Tíminn - 19.01.1995, Blaðsíða 8

Tíminn - 19.01.1995, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 19. janúar 1995 Á vígvelli í Tjetjeníu: lítill vígamóöur í Rússaher. jeltsín (t.v.) og Tjernomyrdín: vestrœnum ráöamönnum líst ekki illa á þann síöarnefnda. Fréttaskýrendur segja Jeltsín í fall- hœttu, en telja efa- mál aö valdhafar, sem steyptu honum afstóli, yröu örugg- ari í sessi „Vib erum þrælar," segir Jóna Andronova, fulltrúi á því þingi Rússlands sem Jeltsín leysti upp 1993. Þar á hún vib rússnesku þjóbina. „Þrælseblib á sér djúpar rætur í okkur," heldur hún áfram. Hún telur litlu eba engu máli skipta í því sambandi ab Rússland játar lýbræbi þessa stundina. Þegar Jeltsín sneri baki vib sovéska kommúnistaflokknum og gerbist lýbræbissinni, hafi þab verib gert meb þab eitt fyrir augum ab ná völdum. „Til ab lifa af þjálfunina í kommúnistaflokknum varb mabur ab vera útbrunninn, daubur, hið innra," er ennfrem- ur haft eftir Andronovu. „Mabur kemur fyrir sjónir sem meinleys- ib sjálft, næstum eins og trúbur. En jafnframt reynir mabur ab draga til sín meiri völd, skref fyr- ir skref. Þannig er þab sem mab- ur verbur keisari." Skæruhernaður í Kákasus? Sumir benda á núgildandi rússneska stjórnarskrá, sem sam- þykkt var í þjóbaratkvæba- greibslu fyrir ári, sem vitnisburb um ab Rússland sé áfram samt vib sig, á þann hátt sem An- dronova segir ab þab sé. Sam- kvæmt þeiiri stjórnarskrá hefur forseti lýbveldisins „keisara- vald", eins og þab hefur verib orbab, og margra mál er ab þing- ib hafi ekki í raun miklu meira vald en gamla æbstarábib sov- éska, sem ekki var til annars en ab leggja blessun sína andmæla- laust yfir ákvarbanir valdhafa. Annab mál er ab vald þab, sem rússneskir valdhafar hafa haft samkvæmt tilskipunum, lögum og stjórnarskrá, hefur ekki alltaf þýtt að þeir hafi verib valdamikl- ir í raun. Um Gorbatsjov var sagt, er hann tók sér meira og meira vald í krafti samþykkta og tilskipana, ab hann væri á leib meb ab verba einræbisherra yfir engu. Sumir ætla ab þannig sé nú ab verba komib fyrir Jeltsín og ab miklar líkur séu á ab þau örlög bíði næstu valdhafa Rússlands, ef Jeltsín hrökklist úr forsetastóli, eins og margir telja nú ab sé yfir- vofandi. Þegar þetta er ritað, Jierma fréttir ab Tjetjenar verjist enn af hörku í Grosníj, höfuðborg sinni. Þeir hafa orb á sér fyrir ab vera herskáir og vörn þeirra gegn her, sem allur heimur óttabist þangab til fyrir fáum árum, hefur þótt stabfesta þab. Og þótt Rúss- ar taki Grosníj, eba réttara sagt rústir þeirrar borgar, er ekki þar meb sagt ab vörn Tjetjena sé lok- ib. Þeir hóta skæruhernabi í Kák- asusfjöllum, og inn í slíkan hern- ab gegn Rússum gætu fleiri þjób- ir á þeim slóbum dregist, e.t.v. meb meiri eba minni stubningi frá íslamska heiminum. Bágbor- in frammistaba rússneska hers- ins gegn Tjetjenum hefur orbib Rússlandi til álitshnekkis, sem gæti (ofan á hrakföll sama hers í Afganistan) haft afdrifaríkar af- leibingar ekki síst í fyrrverandi sovéskum Mib-Asíulýbveldum. í þeim fléstum ræbur gamla nó- menklatúran frá sovéska tíman- um enn ríkjum meb stuðningi Rússlands, en helstu andstöbuöfl þar eru íslömsk, meira eba minna róttæk sem slík. Sjálfráð stjórnarumdæmi Þegar á tíb Gorbatsjovs gætti mjög þróunar í þá átt, ab hin ýmsu sjálfstjórnarlýbveldi, sjálf- stjórnarsvæbi og stjórnarum- dæmi í Rússlandi hættu ab hlýba fyrirskipunum frá Kreml, og sumir fréttaskýrendur segja þetta hafa haldib áfram í vaxandi mæli síban Jeltsín tók vib. Árásin á Tjetjeníu, sem gengib hafbi hvab lengst í þeirri tilhneigingu meb því ab lýsa yfir fullu sjálfstæbi og skilnabi vib Rússland, hefur trú- lega ab einhverju leyti verib til- raun til ab snúa þeirri þróun vib. En flestra spár nú eru á þá leib ab þab fyrirtæki muni fremur veikja en styrkja stöbu Jeltsíns, hvernig sem annars fari úr því sem kom- ib er í vibureigninni vib Tjetjena. BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON Hörmungarnar, sem gengib hafa yfir óbreytta borgara í Tjetj- eníu í stríðinu þar, hafa snúib al- menningsálitinu á Vesturlönd- um gegn Rússlandi og Jeltsín, og þab treysta vestrænir rábamenn sér ekki til ab snibganga meb öllu. Þar að auki er Jeltsín ab verba í augum Vesturlanda- manna úrræbalaus vandræba- gripur, drykkfelldur úr hófi og ekW meb öllu útreiknanlegur. Sagt er ab vestrænir rábamenn myndu ekki harma mjög fall Jelt- síns, ef við af honum tæki t.d. Víktor Tjernomyrdín, forsætis- rábherra, eba Júríj Luzhkov, borgarstjóri í Moskvu, en þeir eru mebal allmargra, sem til- nefndir eru sem líklegir eftir- menn núverandi Rússlandsfor- seta, ef hann skyldi verba ab láta af embætti á næstunni. Sagt er ab bandarískum stjórn- mála- og bankamönnum líki vel vib Tjernomyrdín, sem sé ab þeirra mati raunsær í efnahags- málum. Luzhkov talar talsvert um „Rússland fyrir Rússa", en er eigi ab síbur talinn hófsamur þjóbernissinni, sem sé ekki ólík- legur til ab draga fylgi frá og þar meb tennurnar úr Zhírínovskíj. Smutnoje vremja En meinib er, skrifar Matthew Campbell, fréttaritari Sunday Times í Moskvu, ab þótt Luzhkov, sem Jeltsín óttast sem skæban keppinaut og hugsanleg- an foringja valdaránsmanna, kæmist á forsetastól, myndu völd hans í raun varla ná langt út fyrir Moskvu. Hib sama yrðu all- ir þeir abrir, sem kynnu ab vilja nota sér veika stöbu Jeltsíns til ab koma honum frá og setjast í sæti hans, að horfast í augu vib. Sjálf- stjórnarlýbveldin og stjórnarum- dæmin muni bregbast öndverb vib hverjum þeim Kremlar- bónda, sem í alvöru reyndi að knýja þau til hlýbni vib mib- stjórnina. Og í rússneska hern- um er mikil andúð gegn því ab hann sé notabur til ab berja óhlýbin umdæmi til hlýbni, eins og komib hefur fram í stríbinu í Tjetjeníu, og drjúgur hluti rúss- nesks almennings er á sama máli. Fólk þar hefur mótmælt því harblega ab synir þess, þar á mebal ungir og lítt þjálfabir ný- libar, séu sendir til ab deyja í stríbi sem fólk telur þarfleysu og þar sem herstjórnin hjá Rússum virbist þar ab auki vera í handa- skolum. Þab dregur úr líkum á því ab mibstjórnin treysti sér til ab leika slíkan leik oftar. Áburnefndur Campbeli telur því litlar líkur á ab vib af Jeltsín, ef honum yrbi steypt af stóli inn- an skamms (fréttaskýrendur eru nokkub sammála um ab hann sé einkar ólíklegur til ab láta af völdum mótspyrnulaust, eins og Gorbatsjov gerbi), tæki stjórn sem yrbi sterkari en hans. Meiri horfur séu á ab eftir Jeltsín kæmi ab nýju smutnoje vremja, smuta (erfibleikatímar, mikil óreiba). Svo er nefnt tímabil stjórnleysis og mikilla hörmunga, sem hrjáði Rússland í byrjun 17. ald- ar er Hræreksætt, fornhelg uppi- staba í ríkisvaldi þar, var út- daub. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.