Tíminn - 19.01.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.01.1995, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 19. janúar 1995 Slotiiiði 3 Stefán Dan Oskarsson, sjálfboöaliöi í björgunar- starfinuí Súöavík: Aökoman var alveg rosaleg „Þetta var alveg rosaleg aö- koma og ekki hægt ab lýsa því. Þab var þreifandi bylur og skyggni ekki neitt. Vib vorum lóbsabir beint frá bryggju og inní Frosta. Þaban fórum vib fimm út í einu meb píptæki og alltaf meb einn kunnugan meb. Þab var svo blint ab menn gátu villst um leib og þeir komu út úr frystihúsinu," segir ísfirbingurinn Stefán Dan Óskarsson, sjálfbobalibi vib björgunarstarfib í Súbavík. Þegar hópurinn sem Stefán var í kom í frystihúsiö í Súöavík um miðbik mánudagsins voru þar fyrir björgunarsveitir og íbúar Súbavíkur sem síðan var siglt meb inn til ísafjarðar. Nokkru eftir ab þeir komu fór rafmagniö af húsinu og þá strax hefði orðið kalt þar innandyra. Rafmagnsleysiö varði þó ekki lengi og var rafmagn fengiö úr Kofranum auk þess sem dísel- vélar voru keyrbar. „Þarna voru framkvæmdir al- veg ótrúlegir hlutir," segir Stef- án. Áöur en lagt var af stab til leitar frá frystihúsinu fengu þeir uppdrátt af svæöinu og viö- komandi húsum þar sem vitaö var aö fólk væri. Hver leitarstaö- ur var skýrt afmarkaöur og var engum leitarhóp hleypt út fyrr Óvenjuleg snjóalög Strandamegin í Hrútafiröi, þriggja metra skaflar og snjóskriöur þar sem þeirra var ekki aö vœnta. Hrossahóp bjargaö: Hryssa kafnar í snjó Allt ab þriggja metra háir og afar langir snjóskaflar teppa Hólmavíkurveg þessa dagana. Hilmar Guömundsson, bóndi á Kollsá í Hrútafiröi, hefur aö- stoöaö Hannes son sinn sem sér um aö ryöja veginn á vegum Vegageröar ríkisins. Hilmar sagöi ófæröina á Hólmavíkur- vegi mikla og væri hann tepptur víöa. Byrjaö var aö ryöja skriöuna í Bitrunni á þriöjudagsmorgun, en hætta varö verkinu, þar sem í snjónum var mikiö af giröing- um sem borist höföu meö skriö- unni og heföu víraflækjurnar getaö eyöilagt snjóblásarann. Þarna hefur ekki falliö skriöa fyrr aö sögn elstu manna í Bæj- arhreppi. Hilmar sagöi aö snjór- inn legöist allt ööru vísi nú en venjan er. í Guölaugsvík drapst hryssa í snjónum þar sem hún var í hópi hrossa. Bændur sóttu hrossin þar sem þau voru á sléttum mel- um. Hilmar Guðmundsson sagði aö snjódýptin á þessum slóðum hefði veriö meö ein- dæmum og kannaöist enginn viö aö svona mikið heföi fennt á þessum slóöum fyrr. Hann sagöi aö hrossin hefðu líklega staðið þarna þegar veöriö versnaði og þegar snjórinn var kominn í kviö á hestunum hafi tveir þeirra gefist upp og snjór skafið yfir þá. Bændunum tókst aö ná upp öörum hesti sem haföi lagst. Hann var illa haldinn, en hin hrossin voru ofan á skaflinum og höföu troöið undir sig. ■ en annar var kominn inn og bú- inn aö skila af sér píptækinu. Leitarljós var fengiö frá bensínr- afstöðvum sem menn fylltu á eftir þörfum. „Bylurinn var svo mikill að menn urðu aö halda hver í ann- an. Þegar viö vorum að reyna aö ganga þarna uppeftir var snjór- inn sumstaðar alveg uppundir hendur og þess á milli datt maður niður í gjótu á auða jörð- ina." Stefán segir aö brak úr húsunum hafi verið þarna út um allt og bílar eins „harm- onikkur", auk þess sem hætta var á frekari snjóflóöum. Við leit í hverju brakinu fyrir sig þurftu björgunarmenn að moka sig niður í gegnum snjó- flóðið meö handskóflum. Þá auöveldaði þaö leitarmönnum ekki verkiö aö þeir gátu ekki notast viö gröfu við að hreinsa burt þann snjó sem þeir höfðu mokað aftur fyrir sig, sem einatt var tvær til þrjár mannhæöir aö stærö. Af þeim sökum uröu þeir aö tví- eöa þrímoka snjóinn í hvert sinn. Þar fyrir utan rugl- uðust leitarhundar á eldhúsi, ís- skápum og ööru og því þurftu leitarmenn að grafa sig niður á jafnvel fjórum eða fimm stöö- um í braki þar sem kom til greina að fólk væri aö finna. ■ j* k' • • ................- « i.. '.. . ■ A Talsverö ófœrb var í Húsahverfi í Crafarvogi og þurfti aö aöstoöa þar nokkurn fjölda ökumanna, en aftakaveöur var í efri byggöum Reykjavíkur ígcer. Ekki hlutust þó meiriháttar óhöpp vegna vebursins. Óveöur á höfuöborgarsvœöinu: Fjöldi ökumanna í vand- ræöum og þakplötur fuku Þrátt fyrir slæmt vebur á Sub- Vesturhorni landsins í gær var ekki mikib um óhöpp á höf- ubborgarsvæbinu. Þó varb eitt alvarlegt umferbarslys og lög- regla og björgunarsveitir urbu ab abstoba fjölda fólks sem lentu í vandræbum í efri byggbum Reykjavíkur og í Mosfellsbæ. Um kl. 13.00 í gær var til- kynnt um alvarlegt umferðar- slys á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Þar var fólks- bifreið ekiö af Háaleitisbraut í veg fyrir strætisvagn, sem þeim afleiðingum að kalla þurfti til tækjabifreið slökkviliðsins til aö ná ökumanninum út úr bifreiö- inni. Hann var einn í bílnum og var hann fluttur, alvarlega slas- aöur að taliö var, á slysadeild Borgarspítalans. Veðriö í gær varö hvað verst í Mosfellsbæ, í Grafarvogi og í Seláshverfi. Samkvæmt upplýs- ingum lögreglu voru um sextíu björgunarsveitarmenn, á sex bílum, viö störf á höfuðborgar- svæöinu í gær, auk fullmannaðs lögregluliðs og unnu þessar hópar við aö aðstoða vegfarend- ur. Alls þurfti aö aðstoöa um 50 ökumenn sem sátu fastir á Vest- urlandsvegi í Mosfellsbæ og þá átti talsverður fjöldi ökumanna í vandræöum í Húsa- og Rima- hverfi í Grafarvogi. Þakplötur tóku aö fjúka af húsum, en þær ullu aö sögn lögreglu engum meiðslum og ekki miklu tjóni. Aöstoða varö skólabörn í Mos- fellsbæ við aö komast til sinna heima vegna veðursins í gær og gekk það að óskum. Slökkvilið stóö einnig í ströngu vegna veðurs, sérstak- lega áður en björgunarsveitar urðu fullmannaðar. Nokkur út- köll voru vegna lausra þak- platna og opinna glugga, auk þess sem eitthvaö var um að brunavarnakerfi færu í gang vegna veðursins. Þegar fjölga tók í liði björgunarsveitar- manna róaðist heldur hjá slökkviliöi. Rúða brotnaði í húsnæði heilsdagsskóla Austurbæjar- skóla, en ekki uröu slys á börn- um. Sprunga var fyrir í rúöunni, en glerbrotin fóru aðeins yfir þar sem verið var að smyrja brauö. Henda varö brauöinu. Um miöjan dag í gær fór neyðarsendir í gang í dæluskip- inu Sóley, sem lá við bryggju í Reykjavíkurhöfn og urðu m.a. flugvélar á leið yfir landið varar við merki frá sendinum. Þá bár- ust boðin einnig til gervitungla, sem auöveldaöi mjög staðsetn- ingu sendisins. Farið var um borð í skipið og slökkt var á sendinum. Auk þess sem getið er hér aö framan var ófært um flesta vegi Vestanlands, allt frá Hvalfirði og vestur á firöi. ■ Fjármálastjóri Ríkisútvarpsins sáttur viö lausn á fjármögnun nýs langbylgjusendis: Langbylgjan kemst í lag Nýr 300 kW langbylgjusendir veröur keyptur fyrir Rikisút- varpib. Ríkisútvarpib leggur fram 100 milljónir króna sem teknar verba úr framkvæmda- sjóbi RUV, en ríkisstjórnin afl- ar heimilda til þess ab taka lán fyrir tæpum 200 milljónum sem er afgangur kaupverbs. Gert er ráö fyrir aö lán ríkis- sjóbsins verði endurgreitt á næstu fimm árum. Þetta var niö- urstaðan af fundi Ólafs G. Ein- arssonar, menntamálaráðherra, og Davíðs Oddssonar, starfandi fjármálaráöherra í gær. Fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins, Hörbur Vilhjálmsson, segist fyrir sitt leyti ánægður meö þessa lausn. Fyrir hefur legiö um nokkurn tíma að langbylgjusendingar RUV hafa verið ófullnægjandi, en sendirinn á Vatnsenda of veikur til þess aö Ríkisútvarpið geti sinnt öryggishlutverki sínu. Þetta kom berlega í ljós þegar treysta átti á langbylgjuna í óveðrinu sem gengið hefur yfir Vestfiröi undanfarna daga. Nýja sendinum veröur komiö upp á mastrinu viö Gufuskála, en um- talsvert fé sparast vib að nýta mastrið. ■ Katntít lyftingameistarar sem létta þér störfin. HANDKNUNIR OG RAFKNÚNIR STAFLARAR. Auðveldir og liprir í meðförum. NYIR OG ENDURBÆTTIR HANDLYFTIVAGNAR. Margar gerðir. Lyftigeta 2500 kg. Líttu við og taktu á þeim. ÁRVÍK ÁRMÚU 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 687222 • MYNDRITI 687295

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.