Tíminn - 17.11.1994, Síða 11
Fimmtudagur 17. nóvember 1994
* — --
RniillSrsttlil-SA
11
Upptaka sameiginlegr-
ar fiskveiðistefnu EB
Um fiskveiðistefnu Evrópu-
bandalagsins (EB) er fyrir mælt í
3. grein Rómarsamningsins: „í
augnamibi, tilgreindu í 2. grein,
skal starfsemi Samfélagsins taka
til ... (d) viðtöku sameiginlegrar
stefnu á sviði landbúnaðar ..."
Og í 38. grein, fyrstu málsgrein,
segir: „Sameiginlegi markaður-
inn nær til landbúnaðar og
verslunar með landbúnaðaraf-
urðir. Með „landbúnaðarafurð-
um" er átt við afurðir af jarð-
rækt, búfjárhaldi og fiskveiðum
og afurðir fyrsta stigs beinnar
vinnslu vegna þessara afurða."
— Um starfsemi og mál innan
EB gilda lög þess og aö auki til-
skipanir, en útfærsla þeirra er
einatt látin aðildarríkjum eftir.
Úrskurðir stjórnvalda þess
binda hendur viðkomandi og
loks dómar Evrópudómstólsins.
Framkvæmdastjórnin gerir
tillögur um setningu laga til
ráðherraráðsins, sem um þær
fjallar, en getur ekki breytt þeim
nema með samhljóða atkvæð-
um. (Fram til 1994 hefur aðeins
einu sinni til þess komiö í fisk-
veiðimálum.) Til samþykktar
tillögunum í ráðherraráðinu
þarf skilyrtan meirihluta (nú 54
hinna 74 atkvæða þess), en
framkvæmdastjórnin getur
dregið tillögur til baka, áður en
þær eru bornar undir atkvæði.
Samþykki Evrópuþingsins
þarf til setningar laga að slíkum
hætti sem tilgreindur er í Róm-
arsamningnum. Um samráð
ráðherraráðsins, framkvæmda-
stjórnarinnar og Evrópuþings-
ins er á kveðið í lögunum um
sameiginlegan evrópskan mark-
að. Um fiskveiðar fjallar á þing-
inu undirnefnd landbúnaðar-
nefndarinnar, en formlega er
aðeins til hennar leitab, ab
væntanlegar tillögur um laga-
VIÐSKIPTI
setningu heyri undir 43. grein
Rómarsamningsins.
Á sjötta áratugnum fengu
fiskiskip Belgíu, Frakklands,
Hollands, Ítalíu og Þýskalands
nálega 90% afla síns utan
þriggja mílna fiskveiðilögsögu
(landhelgi) sinnar. Upptaka jafn
hárra tolla á fiski og fiskafurð-
um aðildarlanda á milli kom
frönskum og ítölskum útvegi
illa. Frakkland og Ítalía æsktu þá
setningu reglna, sem heimiluðu
styrkveitingar úr sjóðum Efna-
hagsbandalagsins til endurnýj-
unar fiskiskipa. Lét fram-
kvæmdastjórnin þá semja álits-
gerö um stöðu fiskveiða, „Basic
principles for a common fisheri-
es policy" (Meginreglur um
sameiginlega fiskveibistefnu).
Aballega er í henni fjallab um
markabi, útflutning og félags-
. mál, en í einum kafla (Producti-
on) um verndun fiskstofna, var
lagt til að styrkir til fiskveiða
yrðu upp teknir og greiddir úr
European Agricultural Guid-
ance and Guarantee Funds
(FEOGA). í niðurstöðum álits-
gerðarinnar voru lögb drög aö
stefnu EB í fiskveibimálum fram
til 25. janúar 1983, ab það tók
upp sameiginlega fiskveiði-
stefnu ab segja má. Mótun
hennar í heild sinni tók þannig
15 ár, en umfjöllun um vernd-
un fiskstofna 7 ár.
Tildrög
Á ofanverðum sjöunda ára-
tugnum voru skiptar skoðanir á
meðal aðildarríkja um upptöku
styrkveitinga til fiskveiða. Sjáv-
arútvegur í Þýskalandi, Hollandi
og Belgíu þarfnabist þeirra ekki
og sáu þau ekki ástæðu til
þeirra. í þeim efnum breyttist
staban við umsókn Bretlands,
Danmerkur, írlands og Noregs
um aðild að EB. Fiskveiðar
þriggja af upphaflegu abildar-
ríkjunum sex var að stórum
hluta í lögsögu eöa á nálægum
mibum þeirra. „Ef „ríkin sex"
yrðu ekki ásátt um stefnumörk-
un fyrir inngöngu þeirra, gætu
þessi nýju aðildarríki haft áhrif
á framvindu mála, einkum ab-
stöðu til fiskveiða og aðgang að
lögsögu (national waters) aðild-
arríkja. Ab markaðri stefnu fyrir
inngöngu þeirra, yröu nýju að-
ildarríkin ab sætta sig vib orb-
inn hlut í acquis communitaire.
„Ríkjunum sex" tókst naumlega
að ná samkomulagi á síðustu
stundu um tvær reglugerðir,
reglugerð rábherraráðsins (EEC)
nr. 2142/70 um sams konar
skipan á mörkubum með fiskaf-
urðir og reglugerb rábherraráðs-
ins (EEC) nr. 2141/70 um sams
konar aðbúnab (common
structural policy) í sjávarútvegi
... Umdeildustu atriði þeirra
voru í 1. málsgrein 2. greinar
reglugerðarinnar nr. 2141/70,
sem reglugerð nr. 101/76 leysti
síöar af hólmi, en þau hljóbuðu
svo:
„1. Að reglur vibhafðar í
hverju einu aðildarríki með til-
liti til fiskveiða á hafsvæðum
undir fullveldi þeirra eba lög-
sögu skulu ekki leiða til, að gert
verði upp á milli aðildarríkja. —
Sérstaklega skulu aðildarríki
tryggja, ab öllum fiskiskipum
undir fána aöildarríkja og skráð-
um á landsvæðum Samfélagsins
sé búin jöfn aðstaða til aðgangs
ab og afnota af fiskimiöum til-
greindum í undanfarandi máls-
grein." (Mike Holden: The
Common Fisheries Policy, Lond-
on, 1994, bls. 19)
Markmib stefnunnar í fisk-
veiðimálum voru svo fram sett í
reglugerð nr. 101/76: „... að
stuðla ab samræmdri og alhliða
framvindu þessarar atvinnu-
greinar í allsherjar hagkerfinu
og að hvetja til skynsamlegrar
nýtingar lífrænna auðlinda
sjávar og vatna og áa (inland
waters)." — Tekiö skal fram, að
til 1994 hafa stjórnvöld EB ekki
haft afskipti af veiðum í ám og
vötnum. — ítarlegar voru
stefnumiöin tilgreind 18. des-
ember 1986 í reglugerð ráð-
herraráðsins (EEC) nr. 4028/86,
sem þau: „... að auðvelda breyt-
ingar í sjávarútvegsgeiranum að
vibmiðunum sameiginlegu fisk-
veiðistefnunnar ... með því að
veita fjárhagslega Samfélagsað-
stob til:
a) umbreytingar, endurnýj-
unar og nýtæknivæðingar fiski-
flotans;
b) eflingar fiskeldis og mörk-
unar verndaðra sjávarsvæða í
því skyni ab bæta stjórnun fiski-
miða á strandsvæðum (inshore
fishing grounds);
c) umvendinga í fiskveiðum
með útgerð leiðangra til fiski-
leitar, umhönnun (redeploy-
ment), samstarfi um útgerð og
samstarfsfyrirtækjum;
d) tilhnikun veiðigetu með
því að leggja fiskiskipum um
sinn eða endanlega;
e) fyrirgreiðslu í höfnum til að
bæta skilyrði til öflunar og
löndunar afurða;
0 leitar ab nýjum sölustööum
fyrir umframmagn af umfram-
veiddum eða vanveiddum teg-
undum og fyrir afurðir fiskeldis,
en sakir örs vaxtar þess eru tor-
merki á, að þau gangi út á mörk-
uðum Samfélagsins." ■
DAGBÓK
Fimmtudaqur
nóvember
321. dagur ársins - 44 dagar eftir.
46. vika
Sólris kl. 10.02
sólarlag kl. 16.23
Dagurinn styttist
um 7 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur,
kl. 13 í dag í Risinu.
Jólakortin afgreidd á skrif-
stofu félagsins.
21. nóv. kl. 17: Fundur í Ris-
inu.
Fundur hjá AL-ANON
Opinn afmælis- og kynning-
arfundur AL-ANON samtak-
anna verður haldinn föstudag-
inn 18. nóvember kl. 20. Þar
munu þrír félagar í AL-ANON
og einn félagi í AA-samtökun-
um koma fram og segja sögu
sína. Kaffiveitingar verða að
fundi loknum.
AL-ANON eru samtök að-
standenda alkóhólista. Nánari
upplýsingar um samtökin fást
á skrifstofu samtakanna í
Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu, s. 19282. Skrifstofan er
opin alla virka daga nema
mánudaga frá kl. 13-16.
Gjábakki, Fannborg 8,
Kópavogi
í dag: Leikfimi kl. 10.20 og
11.10. Kóræfing kl. 18.15.
Heitt á könnunni og heima-
bakað meðlæti með.
Fundur um ESB-mál
Menningar- og friðarsamtök
íslenskra kvenna halda opinn
fund um áráttuna til samruna
Evrópuríkja og þýðingu henn-
ar fyrir ísland. Yfirskrift fund-
arins er: „Evrópusambandið —
víti til varnabar". Fundurinn
er að Vatnsstíg 10 í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30.
Erindi flytja: Anna Ólafs-
dóttir Björnsson alþingiskona
og Björn Stefánsson landbún-
aðarhagfræðingur. Anna mun
meðal annars fjalla um hvaba
þýbingu Evrópubandalagið
hefur fyrir konur. Erindi
Björns heitir: „ísland sem út-
kjálki efnahagsstjórnarsvæð-
is".
Nám í Cranio-Sacral
jöfnun
Námskeið í höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðferð verður
haldið dagana 28. nóv.-4. des.
næstkomandi.
Höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferb (Cranio-Sacral
balancing) byggist á nærfær-
inni meðhöndlun á höfuð-
beina- og spjaldhryggs-kerfi.
Þetta er sú líffræðilega um-
gjörð, sem miötaugakerfið
þarf tii að geta þroskast og
haldið sér við ævina á enda.
Leiðbeinandi á námskeiöinu
verbur Heike Pfaff, „Heilp-
raktikerin" frá Þýskalandi, en
hún hefur sérhæft sig í
kennslu og meðferð á þessu
sviði.
Nánari upplýsingar um
námiö gefur Gunnar Gunnars-
son sálfræðingur.
Basar kristnibobs-
kvenna
Hinn árlegi basar Kristni-
boðsfélags kvenna í Reykjavík
verður haldinn laugardaginn
19. þ.m. í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58, og hefst kl.
14.
Á basarnum verður margt
góðra muna, ódýrar jólagjafir
og jólaskraut, einnig kökur
o.fl. Jafnframt basarnum verö-
ur kaffisala.
Basarinn er fastur liður í fjár-
söfnun kvennanna. Allur
ágóðinn rennur til starfsemi
Kristniboðssambandsins.
Þýskir höfundar lesa
upp í Þjóbleikhúskjall-
aranum
í tilefni útkomu bókarinnar
„Sögur frá Þýskalandi" eru
væntanlegir hingað til lands á
vegum Goethe- stofnunarinn-
ar þrír þýskir rithöfundar, sem
verða kynntir með upplestri
Iaugardaginn 19. nóvember.
Þetta eru þeir Gert Heidenre-
ich, forseti þýska PEN-klúbbs-
ins, Khalid AI-Maaly, pólitísk-
ur flóttamaður frá Irak, og
Franz Hodjak, sem upphaflega
kemur frá þýskumælandi
minnihlutanum í Rúmeníu.
Auk þeirra kemur annar rit-
stjóra bókarinnar, Wolfgang
Schiffer, til landsins.
Upplesturinn verbur í Þjóð-
leikhúskjallaranum kl. 14 á
laugardaginn. Höfundarnir
verða kynntir, þeir lesa brot úr
verkum sínum og svo verða
lesnar íslenskar þýðingar á
smásögum þeirra.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka (
Reykjavlktrá 11. tll 17. nóvember er I Garis apó-
tekl og Lyfjabúðlnnl lóunnl apðtekl. Þaó apótek
sem lyrr er netnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00
að kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um læknls- og
lyfjaþjónustu eru gefnar I slma 18888.
Neyóarvakt Tannlæknalélags Islands
er starfrskt um helgar og á stórhátíðum. Símsvari 681041.
Hafnarfjórður: Hafnarijarðar apðtek og Norðurbæjar apð-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiplis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apðtek og Stjörnu apötek eru opin
virka daga á opnunartima búöa. Apötekin skiptast á sina
vikuna hvort aö sinna kvök)-. nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opiö I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, 61 kl.
19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-12.00 og 20.00-
21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upplýs-
ingar eru gefnar i sima 22445.
Apótek Kcflavfkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og aimenna fridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opk) virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokaö i hádeginu miili kl. 12.30-14.00.
Selloss: Selfoss apðtek er opið til kl. 18.30. Opið er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apðtek bæjarins er opið virka daga til Id. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garóabær: Apðtekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, enlaugardagakl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. nðvember 1994.
Mánaóargrelðslur
Elli/örorkulíleyrir (grunnlifeyrir)......... 12.329
1/2 hjónalífeyrir............................11.096
Full tekjutrygging ellillfeyrisþega..........22,684
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........23.320
Heimilisuppbót...............................7,711
Sérstök heimilisuppbót........................5,304
Bamalileyrir v/1 bams...................... 10.300
Meðlagv/1 barns..............................10.300
Mæðralaun/feðralaun v/1 bams..................1.000
Mæðralaun/feðralaun v/2ja bama................5.000
Mæðralaun/feðralaun v/3ja bama eða lleiri...10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða..............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða.............11.583
Fullur ekkjulífeyrir.........................12.329
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa).................15.448
Fæðingarstyrkur.............................25.090
Vasapeningar vistmanna.......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggreiðslur
Fullir læðingardagpeningar.................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á Iramfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á Iramlæri ....142.80
GENGISSKRÁNING
16. nóvember 1994 kl. 10,51 Opinb. Kaup viðm.gengi Sala Gengi skr.fundar
Bandarfkjadollar.... 67,99 68,17 68,08
Sterlingspund 106,96 107,26 107,11
Kanadadollar 49,82 49,98 49,90
Dönsk króna 11,187 11,221 11,204
Norsk króna 9,988 10,018 10,003
Sænsk króna 9,169 9,197 9,183
Flnnskt mark 14,315 14,359 14,337
Franskur frankl 12,736 12,774 12,755
Belglskur franki 2,1254 2,1322 2,1288
Svissneskur frankl 51,96 52,12 52,04
Hollenskt gylllnl 39,01 39,13 39,07
Þýsktmark 43,74 43,86 43,80
jtölsk llra ...0,04275 0,04289 6,233 0,04282 6,223
Austurrlskur sch.„. '.6,213
Portúg. escudo 0,4285 0,4301 0,4293
Spánskur pesetl 0,5258 0,5276 0,5267
Japanskt yen 0,6897 0,6915 0,6906
irsktpund 104,86 105,20 105,03
Sárst. dráttarr 99,50 99,80 99,65
ECU-Evrópumynt... 83,33 83,59 83,46
Grlsk drakma 0,2840 0,2850 0,2845
BILALEIGA
AKUREYRAR
1 MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
i MUNIÐ ÓDÝRU
1 HELG ARP AKKAN A
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar