Tíminn - 14.01.1995, Síða 3
Laugardagur 14. janúar 1995
»r rtafrrn'fY
sðrliOlll iSjiu.
wffW'rww
3
Verndun fiskistofna og skynsamleg nýting er sameig-
inlegt hagsmunamál Islendinga og Kanadamanna.
Brian Tobin sjávarútvegsrábherra:
Reynsla Kanada-
manna er ö&rum
víti til varnabar
„Geri& ekki sama og vib á
me&an þi& hafiö tækifæri til
þess," voru skilaboö Brian To-
bin sjávarútvegsrá&herra
Kanada til íslenskra stjórn-
valda og hagsmunaa&ila í
sjávarútvegi á rá&stefnu um
vi&reisn þorskstofnsins á Hót-
el Sögu í gær.
í ræ&u sinni um hrun og upp-
byggingu þorskstofnsins viö
Kanada lýsti ráðherrana fjálg-
lega þeirri þróun sem leiddi til
hruns þorskstofnsins og þeirra
gríðarlegu áhrifa sem það hefur
haft á þá fjölmörgu sem eiga
allt sitt undir veiðum og
vinnslu sjávarafurða. En eins
og kunnugt er talið að samverk-
andi þættir ofveiði og umhverf-
isbreytinga hafi valdið því aö
þorskstofninn hrundi. Af þeim
sökum hefur verið sett algjört
bann við þorskveiöum í því
skyni að hægt verði að byggja
stofninn upp að nýju.
Margt af því sem ráðherrann
sagði um reynslu Kanada-
manna og þróun mála hljóm-
aði heldur kunnugleika í eyrum
ráðstefnugesta. Á sama tíma og
hjáróma raddir vöruðu við of-
veiði og hnignandi stofni voru
aðrir sem töldu aö nóg af fiski
væri í sjónum og ekkert vit væri
í málflutningi fiskifræðinga.
Þrýstingur frá skammsýnum en
voldugum hagsmunaðilum
réöu ferð stjórnvalda sem
höfðu hvorki þrek né þor til aö
takast á við vandann fyrr en
það var orðið of seint.
Kanadíski ráðherrann lagði
ennfremur áherslu á nauösyn
þess aö alþjóðlegir samningar
tækjust um veiðar fyrir utan
200 mílna lögsögu strandríkja
og gaf ófagra mynd af rányrkju
verksmiðjuskipa og þá einkum
Spánverja og Portúgala fyrir ut-
an kanadísku landhelgismörk-
in. Sömuleiðis fengu útgerðir
hentifánaskipa það óþvegið frá
ráðherranum.
Ráðherrann lagði mikið upp
úr samvinnu við íslendinga á
úthafsveiðiráðstefnu Samein-
uöu þjóðanna og þeirri forystu
og reynslu sem íslendingar
hafa á sviði sjávarútvegsmála.
Hann sagði að þjóðirnar ættu
sameiginlegra hagsmuna að
gæta um skynsamlega nýtingu
fiskistofna og lagði ríka áherslu
á sjónarmið strandríkja í þeim
efnum.
Á blaðamannafundi að af-
loknu erindi sínu á ráðstefn-
unni sagði kanadíski ráðherr-
ann að það hefði aldrei verið
ætlunin að blanda sér í deilur
Norðmanna og íslendinga með
viðurkenningu þeirra á yfirráð-
um Norðmanna á Svalbarða-
barðasvæðinu. Hinsvegar væri
þarna um að ræða samning um
gagnkvæmt eftirlit með fisk-
veiðum, auk þess sem Kanada-
menn væru sjálfir aðilar að
Svalbarða- samkomulaginu. Af
þeim sökum bæri aö líta á
samninginn fyrst og fremst út
frá hagsmunum Kanada-
manna. ■
Einar Oddur Kristjánsson frá Fiateyri, Arnar Sigurmundsson formaöur Samtaka fiskvinnslustööva og Gunnar
Tómasson frá Grindavík hlustuöu af áhuga á erindi Brians Tobin sjávarútvegsráöherra Kanada. Tímamynd: cs
Hagsmunaaöilar í sjávarútvegi fjölmenntu á ráöstefnu um viöreisn þorskstofnsins
á Hótel Sögu:
Rætt um nýja nýtingar-
stefnu til langs tíma
„Vi& getum e&lilega lært af öllum
upplýsingum sem vi& fáum og
þa& er alveg óhætt fyrir okkur a&
fara varlega og ekki ana a& neinu.
Þetta er kannski spuming um
staöfestu og stjómun. Mi&a& vi&
umfang sjávarútvegs þá er þa&
spuming hvort ekki þurfi a&
koma til vemleg aukning á fram-
lögum til rannsóknarstarfa," seg-
ir Róbert Gu&finnsson fram-
kvæmdastjóri Þormó&s ramma
hf. á Siglufir&i.
Fjölmenni var í Súlnasal Hótel
Sögu í gær á ráðstefnu sjávarútvegs-
ráðuneytisins um viðreisn þorsk-
stofnsins. Alls voru um 200 manns
á ráðstefnunni og nokkrir skráðu
sig á biðlista í von um aö fá inni ef
einhverjir mundu forfallast. Af ráö-
herrum ríkisstjórnar mætti aðeins
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra en aðrir sem ætluðu að mæta
hættu við í mótmælaskyni viö við-
urkenningu Kanada á forræði Norð-
manna á Svalbarðasvæðinu. Sömu-
leiöis mættu fáir þingmenn á ráö-
stefnuna. Þaö vakti hinsvegar at-
hygli að meöal ræðumanna var
enginn líffræðingur en aftur á móti
einn hagfræðingur, tölfræðingur og
stærðfræðingur. f pallborðsumræð-
um í lok ráðstefnunnar sat þó einn
sjávarlíffræöingur frá Hafró.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði að upphaflega heföi
verið ætlunin að takmarka fjölda
ráðstefnugesta við 80-100 manns
en fljótlega hefði komið í ljós aö
áhuginn var mjög mikill, eða tvö-
falt meiri en reiknað hafði verið
með. Hann sagðist vera mjög
ánægður með þennan mikla áhuga
sem umræðuefni ráðstefnunnar
hefði meðal hagsmunaðila í sjávar-
útvegi.
Ráðherra sagði að þetta væri í
fyrsta skipti sem efnt væri til al-
mennra umræða og skoðanaskipta
um viðreisn þorskstofnsins meö
það markmið í huga að skapa
grundvöll fyrir stefnumótun um
skynsamlega nýtingarstefnu meö
langtímahagsmuni að leiðarljósi.
En vinnuhópur á vegum Hafró og
Þjóðhagsstofnunar lagði til sl. vor
að fylgt verði fyrirfram ákveðnum
aflareglum um nýtingu fiskistofna í
því skyni að halda þeim í þeirri
stærð að þeir gefi hámarksafrakstur.
Til að svo geti orðið lagði hópurinn
til að ekki yrði veitt meira en 22%
af veiðistofni þorsks, eöa 130 þús-
und tonn á yfirstandandi fisk-
veiðiári.
Þorsteinn segir það mjög mikil-
vægt að menn komi sér saman um
einhverja grundvallarreglu þar sem
menn væru sannfæröir um að ná
settu marki.
„En eyðum ekki öllum þessum
tíma á hverju ári í ab deila um
heildaraflamagnib, sem hefur ekki
skilað árangri. Þetta er tilraun til að
ræba hvort við getum tekið á mál-
unum með nýjum hætti," sagði
sjávarútvesgráðherra. ■
Mótmœlaályktanir gegn tilvísanakerfi streyma frá félögum lœknasérfrœbinga:
Telja óstarfandi
vib tilvísanakerfi
Hagsmunir og abstaba listamanna í Reykjavík:
Borgarstjóri
me& málþing
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, hefur bo&að til
tveggja málþinga um menn-
ingarmál og stefnu borgaryfir-
valda í þeim málaflokki. Fyrra
málþingiö er í dag og hefst kl.
10.
í dag verður fjallað um hags-
muni og aðstöðu listamanna í
Reykjavík, en á síöara mál-
þinginuþann 18. febrúarverð-
ur fjallað um list- og menning-
armiðlun í Reykjavík. Mál-
þingiö er öllum opið. ■
Mótmælaályktanir gegn fyrir-
hugu&u tilvísanakerfi, sem sam-
þykktar eru á félagsfundum
læknasérfræ&inga, streyma nú
til fjölmi&la. „Islenskir barna-
læknar munu ekki treysta sér til
að starfa samkvæmt samning-
um við Tryggingastofnun ríkis-
ins ver&i tilvísanir teknar upp,"
segir m.a. í ályktun Félags
barnalækna.
Þvagfæraskurðlæknar telja sér
ekki fært að starfa viö þær kring-
umstæöur sem skapast verði til-
vísanaskyldu komiö á. Geðlækna-
félagið boðar ekki uppsögn, en
mótmælir áformun um tilvísana-
skyldu harðlega og skorar á heil-
brigðisráðherra að hrinda ekki í
framkvæmd breytingum sem
leiða munu til verri heilbrigðis-
þjónustu. Síðastnefnda ályktunin
fellur líklega í góðan jarðveg hjá
heilbrigðisráðherra, því að hans
sögn er markmið tilvísanakerfis-
ins fyrst og fremst falið í því aö
bæta heilbrigbisþjónustuna, meb
auknum upplýsingum og sam-
skiptum lækna. Væntanlegur pen-
ingasparnaöur verði eins konar
aukabónus. Heilbrigöisráðherra
upplýsti að Tryggingastofnun hafi
ekki borist neinar uppsagnir frá
sérfræbingum enn sem komið er.
„Tilvísanaskylda leiðir einungis
til skertrar þjónustu viö sjúklinga
og með kerfi þessu er vegið aö
eðlilegu valfrelsi fólks," segir m.a.
Fjöldi
Fjöldi starfandi sérfraðinga með samning við TR
Áriö 1990 haföi fjöldi sérfroeöinga meö samning viö Tryggingastofnun
nœrri þrefaldast á 15 árum, úr rúmlega 120 í nœrri 360. Heilbrigöis-
skýrslur landlœknisembcettisins sýna einnig aö komum á stofur sérfrœö-
inga fjölgaöi yfir fjóröung frá 1986—1990, í 390.000 manns. Sjúklingum
fjölgaöi þannig nokkru meira en sérfrœöingunum, sem samkvæmt stöpla-
ritinu hefur fjölgaö innan viö 20% umrædd 4 ár.
í ályktun þvagfæraskurðlækna.
Varöandi valfrelsið benda ráðu-
neytismenn á, að tilvísanir heim-
ilis- og heilsugæslulækna eru ein-
ungis stílaðar á ákveðna sérgrein,
en alls ekki á ákveöinn sérfræð-
ing. Sjúklingurinn velji sér áfram
sérfræbing. Jafnfrmat taka þeir
fram ab tilvísun gildi í ákvebinn
tíma, einhverja mánuði og jafnvel
allt upp í eitt ár þegar um er að
ræða fólk með króníska sjúk-
dóma.
Barnalæknar álíta aö með tilvís-
anaskyldu sé stigib stórt skref aft-
ur á bak í heilbrigðisþjónustu
landsmanna. Sú hætta skapist aö
sjúklingar leiti ekki læknis í tæka
tíb. Fjárhagslegur sparnaöur sé á
hinn bóginn vafasamur. ■