Tíminn - 01.02.1995, Side 2
2
Wmntm
Miövikudagur 1. febrúar 1995
Tíminn
spyr...
Telur&u a& frumkvæ&i sjálf-
stæ&ismanna á Vestfjör&um í
sjávarútvegsmálum muni
styrkja flokkinn í kosningabar-
áttunni til Alþingis?
Árni Johnsen, þingmaöur Su&-
urlands:
„Allt frumkvæöi sjálfstæðis-
manna er af hinu góöa og síðan
fjöllum viö ítarlega um máliö.
Þessar tillögur koma í sjálfu sér
ekkert á óvart og er ekkert nýtt að
opnað sé uppá sóknarmarksleiö-
ina. Það eru bæði plúsar og mín-
usar í þessu og svo þarf bara að
Halldór Blöndal samgönguráö-
herra, Norburlandi eystra:
„Þab eru skiptar skoðanir innan
Sjálfstæðisflokksins í sjávarút-
vegsmálum. Ég kann ekki að meta
hvaöa áhrif þab mundi hafa ef
flokkurinn talaöi einum rómi.
Það hefur alltaf legið fyrir að þing-
menn Vestfjarða hafa verið með
nokkuö sérstakar skoðanir í sjáv-
arútvegmálum. Þessvegna koma
tillögur þeirra ekkert á óvart og ég
geri ráð fyrir því aö þingmenn
annarra flokka, sem bjóöa sig
fram fyrir vestan, muni ganga í
þeirra slóð. Sjávarútvegsmálin eru
alltaf til umræðu og skoðanir
skiptar. Þarna er verið ab takast á
um mjög mikla hagsmuni, vegna
þess aö menn standa mismun-
andi vel í baráttunni. Ég hef ítrek-
aö bent á það að hringlandahátt-
ur í þessum málum á undanförn-
um árum hefur fyrst og fremst
bitnað á þeim sem hafa þorsk-
veiðar að uppistöðu, m.a. á smá-
bátasjómönnum."
Árni M. Mathiesen þingma&ur,
Reykjanesi:
„Já, ég held aö það muni gera það
og gott fyrir flokkinn að hafa lif-
andi umræðu um þessi mál, jafn-
vel þótt þessi umræða hafi farið
fram einhverntíma áöur. Forsend-
ur eru alltaf að breytast og gott ab
skoða hlutina uppá nýtt."
Einar Már Guömundsson — fimmti íslendingurinn sem vinnur til Bókmenntaverölauna Noröurlandaráös:
„ Lí klega er ég bæði
einfari og solóisti"
Þaö var venju fremur erilsamt á heimili Einars Más í Grafarvoginum í
gœr. Einar og börnin í húsinu voru þó tiibúin til ab tylla sér nibur eitt
andartak. Tímamynd cs
Einar Már Guömundsson, rit-
höfundur, vakna&i við gott sím-
tal frá útlöndum í gær. Honum
var tilkynnt a& hann hef&i hlot-
iö Bókmenntaverölaun Norður-
landará&s. „Þetta var nú frekar
þægilegt," vi&urkenndi Einar
Már í samtali vi& Tímann í gær-
morgun. Þá haf&i hann ekki
undan að tala vib bla&amenn,
erlenda og innlenda, sem
heimtuðu skyndiviðtöl fyrir
fjölmibla sína.
Svolítill innspýtingur
„Ég ætla nú að átta mig á þessu
í rólegheitum og svo kemur það í
ljós hvað þetta þýðir fyrir mig
sem rithöfund," sagði Einar Már.
„Þetta er eflaust einhver auka-
kynning á mínum verkum og
svolítil innspýting og það er auð-
vitað prýbilegt."
Það er bók Einars Más, Englar
alheimsins, sem hann fær verð-
laun sín fyrir. Dómnefndin um
bókmenntaverðlaun Norður-
landarábs tilkynnti um úrskurð
sinn á fréttamannafundi í Hels-
inki í gærmorgun. Sá úrskurður
var einkar ánægjulegur fyrir ís-
lensku þjóbina.
Gebsjúkur maöur
skoöar umheiminn
Rök dómnefndar hljóða svo:
„Með ljóðrænni vitfirringu
skobar geðsjúkur maður sib-
menninguna og umheiminn.
Skopskynið leibir í ljós alvöruna.
Sjálfhæbnin klæðist barnslegum
búningi. Skáldsagan veitir innsýn
í þann veruleik sem við höfum
vanist að telja eðlilegan."
Verölaunin, sem Einari Má falla
í skaut, nema 350 þúsund dönsk-
um krónum, eða um þab bil 3,5
milljónum íslenskum, skattfrítt.
Sigurður A. Magnússon, rithöf-
undur, er annar fulltrúa íslands í
dómnefndinni, en hinn er Jó-
hann Hjálmarsson, ljóbskáld. Sig-
urður hefur mebal annars þetta
að segja um Engla alheimsins:
„í Englum alheimsins er gerb
tilraun til ab skilja hina ólíku
strauma sem fara í gegnum vit-
skertan heila og lesandinn fær
sterka tilfinningu fyrir hinum
óviðráðanlega sjúkdómi sem
þjakar hinn efnilega ungling. Les-
andinn upplifir líka hvernig Páll
heldur persónulegum einkennum
sínum og nær sambandi við aðra í
þeirri blöndu af brjálæði og
mannlegum tilfinningum sem
vib eigum öll sameiginleg, en
hann getur ekki hamib og er því
settur úr leik."
Mikil ánægja í
Grafarvogi
Einar Már og fjölskylda hans,
Þórunn Jónsdóttir, fóstra, og
fimm börn þeirra, búa í Miðhús-
um 9 í Grafarvogshverfi. Þar hafa
þau hjón kynnst hinum dæmi-
gerðu húsbyggingaþrautum ís-
lendingsins.
„Við lifðum þetta af. Maður tók
málið skref fyrir skref; sumir hafa
víst farið of hratt í bygginga-
mennskunni; við höfum reynt ab
vera varkár og höfum reyndar
verib þab," sagði Einar Már.
Dagurinn í gær hefur áreiðan-
lega verið einn hinn ánægjuleg-
asti í lífi fjölskyldunnar. '
Strax eldsnemma í gærmorgun
var sími heimilisins rauðglóandi
af hamingjuóskum vina, kunn-
ingja og ættingja — að ekki sé tal-
að um fjölmiöla hinna ýmsu
landa.
Kvikmyndahandrit
og skáldsaga
„Ég er núna í ýmsum verkefn-
um. Aðallega er ég að skrifa sögu,
en svo fer ég á milli í kvikmynda-
handrit með Friðrik Þór. Ég er aö
hugsa myndir núna, maður getur
reynt að móta kvikmyndahandrit
óháð því hvort það verður nokk-
urn tíma filmað. Kannski hefur
Friðrik eba einhver annar áhuga,
hver veit? Þetta er nú að verða svo
mikill iðnaður hér á landi og þar
er Friðrik náttúrlega kóngurinn,"
sagði Einar Már.
„Ég hef haft ritstörf að aðal-
starfi frá því að ljóðabækurnar
mínar komu út fyrir meira en tíu
árum, altjent geri ég ekki annaö.
Maður hefur nú einsett sér að lifa
á ritlist og þá dugar ekki að skrifa
bara skáldsögur. Ég er víst óskap-
lega mikill öfgamabur. Þetta er
eins og Small Faces í gamla daga,
It's all or nothing ..."
Ætlast ekki til aö
hlutirnir séu ein-
faldir
Einar Már segir að aubvitað sé
þaö erfitt í litlu landi að baslast
áfram við ritmennskuna.
„En í rauninni þekkir mabur
ekkert annað. Ég ætlast ekki til að
hlutirnir séu einfaldir. Oft þarf
maður að leggja höfuðið í bleyti
og sjá fram úr ýmsu. Höfundar
þurfa að skrifa ýmislegt, greinar,
smásögur og hluti sem eru að
hluta til baráttan fyrir lífsbjörg-
inni. En þetta er nú bara eins og
allir þurfa að gera."
Vogastrákur úr
Reykjavík
Einar Már Guðmundsson er 40
ára gamall, hann fæddist 18. sept-
ember 1954, Reykvíkingur, uppal-
inn í Vogahverfi. Foreldrar hans
eru þau Anna Pálmadóttir, skrif-
stofumaður, Hafnfirðingur, og
Guðmundur Gubmundsson, bif-
reiðarstjóri, Reykvíkingur.
„í æsku hafbi ég talsverðan
íþróttaáhuga, kom svolítið við
sögu hjá Knattspyrnufélaginu
Val, en hef nú meiri samúð með
Þrótturum í dag. Einhvern veginn
átti það aldrei við mig að vera í
libi. Líklega er ég bæði einfari og
sólóisti," segir Einar Már í samtal-
inu við Tímann. Hann segist hafa
byrjað fyrst að skrifa að einhverju
gagni um tvítugsaldurinn.
Mikil fjölbreytni úr
ritsmiöju Einars Más
Ljóðabókin Er nokkur í kóróna-
fötum hér inni? kom út árið
1980, Sendisveinninn er einmana
sama ár og Róbinson Krúsó snýr
aftur árib eftir. Síðan varð tíu ára
bið eftir ljóðabók frá Einari Má,
en þá kom út bókin Klettur í hafi
með málverkum eftir Tolla.
Fyrsta skáldsagan kom út 1982
og vakti þegar mikla og verð-
skuldaða athygli. Það var Riddar-
ar hringstigans. Þeirri bók fylgdi
Einar Már eftir með skáldsögunni
Vængjasláttur í þakrennunum,
bók sem verulega var tekiö eftir.
Síðan komu Eftirmáli regndrop-
anna áriö 1986 og Raubir dagar
1990. Eftir Einar Má liggja líka
barnasögur, Fólkiö í steininum og
Hundakex. Einnig smásagnasafn,
Leitin að dýragarðinum. Þá hefur
hann þýtt bækur eftir Ian Mc-
Ewan og unnið að kvikmynda-
handritum, Börnum náttúrunnar
og Bíódögum, ásamt Fribriki Þór
Friðrikssyni. Er þá hreint ekki allt
upp talið sem komið hefur úr rit-
smiðju Einars Más Guðmunds-
sonar. Þess má geta að skáldsögur
hans hafa verib þýddar á öll
Norðurlandamálin, Riddarar
hringstigans líka á þýsku og
ensku.
Einar Már þykir hið mesta
prúðmenni og elskulegur í allri
framkomu. Og hann er bjartsýn-
ismaður, enda hlaut hann Bjart-
sýnisverðlaun Bröstes árið 1988.