Tíminn - 03.03.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.03.1995, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 3. mars 1995 Sorpa er öll ab hressast og skilar rekstrarárangri sem fœstir höföu búist vib. Starfsfólki og hluthöfum þakk- abur árangurinn: Skilaði 26,6 milljón króna hagn- aði í fyrra Bygg&asamlag sveitarfélag- anna á höfu&borgarsvæöinu, Sorpa bs., skilabi hagna&i upp á 26,6 milljónir króna á síö- asta ári, sem er góö breyting frá 88 milljón króna tapi árib 1993 og 111 milljónir ári& 1992. Þetta mun koma ýms- um á óvart, enda hafa ýmsar efasemdaraddir var&andi rekstur • fyrirtækisins verib áberandi. Tíminn ræddi í gær vi& Ögmund Einarsson, fram- kvæmdastjóra Sorpu. Hann haf&i þá flutt stjórn fyrirtæk- isins þessi gó&u tí&indi á fundi hennar í gær. „Viö erum býsna hreykin af þessum árangri," sagbi Ög- mundur Einarsson. „Þetta er umsnúningur í rekstri og árang- urinn af öllu okkar basli er nú aö koma í ljós. Viö höfum tekist á viö rekstrarmál og fjármagns- mál meö greinilegum árangri." Ögmundur segir að rekstrar- kostnaöurinn árið 1994 hafi reynst 10% lægri á raunvirði en hann var 1992. Tekjur hafi auk- ist og fjármagnskostnaður sé orðinn meira en helmingi lægri en áður. „Umræðan kringum okkur hefur gengið út á að þetta væri ekki hægt. En vib erum að gera okkar besta og erum bara stolt af. Ég þakka þaö fyrst og fremst starfsfólki okkar, sem hefur náð tökum á rekstrarkostnaði sem skilað hefur miklum árangri. Síban höfum við notiö þess að eigendur ákváöu að leggja til meira fé til að efla eiginfjárstöð- una, 200 milljónir til að skuld- breyta og fá betri kjör," sagði Ögmundur Einarsson. „Sorpa á kannski ekki endi- lega að skila miklum hagnaði, en hún á heldur ekki að tapa fé. Sorpa á að standa eigendum sín- goiiseh.' á ; FfflllsUfOTUt!, Frá Sorpu. Afkoma fyrirtœkisins er nú meb besta móti. : i || & ÉÍPÍIfe s m _ § : ,, um skil á arði af því fjármagni sem þeir hafa lagt í fyrirtækið. Þær væntingar eru geröar til okkar," sagöi Ögmundur Einars- son í gær. Eiginfjárstaða Sorpu var góð um áramótin, 96,1 milljónir króna, miðað við neikvæða stöðu árið áður upp á 9,3 millj- ónir. Eiginfjárhlutfall Sorpu er 9,12%, veltufjárhlutfall 0,99 eba í þokkalegu lagi. Arðsemi heildarfjármagns 1994 var 2,51%, miðað við dökka tölu ár- ið á undan þegar það var mínus 8,16%. Eignir Sorpu eru reikn- aðar upp á rúman milljarð, eba 1.053 milljónir króna — skuld- irnar em upp á 908,1 milljónir króna. ■ Háskólinn, rábuneytib og kirkjan: Sameinast um fræðslu- dag um umhverfismál Umhverfisráðuneytib, Þjóðmála- nefnd kirkjunnar og Siðfræöistofn- un Háskólans hafa tekiö höndum saman og hrint af staö samstarfs- verkefni á sviði umhverfismála. Verkefniö hefst á opnum fræðslu- degi á morgun, laugardag. Yfir- skrift fræðsludagsins er „Hver ber ábyrgö á landinu?" og er hug- myndin að vekja fólk til umhugs- unar og vitundar um nauðsyn skipulegrar siöfræðilegrar umræðu og fræðslu um umhverfismál. Dagskráin hefur með ávari Hr. Ólafs Skúlasonar biskups, en því næst flytja ýmsir merkir menn er- indi, s.s. Páll Skúlason, Björn Björnsson, Jón Gunnar Ottósson og Ingimar Sigurðsson. Kristín Einarsdóttir, form. umhverfis- nefndar Alþingis, mun stýra um- ræðum í lokin, en Össur Skarp- héðinsson umhverfisráðherra flytur lokaorð. Dagskráin verður í stofu 101 í Odda í Háskólanum í Reykjavík. ■ Hreyfing himintungla I. Okkur finnst endilega aö jörðin standi kyrr í lausu lofti og aö fyrirbæri alheimsins — sólin, tungliö, reikistjörn- ur, fastastjörnumar og fleira — hljóti að snúast umhverfis jörðina. Ekki er að undra ab margar aldir hafi liðiö ábur en menn skildu almennt hvað um er að vera. II. Sannleikurinn er sá aö jöröin er á mikilli siglingu um geiminn með sól- kerfinu (bæði í hring innan vetrarbraut- arinnar og með henni í tiltekna átt); hún snýst auk þess um sjálfa sig og um- hverfis sólina. Þessi margþætta hreyfing er misaugljós. Erfitt er að skoða stóru ferlana. Þrátt fyrir gífurlegan hraöa sól- kerfi ;ins innan vetrarbrautarinnar, mörg hundrub kílómetra á sekúndu, eru vegalengdir miklar og viðmiðin fjarri. Þess utan em sólin og allar reikistjörn- urnar á sama hraða í þessum tiltekna ferli. Það tekur sólkerfiö um 230 millj- ónir ára ab skjótast hring um massa- miðju vetrarbrautarinnar (meöan allt þaö sólkerfasafn þýtur í tiltekna átt meb ofsahraba!). III. Nú vitum við ab sú hreyfing, sem okkur sýnist verða á tunglinu og stjörn- um himinsins á hverju kvöldi og á sól- inni á daginn, stafar af snúningi jarðar um sjálfa sig (möndulsnúningi). Hann UM- HVERFI Ari Trausti Cubmundsson jarbe&lisfræ&ingur verbum við ekki vör vib úti vib (líkt og þegar maður hleypur og finnur vind- mótstöðu), af því ab allt sem er við.yfir- borð jarðar fylgir á sama hraba og jarö- kúlan snýst með. Þar með talið gufu- hvolfiö. Vib vitum líka ab jörðin hend- ist stóran sporöskjulaga „hring" um sólina á um 365 dögum. Þá umferöar- hreyfingu má sjá meb því að rýna í stjömurnar mörg kvöld í röö. Þær hafa þá færst til sem heild, miöaö við föst kennileiti á jörbu á sama klukkuslætti. En ofan á allt þetta bætist svo eigin- hreyfing allra stjarnanna (sem eru lang- flestar nálægar sólir) í geimnum. Litlu ljóspunktarnir á festingunni breyta um innbyrðis afstööu með tímanum. Stjömumerkin aflagast. Fáeinir punkt- anna em reikistjörnur innan okkar sól- kerfis. Þær em margfalt nær okkur en hinar og færast því mun greinilegar úr stað, t.d. miðað við fjarlægu sólirnar (t.d. ákveðin stjörnumerki). IV. Tunglið hefur svo sína sérstööu. Það snýst í raun í kringum jöröina á um 28 dögum og um leiö einn hring á möndli sínum. Af því leiðir ab það snýr alltaf sömu kúluhliö aö jöröinni. Ekki má mgla þessu samán við kvartilaskipti tunglsins (mismikiö upplýsta tungl- kringluna). Þar er um aö ræba afstööu tungls og sólar, sem lýsir upp mngliö, miðað við jörðina dag hvern. Gangur mnglsins hvert kvöld (það færist yfir kvöldhimininn frá austri til vesmrs eins og sólin á daginn) stafar auðvitað af möndulsnúningi jarðar. V. Þegar menn hyggja að öllu þessu, er ekki mröa að nokkurn tíma hafi tekiö að skilja hreyfingu himintunglanna, sem líkist helst einhvers konar umferða- róreiðu í stórborg. Lögö er mikil vinna í að reikna út hreyfingar himinmngla og búa til töflur um „verustaði" sumra þeirra á kvöldhimninum á hverjum tíma. Þannig má t.d. sjá hvar Mars er á haust-, vetrar- og vormánuöum og margt fleira í rimm og gagnabönkum. Hér á landi gefur Háskólinn út vandaö almanak, útbúib á Raunvísindastofnun, sem selt er á almennum markabi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.