Tíminn - 09.02.1995, Page 8
8
Whntom
Fimmtudagur 9. febrúar 1995
Irösk atómstöö sprengd 1992: fyrirbyggjandi árásir ekki átilokaöar.
Aftur til s j ötta
áratugar
Skömmu eftir frægan sig-
ur sinn í Flóabardaga
komst herstjórn Banda-
ríkjanna ab raun um, ab ekki
hafði munaö nerna hárs-
breidd aö sá ófribur yrbi ab
kjarnorkustríbi. Árib 1991
munabi litlu ab sum kjarna-
vopna þeirra, sem írak hafbi
lengi verib ab reyna ab fram-.
leiba, væru fullfrágengin.
Einstaka af sérfræbingum
Bandaríkjanna um gereybing-
arvopn höfbu haldib þessu
fram, en þeir voru þó fleiri
sem töldu þab fjarri sanni.
Þetta er nú a.m.k. fullyrt í
ýmsum fjölmiðlum. Jafnframt
stendur þar ab út frá þessu og
hættunni á frekari dreifingu
gereyðingarvopna yfirleitt séu
breytingar á skipulagi öryggis-
mála á döfinni hjá Bandaríkjun-
um og Nató.
„Counter-
proliferation''
„Héban í frá verðum vib ab
vera vib því búin ab óvinir okk-
ar í svæðisbundnum átökum
hafi yfir ab ráða kjarnavopnum,
sýklavopnum og eiturgasi," er
haft eftir Heather Wilson, sem
starfabi í þjóðaröryggisráöi
Bandaríkjanna í forsetatíb Ge-
orge Bush.
I þýska fréttatímaritinu Der
Spiegel stendur ab fyrir um ári
hafi Les Aspin, þáverandi varn-
armálarábherra Bandaríkjanna,
komib fram meb nýtt hugtak í
öryggismálum viövíkjandi ger-
eyðingarvopnum: „counterpro-
liferation" í stab „nonprolifer-
ation", sem fram ab því hafði
verib haft til vibmiöunar. í síð-
arnefnda hugtakinu felst ab
komið skuli í veg fyrir ab fleiri
ríki eöa aörir aðilar eignist
kjarnavopn en þegar er orðið, í
hinu fyrrnefnda ab áherslan sé
lögb á að halda í skefjum nýjum
kjarnavopnaveldum. í þessari
áherslubreytingu virbist og fel-
ast aö Bandaríkjastjórn telji ekki
miklar líkur á að hægt sé ab
hindra ab kjamavopnaveldum
fjölgi eöa geri jafnvel ekki leng-
ur ráð fyrir því sem raunhæfum
möguleika.
John Deutch, aöstoöarutan-
ríkisráöherra Bandaríkjanna,
lagði fyrir þingib skýrslu um
þab hvernig Bandaríkjaher
hyggst búa sig undir hernabar-
aðgeröir gegn nýjum kjarna-
vopnaveldum:
1. Hugsanlegar verkanir ABC-
vopna (kjarna-, sýkla- og efna-
Aftur taliö „hœgt"
ab heyja stríö meö
kjarnavopnum.
Bandaríkin ganga
ekki lengur út frá því
aö mögulegt sé aö
tryggja aö fleiri ríki
eignist ekki gereyö-
ingarvopn
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSÖN
vopna) í höndum óvina á
bandaríska hermenn skulu
rannsakaðar og metnar ab nýju.
2. Þjálfun og bardagaaðferöir
verba ab vera meö þab fyrir aug-
um aö hægt sé ab sigra and-
stæðinga vædda ABC-vopnum.
3. Leitast veröi viö að full-
komna eldflaugar og sprengju-
flugvélar ætlaöar til aö verjast
árásum gerðum meö ABC-
vopnurn.
4. Ný og markviss vopn, helst
meö hleöslu úr „venjulegu"
sprengiefni, skulu notuö til aö
eyðileggja ABC-vopn fjand-
manna þegar í upphafi átaka,
eöa áöur en fjandmönnunum
gefist færi á að beita þeim.
Rússnesk kjarna-
vopn í hendur fjöl-
margra?
Óhugnaöar nokkurs gætir
gagnvart þessari nýju stefnu í
öryggismálum, sem banda-
menn Bandaríkjanna í Nató
kváöu nú hafa samþykkt eftir
nokkurt hik. „Sú hugmynd, aö
hægt sé að heyja stríö gegn
kjarnavopnaveldum, er skref
aftur á bak til sjötta áratugar-
ins," sagði vísindamaður aö
nafni John Pike á ráöstefnu
samtaka bandarískra vísinda-
manna. Á sjötta áratugi höföu
Bandaríkin enn þaö mikla yfir-
buröi yfir Sovétríkin í kjarn-
orkumálum aö þau treystu sér
til að vinna kjarnavopnastríö
viö Sovétmenn og lifa þaö af
sjálf.
Grunsemdir gera vart viö sig á
þá leiö aö aðilar, sem eiga hags-
muna aö gæta í her og her-
gagnaframleibslu, stuðli að
þessari stefnubreytingy, en ekki
vantar hinsvegar á lofti blikur
sem benda til þess að óttinn á
bak viö stefnubreytinguna sé
ekki ástæðulaus, og svo hefur
veriö alllengi. Fyrir utan horfur
á því aö til sögunnar konri ný
kjarnavopnaveldi, má í því sam-
bandi nefrta ástandið í fyrrver-
andi Sovétríkjum. Ýmsum á
Vesturlöndum þykir forysta
Rússlands farin ab gerast
ískyggileg og illútreiknanleg.
Viö þaö bætist aö sumir óttast
aö rússneska ríkið leysist upp,
meö þeim afleiðingum aö
kjarnavopn þess komist í hend-
ur fjölmargra minna eba meira
óábyrgra aðila.
Clinton Bandaríkjaforseti hef-
ur skipað prófessor aö nafni
Ashton Carter, sem fyrir all-
löngu var farinn aö beita sér fyr-
ir hugmyndinni urn „count-
erproliferation", aöstoöarráöu-
neytisstjóra varnarmálaráðu-
neytisins. Carter þessi er sagður
þeirrar skoöunar aö Bandaríkin
eigi ekki meö öllu aö útiloka
árásir á verðandi kjarnavopna-
veldi, í þeim tilgangi aö koma í
veg fyrir eöa fresta inngöngu
þeirra í „atómklúbbinn".
Cereybingarvopn
sem mótvægi
Jafnframt gætir meöal
■
.• ...
Jeltsín Rússlandsforseti (t.h.) og Gratsjov varnarmálaráöherra hans: vax-
andi efi um aö kjarnavopn Rússlands séu í„öruggum" höndum.
bandarískra ráðamanna um ör-
yggismál kvíöa þess efnis aö
„counterproliferation"- stefn-
an geti orðið til þess að hleypa
auknum hraöa í kjarnavopna-
kapphlaupiö (sú von aö það
tæki enda með kalda stríðinu
viröist nú orbin meö daufasta
móti). Eftir aö hafa látið af
embætti sem æbsti maöur í
Pentagon komst Les Aspin svo
aö oröi, aö í kalda stríðinu
heföu kjarnavopn Bandaríkj-
anna veriö Vesturlöndum mót-
vægi gegn fjölmennari her sov-
étblokkar í Evrópu. „Nú fer
hinsvegar ekki á milli mála aö
Bandaríkin eru langöflugasta
herveldi heims, og þá er þess
aö vænta að andstæðingar okk-
Kjarnasprengja sprengd í tilrauna-
skyni í Nevada 1951: aftur gert
ráö fyrir því aö hœgt sé aö heyja
stríö gegn kjarnavopnaveldi.
ar reyni aö jafna það upp meö
kjarnavopnum." Aspin virðist
óttast að sú viðleitni kunni aö
magnast til andsvars við „co-
unterproliferation" Bandaríkj-
anna, en væntanlega gera
hann og aörir bandarískir ráöa-
menn sér jafnframt vonir um
að þessi nýja sfefna þeirra í ör-
yggismálum hræöi hin ýmsu
ríki frá því aö koma sér upp
gereybingarvopnum.
Nú er haft fyrir satt aö af
bandarískum valda- og áhrifa-
mönnum um öryggismál hafi
enginn trúaö því ab „stjörnu-
stríðsáætlun" Reagan-stjórnar-
innar væri raunhæf (nema Re-
agan kallinn sjálfur) til annars
en aö hræöa Rússa til undan-
láts, en í sambandi viö „count-
erproliferation" hefur áhugi á
áætlun þessari vaknaö á ný. Er
því haldið fram aö rannsókna-
niðurstööur út frá henni geti
komiö aö notum til að koma
upp nýju varnarkerfi fyrir
Bandaríkin gegn eldflaugum.