Tíminn - 14.01.1995, Side 18

Tíminn - 14.01.1995, Side 18
18 Laugardagur 14. janúar 1995 Hulda Höllustööum Fædd 21. ágúst 1908 Dáin 9. janúar 1995 Hulda Pálsdóttir fæddist á Guölaugsstööum í Blöndudal 21. ágúst 1908. Hún lést á Hér- aössjúkrahúsinu á Blönduósi 9. janúar 1995. Foreldrar hennar voru Páll Hannesson, bóndi á Guölaugs- stööum, og kona hans, Guörún Björnsdóttir. Systkini Huldu eru: Hannes bóndi á Undirfelli, síðar stjórn- arráðsfulltrúi í Reykjavrk (lát- inn), Bergur (lést ungur), Björn, alþingismaöur og bóndi á Löngumýri, Guömundur, bóndi á Guðlaugsstöðum (lát- inn), Halldór búnaðarmála- stjóri (látinn) og Árdís, hár- greiðslukona í Reykjavík (látin). Hulda giftist Pétri Péturssyni frá Steiná í Svartadal 2. júní 1933. Þau reistu bú á Höllu- stöðum í Blöndudal og bjuggu þar upp frá því. Pétur lést 1977. Börn þeirra eru: Páll, alþingis- maður og bóndi á Höllustöð- um, Már, dómari í Hafnarfirði, Hanna Dóra, kennari í Kópa- vogi, og Pétur, læknir á Akur- eyri. Útför hennar verður gerð frá Svínavatnskirkju í dag, laugar- dag 14. janúar, kl. 11. Við brotthvarf ástvinar kemst rót á hugann þó viðkomandi hafi í langan tíma undirbúið og rætt brottför sína frá þessu lífi af mikilli yfirvegun og íhugun eins og afasystur minni, Huldu Pálsdóttur húsmóður á Höllu- stöðum, var lagið. Hulda frænka mín verður kvödd í dag, laugardaginn 14. janúar, 86 ára að aldri og vil ég þakka henni þann vinskap og umhyggju sem hún sýndi mér. Það var mikil gæfa að fá að njóta samvista við hana. Mig langar að minnast hennar í nokkmm oröum þó erfitt sé að finna orð við hæfi þegar um svo merka konu er að ræða. Einkum veldur það hugarangri að líklega hefði hún lítið verið hrifin af slíku uppátæki vegna hógværðar sinnar. Hún var lítið fyrir að ræða um sig og sína hagi en fyrir öðrum bar hún mikla umhyggju. Fylgdist hún jafnan vel með og lagði fram mikla aðstoð í orði og verki. Hjá Huldu var aldrei komið að tómum kofunum. Alltaf fór maður léttur í lund og mikið fróðari frá henni. Minnisstæö er síðasta heimsóknin til henn- ar á sjúkrahúsið á Blönduósi í nóvember, þar sem hún dvaldi síðustu mánuðina. Þá fjallaði hún um heima og geyma, þetta líf og annaö líf, af sama áhuga og ævinlega og gerði að gamni sínu, þó þrekið væri farið að dvína. Það var erfitt að gæta þess að heimsóknirnar yrbu ekki of langar, því tíminn var alltaf of stuttur þegar frænka var komin á fljúgandi ferð. Hún var fljúgandi mælsk og virtist hafa áhuga og skoðun á flestu því sem snertir lífib og tilveruna. Það var verst hve langt í burtu hún var, en úr því leysti hún eins og öllu öbru. Hún skrifaöi bréf og notaði sí- mann. Skriftir voru henni mjög eölilegar eins og allt sem hún tók sér fyrir hendur. Eg minnist þess að bréfin frá Huldu frænku voru opnuð með vissri viöhöfn og eftir- væntingu. í þeim gat maður búist vib nákvæmri og hápólit- ískri þjóðmálalýsingu, fréttum Sigurrós Pálsdóttir t MINNING af ættingjum, dýrunum og gróbri, og jafnvel ljóði. Ég minnist Huldu fyrst þegar hún var um fimmtugt. Hún var gift móðurbróður mínum, Pétri Péturssyni, og bjuggu þau á Höllustööum í Blöndudal. Þau tóku mig sem sumarbarn 10 ára gamla og dvaldi ég hjá þeim næstu sumur í góðu atlæti. Þessi dvöl er mér mjög dýrmæt og eftir því dýrmætari sem lengra frá líður. Þau hjón voru merkishjón, ólík að upplagi og miklum mannkostum gædd. Þau eignuðust fjögur börn sem öll luku námi frá Menntaskól- anum á Akureyri. Sá skóli var henni alltaf ofarlega í huga. Þaðan lauk hún gagnfræðaprófi á uppvaxtarárum sínum og nefndi hún oft Gagnfræðaskól- ann á Akureyri. Læddist stund- um að manni sá grunur ab hún hefbi gengið menntaveginn ef tækiffceri hefði gefist og tíbar- andinn verið annar. Fjöldi barna og unglinga dvöldu hjá þeim hjónum á sumrin og sum einnig að vetrinum en sjaldnast nema eitt eða tvö í einu. Hulda var húsmóbirin og brá sér sjaldan af bæ eins og títt var um húsmæður til sveita. Hún var fasti punkturinn sem alltaf var til staðar og það var sjálf- sagt. Hún vann eins og allir hörðum höndum en aldrei með hamagangi. Oft undraðist ég hvað hún komst yfir. Fyrir utan alla vinnuna vib heimilið saumaði hún mikið og prjónaði og einhvern fímann hlaut hún að lesa þann fróðleik sem hún miðlaði til annarra. Ab kenna var henni eðlilegt. Hún var kennari um tíma áður en hún giftist og eftir þab nutu allir þeir sem á Höllustöðum voru þessara hæfileika hennar, hvort sem það var til bóklegs eða verklegs náms. Það var meb ólíkindum hvernig hún fór að þessu. Áður en maður vissi var hægt að prjóna hæla og þumla án þess að finna fyrir tilsögn. í sláturstíðinni fékk maður verk í hendur, eitt og eitt í einu, en aldrei þab sama. Að lokum var maöur fullnuma og gat tekiö slátur við frumstæð skilyrði og Hulda víðsfjarri í öðru landi. Hún skynjabi vel hvenær nóg var komið og skildi að stundum var stutt í þolinmæði unga fólksins. Hún talaði við okkur eins og jafningja af hreinskilni og alúð. Hún var ráðagóð og hafði gott lag á okkur. Minningin um Huldu veröur margbrotin. í mínum huga var hún fyrst og fremst hógvær, natin, rökföst og skemmtileg. Hún hafði ríka réttlætiskennd og hugsaði málin vel og hafði gild rök fyrir öllu sem hún hélt fram. Hún bar mikla virðingu fyrir náttúrunni og þótti mjög miöur þegar nærri henni var gengið í landinu sem hún þekkti best. Hún var sanngjarn umhverfissinni og mat mjög frelsi og sjálfstæöi þjóðarinnar. Síbustu árin var hún mikill andstæðingur Evrópuveldisins og fylgdist vel með gangi þeirra mála eins og reyndar öllu öðru sem sneri að velferð fólks. Hún var margfrób um íslenska þjóð- hætti og óspör ab segja frá lifn- aðarháttum fyrri tíma. Til allrar -gæfu náðist að skrifa eitthvað af því niður. Mikið dálæti hafði hún á Hannesi afa sínum á Eið- stöbum og vitnaði oft í hann þegar við spjölluðum um lifn- aðarhætti fyrri tíma. Á síðari hluta ævinnar fór lík- amleg heilsa hennar ab bresta. Hún fékk bót á sumu en öðru lifði hún með án þess að kveinka sér. Hún lærbi aö vél- rita á fullorðinsárum til að hafa eitthvað að gera, að eigin sögn, þegar hún hætti að geta saum- að og lesið vegna sjónleysis. Þrátt fyrir stöðugt versnandi sjón gat hún að mestu prjónað og lesið fram undir það síðasta. Hún mat það mikils aö geta verið að gagni og síðustu árin undi hún sér vel heima á Höllustöðum og hafbi mikið dálæti á langömmubörnunum sínum sem koma til með að sakna langömmu eins og við öll sem hana þekktum. Við sem eldri erum varðveitum ljúfar minningar um ömmu, mömmu, frænku og traustan vin um ókomna tíð. Þóratma Pálsdóttir Hulda Pálsdóttir á Höllustöb- um er dáin og það grúfa þung- búin saknaðarský yfir Blöndu- dal þessa myrku skammdegis- daga. Hún er horfin af sjónar- sviðinu, konan sem bjó börn- um sínum það vegarnesti og leiðarhnoba sem best mun end- ast og lengst. Konan sem með víðsýni sinni, mannkostum og réttsýni gerði alla ab betri mönnum sem til hennar þekktu og á fund hennar leit- uöu. Hún hafði það einstaka lag með glettnum húmor og skyggnri mannþekkingu að lyfta allri umræðu á hærra stig og glæða hugsun hennar lífi og íhygli. Ljób góbskáldanna voru henni töm á tungu og tilvitn- anir í þau litubu orðræöuna myndauðgi. Hún var vitur kona og góðgjörn. Þrátt fyrir það að hún gerði ekki víðreist á veraldarvísu þá aflaði hún sér þeirrar þekkingar með lestri góbra bóka og menningarlegu líferni ab hún sá um heim all- an. Hún ólst upp á Guölaugs- stöðum, ein af þeim þjóðkunnu og merku systkinum, og bjó á næsta bæ, Höllustöðum, sem húsmóðir og eiginkona Péturs Péturssonar bónda þar, allan sinn langa og afkastamikla starfsdag, að undanskildri skólagöngu og kennslustörfum um tíma að henni lokinni. Það var reyndar ekki ætlunin meb þessum línum að rekja ættir og ártöl. Það munu aðrir mér fróð- ari gera. Ég get abeins ekki látiö hjá líða að flytja henni Huldu grannkonu minni hjartans þökk að skilnaði fyrir löng og gób kynni, öll löngu og upp- byggilegu símtölin og rökræð- urnar um alla heima og geima. Því þótt nú á dögum sé ekki orðið tíðförult á milli bæja ab erindisleysu, og Blöndudalur sé þar ekki undantekning, þá slitnaði aldrei þráðurinn við Huldu á Höllustöðum. Hennar hlýja og velvild spurði ekki um fjarlægðir. Ég á eftir að horfa oft yfir ána og minnast hennar meö virðingu og þökk. Og sakna hennar alltaf. Ættingjum hennar öllum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guðríður B. Helgadóttir, Austurhlíð Vorið 1947 var ég ráöin til hjónanna á Höllustöðum í Blöndudal, þeirra Huldu Páls- dóttur og Péturs Péturssonar, og átti að annast þar barna- gæslu og snúninga um sumar- ið. Ég hafði mikiö heyrt talab um Blöndudalinn, og þá sér í lagi Guðlaugsstaði, ættaróbalið, þar sem sama ættin hafði setið svo öldum skipti. Móðir mín, Anna Guö- mundsdóttir, og Hulda voru bræðradætur. Faðir Huldu, Páll Hannesson, bjó lengst af sínum búskap á Guðlaugsstöðum, sem var annálað menningarheimili og bjó hann þar enn, aldraður höfðingi, þegar ég kom í dal- inn, en afi minn, Guðmundur, hafði látist árinu áður. Milli bræðranna frá Guðlaugsstöð- um, Páls bónda og Guðmundar Hannessonar prófessors, var afar náið og innilegt samband. Þeir skrifuöust á alla ævi og hafa mörg bréf þeirra varðveist. Ég hafði aldrei áður farib að heiman og var hálfkvíðin fyrir ferðalaginu og sumrinu. Hélt ég nú með áætlunarbílnum sem leið lá norður á Blönduós. Þar hitti ég Pétur bónda. Hann hafði ekið Svínvetningabraut- ina á jeppa til að sækja mig. Tæplega held ég að sá vegur þætti ökufær nú á dögum. Vib tókumst öðru hverju á loft í jeppanum, rákumst upp í þakið og hristumst til og frá. Brúin yfir Blöndu hafbi ekki verib byggð á þessum tíma, en vegur- inn hinum megin Blöndu og Svartár, sem lá fram Langadal- inn, var þó stórum skárri en Svínvetningabrautin, enda þjóðvegur. En sá böggull fylgdi skammrifi ab hefði ég haldið á- fram með áætlunarbílnum fram Langadalinn, hefbi ég ein- hvern veginn orðiö að fá far að kláfnum og fara í honum yfir Blöndu. Öðruvísi var ekki unnt að komast yfir ána. Ég var nú heldur fegin að þurfa ekki að standa í slíkum stórræbum, enda bæöi kjarklítil og loft- hrædd. Komið var myrkur þegar við náðum á áfangastað. Húsmóð- irin Hulda stóð í dyrunum, al- varleg en viömótshlý. Mér leist strax vel á hana og börnin fjög- ur, þrjá drengi og eina stúlku, öll björt yfirlitum og upplits- djörf. Sérstaklega leist mér vel á Pétur litla, sem ég átti að gæta, rólegan hnokka og yfirvegað- an. Hann sagði fátt framan af, en þeim mun gáfulegra fannst mér þab sem hann sagði. Þá var iðulega á bænum í fóstri Páll Hannesson, systursonur Huldu, sonur Árdísar Pálsdótt- ur, ýmist með móður sinni eða einn. Hann var ári eldri en Pét- ur litli. Sumrin mín á Höllustöðum urðu þrjú. Hulda og Pétur voru góðir húsbændur og frábærir uppalendur. Þau voru vinnu- söm, en ætíð hlý og nærgætin við börn, fulloröna og dýr. Pét- ur var eitt mesta ljúfmenni sem ég hef kynnst, jafnframt því að vera ótrúlegur vinnuþjarkur. Stórar landspildur voru ruddar og þeim breytt í ræktað land þessi ár sem ég var þarna. Eldri drengirnir fóru snemma að hjálpa til. Pétur var ósérhlífinn með afbrigðum og á hann hlóðust einnig trúnaðarstörf í sveitarfélaginu. Hann var með- al annars lengi hreppstjóri. Þegar Pétur litli fór að veröa fær í flestan sjó varð ég smám saman að fullgildri kaupakonu og voru mér nú falin ýmis verk- efni. En engin sem voru mér of- viða. Þess var gætt. En lífið á Höllustöbum var ekki alltaf vinna. Á sólbjörtum sunnudögum var lagt á góða gæðinga Höllustaðaheimilisins, haldið til kirkju að Svínavatni eöa Auðkúlu, ribið fram í Guð- laugsstaði eða í Eiðsstaði og þegnar góðgerðir, smalað og farið í réttir. Þetta urðu kaup- staðarbarninu ógleymanlegar ævintýraferðir. Eg ætlaði mér síðan lengi vel ab eignast hest eða hesta. Mér fannst hestur- inn vera konungur dýranna. Húsmóðirin Hulda varð mér, unglingnum, ráðgáta. Ég hafði aldrei kynnst svona konu. Hún gat allt, gerði allt, kom mjólk í mat og ull í fat, milli þess sem hún hugleiddi eilífð- armálin. Hún gaf sér líka góð- an tíma til þess að tala við börnin. Hún vitnaði óspart í þjóðskáldin og fylgdist með öllum þjóðþrifamálum og menningarstraumum. Hún hafði stundað nám við Menntaskólann á Akureyri og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Hugur hennar hefði sannar- lega staðið til frekara náms og hún nýtti sinn tíma áreiðan- lega betur en flestir. Árum saman stóð hún í bréfaskrift- um við ýmsa sem hún hafði kynnst á námsárum sínum, þar á meðal skólameistara- hjónin á Akureyri. Ekkert strit eða erfiði gat bælt fróðleiks- fýsn hennar né ótakmarkaðan áhuga á skáldskap, þjóðlegum fróðleik og öðrum andlegum verðmætum. Hún var ákaflega vel ritfær og eftir hana liggja margar afar merkar greinar um menn og margvísleg málefni. Árið 1959 vildi svo skemmti- lega til að Hulda var stödd í Reykjavík þegar við Stefán Her- mannson héldum brúðkaup okkar. Var hún að sjálfsögðu heibursgestur. Ýmsir vinir föð- ur míns voru þar viðstaddir (hann hafði látist árið 1957), þar á meðal Páll ísólfsson, Níels Dungal prófessor og fleiri. Dungal hafði þá nýverið lokið við að skrifa bók um trúmál sem heitir Blekking og þekking. Þau Hulda áttu langt samtal. Fólk tók til þess hve Hulda haföi margt til málanna að leggja, fylgdi sínum skoðunum fast fram og gaf hvergi eftir. Árið 1975 urðum við hjónin fyrir þeirri sorg að missa einka- dóttur okkar 10 ára gamla meö sviplegum hætti. Skömmu síðar barst mér bréf frá Huldu frænku minni, sem mér var á- kaflega mikils virði að fá og hef æ síðan haft einhvers staðar ná- lægt mér. Upphaf bréfsins er á þessa leiö: „Bestu þakkir fyrir síðast. Mig langar til að skrifa þér, en veit þó að eflaust get ég ekkert sagt við þig, sem þú ekki þegar veist og hefir gert þér ljóst. En hvíta blaðið, sem ber boð milli sálna, er þó alltaf dálítib lífsmark, og oftast velkomiö. Ég held að eitthvert jákvætt svar sé til við öllu, sem viö mætum eða reynum á lífsleið- inni; en stundum er djúpt á því. Kannast þú ekki við kvæbi

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.