Tíminn - 09.02.1995, Page 11
Fimmtudagur 9. febrúar 1995
WtMUVm
n
Hulda Kristjánsdóttir
Hér skal minnast með nokkrum
fátæklegum orðum, konu sem
lést langt um aldur fram. Góðrar
og dugmikillar konu, sem ég og
fjölskylda mín mun minnast um
ókomna tíð.
Hulda Kristjánsdóttir lést á
Landspítalanum eftir langa og
erfiða sjúkdómslegu.
Ég kynntist Huldu þegar ég var
12 ára gamall. Þá fór ég í sveit sem
kúasmali að Látrum í Mjóafiröi.
Hulda og maður hennar Sig-
mundur Sigmundsson höfðu
keypt og tekið við búskap á Látr-
um á fardögum 1955 af Þórarni
Helgasyni. Veturinn áöur höföu
þau verið í vinnu hjá Þórarni á
Látrum. Mér er enn í dag minnis-
stæður dugnaöur þeirra hjóna.
Þar bætti óbilandi kjarkur og elja
upp lítil efni. Börnin komu hvert
af öðru, alls sjö á átta árum. Auk
þess ólu þau upp sonardóttur
sína, Huldu Lind Stefánsdóttur.
Aö þeirri litlu stúlku er nú kveð-
inn mikill harmur ab missa
ömmu sína svo ung sem hún er.
t MINNING
Amma hennar reyndist henni vel
og kenndi henni margt.
Á hinu stóra heimili á Látrum
þurfti oft að taka til hendi og þá
kom sér vel hversu góð hannyrða-
kona Hulda var, en hún saumaði
allt sem þurfti á börnin. Hún var
húsmóðir svo af bar og skipti þá
ekki máli hvenær gesti bar að
garði.
Þegar börnin stækkuöu og fóru
ab heiman gafst frekar tími til að
lesa góöar bækur, og virtist mér af
samtölum okkar að dæma að hún
læsi nokkuð mikið og þá sérstak-
lega ættfræöibækur.
Ég var í tvö sumur á Látrum og
er það mér minnisstætt þegar hún
var að skrúbba á handbretti og
skola þvott í köldum bæjarlækn-
um. Það fóru ekki margir í fötin
hennar Huidu hvab dugnað og
kjark snerti. Þab varð þeim hjón-
um mikið áfall er íbúbarhúsib á
Látrum brann ofan af þeim haust-
ið 1958. Hulda var þá ein heima
með öll börnin, en Sigmundur
var við smölun inná fjalli.
Sú hugsun læbist inn, við and-
lát Huldu, hvers vegna örlögin
eru svona grimm ab hún skuli nú
vera kölluð burt, þegar þau hjón
sáu fram á rólegri daga eftir að
hafa komið sínum stóra barna-
hópi á legg.
Þrátt fyrir að langt sé um liðið
frá því að ég var í sveit á Látrum,
hefur haldist vinskapur milli
heimila okkar og hefur þar aldrei
falliö skuggi á.
Þaö var skrýtið að koma á hlað-
ib á dögunum og hitta þar ekki
fyrir húsmóðurina Huldu, bros-
andi á tröppunum, bjóðandi fólki
í kaffi og heimabakað brauö og
kökur. Þab var okkur því huggun
er í dyrnar kom lítil stúlka og
bauð fólki í bæinn. Þar var komin
nafna hennar. Það er gott til þess
að vita að unga fólkið á bænum
hefur erft eiginleika Huldu og því
verður áfram gott aö koma að
Látrum. En sárt munum vib samt
sakna Huldu okkar.
Við Anna og börn okkar bibj-
um góðan Guð að styrkja Sig-
mund og fjölskyldu í þeirra miklu
sorg. Hafið þökk fyrir allt sem lib-
ið er.
Konráö Eggertsson
Skattapólitík fjármálaráðherrans
Friðrik Sophusson hefir útskýrt, hví
erfitt er að lækka skatta af tekjulág-
um. Það er vegna þess, aö þeir eru
svo margir. Að lyfta skattleysis-
mörkum um aðeins kr. eitt þúsund
á mánuði rýrir tekjur ríkissjóbs um
hundrub milljóna króna. Ráðherr-
ann heldur því áfram ab skattleggja
nauðþurftartekjur.
Hann vill ekki beita stighækk-
andi tekjuskatti og notar þar svip-
aða röksemdafærslu. Hátekjumenn
eru svo fáir, segir hann, að þab svar-
ar ekki kostnaði. Hann er meira að
segja fús til ab ívilna hinum ríku
meb ýmsum öðrum hætti. Nokkur
dæmi skulu nefnd hér:
(i) Peningamenn þurfa ekki að
greiða skatt af fjármagnstekjum.
(ii) Þeir, sem hafa auraráb, geta
keypt sér hlutabréf í tilteknum fyr-
LESENDUR
irtækjum og fengið skatta sína
lækkaba með því um tugi þúsunda
króna.
(iii) Fyrirtæki, sem skilar gróða,
getur keypt annaö fyrirtæki sömu
greinar, er rekiö var meb tapi, og
dregið tap þess fyrirtækis frá skatt-
skyldum tekjum sínum.
(iv) Ef eignir fyrirtækis, svo sem
peningar, bankainnstæður, kröfur á
viðskiptamenn og vörubirgðir, reyn-
ast hærri en skuldir, kemur gjald-
færsla skv. verðbreytingarstubli og
dregst frá skattskyldum tekjum á
framtalinu (53. gr. skattalaga).
(v) Svonefnt abstöðugjald á fyrir-
tæki (eini tekjuskatturinn sem sum
Fribrik Sophusson fjármálarábherra.
þeirra greiddu) hefir verib fellt nið-
ur.
Öll þessi fríöindi eru sögð til þess
ætluð að örva umsvif og fram-
kvæmdir fyrirtækja. Þó er atvinnu-
leysi viðloðandi. Gróðinn Ieitar á
verbbréfamarkaðinn — og í aukn-
um mæli á hinn erlenda, eins og
hagskýrslur sýna. Hitt má ljóst vera,
að Frlbrik Sophusson getur ekki
skilaö hallalausum fjárlögum, með-
an hann þorir ekki ab sækja pening-
ana til þeirra, sem geta borgað.
Hann heldur áfram að skuldfæra
um og yfir tíu milljarða króna ár
hvert yfir á ókomna tíð, á börn okk-
ar og barnabörn. Allt tal hans og
samráöherranna um tímamót, um
jöfnuð, hagvöxt og velferb fram-
undan er bull eitt, ábyrgðarlaust
þvabur. Hagfrcebingur
PAGBOK
Fimmtudaqur
9
febrúar
40. daqur ársins - 326 daqar eftir.
6. vlka
Sólris kl. 9.44
sólarlag kl. 17.41
Dagurinn lengist
um 6 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur, í
Risinu kl. 13 í dag.
Leikfélag eldri borgara, Snúbur
og Snælda, er enn komið á fulla
ferð. Sunnudaginn 12. febrúar
verbur frumsýnt splunkunýtt ís-
lenskt leikrit í Risinu. Það nefnist
Reimleikar í Risinu og er eftir þær
systur Iöunni og Kristínu Steins-
dætur.
Leikritiö er skrifað sérstaklega
fyrir Snúð og Snældu. Þetta er
gleðileikur sem gerist á því herrans
ári 1995, en er að sjálfsögðu meb
alvarlegu ívafi og sterkri tilvísun í
líðandi stund, eins og góðum gam-
anleik ber aö gera. Þar koma við
sögu verur þessa heims og annars,
ástin blómstrar sem aldrei fyrr og
sama er aö segja um ýmiss konar
viðskipti á andlegu og veraldlegu
sviði.
10 leikarar taka þátt í sýning-
unni hjá Snúbi og Snældu. Leik-
stjóri er Sigrún Valbergsdóttir. Lýs-
ingu hannar Kári Gíslason.
Gjábakki, Fannborg 8
Leikfimi kl. 10.20 og 11.10. Kór-
inn æfir kl. 18.15.
Veriö er að skrá í Gjábakka á
skemmtun sem Dansskóli Sigurðar
Hákonarsonar býöur eldri borgur-
um í Kópavogi uppá á konudaginn
19. febrúar. Upplýsingar í síma
43400.
Halli Reynis skemmtir á
Feita dvergnum
Það verður hinn ljúfi og fingra-
fimi Haraldur Reynisson sem leik-
ur á Feita Dvergnum, Höfðabakka
1, um helgina og hefur hann sjald-
an veriö betri en um þessar mund-
ir.
Feiti Dvergurinn opnar kl. 16 á
föstudögum og er opinn til 03.
Aftur opnast dyr Dvergsins á laug-
ardag kl. 14 og þar er opiö sleitu-
laust til kl. 03 aðfaranótt sunnu-
dags.
A laugardögum sitja fótbolta-
spekingar á Feita og fylgjast með
beinum útsendingum frá ensku
knattspymunni, sem hefjast iðu-
lega kl. 15. Á sama tíma er bjórinn
seldur á boltaverði, kr. 390.
Borgarleikhúsið:
Aukasýning á Óskinni
Aukasýning verður á Óskinni
eftir Jóhann Sigurjónsson á litla
sviöi Borgarleikhússins laugardags-
kvöldið 11. febrúar og er það allra
síðasta sýning. Uppselt er orbið á
sýninguna sunnudaginn 12. febr.
sem átti að vera sú síðasta.
Óskin er betur þekkt undir nafn-
inu Galdra-Loftur og er ásamt
„Fjalla-Eyvindi" mest leikna verk
Jóhanns Sigurjónssonar. Með
hlutverk Lofts í þessari uppfærslu
Leikfélags Reykjavíkur fer Bene-
dikt Erlingsson, en með önnur stór
hlutverk fara Árni Pétur Guðjóns-
son, Ellert A. Ingimundarson,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún
Edda Björnsdóttir og Theodór Júlí-
usson.
Miðaverð er kr. 1000 á þessa
allra síðustu sýningu.
Frá Leikféiagi Mosfells-
sveitar
Fjölskylduleikritið Mjallhvít og
dvergarnir sjö í nýrri leikgerö Guð-
rúnar Þ. Stephensen verður sýnt
laugardaginn 11. og sunnudaginn
12. febrúar kl. 15 í Bæjarleikhús-
inu í Mosfellsbæ. Miðapantanir í
síma 5667788.
í tilefni af 50 ára afmæli Reykja-
lundar sýnir Leikfélag Mosfells-
sveitar leiksýninguna „Ævintýriö
um Reykjalund". Undirtitill er:
„Stríð — fyrir lífið sjálft". Valgeir
Skagfjörð tók saman og sýningar
verða nk. laugardag og sunnudag
kl. 20.30. Miöapantanir í síma
5667788.
Sólstafir — norræn
menningarhátíb
Næsta laugardag, 11. febrúar,
hefst í Reykjavík norræn menn-
ingarhátíb, „Sólstafir".
Danska kaffileikhúsið Café
Kolbert verður í Kringlunni frá 11-
13 á laugardag meb grín og gaman
eins og þeim einum er lagið. Þetta
er í annað sinn sem leikhópur
þessi kemur til Islands, en þeir
voru gestir á Dönskum haustdög-
um í september s.l.
Café Kolbert tekur einnig þátt í
Finnsku tangókvöldi sem haldið
verður á Hótel Borg á laugardags-
kvöld. Einnig gefst tækifæri til að
sjá til þessa frábæra leiKhóps í
Þjóðleikhúskjallaranum á mánu-
daginn, 13. feb., kl. 20.30, en sú
dagskrá er á vegum Listaklúbbsins.
Á Borginni á laugardagskvöldiö
munu mæta til leiks sex finnskir
tangóleikarar, með Reijo Taipale í
fararbroddi. Sagt er aö tangóinn sé
orðinn tjáningarform hinnar
finnsku sálar og fleiri tangóar hafa
oröið til í Finnlandi en nokkru
öðru Evrópulandi. Miðapantanir
hjá Hótel Borg.
Á laugardaginn opnar í Norræna
húsinu sýning danska myndlistar-
mannsins Svend Wiig Hansen og
verður listamaöurinn viöstaddur
opnunina. Þennan sama dag verö-
ur í Norræna húsinu dagskrá helg-
uð dönskum bókmenntum og
hefst hún kl. 16. Sérstakir gestir
veröa þeir Knud Sorensen rithöf-
undur og Thomas Thurah gagn-
rýnandi.
Norskir tónlistarmenn koma til
landsins um helgina og verða þeir
með tónleika á Akureyri á sunnu-
dag. Tónleikar þessir eru fyrir alla
fjölskylduna og marka þeir upphaf
tónleikaferðalags þeirra félaga í
skólum í Reykjavík, á Akureyri og
á ísafirði. Tóníistarmennimir eiga
ættir sínar að rekja til Afríku og
munu þeir leika tónlist sem upp-
runnin er frá heimalandi þeirra.
Norræn kvikmyndahátíð hefst í
Háskólabíói á laugardaginn og
mun hún standa í rúma viku.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavík Irá 3. tll 9. lebrúar er I Borgarapótekl og
Reykjavlkurapótekl. Þaó apótek sem lyrr er nefnt
annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 aó kvöldl tll kl. 9.00
aó morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudögum.
Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar
I slma 18888.
Neyða vaktTannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátióum. Símsvari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og Noróurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar i símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opió i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opió frá kl. 11.00- 12.00 og 20.0:
21.00. Á öórum tímum er lyfjafræóingur á bakvakt. Upplýs-
ingar eru gefnar i síma 21445.
Apótek Keflavlkur: Opió virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opió virka daga Irá kl. 8.00-
18.00. Lokaó i hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selloss apótek er opió til kl. 18.30. Opió er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opió virka daga til kl. ' 9.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekió er opió rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. febrúar 1995.
Mánaóargrelóslur
Elli/örorkulifeyrir (grunnlífeyrir)......... 12.329
1/2 hjónalífeyrir........................... 11.096
Full tekjutrygging ellilifeyrisþega..........22,684
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........23.320
Heimilisuppbót.........’.....................7,711
Sérstök heimilisuppbót........................5,304
Bamalíleyrir v/1 barns.......................10.300
Meðlagv/1 barns .............................10.300
Mæóralaun/leóralaun v/1 bams..................1.000
Mæðralaun/feðralaun v/2ja barna...............5.000
Mæðralaun/feðralaun v/3ja barna eða fleiri..10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða..............15.448
Ekkjubaelur/ekkilsbætur 12 mánaða............11.583
Fullur ekkjulifeyrir.........................12.329
Dánarbælur í 8 ár (v/slysa) ................15.448
Fæðingarstyrkur..............................25.090
Vasapeningar vistmanna.......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggrelðslur
Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framlæri ....142.80
GENGISSKRÁNING
08. febrúar 1995 kl. 10,52 Oplnb. Kaup vióm.gengl Sala Gen ' skr.fundar
Bandartkjadollar 67,29 67,47 67,38
Sterlingspund ....104,41 104,69 104,55
Kanadadollar 48,14 48,34 48,24
Dönsk króna ....11,147 11,183 11,165
Norsk króna ....10,023 10,057 10,040
Sænsk króna Q QQQ 9,031 9,015
Finnsktmark ....14,202 14,250 14,226
Franskur franki ....12,669 12,713 12,691
Belgfskur franki ....2,1316 2,1388 2,1352
Svissneskur franki. 51,83 52,01 51,92
Hollenskt gyllini 39,13 39,27 39,20
Þýskt mark 43,88 44,00 43,94
itölsk l(ra ..0,04155 0,04173 6,256 0,04164 6,244
Austurrfskur sch ,...!.6,232
Portúg. escudo ....0,4256 0,4274 0,4265
Spánskur peseti ....0,5085 0,5107 0,5096
Japanskt yen ....0,6780 0,6800 0,6790
írsktpund ....103,76 104,18 103,97
Sérst. dráttarr. 98,49 98,87 98,68
ECU-Evrópumynt.... 82,79 83,07 82,93
Grfsk drakma ....0,2809 0,2819 0,2814
BILALEIGA
AKUREYRAR
•MEÐ ÚTIBÚ ALLTÍ
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar