Tíminn - 26.01.1995, Page 11
Fimmtudagur 26. janúar 1995
n
FRÍMERKJASÖFNUN
«*«*»»*»«»»«»«**«»«•♦*»*»*«»«•»******•«»***************************
■ ÍSLAND
: 100°®
ISLANÖ
DAGUR FRÍMERKISINS 7.QKTÓBER 1994'- VERD KR 200
Verblaunablokkin.
Verðlaun til íslands
l-’rakkar halda áfram aö dást aö
íslenskum frímerkjum og nú
hafa þeir valiö frímerkjablokk-
ina „Dagur frímerkisins — Frí-
merkjasöfnun" 1994, til „Les
Grand Prix de l'Art philat-
elique" 1994.
Dómnefndin, sem fjallar um
veitingu þessara verölauna,
kom saman í París þann 6. des-
ember síöastliöinn, á messudegi
heilags Nikulásar af Rár, til þess
aö ræöa fram komnar tillögur
og kjósa um hver hljóta skyldi
þennan heiöur fyrir áriö 1994.
„Le Grand Prix" fyrir list í frí-
merkjum í Evrópu hlutu aö
þessu sinni íslensk frímerki,
nánar til tekiö frímerkjablokkin
sem nefnist Frímerkjasöfnun og
kom út þann 7. október 1994.
I’annig segir í fréttatilkynningu,
sem birtist í tímaritinu „La Phil-
atélie Francaise", janúarblaðinu
1995.
Eins og segir hér aö ofan, kom
blokkin út þann 7. október í
fyrra. Höfundúr hennar, eða
hönnuöur eins og þaö nú er
nefnt, var Hlynur Ólafsson.
Biokkin var prentuö í offsetlit-
prentun hjá BDT International
Security l'rinting Ltd. í Bret-
landi. I henni eru 3 frímerki aö
FRIMERKI
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
verögildi 30,00, 35,00 og 100,00
krónur. Verð blokkarinnar er
200,00 krónur og rennur yfir-
veröiö til Frímerkja- og póst-
sögusjóös. í kynningu Póst-
málastofnunar á útgáfunni segir
svo:
„Aö þessu sinni er „Dagur frí-
merkisins" helgaöur frímerkja-
söfnun. Það er löngu ljóst, aö til
þess að tryggja tómstundastarf-
iö, sem nefnist frímerkjasöfnun,
þarf aö kenna þaö æskunni, sem
er framtíö hvers lands. Einmitt
frímerkjasöfnunin hefir fengið
heiti eins og „Konungur tóm-
stundastarfanna", en einnig
„Tómstundastarf konunga" og
hvort tveggja meö réttu. Blokk-
in, sem gefin er út af þessu til-
efni í ár, er þannig fyllt meö
myndefni sem snertir frímerkja-
söfnun ungs fólks. Á fyrsta frí-
merki blokkarinnar er mynd
tveggja unglinga, sem eru aö
skoða saman frímerkjasafn. Á
næsta frímerkinu er svo farið
dýpra í athugun frímerkjanna.
Þar sjást nokkur íslensk frí-
merki. Teikning og myndefni
þeirra er þarna skoöaö meö
stækkunargleri. Síðasta frímerki
arkarinnar sýnir svo stúlku og
eldri mann draga lærdóm af
þessu öllu saman, meö því að
leita uppi löndin, sem frímerkin
eru frá, á hnattlíkani. Einmitt í
september var haldin hér nor-
ræn unglingasýning, „NORD-
JUNEX-94".
Fyrsti „Dagur frímerkisins"
var haldinn á vegum frímerkja-
klúbba Æskulýösráðs Reykjavík-
ur, Félags ungra frímerkjasafn-
ara og frímerkjaklúbbs Æskunn-
ar, áriö 1960. Félag ungra frí-
merkjasafnara var elst, stofnaö
1954. Þá var einnig haldin lítil
frímerkjasýning meö sama
nafni. Söluverð smáarkarinnar
er 200 ÍSK og verðgildi frímerkj-
anna er 30, 35 og 100 ÍSK. And-
viröi yfirverðsins rennur í Frí-
merkja- og póstsögusjóö."
Þá hefir endanlega verið tekin
ákvöröun um öll helstu atriöi
varöandi frímerkjaútgáfur þessa
árs. Þaö, sem nú hefir veriö til-
kynnt, eru eftirfarandi útgáfur:
1. Frímerki í einu verðgildi
(35 kr.) í tilefni 100 ára afmælis
Hjálpræðishersins á íslandi.
Hönnuöur er Tryggvi T.
Tryggvason teiknari.
Útgáfudagur: 14. mars 1995.
2. Frímerki í einu verögildi
(90 kr.) í tilefni 100 ára afmælis
Seyöisfjaröarkaupstaöar. Frí-
merkið sýnir mynd af listaverk-
inu „Útlínur" eftir Kristján Guö-
mundsson myndlistarmann.
Útgáfudagur: 14. mars 1995.
3. Fjögur frímerki (35 + 35 +
35 + 35 kr.). Örk meö átta frí-
merkjum vegna heimsmeistara-
keppninnar í handbolta (HM
'95). Hönnuöur: Hallgrímur
Ingólfsson.
Útgáfudagur: 14. mars 1995.
4. Norðurlandafrímerki í
tveimur verögildum (30 og 35
kr.). Þema er: „Áfangastaðir
ferðamanna" (Laufás í Eyjafiröi
og Fjallsjökull).
Útgáfudagur: 5. maí 1995.
5. Evrópufrímerki í tveimur
verögildum (35 og 55 kr.) meö
mynd af listaverki eftir Einar
Jónsson, „Úr álögum". Þema:
„Friður og frelsi".
Útgáfudagur: 5. maí 1995.
6. Fjögur frímerki (30 — 30 +
30 — 30 kr.). Gömul póstskip.
Örk meö átta frímerkjum.
Hönnuður: Þröstur Magnússon.
Útgáfudagur: 20. júní 1995.
7. Frímerki (35 kr.) í tilefni 40
ára flugsamgangna milli íslands
og Lúxemborgar.
Útgáfudagur: 18. september
1995.
8. Á degi frímerkisins 9. októ-
ber 1995 er fyrirhugaö aö gefa
út smáörk með yfirverði til
ágóöa fyrir Frímerkja- og póst-
sögusjóö. Myndefni, verögildi
og hönnuður hefur ekki veriö
ákveðinn.
9. Frímerki vegna 50 ára af-
mælis Sameinuöu þjóöanna.
Myndefni, verögildi og hönn-
uöur hefur enn ekki veriö
ákveöinn.
Útgáfudagur: . 7. nóvember
1995.
10. Jólafrímerkin í tveimur
verögildum teiknuö af íslensk-
um listamanni.
Útgáfudagur: 7. nóvember
1995.
Nánar veröur tilkynnt síöar
urn þessar útgáfur.
DAGBÓK
Fimmtudaqur
2é
janúar
X
26. dagur ársins - 339 dagar eftir.
4. vika
Sólriskl. 10.27
sólarlag kl. 16.55
Dagurinn lengist
um 7 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur,
kl. 13 ídag.
Stjórnmálafræbingar!
Þaö er korninn tími til að við
stofnum okkar eigiö félag og nú
látum viö þaö veröa aö veru-
leika meö því aö koma saman
og ræöa um undirbúning aö
stofnun félags stjórnmálafræð-
inga. Fundur veröur haldinn í
Odda, stofu 101, í kvöld,
fimmtudaginn 26. jan., kl. 20.
Umsjónarfélag
einhverfra
heldur almennan félagsfund í
kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 aö
Barna- og unglingageödeild
Landspítalans.
Fundarefni: Sigríöur Lóa Jóns-
dóttir sálfræðingur verður með
fyrirlestur sem hún nefnir „At-
ferlismeöferö barna meö ein-
hverfu".
Foreldrar og aðstandendur og
allir þeir, sem áhuga hafa á efn-
inu, eru hvattir til að mæta.
Kvennakirkjan:
Fundur í safnabarheim-
ili Neskirkju
í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30
stendur Kvennakirkjan fyrir
umræðufundi í safnaðarheimili
Neskirkju.
Jónína M. Guðnadóttir fjallar
um bókina „Þú misskilur mig"
eftir Deborah Tannen, en Jón-
ína er þýöandi bókarinnar. í
bókinni fjallar Deborah um
þann misskilning, sem oft kem-
ur upp í samtölum karla og
kvenna vegna mismunandi
skilnings þeirra á oröum, oröa-
notkun og fleiru. Allir velkomn-
ir.
ísfiröingafélagiö:
Sólarkaffi og afmælis-
hátíb
Á þessu ári fagnar ísfirðingafé-
lagið 50 ára afmæli sínu, en þaö
var stofnaö í Reykjavík 22. apríl
1945, „meö þaö aö markmiöi að
viðhalda kynningu milli ísfirö-
inga búsettra í Reykjavík og ná-
grenni og efla tryggö þeirra við
átthagana", eins og segir í fyrstu
lögum þess.
Af því tilefni gengst félagiö
fyrir sérstakri afmælishátíö sam-
hliöa sínu árlega „Sólarkaffi",
sem haldið verður á Hótel ís-
landi föstudagskvöldiö 27.
janúar. Mjög er vandað til veit-
inga og allrar dagskrár, sem
verður óvenju fjölbreytt og með
hátíðarsniði. Hátíðarræðu
kvöldsins flytur Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráö-
herra. ísfirskir tónlistarmenn
veröa í aðalhlutverkum: „Villi
Valli", „Bjössi Finnbjarnar" og
hljómsveit Baldurs Geirmunds-
sonar, auk fjölda leynigesta og
söngvara.
Áður en hátíöardagskráin
hefst mun sr. Örn Báröur Jóns-
son minnast atburðanna í Súöa-
vík og flytja samúðarkveöju.
Tónlist veröur flutt.
Sala aðgöngumiöa aö Sólar-
kaffinu er á Hótel íslandi milli
kl. 13 og 17 í dag og á morgun
og í síma 5687111. Ósóttar
sætapantanir verða seldar eftir
kl. 15 á morgun. Boöið er upp á
þrenns konar aðgöngumiöa:
Sólarkaffi kr. 2200, Sólarkaffi
meö fordrykk kr. 2500, og Sólar-
kaffi með fordrykk og hátíöar-
kvöldverði kr. 4500. Húsið opn-
ar kl. 18.30 fyrir nratargesti, en
kl. 20 fyrir aöra.
Hanna Gunnarsdóttir
sýnir í Stöblakoti
Hanna Gunnarsdóttir mynd-
listarkona opnar málverkasýn-
ingu í Stöðlakoti viö Bókhlööu-
stíg næstkomandi laugardag,
28. janúar. Sýningin nefnist:
„Bláir tónar". Þetta er 4. einka-
sýning Hönnu, en auk þess hef-
ur hún tekið þátt í nokkrum
samsýningum erlendis.
Hann er fædd í Reykjavík
1942. Hún hefur stundað nám
við Myndlistarskólann í Reykja-
vík, Myndlistarskóla Irene He-
ath-í London, Chelsea School of
Art í London og Blocherer
Kunstschule í Múnchen. Áriö
1978 lauk hún burtfararprófi í
innanhússhönnun og myndlist
frá Cuyahoga College í Ohio í.
Bandaríkjunum.
Á sýningunni í Stöðlakoti
sýnir Hanna 16 landslagsmynd-
ir málaöar meö olíulitum á
striga og voru flestar myndirnar
málaöar á síðasta ári. Auk þess
eru á sýningunni nokkrar eldri
olíumyndir, sú elsta frá árinu
1988.
Sýning Hönnu í Stöðlakoti er
opin daglega frá kl. 14-18 og
lýkur 12. febrúar.
Listsýningum Daba
Gubbjörnssonar lýkur
Sunnudaginn 29. janúar lýkur
myndlistarsýningum Daöa Guö-
björnssonar í Norræna húsinu
og í Gallerí Fold, Laugavegi 118d
(gengiö inn frá Rauðarárstíg).
í Norræna húsinu sýnir Daði
olíumálverk, teikningar, skúlp-
túra og tréristur, en í Gallerí
Fold sýnir hann aquarellur og
olíumálverk.
Opiö er í Norræna húsinu
daglega frá 14-19, en í Gallerí
Fold er opið daglega 10-18,
nema sunnudaga 14- 18.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka f
Reykjavlk frá 20. tll 26. janúar er I Laugames-
apótekl og Árbæjarapóteki. Þaö apótek sem fyrr er
nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll
kl. 9.00 að morgnl virka daga en kl. 22.00 á sunnu-
dögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu
eru gefnar I slma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátióum. Simsvari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjaróar apótek og Noróuröæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag Id.
10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartima búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvoldin er opió i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opió frá kl. 11.00-12.00 og 20.0, ■
21.00. Á öórum tímum er lyfjafræóingur á bakvakf. Upplýs-
ingar eru gefnar i sima 22445.
Apótek Keflavlkur: Opió virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opió virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokaó í hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opió er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 3.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garóabær: Apótekið er opió rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, enlaugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1.janúar1995.
Mánaðargreiðslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir)......... 12.329
1/2 hjónalífeyrir............................11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega..........22,684
Full tekjutrygging ororkulífeynsþega.........23.320
Heimilisuppbót...............................7,711
Sérstök heimilisuppból...................;...5,304
Bamalíleyrir v/1 bams........................10.300
Meðlagv/1 barns .............................10.300
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns.................1.000
Mæðralaun/feðralaun v/2ja bama................5.000
Mæóralaun/feóralaun v/3ja bama eóa fleiri...10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða .............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða.............11.583
Fullur ekkjulíleyrir........................12.329
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) .................15.448
Fæðingarstyrkur.............................25.090
Vasapeningar vistmanna ......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggreiðslur
Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ....142.80
GENGISSKRÁNING
25. janúar 1995 kl. 10,47 Opinb. Kaup viðm.gengi Sala Gen>/ skr.fundar
Bandaríkjadollar 67,00 67,18 67,09
Sterlingspund 107,11 107,39 107,25
Kanadadollar 47,20 47,38 47,29
Dönsk króna 11,262 11,298 11,280
Norsk króna 10,150 10,184 10,167
Sænsk króna 9,018 9,050 9,034
Finnsktmark 14,314 14,362 14,338
Franskur franki ....12,832 12,876 12,854
Belgískur franki ....2,1533 2,1607 2,1570
Svissneskur franki. 52,89 53,07 52,98
Hollenskt gyllini 39,61 39,75 39,68
Þýskt mark 44,45 44,57 44,51
ítölsk líra ..0,04236 0,04254 6,337 0,04245 6,325
Austurrískur sch ’.6,313
Portúg. escudo 0,4296 0,4314 0,4305
Spánskur peseti 0,5095 0,5117 0,5106
Japanskt yen 0,6739 0,6759 0,6749
....105,94 106,38 99,18 106,16 98,99
Sérst. dráttarr 99^80
ECU-Evrópumynt.... 84,02 84,32 84,17
Gr'sk drakma ....0,2852 0,2862 0,2857
BILALEIGA
AKUREYRAR
•MEÐ ÚTIBÚ ALLTÍ
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVtK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar