má skipta í
þrennt. Fyrst er það þýsk róm-
antík: Pílagrímakórinn eftir Ri-
chard Wagner í orgelútgáfu
Franz Liszt og Zur Trauung eftir
Liszt. Fulltrúar þýskrar barokk-
tónlistar eru sálmforleikurinn
O, Mensch bewein dein Sunde
gross eftir Johann Sebastian
Bach og Konsert í a-moll eftir
Vivaldi/Bach. Síðasti hlutinn er
síðan frönsk rómantík. Eftir
César Franck leikur Katalin Ele-
vation, eftir Louis Vierne
hljóma Carillon des Westm-
inster, en þar er byggt á hinu
þekkta stefi kirkjuklukkna
Westminster en það má einnig
heyra í Hallgrímskirkju. Þá er
Riverie eftir Joseph Bonnet og
síbasta verkið á tónleikunum er
finale nr. 6, op. 21 eftir César
Franck
Schlegelmilch í
Nýlistasafninu
.Á n.k. sunnudag 28.8. kl.
22.30 verða sýndar aftur nokkr-
ar kvikmyndir eftir Karolu
Schlegelmiclh í Nýlistasafninu.
Karola er myndlistar- og kvik-
myndagerðarkona frá Berlín.
Jafnhliða öðrum listmiðlum
hefur hún nú um fimm ára
skeið unniö að gerð kvik-
mynda. Kvikmyndirnar hennar
eru stutt tilraunamyndverk
unnin á 16 mm filmu og falla í
flokk kvikmynda sem lítiö sjást
hérlendis, „experimental film." '
Stuttmyndir hennar hafa ver-
iö sýndar á fjölmörgum kvik-
myndahátíöum og nýjasta
mynd hennar, „Vom Sterne-
schneutzen", vann tvenn al-
þjóðleg verölaun.
í Nýlistasafninu mun hún
sýna fjórar af sínum þekktari
kvikmyndum, en þær voru áb-
ur sýndar í Háskólabíói í s.l.
viku. Með sýningunni vonast
Karöla eftir að vekja umræður
um þennan lítt nýtta listmiðil,
sem er íslendingum svo fram-
andi.
Karola Schlegelmilch hefur
dvalið sem gestur í Listamið-
stöbinni í Straumi síðastlibna
fjóra mánuði, en hún er einnig
með sýningu á ljósmyndaverk-
um sínum í sýningarsalnum
„Portib", í Hafnarfirði. Sýning-
in stendur til 28.8.94 og er op-
in daglega kl. 14-18. ■
Fréttir í vikulok
Skjálftavirkni við Hveragerði er í mikilli rénun og er ekki búist
við stórskjálftum úr þessu. Komið hefur í ljós ab landris er einn-
ig í Heklu um þessar mundir en Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur segir engin bein tengsl á milli.
Breyttar neysluvenjur
Samtök afurðastöova hafa tilkynnt að þau muni greiða kúa-
bændum 20 krónur á umframlítra mjólkur fyrir próteinþáttinn í
innlagðri mjólk umfram greiðslumark. Próteinneysla landans
hefur farið sívaxandi en fituáhersla mjólkurbúanna hefur oröiö
að víkja.
Skoöanakönnun fordæmd
ÍM-Gallup hefur fordæmt þau vinnubrögð sem voru viðhöfb í
skobanakönnun Skáís um fylgi stjórnmálaflokkanna. Samkvæmt
könnunninni fékk framboö Jóhönnu Sigurðardóttur mikinn
stuðning en Framsóknarflokkurinn galt mikið afhroö. Þess láðist
að geta að könnunin var aðeins framkvæmd á Reykjavíkursvæð-
inu en ekki landinu öllu.
Benny Hinn í Hafnarfirbi
Sjónvarpspredikarinn Benny Hinn hélt samkomu sl. sunnu-
dagskvöld í íþróttahúsinu í Kaplakrika. Húsfyllir var á samkom-
unni og urbu margir frá ab hverfa. Nokkrir segjast hafa hlotið
lækningu af meinum sínum en engin kraftaverk eru sögb hafa
átt sér stað.
Leibbeinendur heyra brátt sögunni til
Vel hefur gengið að ráða í kennarastöður fyrir skólaárið sem
hefst í næsta mánuði. Hlutfall kennara með réttindi hefur
hækkað undanfarin ár og hefur það aldrei verið hærra en í ár.
Vinnubrögbum í kjötvinnslu áfátt?
Eins og kunnugt er hefur opnast markaður fyrir íslenskt nauta-
kjöt í Bandaríkjunum. Guömundur Lárusson, formaður Lands-
sambands kúabænda, segir að afkastagetu og vinnubrögðum í
kjötvinnslum hérlendis sé verulega áfátt og telur að mögulega
þurfi að flytja nautakjöt óunnið úr landi til Bandaríkjanna.
Maöur lést í bílveltu
Banaslys varð á Vesturlandsvegi við Tíðarskarð sl. mánudag.
Ökumaður jeppabifreiöar á leið til Reykjavíkur missti stjórn á
bílnum og valt hann margar veltur.
Gób gæsaveibi
Gæsaveiði hófst 20. ágúst síðastliðinn og hefur veiði verið gób
og mikið af fugli að sögn skotveiðimanna. Sunnanlands heldur
gæsin sig aðallega á hálendinu enn sem komiö er en fyrir norð-
an hefur sést óvenju mikið af gæs í úthaga.
25 veitingahús gjaldþrota á ári
Gjaldþrot veitingahúsa hafa verið á bilinu 25-30 á ári, sl. 5 ár.
Alls hafa 170 veitingahús farið á hausinn síban 1985 og tapaðar
kröfur í uppgerðum málum frá þessum tíma eru 2.300 milljónir
króna.
Peningasending Seblabanka hvarf
Talið er fullvíst að peningasending sem Seðlabankinn sendi til
banka í Lundúnum hafi horfið í Englandi. Upphæðin er óljós en
bresk póstyfirvöld eru talin bera ábyrgð á málinu.
Stéttarsamband bænda í eina sæng
meb Búnabarfélaginu
Aðalfundur Stéttarsambands bænda var settur á Flúðum sl.
fimmtudag. Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands
bænda, segir boðleiðir innan núverandi félagskerfis bænda
óljósar og kerfib flókib og svifaseint. Hann hvatti til sameining-
ar við Búnaðarfélag íslands. *