Tíminn - 19.01.1995, Page 7
Fimmtudagur 19. janúar 1995
feílWtfeMflWI
7
Þau fórust í Súbavík
Hrefna Björg Hafsteinsdóttir Kristján Númi Hafsteinsson Aðalsteinn Rafn Hafsteinsson
7 ára, f. 10. ágúst 1987 4 ára, f. 7. október 1990 2 ára, f. 29. september 1992
TÚNGATA 5
Systkinin Aðalsteinn Rafn Hafsteinsson, Kristján Númi Hafsteinsson og Hrefna Björg Hafsteins-
dóttir létust. Faðir þeirra Hafsteinn Númason, 43 ára, var á sjó, en móöir þeirra Berglind M.
Kristjánsdóttir, 31 árs, bjargaðist.
TÚNGATA 6
Feðginin Hafsteinn Björnsson og Júlíanna Bergsteinsdóttir
fósturdóttir hans létust. Þar bjó jafnframt Björk Þóröardóttir,
46 ára móðir júlíönnu og sambýliskona Hafsteins, sem var ekki
heima þegar flóð féll.
Bella Aðalheiður Vestfjörð Petrea Vestfjörð Valsdóttir
39 ára, f. 15. mars 1955 12 ára, f. 21. mars 1982
Hjördís Björnsdóttir
37 ára, f. 15. október 1957
Birna Dís Jónasdóttir
14 ára, f. 23. ágúst 1980
Helga Björk Jónasdóttir
10 ára, f. 17. maí 1984
TÚNGATA 7
Mæðgurnar Bella Aðalheiður Vestfjörð og Petrea Vestfjörð
Valsdóttir létust. Þarna bjuggu jafnframt Wieslawa Lupinska,
33 ára, pólsk kona sem bjargaðist úr flóðinu og 10 ára gamall
sonur hennar Tomasz Lupinski, sem bjargaðist eftir 23 tíma í
snjónum.
TÚNGATA 8
Mæðgurnar Hjördís Björnsdóttir, Birna Dís Jónasdóttir og Helga Björk Jónasdóttir létust. Þarna
bjó einnig Jónas S. Hrólfsson, 37 ára eiginmaöur Hjördísar og faðir stúlknanna en hann bjargað-
ist úr flóöinu, og Sigurrós Jónasdóttir, 15 ára , sem var ekki heima þegar flóðið féll.
Sveinn Gunnar Salomonsson
48 ára, f. 29. október 1946
Hrafnhildur Kristín Þorsteinsdóttir
49 ára, f. 2. júlf 1945
Hrafnhildur Kristín Þorsteinsdóttir
1 árs, f. 8. september 1993
NESVEGUR 7
Hjónin Sveinn Gunnar Salómonsson og Hrafnhildur Kristín
Þorsteinsdóttir létust. Þar bjó einnig uppeldissonur þeirra Jeff
Daníel Magnússon, 13 ára, sem bjargaðist. Einnig var í húsinu
tengdasonur þeirra, Bjarni Guöbjartsson, sem bjargaðist.
NJARÐARBRAUT 10
Sigurborg Árný Guðmundsdóttir lést. Hún bjó ein, en lætur
eftir sig þrjú uppkomin börn.
AÐALGATA 2
Hrafnhildur Kristín Þorsteinsdóttir lést. Þarna bjuggu foreldr-
ar Hrafnhildar Sigríður R. Jónsdóttir, 22 ára, og Þorsteinn Ö.
Gestsson, 27 ára, og hálfsystir hennar Linda Rut Ásgeirsdóttir,
5 ára, sem öll björguöust. Hrafnhildur var sonardóttir nöfnu
sinnar á Nesvegi 7.
Biskupinn yfir íslandi:
Fyrirbænir
í kirkjum
Biskup hefur farið þess á leit
við presta, að í messum á
sunnudaginn verði sérstak-
lega beðið fyrir þeim, sem
um sárt eiga að binda eftir
náttúruhamfarirnar í Súða-
vík.
Jafnframt sem fyrirbæn
fyrir þessu fólki verður
þungamiðja bænahaldsins,
þá skal beðið fyrir þeim,
sem af mikill fórnfýsi hafa
gert allt, sem í mannlegu
valdi stendur, til þess að
veita aðstoö og hjálp.
Þá hefur biskup einnig
beðið presta um að sinna
sérstaklega börnum bæði í
skólum og dagheimilum, en
hætt er við því, að þau verði
fyrir miklu áfalli þegar þau
sjá myndir af jafnöldrum
sínum, sem urðu fórnar-
lömb snjóflóðsins. Munu
prestar hafa samráb vib
skólayfirvöld, með það fyrir
augum að samræma aögerö-
ir þessara abila til stuönings
börnum og ungmennum.