Tíminn - 04.10.1994, Síða 13
Þri&judagur 4. október 1994
13
Blabið
Blabib (The Paper) ★★
Handrit: Stephen Koepp og David Koepp.
Leikstjóri: Ron Howard.
Abalhlutverk: Michael Keaton, Clenn
Close, Marisa Tomei, Robert Duvall, Randy
Quaid, Spalding Cray og jason Robards.
Háskólabíó.
Öllum leyfb.
Hér segir af lífsbaráttu starfs-
manna dagblaðsins New York
Sun, sem reyna að ná „skúbbi"
með máli tveggja drengja, sem
ranglega eru sakaðir um morð.
Fylgst er með þeim að störfum í
einn sólarhring og er aðalsögu-
hetjan ritstjórinn Hackett (Kea-
ton) sem hefur fengið tilboð frá
keppinauti. Aðrar persónur eru
meðal annars framkvæmdastjór-
inn Alicia (Close), ekki sú vin-
sælasta á staðnum, Bernie
(Duvall), sem reynir að bæta lé-
legt samband sitt við dóttur sína,
og síðast en ekki síst kona
Hacketts (Tomei), sem virðist vera
komin a.m.k. ellefu mánuði á
leið.
Það er Ron Howard, nokkuð
frambærilegur leikstjóri og fyrr-
verandi barnastjarna (American
Graffiti og Happy Days), sem leik-
stýrir Blaðinu, en hann hefur
áður gert betur. Eftir að hann hóf
að leikstýra hefur hann m.a. gert
ágætismyndina Cocoon og
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
Splash, sem var gamanmynd í
skárri kantinum. Þrátt fyrir góð
tilþrif leikara og ágætan texta oft
á tíðum, þá nær Howard ekki að
gera nógu áhugaverða mynd. Það
næst aldrei að gera morðmálið
nægilega spennandi til að það
beri myndina uppi og persónuleg
vandamál blaðasnápanna eru
misáhugaverð, þrátt fyrir að atrið-
in, sem að þeim lúta, séu stund-
um mjög fyndin.
Það besta við Blaðið eru leikar-
arnir, sem standa sig með prýði.
Stórleikkonan Glenn Close er sér-
staklega góð, sem þarf ekkert ab
koma á óvart, en Randy Quaid
stelur þó alltaf senunni þegar
hann birtist. Hann minnir dálítið
á Eggert Þorleifsson þegar hann
stelur senunni í gamanmyndum,
en sá síðarnefndi hefur einmitt
oft gert þab í íslenskum kvik-
myndum.
Blaðið er þokkalegasta skemmt-
un, fyndin á köflum og vel leikin,
en er hvorki eftirminnileg né
verulega áhugaverð. ■
|fel| FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1994
Drætti f Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur verib frestab til 5. október
1994. Velunnarar flokksins, sem ekki hafa greitt heimsendan gírósebil, eru hvattir til
ab gera skil eigi síbar en 5. október. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokks-
ins, Hafnarstræti 20, 3. hæb, eba ísfma 91-624480.
FUF í Reykjavík
Abalfundur Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík verbur haldinn þribjudaginn
4. október nk. ab Hafnarstræti 20, 3. hæb, kl. 20.30.
Venjuleg abalfundarstörf, auk þess sem staba íslands gagnvart ESB verbur til um-
ræbu.
Félagar eru hvattir til ab fjölmenna á fundinn og taka meb sér gesti.
Stjórnin
Mosfellsbær-Kjalarnes-Kjós
Abalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu verbur haldinn í sal félagsins ab Háholti
13, Mosfellsbæ, laugardaginn 15. október nk. kl. 16.00.
Dagskrá nánar auglýst síbar.
Stjórnin
Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Seltjarnarness
Mánudaginn 10. október kl. 20.30 verbur haldinn abalfundur Framsóknarfélags
Seltjarnarness ab Melabraut 1, jarbhæb.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg abalfundarstörf, auk þess sem Halldór Ásgrfms-
son, formabur Framsóknarflokksins, og |óhann Einvarbsson alþingismabur ræba
stjórnmálaástandib.
Stjórnin
ÚTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið „Ölkelduháls-
svæði, vegur og borplan".
Verkið felst í að leggja 3,8 km vinnuveg af Hellisheiði að fyrirhuguðu bor-
stæði Hitaveitu Reykjavíkur á Ölkelduhálssvæöi og byggja þar upp bor-
plan.
Helstu magntölur eru:
jöfnun undir burðarlag 25.000 m2
Burðarlag 16.000 m!
Verkinu skal lokið 25. nóvember 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn. kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin veröa opnuð á sama stað miðvikudaginn 12. október 1994, kl.
11,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Ásamt janice, en Stallone segir samskipti þeirra vera ömurlegasta kafla ævi sinnar til þessa.
Miklu umbrotaskeiöi oð Ijúka í lífi leikarans Sylvesters Stallone:
Veikur fyrir sýn-
ingarstúlkunum
Þegar Sylvester Stallone stendur
grár fyrir járnum á hvíta tjaldinu
og segir dimmri röddu: „Ég er lög-
in," fær áhorfandinn á tilfinning-
una að ekkert geti bugað þennan
mann og röð og regla hljóti að
ríkja í veröld hans. Þegar skyggnst
er bak við persónuna og inn í líf
leikarans, blasir hins vegar við
annar raunvemleiki.
Fyrr á þessu ári slitu Stallone og
fyrirsætan Jennifer Flavin sex ára
gömlu sambandi sínu. Ein ástæð-
an var sú að önnur fyrirsæta, Jan-
ice Dickinson, fæddi stúlkubarn
og sagði Stallone vera föðurinn.
Leikarinn fór í þrjú DNA-próf (eitt
er talið 100% öruggt!) til aö fá
sannleikann á hreint og þá loks
þótti sannað að hann væri ekki
faðir barnsins.
„Janice Dickson-málið er senni-
lega ömurlegasta tímabil ævi
minnar," segir Stallone í nýlegu
viðtali. „Þótt ásakanir hennar
hyggju nærri mér, stóð ég alltaf
við bakið á henni, því um líf litlu
stúlkunnar var að tefla og ég vildi
ekki að hún gyldi fyrir þessi mál.
Ég sagði við Janice eftir þriðja
í SPEGLI
TÍMANS
Ofurhetja hvíta tjaldsins eins
og áhorfendur þekkja Stallone
best. Úr kvikmyndinni judge
Dredd.
DNA-prófið að nú yrði hún að fara
að sinna barninu og hætta þessari
þráhyggju."
Þab kom Stallone óneitanlega illa
að vera bendlabur við máiið, því
þótt hann reyndist ekki faðirinn,
varð hann ab viöurkenna opin-
berlega að hann hefði átt í ástar-
sambandi við Janice. Stallone við-
urkennir sjálfur að akkillesarhæll
sinn í lífinu sé hrifning á aðlað-
andi konum.
Leikarinn brenndi sig á hinu
sama fyrir 7 árum, þegar enn ein
fyrirsætan, Brigitte Nielsen, sagði
skilið við hann vegna framhjá-
halds. „Ég sá eftir Brigitte á sínum
tíma og núna sé ég af öllu hjarta
eftir Jennifer. Það var þó fyrst eftir
að ég viðurkenndi þab fyrir sjálf-
um mér að mér fór að líða betur
og nú sé ég loks fram á betri tíma,
enda búinn að öðlast innri ró. Síð-
asta misseri er búiö ab vera djöful-
legt," segir Stallone.
Stallone telur sig þarfnast þess
helst nú að eignast þriðja barn sitt
og hafa þannig aö einhverju
áþreifanlegu að stefna. Fyrir á
hann tvo stráka á táningsaldri,
Sage og Seargoh, sem hann eign-
aðist með Söshu, eiginkonu hans
til ellefu ára. „Það voru blendnar
tilfinningar hjá mér, þegar í ljós
kom að ég var ekki faðir Savannah
[dóttir Janicej. Ég var hálft í hvoru
feginn, en saknaði þess í aðra
röndina aö eiga ekki litla stúlku.
Ég geri mér grein fyrir ab ég er
ekkert unglamb lengur, en samt
liggur ekkert á. Það gefst meiri
tími til einkalífs þegar fer að hægj-
ast um hjá mér í kvikmyndaleikn-
um." ■