Tíminn - 04.02.1995, Qupperneq 12
12
mmz--x.---
Laugardagur 4. febrúar 1995
Ribar stjórn íhalds-
flokksins til falls?
Lundúnum - Reuter
Breska vikuritib Economist
fulllyröir að stefna stjórnar
Johns Majors í Evrópumálum
kunni aö veröa henni aö falli
fyrr en nokkur maöur hafi nú
Breski kvikmyndaiönaö-
urinn:
Neitab um
skatta-
ívilnanir
Lundúnum - Reuter
Menningarmálaráöherra í Bret-
landi, Stephen Dorrell, hafnar
kröfum kvikmyndaiðnaðarins í
landinu um skattaívilnanir sem
áttu aö gera þessari atvinnu-
grein kleift aö koma á fót eins-
konar Hollywood Evrópu. Um
leiö og hann gerði grein fyrir
þessari ákvöröun sagöi ráöherr-
ann: „Ef skattar á kvikmynda-
gerö væru lækkaöir yrðu senni-
Iega gerbar fleiri kvikmyndir
en nú er, en þaö sama má segja
um allar aðrar framleiöslu-
greinar." ■
trú á. Fjallað er um þetta í for-
ystugrein þar sem segir aö ríkis-
stjórnin sé farin að aöhyllast
stefnu sem sé svo neikvæð í
málum er varöa tengslin við
Evrópu aö hún geti skaðað þjóö-
arhagsmuni Breta þegar til
lengri tíma sé litiö.
í greininni er mælt meö því
aö Evrópu-sinnar innan stjórn-
arinnar taki á sig rögg og berjist
gegn þessari þróun. Slíkt gæti
hugsanlega oröið stjórninni aö f
falli en „hinn kosturinn" kynni
að reynast enn háskalegri.
Economist segir aö þaö sé
varasamt fyrir John Major aö
útiloka sameiginlegan gjald-
miðil ESB í því skyni að friöa þá
sem eru á móti nánara samstarfi
aöildarríkjanna. Þá segir aö
margir nánir samverkamenn
forsætisráðherrans telji aö hann
ætli sér að heyja næstu kosn-
ingabaráttu meö því aö höföa til
þessara afla, en sé þetta rétt þá
þurfi margir í flokknum og inn-
an ríkisstjórnarinnar, sem séu
andvígir slíkri stefnu, aö skoða
hug sinn og velja þá á milli rík-
isstjórnarinnar og þjóðarhags-
muna. Rétt niðurstaða í því
máli væri aö koma slíkri ríkis-
stjórn frá. ■
Húsnæðisstofnun ríkisins
auglýsir hér með til umsóknar
LÁN OG STYRKI
til tækninýjunga og annarra
umbóta í byggingariðnaði, skv. heimild
í lögum nr. 97/1993
Umsækjendur geta veriö einstaklingar,
fyrirtæki og stofnanir.
Við mat á verkefnum sem berast verður haft að
leiðarljósi að þau stuðli að:
M Framþróim í byggingariðnaði og/eða
tengdum atvinnugreinum.
M Aukinni framleiðni í byggingarstarfsemi.
18 Lækkandi byggingarkostnaði.
18 Betri húsakosti.
■ Aukinni þekkingu á húsnæðis- og byggingarmálum.
H Tryggari og betri veðum fyrir fasteignaveðlánum.
li Almennum framförum við íbúðarbyggingar, bæði í
hönnun, framkvæmdum og rekstri.
M Endurbótum á eldri húsakosti.
Athugið:
Ekki verða veitt lán eða styrkir til verkefna sem miða að
innflutningi eða sölu á erlendum byggingarvörurh, né heldur sölu
á byggingarvarningi hérlendis.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar er að fá hjá
Húsnaeðisstofnun ríkisins og Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
C§C HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
j SUÐURLANOSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI: 569 6900 (kl. 8-16)
BRÉFASlMl: 568 9422 • GRS.NT NÚMER (utan 91-svæðisins): 800 69 69
Vietnömsk kona gengur framhjá auglýsingaskilti frá amerísku gosdrykkjafyrirtcEki í Hanoi, en í gær var nákvœm-
lega eitt ár libib frá þvíab bandarískum fyrirtækjum vargert kleift ab eiga vibskipti vib Vietnam meb tilskipun frá
Bill Clinton um ab vibskiptabanni á Vietnam væri aflétt.
Flóðin í rénun
og fólk á heimleið
Amsterdam - Reuter
Hættan á því að flóðgarðar í
Niðurlöndum bresti er ekki lið-
in hjá og eru hjálparsveitir enn í
viðbragðsstöðu. Flóðin eru nú
loks í rénun og í suðurhéruðun-
um eru tugþúsundir manna
sem flýöu heimili sín fyrr í vik-
unni nú á heimleið. Af hálfu al-
mannavarnakerfisins var því
lýst yfir í dag aö þaö yröi ekki
fyrr en í næstu viku sem tugþús-
undum til viöbótar, einkum
íbúum í mið- og austurhéruö-
unum, yrði leyft að hverfa aftur
heim.
Alvarlegrar mengunar, sem
flóðin valda, er nú farið að gæta
og er foreldrum bent á að börn-
um stafi hætta af henni, ef þau
séu aö leik þar sem ætla má aö
þungmelmi úr stórfljótum sem
renna um einhver mestu iðnað-
arhéruö í Evrópu sé farið aö
safnast upp í árósum.
Efnt var til almennrar fjár-
söfnunar í sjónvarpi á fimmtu-
dagskvöld til styrktar þeim sem
hafa orðið fyrir verulegu eigna-
tjóni í flóbunum og safnaðist
þar sem svarar rúmum 1,6 millj-
aröi íslenskra króna.
Nokkuð hefur boriö á því að
þjófar leggi leiö sína í yfirgefin
Rússar hefja
nú loftárásir
á Grozníu
Grozníu - Reuter
Rússneskar sprengjuflugvélar
héldu uppi árásum á útverfi
höfuöborgar Tsétsenju í gær, en
þá höföu loftárásir legib niðri í
nokkra daga þrátt fyrir eld-
flaugaárásir og hörð átök í ná-
vígi.
Rússnesku sprengjuþoturnar
gerðu a.m.k. fjórar atlögur þar
sem mörgum sprengjum var
varpað hverju sinni, en engar
fregnir hafa enn borist af mann-
tjóni. í allan gærdag hélt stór-
skotalið áfram árásum sínum
víða í Grozníu, þar á meöal í
þeim hverfum sem sprengjum
var varpað á úr lofti. ■
hús og voru fjórir slíkir hand-
teknir í gær. Þá er hafin hin
hefðbundna leit að sökudólgi
sem jafnan fer fram að loknum
náttúruhamförum. Margir vilja
kenna kerfiskörlum og um-
hverfisfræðingum um ósköpin,
en talsmaður strangtrúarsöfn-
uðar nokkurs gerir sér aðrar
hugmyndir um orsökina, að
sögn APN- fréttastofunnar:
„Þetta er hegning guðs fyrir
ranglæti okkar og trúleysi.
Hann er að hrista okkur til og
vekja okkur af blindu okkar og
sljóleika."
Milljón deyr
úr berklum
í S-Asíu
Nýju Delí - Reuter
Um milljón manna deyr úr
berklum í Suður-Asíu á ári
hverju, en af þeim átta milljón-
um sem sýkjast af berklum í
heiminum öllum árlega eru
25% Suöur-Asíubúar.
Ríki í Suður-Asíu reka sameig-
inlega berklavarnastöð í Katm-
andú í Nepal. Sérfræðingar þar
segja að ónákvæmar upplýsing-
ar hái þeim í baráttunni við
„hvíta daubann". ■
Barnaklám:
Lýst eftir fómarlambi í
sænska sjónvarpinu
Stokkhólmi - Reuter
Sænska lögreglan hefur sýnt
kafla úr hrottafengnu mynd-
bandi í þeim tilgangi ab hafa
upp á dreng sem virbist vera 8-
10 ára, en á bandinu sést hvar
honum er nauðgað og mis-
þyrmt kynferðislega af tveimur
körlum.
„Þessi árás er sú grimmileg-
asta sem við höfum séð," segir
Anders Sundenius lögreglufull-
trúi í Norrköping, „og við ætl-
um okkur að finna drenginn og
karlana líka."
Sérstakri deild sem vinnur
gegn barnaklámi hefur verið
komib á fót hjá lögreglunni og
er þessi myndbirting liður í því
starfi. Talið er að myndbandið
hafi verið í umferð í um það bil
þrjú ár. Af myndunum rába
læknar ab drengurinn hafi verið
undir áhrifum deyfilyfja þegar
þær vom teknar. Grunur leikur
á að karlarnir tveir séu enskir en
talið er víst að drengurinn sé
sænskur þótt vísbendingar séu
um að hann gangi í skóla í Bret-
landi. Myndbandi þessu virðist
hafa verið dreift í ýmsum lönd-
um, en þau eintök sem lögregl-
an í Norrköping hefur undir
höndum komu frá Japan og
Niðurlöndum.