Tíminn - 04.02.1995, Blaðsíða 19
Laugardagur 4. febrúar 1995
Vímfom
19
Olafur Sveinsson
bóndi Crund, Reykhólahreppi
Fæddur 8. nóvember 1915
Dáinn 18. janúar 1995
Hugmyndir okkar um hiö skap-
andi afl, skapara heimsins og
höfuðskepnurnar, eru samofnar
og samtengdar örlagavefnum.
Náttúruöflin eru öllum ofviða
og orkan ómælanleg og óút-
reiknanleg þar sem hún leysist
úr læðingi fyrirvaralaust.
Þessum raunveruleika höfum
vib fengið að kynnast undan-
farna daga. Gegn þessu ofurafli
fær enginn mannlegur máttur
staðist.
Æðruleysi og kjarkur eru þeir
eiginleikar sem duga okkur best
þegar út í hildarleik náttúruafl-
anna er gengib.
Þennan eiginleika hafði Ólaf-
ur mágur minn allt frá því fyrst
er ég kynntist honum. Hann var
ekki að fjölyrða mikið um
ástand mála. Hann stóð við
gaflhlaðið þegar hann féll frá
svo skyndilega og fyrirvaralaust
ab loknum gegningum þetta
kvöld.
Fyrir Ólafi voru hin svo-
nefndu vandamál aðeins verk-
efni til úrlausna, torfæran var
tækifæri til átaka, óvissan gaf
tilefni til að leita viöunandi úr-
lausna, fjármögnun verkefna
leysti hann meb fyrirhyggju,
krankleika búfjár var mætt meb
kunnáttu búfræðingsins, svo og
hiröing þess, notkun búvéla
framkvæmd með lipurð og
t MINNING
natni, eöli jarðvegs kannað við
undirbúning túnræktunar.
Búskapur þeirra hjóna og
sona þeirra stóð mjög vel. Þau
stóðu saman að vexti, viðhaldi
og velgengni bús og búsmala.
Búsmali þeirra var annað og
meira en búfé og skynlausar
skepnur. Þetta voru upp til
hópa heimilisdýr, dýr sem létu í
ljós viðbrögö gagnvart alúðar-
fullri umhyggju heimilisfólks-
ins. Hesturinn, kýrin og jafnvel
kindin lét í ljós andsvörun þeg-
ar nafn þess var kallað. Öll þessi
dýr voru annað og meira en
númer á búfjárskýrslu, hver
gripur í fjósi og flestar ærnar
áttu sín nöfn. Þau hjón þekktu
þeirra sérkenni. Með allt þetta í
huga eru það sérstök örlög að
falla frá um leið og mestallur
bústofninn fellur í einu vetfangi
undir hið hvíta feigðarfarg. Síð-
an getur hver og einn sett sig í
spor þeirra sem eftir lifa. Vib
getum skilið hversu erfitt það er
að missa ástvini okkar, en þessir
atburðir samfara því undirstrika
áfallið. En þegar allt virtist horf-
ið og stórhríðin lamdi það hús
sem eftir stóð, kom ljósgeislinn
fram úr örlagamyrkrinu. Sonur
þeirra fannst lítið meiddur, en
æðrulaus undir feigðardyngj-
unni. Hulinn máttur og krafta-
verk verður manni helst í huga
við slíkar aðstæður.
Á þessari tíð veit ég að heimil-
isvinir, aðstandendur, sveitung-
ar og alþjóö ánýja ykkur til
handa, Lilja mín, hugarstyrk og
þrek til aðlögunar að breyttum
aðstæðum.
Að lokum skal tekið undir
kveðju skáldbóndans Guð-
mundar Friðjónssonar:
Jafnvel þótt í fótspor fenni,
fjúki í skjólin heimaratms,
gott er að signa göfugmenni,
gjalda blessun minning hans,
dreifa skini yfir enni,
ilmi um brjóst hins falltia tnanns.
Hjörtur Þórarinsson
DAGBOK
ÍWUWUVAAAAJUU
febrúar
35. dagur ársins - 330 dagar eftir.
5. vlka
Sólris kl. 10.00
sólarlag kl. 17.24
Dagurinn styttist um
6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Sveitarkeppni í brids kl. 13 og fé-
lagsvist kl. 14 í Risinu sunnudag.
Dansað í Goðheimum kl. 20
sunnudagskvöld.
Kvenfélag
Háteigssóknar
heldur aöalfund þriöjudaginn 7.
febrúar kl. 20.30 í Kirkjuloftinu.
Venjuleg aðalfundarstörf. Upp-
lestur. Kaffiveitingar.
J.C. Nes
heldur félagsfund þann 6. febrúar
kl. 20.30 að Austurströnd 3, Sel-
tjarnamesi. Gestir fundarins
veröa tveir miðlar frá Píramídan-
um og kynna þau starfsemi sína.
Allir velkomnir.
Tónleíkar fyrir ungt
fólk
í kvöld, laugardag, kl. 20 heldur
Sinfóníuhljómsveit íslands tón-
leika fyrir ungt fólk í Háskólabíói.
Einn þáttur í starfsemi Sinfón-
íuhljómsveitarinnar er að halda
árlega tónleika sérstaklega ætlaða
ungu fólki. í þetta sinn hefur ver-
ið fenginn til leiks með hljóm-
sveitinni finnskur túbuleikari,
Harri Lidsle að nafni. Harri mun
leik Göngulag * fílsungans (Baby
Elephant Walk) eftir Henry Manc-
ini og Czardas eftir Monti. Auk
þess eru á efnisskránni þáttur úr
5. sinfóníu Beethovens, tónlist úr
kvikmyndum s.s. Júragarðinum
eftir John Williams, Bleika pard-
usnum og James Bond eftir Manc-
ini o.fl.
Hljómsveitarstjóri er Osmo
Vanska, en kynnir er hinn þekkti
tónlistar- og útvarpsmabur Einar
Örn Benediktssón.
Vatnslitamyndir í Safni
Asgríms Jónssonar
í dag, laugardag, verbur opnuð
sýning á úrvali vatnslitamynda
Ásgríms Jónssonar í safni hans aö
Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Á
sýningunni eru um 25 myndir,
aðallega frá tímabilinu 1904-30.
Auk mynda úr listaverkagjöf Ás-
gríms eru þar fjórar vatnslita-
myndir frá fyrri hluta starfsferils
Ásgríms, sem safnið eignaðist á
síðasta ári og mikill fengur er að.
Sýningin stendur til marsloka
og er opin á opnunartíma safns-
ins, kl. 13.30-16 laugardaga og
sunnudaga. Auk þess geta hópar
pantað tíma til að skoba sýning-
una í síma 13644 (Safni Ásgríms
Jónssonar) eba 621000 (Listasafni
íslands).
Norrœna húsiö:
Fyrirlestur og
kvikmyndasýning
Á morgun, sunnudag, kl. 16
veröur haldinn fyrirlestur í röð-
inni Orkanens oje í Norræna hús-
inu. K. Torben Rasmussen, for-
stjóri Norræna hússins", flytur er-
indi sem nefnist „Det langsomm-
es æstetik" og fjallar m.a. um
rússneska málarann Kasimir
Maievitj og franska tónskáldiö
Erik Satie. Með fyrirlestrinum,
sem fiuttur verður á dönsku,
verða sýndar litskyggnur, spiluö
tóndæmi og lögð fram önnur fag-
urfræðileg dæmi.
Allir velkomnir og ókeypis að-
gangur.
A morgun kl. 14 veröur sýnd
sænsk teiknimynd um Aifons
Áberg, sem íslensk börn þekkja
undir nafninu Einar Askell.
Reyndar eru þetta fjórar teikni-
myndir, byggöar á hinum vin-
sælu sögum Gunillu Bergström.
Allir eru velkomnir og er að-
gangur ókeypis.
Fyrirlestur í
Hafnarborg
Þriðji fyrirlestur dr. Gunnars
Kristjánssonar um myndlist í trú-
ar- og trúarheimspekilegu ljósi
verður í Hafnarborg, lista- og
menningarstofnun Hafnarfjarðar,
mánudaginn 6. febrúar kl. 20.
Umfjöllunarefnið er „Kvöld-
máltíðin í nútíma myndlist". Að
loknum fyrirlestri veröa umræður
um viöfangsefnið í kaffistofu.
Fjórði og síðasti fyrirlestur
Gunnars í þessari fyrirlestraröð
verður mánudaginn 20. febrúar,
kl. 20 í Hafnarborg. „Andinn í nú-
tímamyndlist" er þá umfjöllunar-
efnið.
Aðgangur er ókeypis.
Raubi kross íslands:
Námskeib í áfallahjálp
Undanfarið hefur áfallahjálp
verið mikið til umræbu í tengsl-
um viö snjóflóöin í Súbavík. Nú
gefst almenningi kostur á tveggja
kvölda námskeiði í áfalla- og stór-
slysasálfræði (sálrænni skyndi-
hjálp). Kennsludagar verba
mánudagur 6. feb. og þriöjud. 7.
feb. Kennt verður frá kl. 20 til 23.
Námskeiðið er ætlað fyrir alla þá
sem áhuga hafa á áfalla- og stór-
slysasálfræði og eru eldri en 15
ára. Væntanlegir þátttakendur
þurfa ekki að hafa neina fræðilega
þekkingu né reynslu á þessu sviði.
Námskeiðahaldari verður Lárus
H. Blöndal sálfræöingur. Nám-
skeiðið verbur haldið í Fákafeni
11, 2. hæð.
Þeir, sem áhuga hafa á að kom-
ast á þetta námskeið, geta skráð
sig í síma 688188 frá kl. 8 til 16.
Námskeiösgjald er kr. 1.500.
Ljóblelkhúsib í Lista-
klúbbnum
Mánudaginn 6. febrúar munu
ljóðskáldin Birgir Svan Símonar-
son, Ásgeir Kristinn Lárusson,
Þórunn Bjömsdóttir og Þorsteinn
frá Hamri lesa úr verkum sínum.
Baldur Óskarsson fiytur erindi um
Ingimar Erlend Sigurösson og
Ingimar Erlendur les úr ljóðum
sínum ásamt Karli Guömunds-
syni leikara.
Dagskráin hefst um kl. 20.30 í
Þjóðleikhúskjallaranum.
Fréttir í vikulok
SH heldur sínu á Akureyri
Meirihluti bæjarstjórnar á Akureyri hefur ákveðið að leggja til
við stjórn Útgerðarfélags Akureyringa að afurðasölumál félags-
ins verði ekki flutt frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna til Is-
lenskra sjávarafurða hf.
Þá hefur allri ákvarðanatöku um sölu á hlutabréfum í ÚA
verið frestað og samkvæmt ákvörðun bæjarráðs verður þeim
aðilum er sent hafa Akureyrarbæ erindi varðandi hugsanlega
sölu hlutabréfanna verið svarað skriflega.
Verulegur samdráttur í kjötsölu
Heildarkjötframleiðsla var meiri en sala á síðasta ári. Sala á
kindakjöti dróst saman um tæplega 900 tonn frá 1993-1994 en
kjötsala í heild dróst saman um rúm 4%, eða úr 16.300 tonn-
um í 15.600 tonn.
Kennarar samþykkja verkfall
Kennarar hafa samþykkt að fara í verkfali 17. febrúar næst-
komandi ef ekki nást samningar fyrir þann tíma. Davíð Odds-
son forsætisráðherra hefur lýst þeirri skoðun sinni að verkföll
séu úrerlt fyrirbrigði og nær væri fyrir kennara að skipta verk-
fallssjóðnum á mlli sín. Alls mun verkfalliö ná til 50-60 þús-
und nemenda ef af verður.
Aukning atvinnuleysis hjá
Dagsbrún
Samkvæmt Guðmundi J. Guðmundssyni, formanni Dags-
brúnar, fjöigar nú um 40-50 manns á viku innan raða félags-
ins. Hann telur að atvinnulausir verði 800-900 í vetur ef svo
heldur sem fram horfir.
Kaupgeta heimilanna jókst í fyrra
Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilisins jókst um 1% í stað
þess að rýrna um 3% á síðasta ári eins og spáð hafði verið. Skýr-
ing þessa er bætt afkoma þjóðarbúsins í fyrra.
Laun borgarstjóra lækka
Meirihluti borgarstjórnar hefur lagt til að dregið verðl veru-
lega úr borgarútgjöldum og er ein leiðin sem farin verður sú aö
laun borgarfulltrúa og borgarstjóra verði lækkuð um 5%. Svo
dæmi sé tekið lækka laun borgarstjóra um 16 þús. kr. á mán-
uði.
Einar Már fékk bókmenntaverölaun
Norðurlandaráðs
Einar Már Guðmundsson fær bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs fyrir bók sína Englar alheimsins. Einar er fimmti ís-
lendingurinn til að hljóta þennan heiður.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
menningarfulltrúa
Ríkisendurskoðun gagnrýnir ýmislegt í skýrslu um íslenska
sendiráðið í Lundúnum og störf menningarfulltrúa, Jakobs
Magnússonar. Meðal annars er talað um fjárlagaheimildir,
verkefnaval og slæmt bókhald.
Enn ógna snjóflóð á Vestfjörðum
í vikunni var enn lýst yfir hættuástandi á Vestfjörðum vegna
snjóflóðahættu og varð fjöldi fólks að rýma húsnæði sitt af
þeim sökum. Veðurhorfur eru þó batnandi.
Hitafundur hjá Þjóðvaka
Landsfundur Þjóðvaka var haldinn um síðustu helgi og urðu
þar ýmsar væringar. Samhugur ríkti ekki um stefnumál og
mun færri sátu fundinn en reiknað var með. Fylgi flokksins
mælist minnkandi í skoðanankönnunum undanfarna daga.
Stærsta bruggverksmiðjan upprætt
Lögreglan gerði stærstu bruggverksmiðju til þessa upptæka
um síðustu helgi í vesturbæ Reykjavíkur. Alls fundust 1500 lítr-
ar af landa og gambra.