Tíminn - 04.10.1994, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.10.1994, Blaðsíða 3
Þri&judagur 4. október 1994 3 60% þjóbarinnar vilja afsögn Cubmundar Árna samkvcemt skobanakönnun DV: Guðmund- ur Árni þraukar enn Á flokksstjórnarfundi Al- þýbuflokksins á sunnudag var tillögu Félags frjálslyndra jafnaöarmanna um aö Gub- mundur Árni Stefánsson, fé- lagsmálaráöherra og varafor- maöur Alþýöuflokksins, segöi af sér, vísað frá. Þaö var for- maöur flokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, sem lagöi fram frávísunartillöguna og var hún samþykkt meö 67 at- kvæöum gegn 13. Miklar og langar umræður voru á fund- inum sem stóö í tæpar fimm klukkustundir. í skoðanakönnun DV sem birtist í gær kemur fram að 60% þjóðarinnar vilja afsögn Guö- mundar Árna. Spurt var: „Ertu fylgjandi eða andvígur því aö Guðmundur Árni Stefánsson segi af sér sem ráðherra?" Fylgjandi ............53,8% Andvígir...............33.8% Óákveðnir .............10,5% Svara ekki..............1.8% Á fundi sambandsstjórnar Far- manna- og fiskimannasam- bandsins, sem haldinn var 29. september sl., voru samþykkt haröorö mótmæli gegn aö- geröum norskra yfirvalda í noröurhöfum meö töku fiski- skipa meö íslenskum áhöfn- um. Fundurinn mótmælir einnig „þeirri útþenslustefnu sem Norömenn hafa rekiö í Norður- Atlantshafi, sem virðist hafa þaö takmark að þeir eigni sér sem stærst hafsvæöi á þessum slóðum." Sambandið bendir á að ystu mörk fiskveiðilögsögu Norðmanna séu um 600 sjómíl- ur frá Noregsströndum á sama tíma og aörar þjóðir láta sér nægja um 200 sjómílna mörk. Þá beinir fundur sambands- stjórnar því til íslenskra stjórn- valda aö þau kanni möguleika á því að halda ráöstefnu um aukna samvinnu um nýtingu auðlinda sjávar í noröurhöfum meö þátttöku Norðmanna, Fær- eyinga, Grænlendinga og Rússa auk Islendinga. ■ Fjárfestingar- og atvinnustefna fjárlagafrumvarps í ósamrœmi viö stefnu forsœtisráöherra. ASÍ: Þaö er / nógu aö snúast hjá Halldóri Blöndal samgöngurábherra vib ab vígja mannvirki. Hér er hann ab vígja nýja húsib sem búib er ab byggja yfir flugstjórnarmibstöb í Reykjavík. Athöfnin var síbdegis ígœr og var þess þá jafnframt minnst ab hálf öld er libin frá þvíab Alþjóbaflugmálastofn- uninni (ICAO) var komib á fót. Forseti fastarábs þeirrar stofnunar, Assad Kotaite, og rábherrann fluttu bábir ávörp og lögbu ab svo búnu hornstein hússins. Tímamynd cs ríkisstjórn liöií Gylfi Arnbjörnsson, hagfræö- ingur ASÍ, segir aö samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sé ákaf- lega óljóst hver stefna ríkis- stjórnarinnar sé í efnahagsmál- um. Fjárfestingar- og atvinnu- stefna frumvarpsins sé í engu samræmi viö yfirlýsingar for- sætisráöherra í þeim efnum. Þá sé stefnt aö lækkun atvinnu- leysisbóta, auknu atvinnu- leysi, hækkun vaxta í hús- bréfakerfinu og stefnt aö laga- breytingum til aö koma í veg fyrir aö félagslegar bótagreiösl- ur hækki í samræmi viö kjara- samninga. í frumvarpinu sé gert ráð fyrir verulegum niðurskurði í fram- lögum ríkisins til atvinnumála og auknu atvinnuleysi. Þetta sé á skjön viö það sem forsætisráð- herra hefur sagt og því viröist ekki hægt aö draga aðra ályktun en þá aö stefna forsætisráðherra eigi ekki hljómgrunn í ríkis- stjórninni. Þaö sé því brýnt aö fá úr því skorið hver stefna ríkis- stjórnarinnar sé í þessum málum og hvort þaö sé málefnaleg sam- staöa um mótun efnahagsstefn- unnar. Þaö sé kjarnaatriöi hver stefnan sé þegar kemur ab gerð næstu kjarasamninga. Gylfi segir að þab sé einnig mjög alvarlegt mál aö ríkisstjórn- in skuli ekki hafa staðið við ítrek- aöar yfirlýsingar sínar um fram- lög til atvinnuskapandi aögeröa í tengslum viö gildandi kjara- samning. Samkvæmt fjárlaga- frumvarpinu á ríkið eftir aö inna af hendi 700 milljónir króna til þessara þátta. Minni fjárfesting í frumvarpinu er gert ráð fyrir aö fjárfestingar ríkisins minnki um fjórðung á næsta ári, boðabur er 100 íbúða samdráttur í byggingu félagslegra íbúða, hækkun vaxta í húsbréfakerfinu og launabreyt- ingar upp á 2,5% svo nokkuð sé nefnt. Hagfræðingur ASÍ segir nokkuð ljóst aö samkvæmt fjárlagafrum- varpinu sé stefnt að auknu at- vinnuleysi á næsta ári, eöa um 0,3% - 0,4%. Hann segir aö þótt einhverjar fjárfestingar í at- vinnulífi komi á móti samdrætti ríkisins, þá sé ljóst að fjárfesting- ar í heild muni veröa langt undir því sem hægt sé að telja viðun- andi. Gylfi segir aö þetta sé í engu samræmi viö stefnu forsæt- isráðherra. En hann hefur marg- lýst því yfir að ríkisstjórnin eigi að beita sér fyrir aukingu fram- kvæmda til að sporna við at- vinnuleysi og í því sambandi hefur hann tekið dyggilega und- ir stefnu og sjónarmið ASÍ í at- vinnumálum. í þeim efnum nægir að minna á framkomnar hugmyndir Davíðs um sjö millj- aröa vegaframkvæmdir á næstu þremur árum. Gylfi segir að meðal verkalýðs- félaga sé ekki búið að móta end- anlega kröfugerð í tengslum viö gerö næstu kjarasamninga og því lítið hægt að segja til um þær 2,5% launabreytingar sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. En fljótt á litib sýnist honum þetta svig- rúm vera heldur þröngt reiknað. Skerðing á atvinnu- leysisbótum Þá viröist vera stefnt að því í fjár- lagafrumvarpinu að skerða greiðslur til þeirra sem verst mega sín, þ.e. atvinnulausra og elli- og örorkulífeyrisþega. Sam- kvæmt því á að skerða ein- greiöslurnar meb því að breyta öllum lögum varðandi félagsleg- ar bætur í trygginga- og atvinnu- leysistryggingakerfinu sem eru með tilvísun í breytingar sem kunna að verða við gerð kjara- samninga. En fjármálaráðherra hefur löngum kvartað yfir því að kjarasamningar skuli hafa áhrif á greiðslu bóta. Sömuleiðis mun hækkun ríkis- ábyrgöar í húsbréfakerfinu úr 0,25% í 0,35% hækka vexti og auka afföll hjá lántakendum. Gylfi segir þab óskiljanleg við- brögð við vanda húsbréfakerfis- ins að hækka vexti hjá fólki og auka enn frekar á greiðsluvand- ann. Þá er enn einu sinni stefnt að lækkun atvinnuleysisbóta í fjár- lagafrumvarpinu með því ab lengja og tekjutengja biðtímann. ■ Farmanna- og fiskimannasambandiö: Útþenslustefnu Norb manna mótmælt Davíð borinn ofur- lönnemasambandiö: Málefni fatlaðra iðn- nema sett á oddinn Á sérstökum hátíðarfundi sambandsstjórnar Ibnnema- sambands Islands, sem hald- inn var í sl. viku í tilefni af 50 ára afmæli sambandsins, var ákvebib að INSÍ einbeiti sér fyrir bættum náms- og starfs- skilyrðum fatlaðra ibnnema. I ályktuninni kemur m.a. fram ab handverk liggi vel við fjölda fatlabra og meö sérstökum fé- lagslegum aðgerðum sé hægt ab skapa fjölda fatlaðra full verk- efni í samfélaginu. Þá eru iðn- nemar hvattir til að kynna sér stöðu og möguleika fatlaðra í sínu umhverfi, málefni fatlaðra verði sett á oddinn í opinberri umræðu og starfsnefndum þar sem iðnnemahreyfingin á full- trúa. Stefnt er ab því aö næsta verk- efni Félagsíbúða iðnnema verði Iðnnemasetur í nánasta um- hverfi Iðnskólans meö sambýli fatlaðra og ófatlaðra þar sem sérhannabar vistarverur veröa fyrir fatlaða einstaklinga. Til aö ná þessum markmiðum mun Iönnemahreyfingin m.a. leita eftir samstarfi við Öryrkja- bandalag íslands og önnur sam- tök fatlaðra sem áhuga hafa á samstarfi við INSÍ við að vinna að hagsmunum fatlaðra iðn- nema. ■ Fjárlögin 1995. VSÍ: Stjórnvöld haldi fast um stýrið Hannes G. Sigurðsson, abstoð- arframkvæmdastjóri VSÍ, segir mikilvægt að stjórnvöld standi fast á þeim markmiðum fjár- lagafrumvarpsins að halli á rík- issjóði verði ekki meiri en 6,5 milljarðar á næsta ári og dregið verði úr lánsfjárþörf ríkissjóbs. „Þetta gæti gert vonir okkur um frekari lækkun vaxta að veruleika á næstu misserum," segir Hannes G. Hann segir mikilvægt að ekki verði hnikað frá þeim markmið- um í sjálfri fjárlagavinnunni í meðförum þingsins, þ.e. afnámi ríkissjóðshallans í áföngum og minnkandi eftirspurn ríkissjóðs eftir fjármagni. Hann segir örla á tilhneigingum til fjárfestinga í atvinnulífinu í kjölfar vaxandi eftirspurnar í þjóbfélaginu og uppsveiflna í hagvexti erlendis. Hann segir að í ljósi þessara þátta megi búast við því að atvinnuleysið verði tiltölu- lega óbreytt á næsta ári, enda gert ráb fyrir því að hagvöxtur innan- lands verði um 1,5% 1995. Hann varar við þeim áhrifum sem komandi þingkosningar geta haft á gerð f járlaga og minnir í því sambandi á þab sem gerðist árið 1991. Hinsvegar telur hann að við gerð núgildandi fjárlaga hafi tek- ist betur en oft áður. Hannes leggur áherslu á að svig- rúmib verði nýtt til að minnka skuldir ríkissjóðs og áfram verði unnið ab því aö treysta þann stöðugleika sem hefur náðst í verðlagsmálum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.