Tíminn - 30.11.1994, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.11.1994, Blaðsíða 4
4 Mi&vikudagur 30. nóvember 1994 wsmÉwn STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Mánaðaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu 150 kr. m/vsk. Nei Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Noregi um að- ild að ESB eru mikil tíðindi, sem marka þáttaskil í umræðunni um Evrópusamrunann. Úrslitin ættu ekki að koma á óvart. Það var ljóst að andstaðan gegn EBS í Noregi var mjög vel skipulögð og það segir sína sögu að úrslitin skyldu vera nær hin sömu og fyrir 22 árum, þegar slík atkvæðagreiðsla fór fram síðast. Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru ekki síst mikil tíðindi fyrir íslendinga. Þau marka þáttaskil í um- ræðunni hér á landi, sem hefur markast af óviss- unni um hvort öll Noröurlöndin að íslandi undan- skildu muni gerast aðilar. Nú liggur það fyrir að Norðmenn munu ekki feta í slóð Svía og Finna og standa í líkum sporum og íslendingar. Það er einnig ljóst að þessi úrslit munu hafa áhrif í Brussel. Samningar við Norðurlöndin um aðild tóku mið af því að Norðmenn yrðu þar í samfloti, og í boði voru heimildir til fiskveiða í norskri lög- sögu. Fiskveiðiþjóðir ESB sjá nú af þessum heimild- um. Enn hafa forustumenn ESB rekið sig á almenn- ingsálitið, og það hlýtur að hafa þau áhrif að áform um frekari samruna verða ígrunduð frekar og þeim sem andæfa, líkt og Bretar gera, mun vaxa ásmeg- in. Fyrir íslendinga liggur beint við nú að undirbúa viðræður um hvernig laga ber EES-samninginn að þeim breyttu aðstæðum sem upp eru komnar. Það er nú ljóst að Norðmenn þurfa að gera slíkt hið sama. Sú vinna hlýtur því að verða á dagskrá stjórnvalda á næstunni. Þá vinnu má ekki rugla með umræðum um að- ildarumsókn íslendinga. Þær umræður eru hvort sem er úti í himinblámanum, og ekki hin minnsta ástæða til þess að ætla að afstaða þjóðarinnar sé önnur en í Noregi. Utanríkisráðherra verður því að láta af þráhyggju sinni í þessu efni og forsætisráð- herra verður sömuleiðis að viðurkenna að Evrópu- málin eru á dagskrá. Tíminn hefur gagnrýnt harð- lega klofning ríkisstjórnarinnar og ráðleysi í þessu máli á síðustu mánuðum, og það er ærin ástæða til þess að hafa áhyggjur af framhaldinu, þegar við taka afar vandasamar viðræður um stöðu Islands eftir að EES-svæðið og Efta tekur breytingum. Annar meginþáttur í aðgerðum íslendinga er að styrkja norrænt samstarf í kjölfar síðustu atburða. Hagsmunir okkar og Norömanna fara saman á þessu sviði og miklu máli skiptir að eiga gott og ná- ið samstarf við þær þjóðir sem verða innan Evr- ópusambandsins. Á það skal bent að þessar að- stæður eru ekki nýjar í norrænu samstarfi. Danir hafa um langa hríð verið aðilar að Evrópubanda- laginu og nú að Evrópusambandinu. Það hindraði þá ekki í norrænu samstarfi, og það er ekki ástæða til þess að ætla að leiðir skilji með Norðurlanda- þjóðunum þótt Finnar og Svíar fari aðra leið en Norðmenn og íslendingar. Aðalatriðið er að íslensk stjórnvöld snúi sér nú fumlaust að því að bregðast við þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Óvissunni um aðild Norðurland- anna hefur verið eytt, ög það stoðar ekki lengur að skjóta sér á bak við óvissu varðandi Norðmenn og segja að Evrópumálin séu ekki á dagskrá. Ekki í fýlu Sem kunnugt er vann sr. Hjálmar Jónsson prófastur öruggan sigur á Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmda- stjóra Verslunarráðsins og sitjandi þingmanni í prókjöri um helgina. Eftir að þessi úrslit urðu ljós, bárust til landsmanna fréttir þar sem presturinn lýsti því yfir að það væri líf eftir prófkjör, en framkvæmda- stjórinn lét þau boð út ganga um heimsbyggðina að hann væri ekki í neinni sérstakri fýlu. Flestir áttu von á að við það myndi sitja, en svo er hreint ekki. Vilhjálmur, sem ekki er í fýlu, hefur nú lýst því hvernig unnið var gegn honum af samþingmanni hans, Pálma Jóns- syni, sem þó er á útleið úr þólitík. Eftir því sem Vilhjálmur segir, þá knúði Pálmi það í gegn að fram færi prófkjör í kjördæminu, í þeirri von að það tækist að bola Vil- hjálmi út úr pólitík. Kosning prestsins var aðeins einn liöurinn í þeirri pólitísku krossfestingu og nú hefur Vilhjálmur, sem ekki er í fýlu eins og fyrr var sagt, tekið sér nokk- urra daga frest til að fara yfir stöð- una og ræöa við stuðningsmenn sína. Ekki í fýlu, en samt grimmur Þó Vilhjálmur sé ekki í neinni sérstakri fýlu, þá hefur hann gefib upp nokkur sýnishorn af þeim möguleikum sem hann telur sig hafa í stöðunni. Einn er að þiggja ekki annað sætið á listanum og láta þar við sitja. Annar er að þiggja ekki annab sætið og láta stubn- ingsmenn sína ekki vinna fyrir flokkinn í kosningunum. Þribja er Vilhjálmur Egilsson. að vera ekkert að íþyngja Sjálfstæð- isflokknum með návist sinni á GARRI sama lista og bjóða þannig fram sérlista. í öllum öðrum flokkum hefðu þessi viðbrögð veriö talin til marks um það að viðkomandi stjórnmálamaður væri í bullandi fýlu — raunar í algeru fýlupo- kakasti. En hjá sjálfstæðismönnum á Noröurlandi vestra vega menn hver annan í góðsemi og kalla ekki allt ömmu sína í fýlumálum. Garri hefur hins vegar veriö að velta fyr- ir sér hver viðbrögö Vilhjálms hefðu orðið, ef hann hefði farið í fýlu. Hann hótar klofningi, þver- móðsku og sérframboði án þess að fara í fýlu út í flokkinn. Fyrir sak- lausa áhugamenn um stjórnmál er áhugaverðasta spurningin því ein- mitt um það, hverju hann myndi hóta ef hann færi í fýlu. Viihjáimur til Jóhönnu? í raun er aðeins eitt fýlupokalegra en það sem framkvæmdastjórinn hefur þegar hótað að gera. Það er að hann gangi til liðs vib Jóhönnu og Þjóðvakann, sem vitaskuld er hinn eini og sanni fýlupokaflokkur, því þar hafa prófkjörsfýlupokar allra flokka sameinast. Og úr því að Ág- úst Einarsson, Jóhanna og Jóhann- es á fóðurbílnum geta rúmast í sama flokki, er ekkert athugavert við að Vilhjálmur verði með líka. Hvað verður ofan á í þessum mál- um hjá Vilhjálmi á enn eftir að koma í ljós, þegar hann er búinn að tala betur við stuðningsmenn sína. Hitt er alveg ljóst að þó þaö kunni að vera rétt hjá prófastinum, ab það sé líf eftir prófkjör, þá er það alveg jafnljóst ab sérann er ekki lentur í neinu pólitísku himnaríki. Og ef Vilhjálmur tæki nú upp á því að fara í fýlu ofan í kaupið, þá er eins víst ab líf prófastsins eftir próf- kjör yrði hin mesta kvöl og pína. Þannig sannast það enn einu sinni og nú á sjálfstæðismönnum í Húna- þingi og Skagafirði, ab þeir sem eru síðastir munu fyrstir verða og þeir fyrstu síðastir. Samstarf og sam- heldni þingmanna Sjálfstæðis- flokksins í þessu kjördæmi er tal- andi dæmi um þau samstilltu átök sem stjórnarliöar hafa tekið þátt í á þessu kjörtímabili. Sameinaðir stöndum vér, en föllum sundraðir, segir einhvers stabar. Stjórnarlið- arnir hafa staðið sameinaðir að sundrunginni. Garri Áhugamál rábherranna Sægur af starfsfólki loft- og mynd- miðla er sífellt að yfirheyra stand- persónur um landsins gagn og nauösynjar. Þorri þessa hóps er greinilega uppteknari af sjálfum sér og fötunum frá uppgefnum tísku- verslunum en vibmælendum sín- um og þeim málefnum sem til um- ræðu eru hverju sinni. Af sjálfu leið- ir ab ekki er hlustað á persónurnar sem kallaðar eru fyrir, og þær kom- ast upp með að snúa út úr spurn- ingum og flytja einræbur um sjálf- valin efni. Guði er fyrir ab þakka ab einstaka fréttamenn myndmiðlanna eru ekki þessu marki brenndir og eru færir um að gera sjálfstæðar athuga- semdir við málflutning orbhák- anna. Ólafur E. Friðriksson á Stöð 2 er einn þeirra fréttamanna sem ekki kafna undir nafni. í fyrrakvöld átti hann tal við Jón Baldvin utanríkis- ráðherra um aðskiljanleg málefni. Þar kom talinu að utanríkisráöherra varð snefsinn, þegar honum þótti spyrjandi verða helst til nærgön- gull, og sagði eitthvað á þá leið, ab fjölmiðlamenn væru sífellt upp- teknir af smáatriðum eins og ráð- herrabílum og dagpeningagreibsl- um. Ólafur svarabi að bragði, aö það væru fyrst og fremst ráðherrar sem væru uppteknir af ráðherrabílum og dagpeningum. Þetta eru þeirra mál, en ekki fjölmiðlanna sérstak- lega. Upphafsmenn umræöunnar Þama hitti fréttamaðurinn nagl- ann á höfuðið. Ráðherrann eyddi málinu og góðir fréttamenn karpa ekki við viðmælendur sína. Ráöherrabílar og ráðherradag- peningar eru ráöherramál. Það eru þeir sem hafa búið sporslurnar til og njóta þeirra, ekki fjölmiðlamir. Allur sá asnalegi flottræfilsháttur, sem ráðamenn í fámennisríki leyfa sér, er hallærislegur og ekki í nein- um takti við upphefö þeirra eba mikilvægi. Þegar tíu manns rjúka til eftir stjórnarskipti og panta sér nýja bíla og láta svo einkabílstjóra aka Á vfóavangi sér um götur þorpa sinna, lýsir þab síst stjómvisku né eykur á viröingu hinna háu herra, hvað sem þeim kann sjálfum að finnast í sínum lág- reistu fílabeinsturnum fámennisrík- isins sem þeir þykjast stjórna. Ferðahvetjandi dagpeninga- greiðslur eru búnar til af rábherrum og embættismönnum þeirra og eru því ráðherramál, en ekki sérstök eft- irlæti fjölmiöla. Þeir sem semja og njóta Óunnin yfirvinna og ríflegir starfslokasamningar, sem særa rétt- lætiskennd alþýðu manna þegar hún kemst að hinu sanna, er sib- ferðisbrestum þeirra, sem gera samningana og njóta spillingarinn- ar, að kenna, en ekki fjölmiðlum, sem skýra frá hvernig farið er meb opinbera fjármuni, þegar upp kemst um samsærin gegn skatt- borgurum. Það eru ráðherrar og embættis- menn, sem eru uppteknir af að skapa sér aðstöbu til að mismuna sjálfum sér og sínum í hag. Fjöl- miölar eiga engan þátt í þeirri inn- hverfu samningagerð. Þegar ráðherrann beindi talinu frá ráðherrabílum og dagpeningum, benti hann fjölmiðlamönnum á að þeir skyldu snúa sér að þeim hinum stóru spillingarmálum, svo sem sjóðatilbúningi og milljarðaaustri í fallítt atvinnuvega. Sjálfur vænir hann sína gömlu vinkonu, Jóhönnu í Þjóðvaka, um að bera ábyrgð á óttalegu efnahags- ástandi og skuldasöfnun með því ab vera við völd þegar sukkið átti sér stað. En hvar var hann sjálfur, þeg- ar miklum fúlgum var veitt í sjóði og úr þeim? Ef menn vilja tala um efnahags- leg glappaskot og siðgæði ráða- manna, er rétta leibin áreibanlega ekki sú að láta einn úr þeirra hópi setja fyrir um hvað á að ræða og hvað ekki. Skólamaðurinn Jón Baldvin verbur að reyna að skilja að fjölmiðlamenn eru ekki í tímum hjá honum og hann setur þeim ekki fyrir ritgerðarefni eins og nemend- um sínum í þá sælu daga sem hann haföi ekki afskipti af kratapólitík á lands- eða heimsvísu. Ef ráðherrar væru ekki eins upp- teknir af ráðherrabílum og dagpen- ingum og raun ber vitni, myndu fjölmiðlar ekkert skipta sér af þeim málum, fremur en grófum samn- ingum um biðlaun og starfslok. Þeir, sem kvarta yfir áhuga fjöl- miðla á þessum efnum, ættu ab ab- gæta hjá hverjum siðleysið byrjar. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.