Tíminn - 03.03.1995, Qupperneq 16
iWIMt
Föstudagur 3. mars 1995
Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.B0 í gær)
• Suburland og Faxaflói: Noröaustan gola eba kaldi. Lettskýjab.
• Breibafjörbur: NA-kaldi og léttskýjab.
• Vestfi/bir, Strandir og Nl. vestra: Norbaustlæg átt, víbast stinn-
ingskaldi. El.
• Norburland eystra og Austurland ab Clettingi: Allhvöss eba
hvöss NV- átt. El.
• Austfirbir: NV-stinningskaldi. Skýjab meb köflum til landsins.
• Subausturland: Léttir til meb minnkandi NA-átt. Gola eba kaldi og
léttskýjab síbdegis.
Aukin umsvif í rekstri Eimskips á síöasta ári:
Eimskip hagnaðist
um hálfan milljarð
Eimskip hagna&ist um tæplega
560 milljónir króna á síbasta ári
og rekstrartekjur fyrirtækisins
jukust um tæplega milljarð
króna frá árinu áður. Þetta er
talsvert betri útkoma en árið
1993, en þá nam hagnaðurinn
tæpleg 370 milljónum króna.
Rekstrartekjur Eimskips og
dótturfélaga þess námu á síðasta
ári 9.558 milljónum króna á móti
8.601 milljónum árið 1993. Eig-
infjárhlutfall Eimskips er sterkt
eða 48% og nam eigið fé fyrirtæk-
isins 5.161 um síðustu áramót.
Jákvæða afkomu Eimskips má
einkum rekja til þriggja þátta í
rekstrinum. Þeir eru: Aukning á
heildarflutningum, betri nýting á
flutningakerfi og aukinn hagnað-
ur af starfsemi félagsins erlendis.
Aðalfundur Eimskips verður
haldinn n.k. fimmtudag. Þar
verbur lagt til að greiddur verði
10% arður til hluthafa og jafn-
framt að hlutafé félagsins veröi
aukib um 20% með útgáfu jöfn-
unarhlutabréfa. ■
Par í haldi vegna Lcekjargöturánsins:
Talin tengjast
ráninu með
beinum hætti
Tímomynd GS
Rannsóknarlögregla ríkisins
yfirheyröi í gær par, sem
handtekiö var á Keflavíkur-
flugvelli í gærmorgun og var
kvenmaöurinn með hundruð
þúsunda króna á sér, allt í ís-
lensku reiðufé og eru þau tal-
in tengjast Lækjargöturáninu,
líklega með beinni aðild. Par-
ið hugðist fara til Amsterdam
og koma til baka á þriðjudag.
RLR varðist í gær allra frétta
af málinu, en þegar Tíminn
fór í prentun var beöiö gæslu-
varðsúrskurbar yfir parinu.
Samkvæmt óstaöfestum
heimildum er unnið eftir því að
parib hafi átt beina abild að
Lækjargöturáninu og RLR hafi
aflað vísbendinga sem geti
tengt þriðja aði.la við ránið ef
hann næst. Sá er þekktur úr
fíkniefnaheiminum.
Samkvæmt sömu heimildum
er ljóst aö lögreglan á Keflavík-
urflugvelli stöbvaði parið sam-
kvæmt beiðni frá RLR og RLR
hafi haft þau grunub allt frá
fyrri stigum rannsóknar.
Samkvæmt þessum sömu
heimildum er ekki fullvíst
hvort ræningjarnir hafi verið
tveir eða þrír, þar sem fram-
burbi kvennanna tveggja, sem
rændar voru, ber ekki fullkom-
lega saman. ■
Sigríbur Einarsdóttir hjá Fiskibjunnmi á Tunguveginum hampar hér hlýra.
Sobningin hœkkaö um 5-6% í veröi á einu ári:
Allur fiskur ódýrastur
í Fiskbúðinni Tunguvegi
„Eins og sjá má er verulegur verb-
munur á mörgum fisktegundum
og má ab miklu leyti rekja þenn-
an óvenju mikla verbmun tii lágs
fiskverbs í fiskbúbinni Tunguvegi
19", segir Samkeppnisstofnun um
niburstöbur verbkönnunar á 23
fisktegundum í nærri 40 fisk- og
matvöruverslunum á höfubborg-
arsvæbinu.
í öllum tilfellum var lægsta verb-
ið aö finna í Fiskbúöinni á Tungu-
vegi. Næst lægsta verð á sömu teg-
undum er jafnaðarlega um 25%
hærra en á Tunguveginum, meðal-
verðið 47% hærra og hæsta verðib
83% hærra aö mebaltali. í átta til-
vikum er verðmunurinn á bilinu
100% og allt upp í 217%.
Frá samsvarandi könnun fyrir ári
hefur verð á ýsu og ýsuflökum, nýj-
um og nætursöltuðum, hækkað um
rúmlega 6% að meðaltali. Meöal-
verð flestra annarra fisktegunda
hefur hækkað álíka, nema saltfiskur
sem jafnaðarlega er nú 2-3% dýrari
Þjóövaki — nýtt vikublaö um stjórnmál. Öflugra en Alþýöublaöiö strax frá fyrsta tölublaöi. Ólína Þorvaröardóttir:
Reikna ekki með að
þurfa að nota svipuna
Vikublaðið Þjóðvaki kom út
á miðvikudag í fyrsta skipti.
Á mánudögum mun blaðið
koma út vikulega. Lesendur
mega eiga von á að lesa um
ýmis þjóðþrifamál sem Þjóö-
vaki leggur áherslu á, pólit-
íska umræbu sem heitast
brennur hverju sinni.
-En les fólk pólitísk mál-
gögn?
„Öll dagblöðin breytast í
kosningablöð fyrir kosningar,
líka Mogginn og DV, ég held
að lesendur viti það. Munur-
inn á okkur og hinum er sá ab
við erum ekkert ab fela það,
við emm með áherslur Þjób-
vaka í landsmálum," sagði
Ólína Þorvarðardóttir, ritstjóri
hins nýja blabs, og spáði Þjób-
vaka miklu meiri útbreibslu en
Alþýðublaðinu. Þjóbvaki er
Ólína Þorvarbardóttir, íslenskufrœbingur og fyrrverandi fréttamabur á Sjónvarpinu,
ritstýrir Þjóbvaka, sem á ab taka til hendinni í íslenskri pólitík. Tímamynd GS
gefinn út í 20 þúsund eintök-
um, Alþýöublaöið talsvert
færri. Þjóðvaki er afhentur gef-
ins fram til kosninga, eftir það
veröur staðan endurmetin, en
Alþýðublaðið er selt til áskrif-
enda.
„Þetta verður heibarlegt blað
sem lætur sér ekkert pólitískt
eða mannlegt óviðkomandi
og tekur hiklaust á málefnum,
utan hreyfingarinnar sem inn-
an. Ef ástæba verður til að taka
óvægilega á innri málum, þá
munum vib ekki skirrast við
að taka á slíkum málum. Ég
reikna þó ekki með aðþurfa að
nota svipuna," sagði Olína.
-En hver borgar útgerð nýs
vikublaðs?
„Blabið stendur undir sér
með auglýsingum og sjálf-
boðavinnu. Hér leggjast marg-
ir á eitt. Ritstjórinn er að vísu
ekki sjálfboðaliöi, en afar létt-
ur á fóðmm," sagði Ólína Þor-
varðardóttir í gær. ■
en fyrir ári. Smálúðuflök er eina
fiskmetið sem lækkað hefur örlítið í
verði á tímabilinu. Steinbítsflök
hafa á hinn bóginn hækkað mest,
eba 10% að meðaltali.
Meðalverð á þeim fiski sem mest
er keyptur, ýsuflökum, var 536 kr. á
kíló. Á Tunguveginum fengust ýsu-
flökin á 425 kr. en í 10-10 í Hraun-
bæ kostubu þau 595 kr. Verðmunur-
inn er 40% eba 170 kr. á kílóið. Og
svipað er að segja um verðmun á ýs-
unni heilli, nætursöltubum flökum
og lausfrystum ýsuflökum. Á reyktri
ýsu var munurinn ennþá meiri, eða
67%, frá 470 kr. á Tunguveginum til
783 kr. í Melabúðinni.
Dæmi um miklu meiri verðmun
eru líka mörg, sem áður segir. Kinn-
ar kostubu t.d. 180 kr. á Tunguveg-
inum, 317 kr. að mebaltali og allt
upp í 550 kr. í fiskbúö á Langholts-
vegi. Verðmunurinn er því meira en
þrefaldur.
Snjóflób féll
á Seybisfirbi
Snjóflóð féll á Seyðisfjörð í hádeg-
inu í gær og féll það í utanverðan
bæinn, skammt innan við Far-
fuglaheimilið vib Ránargötu.
Flóðið var um 50 metra breitt og
um 1,5 metrar á dýpt og féll alveg
nibur á veg og skar hann að ein-
hverju leyti, en það náði þó ekki
niður í sjó. Engan sakabi í flóðinu
og engar skemmdir urðu. ■