Tíminn - 26.01.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 26.01.1995, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 26. janúar 1995 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Elli- og örorkulífeyrisþegar: Lækkun fast- eignagjalda auk- in um 20% Lækkun fasteignagjalda á elli- og örorkulífeyrisþegum á Sauðárkróki, þeirra sem búa í eigin húsnæbi, verður aukin um 20% á þessu ári frá því í fyrra. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar nýlega. „Ég bið menn að athuga að við erum að gera svolítið gott fyrir gamla fólkið í bænum," sagöi Björn Sigurbjörnsson, formaður bæjarráðs, viö þessa afgreiðslu. Reglur um afslátt á fast- eignagjöldunum eru þær að hjá þeim aðilum, sem eru með tekjur allt að 20% yfir óskerta tekjutryggingu og heimilisuppbót, nemi lækkun fasteignagjaldanna 30 þús- undum, en var 25 þúsund á síðasta ári. Þeir elli- og örorkulífeyrisþeg- ar, sem búa í eigin húsnæði og hafa í tekjur allt ab 50% yf- ir óskerta tekjutryggingu og heimilisuppbót, fá 15 þúsund króna lækkun á fasteigna- gjöldum, í stað 12.500 króna í fyrra. Mikill snjór á Saubárkróki Mjög mikill snjór er á Norð- urlandi vestra um þessar mundir. Á Sauðárkróki hefur veriö í nógu ab snúast við snjómokstur, en hann hefur gengið vel og eru götur greið- færar, bæði akandi og gang- andi vegfarendum. Hér að neðan sést verið að vinna að mokstri gangstétta. Vill reisa víkinga- þorp í Kúagerbi Runólfur Guðjónsson í Vog- um vinnur að því ab koma á framfæri hugmynd um að reist verbi víkingaþorp í Kúa- gerði. Hann hefur sótt um öll tilskilin leyfi og er búinn ab fá þau frá ölium aðilum nema V,egagerö ríkisins. Runólfur vill ab þorpib tengist Reykja- nesbraut. í Bestablaöinu kemur fram að Runólfur áætlar ab kostn- aður við framkvæmdina verði um 40 milljónir króna og ab starfsmenn verði 30 talsins á sumrin. í áætlunum Runólfs er gert ráð fyrir ab byggður verði langskáli, hannyrðaskáli og hof. Starfsfólk á síðan að vera klætt að hætti víkinga. Gert er ráð fyrir að staburinn opni sumarið 1996, ef allt gengur að óskum. Oli Ingólfsson, starfsmaöur Leift- urs, prufukeyrir nýja troöarann. Nýr snjótrobari Ólafsfirðingar hafa keypt nýjan snjótroðara. Hann er mun aflmeiri en sá sem fyrir var, eba um 220 hestöfl, og auk þess eru beltin breiðari, sem verður til þess að hann flýtur betur í snjónum. Ab aft- an er snigill og annar búnaöur einnig mun öflugri. Bílaspítalinn opn- ar aftur Eins og kunnugt er, þá ger- eyðilagðist bifreiðaverkstæðið Bílaspítalinn við Kaplahraun í stórbruna 28. nóvember sl. Þótti mikii mildi að ekki skyldu verða slys á mönnum. Eigendurnir, hjónin Arnrún Antonsdóttir og Ingvi Sigfús- son, létu ekki deigan síga þótt á móti blési og í ljós hefði komið aö tryggingarnar voru ekki nægjanlegar til að bæta þeim tjónið. Þau opnuðu Bíla- spítalann aftur 16. þ.m. í stærra og bjartara húsnæði ab Kaplahrauni 1. Hið nýja húsnæði er vel bú- ib tækjum, þar ?ru auk venju- legra viðgerðartcekja tölvu- stýrö bremsuprófunartæki, mótorstillingartæki og hjóla- stillingartæki, öll samkvæmt nýjustu kröfum í heiminum í dag. Austurland Siglt á brott frá neybarblysi Fjórir menn voru hætt komnir á Norðfjarðarflóa ný- lega þegar gúmmíbát, sem þeir voru í, fyllti er brotsjór gekk yfir. Skammt frá var lýs- isskipið Massia frá Marokkó og skutu skipverjar á gúmmí- bátnum upp neyöarblysi. Lýs- isskipið sinnti því engu og hélt til hafs. Það var svo togar- inn Skúmur ÍS, sem haföi látið reka undan vebri á Norðfjarð- arflóa, sem kom mönnunum til bjargar. Þorgeir Jónsson, einn báts- verja, sagbi ab undrun þeirra hefbi verið mikil þegar þeir sáu skipið sigla til hafs í burtu frá rauðu neyðarblysinu. Slíkt væri brot á alþjóðlegum sigl- ingareglum og sér þætti ólík- legt annað en málið hefbi ein- hver eftirköst. Umboðsmaður Massira á ís- landi, Baldvin Magnússon, vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið, þar sem hann vissi ekki öll málsatvik, en sagði þó, að það hlytu allir að sjá að hér væri um mjög alvarlegan atburð aö ræða. Skúmur ÍS var staddur á Noröfjaröarflóamiöum og sáu skipverjar hans neyöarblysiö og komu björgunarsveitarmönnunum til hjálpar. Talsvert hefur snjóaö á Sauöárkróki undanfarna daga. Flugleiöir selja aöra vél á tveimur mánuöum: 600 milljóna króna hagnaður á sölu tveggja véla Flugleiðir hafa selt eina Bo- eing 737-400 flugvél fyrirtæk- isins til dótturfyrirtækis jap- anska fjármögnunarfyrirtæk- isins Nissho Iwai, fyrir jafn- virbi tæplega 1,9 milljarða króna. Flugleibir leigja síðan vélina af japanska fyrirtæk- inu í 5 ár og mun þetta skila félaginu um 300 milljóna söluhagnabi. Þetta er önnur flugvélin sem fyrirtækið selur með þessum hætti, en þá til Japan Leasing Corporation í desember síðast- liðnum og var hagnaður af þeirri sölu svipabur. Þessa vél hafa Flugleiðir einnig tekið á leigu hjá kaupanda. Markaður fyrir þessar vélar hefur verið góður að undan- förnu, en bókfært verð vélanna hjá Flugleiðum var langt undir markabsverði, sem rekja má til þess hve hagstæðir samningar náðust við Boeingverksmiðj- urnar í upphafi. í kjölfar þessarar sölu verbur farið í að endurskoða flugflota- áætlanir Flugleiða. Þessar tvær vélar voru þær elstu í flotan- um. ■ Alþýöubandalagiö á Noröurlandi eystra: Steingrímur J. og Árni Steinar í efstu sætunum Frá Þór&i Ingimarssyni, fréttaritara Tím- ans á Akureyri: Steingrímur J. Sigfússon, al- þingismaður og fyrrum land- búnabarráðherra, mun leiða frambobslista Alþýðubanda- lagsins í Norðurlandskjördæmi eystra, en gengið var frá skipan hans á kjördæmisþirigi síðast- liðinn sunnudag. Listinn mun verba borinn fram í nafni Al- þýðubandalagsins og óhábra, en í öðru sæti hans verður Árni Steinar Jóhannsson, umhverfis- stjóri á Akureyri og formaður Þjóðarflokksins. Árni Steinar er ekki flokksbundinn alþýöu- bandalagsmaður og kemur á listann sem fulltrúi óháðra. Þriðja sæti listans skipar Sig- ríbur Stefánsdóttir, bæjarfull- trúi á Akureyri, og Örlygur Hnefill Jónsson, héraðsdóms- lögmaður á Húsavík, ér í fjórba sæti. Að öðru leyti er framboðs- listinn skipaður eftirtöldum að- ilum: í fimmta sæti er Svanfríð- ur Flalldórsdóttir, móttökurit- ari Ólafsfirði, í sjötta sæti Hild- ur Harðardóttir, verkakona á Raufarhöfn, í sjöunda sæti Steinþór Hreiðarsson, nemi, Ytri-Tungu á Tjörnesi, í átt- unda sæti Margrét Ríkarðsdótt- ir, þroskaþjálfi Akureyri, í ní- unda sæti Aðalsteinn Baldurs- son, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, í tíunda sæti Jó- hanna E. Stefánsdóttir, bóndi Vallakoti, Reykjadal, í ellefta sæti Kristján E. Hjartarson, bóndi Tjörn í Svarfaðardal, og Kristín Hjálmarsdóttir, formað- ur Iðju á Akureyri, er í tólfta sæti Iistans. VISA ísland: Jólavib- skiptin 1994 Nú nálgast sú stund ab kort- hafar fái sendan „jólareikn- ing" sinn frá greibslukorta- fyrirtækjunum. Hjá VISA námu kortavið- skipti hér innanlands á jóla- tímabilinu, sem telst frá miðj- um nóvember til jafnlengdar í janúar, rúmum 7 milljörbum króna, nánar tiltekið 7.050 milljónum, samanborið við 6.675 milljónir árið á undan. Aukningin nemur því 375 millj. kr., eða 5,6%. Svonefnd „jólauppsveifla", það eru aukin viöskipti miðað við sambærilegt tímabil þar á undan, nam 820 milljónum. Það er svipuð tala og árið á undan, en áður hafði gætt snemmbúinnar jólauppsveiflu erlendis upp á um 500 millj. kr., sem var um 200 millj. meira en 1993. ■ „Éfjheld ég gangi heim“ Eftir einn -ei aki neinn tfUMFERÐAR RÁÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.