Tíminn - 03.03.1995, Blaðsíða 9
Föstudagur 3. mars 1995
9
Lífsglatt fólk
í Gjábakka
Gjábakki er félagsheimili eldri
borgara í Kópavogi. Húsnæöiö
var tekiö í notkun fyrir tæp-
lega tveimur árum og hefur
starfsemin þar veriö í mótun
eins og öll slík starfsemi á allt-
af aö vera. Félagsheimiliö er
opiö frá kl. 9.00 til 17.00 alla
virka daga. Heitur matur er
seldur á vægu veröi í hádeg-
inu og alltaf er heitt á könn-
unni og heimabakaö meölæti.
Námskeiöahald er fjölbreytt,
leikfimi, kórsöngur, leiklist
o.m.fl. Öll starfsemi hússins
tekur miö af óskum þátttak-
endanna sjálfra, enda ættu
þeir aö vita best hverskonar
starfsemi á aö vera í þeirra fé-
lagsheimili.
Félags- og tómstundastarf
hefur um áratugaskeið verið
meö miklum blóma í Kópavogi,
en segja má að meö tilkomu
þessa skemmtilega húsnæöis
hafi verið brotið blaö í húsnæö-
ismálum þeirra félagasamtaka
sem láta sig varöa velferö
„þeirra sem byggöu bæinn". Ut-
an hins heföbundna opnunar-
tíma fer fram margþætt starf-
semi í húsinu, sem eldri borgar-
ar sjá sjálfir um, en Frístunda-
hópurinn Hana-nú, Félag eldri
borgara og Félagsstarf aldraöra
hafa aöstööu í Gjábakka.
Á kvöldin eru dansleikir, fé-
lagsvist, kvöldvökur, fræöslu-
fundir, skemmtifundir o.fl.
Þá er mikil feröagleöi meöal
eldri borgara í Kópavogi og eru
Á góbri stund í Gjábakka er hvert sœti jafnan skipab.
lengri og skemmri feröalög
mjög vel sótt. í sumar fara eldri
borgarar í fjögurra daga ferð,
auk þess sem farnar verða
fræösluferöir, kráarferöir, leik-
húsferöir o.fl.
Það má því segja aö það ríki
sönn lífsgleði í Gjábakka, þar
sem eldri borgarar fá tækifæri til
aö gera þaö sem hugur þeirra
stendur til hverju sinni.
/ Gjábakka er heimilislegt. Abalsteinn Gubnason lætur fara vel um sig.
Öryggi á sjó
Nýtt myndband fyrir nýliba
Myndbær hf. hefur framleitt
myndina Öryggi á sjó, sem fyrst og
fremst er ætluð nýliðum í sjó-
mannastétt, en einnig til áminn;
ingar fyrir sjómenn almennt. í
myndinni eru helstu öryggisþættir
um borð í fiskiskipum kynntir.
Myndin er gerð með faglegri að-
stoð Slysavarnaskóla sjómanna og
Guðbjarts Gunnarssonar skip-
stjóra, sem hefur áratuga reynslu á
þessu sviði.
í marsmánuði 1994 var sam-
þykkt á Alþingi að setja sem skil-
yrði fyrir lögskráningu nýliða aö
þeir hafi lokið námi fyrir nýliða
með fullnægjandi hætti. Er miðað
viö að námið fari fram í Slysavarna-
skóla sjómanna. Myndinni er ætl-
að að vera liður í því átaki sem nú
er unnið að í öryggismálum nýliða.
Myndinni verður m.a. dreift til út-
gerðarfyrirtækja á VHS-mynd-
böndum.
Öryggi á sjó er tekin upp í Slysa-
varnaskóla sjómanna, við raun-
verulegar aðstæður um borð í fiski-
skipi og einnig er í henni leiðsögn
varðandi öryggi við störfin um
borð.
Meginatriði í myndinni eru eftir-
farandi:
1. Inngangur. Af hverju nýliðafræðsla?
2. Öryggisatriði og -búnaöur sem
nýíiðar verða að kunna skil á:
a) Neyðaráætlun.
b) Öryggisáætlun.
c) Æfingar.
d) Bjarghringir, Markúsarnetið,
Björgvinsbeltið.
e) Björgunarvesti og flotbjörgunar-
búningar.
f) Gúmmíbjörgunarbátar.
3. Eldvarnir.
4. Öryggi við störfin um borö.
Farið yfir helstu hættur og hvað
ber að varast. Athyglinni er beint að
vinnu á dekki og í lest.
Myndin er rúmar 20 mínútur.
Með myndinni er dreift hefti um
sama efni.
Nánari upplýsingar um myndina
veitir Jóhann Briem, framkv.stj.
Myndbæjar hf., í síma 91-31920. ■
Frá vinstri: Sigurbur Ingólfsson, skipverji og túlkur, Helga Gubjónsdóttir og
Hilmar jónsson, sparisjóbsstjóri.
Leonid, skipstjóri Ochers, sker tert-
una frá sveitarstjórninni í Vestur-
byggb, en Ragnar Fjeldsted horfir á.
Ásgeir Þórbarson, skipstjóri og einn eigenda ístog hf., tekur vib blómvendi
frá Gísla Ólafssyni, nýjum sveitarstjóra Vesturbyggbar.
Nýtt leiguskip bœtist í flota Vestfirbinga:
Ocher kominn til
Patreksfjar&ar
Nýtt skip bættist í flota Pat-
reksfirðinga um síbustu helgi
meb komu frystitogarans Oc-
her frá Litháen. Fyrirtækib ís-
tog hf. hefur tekiö togarann á
leigu í a.m.k. eitt ár og veröur
skipiö gert út frá Patreksfiröi
til úthafskarfaveiöa á Reykja-
neshrygg.
Ocher er skráöur í Rússlandi
og í áhöfn veröa 34 Rússar og
Litháar, en aö jafnaöi veröa 4 ís-
lenskir yfirmenn um borö.
Frystitogarinn er 2300 brúttó-
rúmlestir aö stærö, 63 metrar aö
lengd og knúinn áfram af 2400
hestafla aöalvél. Meginhluti afl-
ans veröur hausaöur og heil-
frystur um borö og seldur á
markaö í Japan, en hluti hans
veröur einnig boöinn til sölu á
Patreksfiröi.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum, sem teknar eru af Sig-
urði Viggóssyni, var mikiö um
dýrðir á Patreksfiröi viö komu
togarans. M.a. færöi nýr sveitar-
stjóri Vesturbyggöar áhöfn og
abstandendum skipsins stóra
rjómatertu í tilefni dagsins. ■