Tíminn - 07.03.1995, Blaðsíða 10

Tíminn - 07.03.1995, Blaðsíða 10
10 Þri&judagur 7. mars 1995 Formaöur Aftureldingar í handboltanum: Evrópukeppnin er spurningarmerki Ekki útilokaö aö flytja heimaleikina í úrslitakeppninni „Þó viö séum komnir í Evrópu- keppnina, þá er enginn skyldug- ur til aö taka þátt í henni. Það er hlutur sem viö aetlum að skoöa þegar íslandsmótiö er afstaðið. Þaö er hins vegar alveg ljóst að ef viö sjáum fram á aö þátttakan reynist eitthvert fjárhagslegt æv- intýri, þá er alls ekki víst aö við tökum þátt," segir Jóhann Guö- jónsson, formaður handknatt- íeiksdeildar Aftureldingar, en lið- iö hefur þegar tryggt sér sæti í Evrópukeppninni næsta haust. „Við skoöum þetta af varkárni, en viö vitum hvaö þetta hefur kostað önnur félög. Þegar talað er um skuldsett handboltafélög, þá er þátttaka í Evrópukeppninni nefnd til. Viö munum því eflaust leita ráða," segirjóhann. Afturelding er komin i 4ra liða úrslit í úrslitakeppninni, en hefur þaö komiö til tals að flytja heimaleiki félagsins á stærri staö til að ná inn meiri tekjum? „Þaö er ekkert launungarmál aö okkar NBA- úrslit Denver-Miami .........100-98 LA Lakers-Sacramento 109-104 Portland-Utah Jazz.....88-98 Boston-Detroit ........91-98 LA Clippers-Denver ...89-101 Cleveland-New York....76-89 Indiana-Boston ......101-107 San Antonio-Orlando .112-111 Philadelphia-Chicago ...94-106 Staban Austurdeild AtlantshafsríöiU (sigrar, töp, hlutfall) Orlando ..44 14 75.9 New York .36 19 65.5 Boston .23 33 41.1 NewJersey ... ..22 36 37.9 Miami ..21 35 37.5 Philadelphia ..17 40 29.8 Washington ..15 41 26.8 Miöribill Charlotte .37 21 63.8 Indiana ..34 22 60.7 Cleveland .... ..33 23 58.9 Atlanta ..28 29 49.1 Chicago ..28 30 48.3 Milwaukee.... .22 36 37.9 Detroit ..21 35 37.5 Vesturdeild MiövesturribiII Utah Jazz ..41 16 71.9 San Antonio ..38 16 70.4 Houston ..35 22 61.4 Denver ..25 31 44.6 Dallas ..22 32 40.7 Minnesota ... ..16 41 28.1 Kyrrahafsriöill Phoenix ..44 14 75.9 Seattle ..38 17 69.1 LA Lakers ..35 20 63.6 Portland ..30 24 55.6 Sacramento ...28 27 50.9 Golden State .16 39 29.1 LA Clippers ...11 47 19.0 heimavöllur er gríðarlega sterkur, þannig aö menn verða að vega það og meta, þegar þar að kemur, hvort eigi aö taka aurana fram yf- ir, jafnvel á kostnað vinnings. Sá möguleiki kemur því alveg til greina að flytja heimaleikina, því við lentum t.d. í því í síðasta leiknum gegn FH að fólk þurfti að hverfa frá vegna þrengsla," sagði Jóhann. Besiktas tapaöi í toppslagnum: „Endalaus óheppni" segir Eyjólfur Sverrisson, sem átti skot í stöng „Við vorum mjög óheppnir í þessum leik og mörkin, sem við fengum á okkur, voru alveg hræðileg, hvert klaufamarkið á fætur öðru. Síðasta markið (10 mín. fyrir leikslok) kórónaði allt saman, en þá kom skot að marki, ef skot skyldi kalla. Það fór í legginn á einum leik- manni okkar, skoppaði yfir markmanninn og í markið," segir Eyjólfur Sverrisson, en hann og félagar hans í Besiktas töpuðu fyrir Galatasaray í topp- slagnum í tyrkneska boltanum um helgina, 2-3 á heimavelli. „Við vorum mun betri í leikn- um, en óheppnin var endalaus; m.a. átti ég eitt skot í stöng af 20m færi og annað rétt fram- hjá, en boltinn vildi bara ekki inn." Þetta var annaö tap Besiktas á heimavelli í vetur, en liðið hef- ur nú tveggja stiga forskot á Galatasaray, sem á leik til góða. Næsti leikur Besiktas verður gegn Genclerbirgli á útivelli, en það lið hefur m.a. lagt Galatas- aray að velli. „Sá leikur verður að vinnast. Annars eru 10 leikir eftir og ég held að við séum með aðeins léttara prógramm eftir á pappírnum," sagði Eyj- ólfur. Helgi Sigurösson var í byrjun- Eyjólfur Sverrisson átti skot í stöng. arliði Stuttgart, sem tapaði fyrir Köln í þýska boltanum og stóð sig sæmilega. Þrír íslendingar hafa nú leikið með Stuttgart: Ásgeir Sigurvinsson, Eyjólfur Sverrisson og Helgi. ■ Kristinn sýndi sitt besta og Ásta Halldórsdóttir vann tvö svigmót Kristinn Björnsson náði sínum besta árangri til þessa í svigi á móti í Schleching í Þýskalandi um helgina, en þar keppti ís- lenska landsliðið. Kristinn hafnaði í 6. sæti og fékk 9,32 keppnisstig, sem þýðir að hann fékk 16,44 FlS-punkta fyrir þetta mót og er það glæsilegur árangur. Þessi frammistaða Kristins sýnir aö hann er í feiknaformi og bætir sig stöö- ugt, og er skemmst að minnast þess þegar hann fékk 17 punkta í stórsvigi í Kóreu. Arnór Gunn- arsson lenti í 12. sæti og fékk 25,19 punkta. Aðrir íslendingar féllu úr keppni. Þá sigraði Ásta Halldórsdóttir á tveimur svig- mótum, sem fóru fram í Södra Berget í Svíþjóð. Hún fékk 19,77 punkta fyrir fyrra mótið og 20,47 punkta fyrir seinna mótið. ■ Martha í 3. sæti í víbavangshlaupi Urvalsdeildin í körfubolta: Úrslitakeppn- in hefst á morgun Úrslitakeppnin í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik karla hefst á morgun. Þau lið, sem mætast þá í 8 liða úrslitum, eru: Njarð- vík-KR og Grindavík-Haukar. Á fimmtudag leika síðan Kefla- vík-Þór og ÍR-Skallagrímur fyrstu leiki sína. Tvo sigra þarf til aö komast áfram í undanúr- slit, en þar mætast Njarð- vík/KR-ÍR/Skallagrímur og Grindavík/Haukar-Kefla- vík/Þór. ■ Rhodes og Ermonlinskíj mœtast á morgun. Martha Ernstdóttir varö þriðja á alþjóölegu víðavangshlaupi í Mílanó um helgina og er nú í 8.-9. sæti í heildarstigakeppn- inni, sem veitir henni keppnis- rétt á HM-mótinu þann 25. Jón Gunnarsson stal senunni á 25. kraftlyftingamóti íslands, sem fór fram um helgina. Hann setti þrjú íslandsmet í JOOkg flokki og var eini keppandínn sem setti met í opnum flokki. í hnébeygju lyfti hann 352,5 kg, í réttstöðulyftu 335,5 kg og tvíbætti síöan íslands- metið í samanlögbu, fyrst lyfti hann 872,5 kg og svo 892,5 kg. mars. 35 keppendur hlupu í Mílanó og fór Martha hlaupið á 20,41 mínútum, 27 sekúndum á eftir Albertina Diaz sem varð fyrst. Hann átti gömlu metin sjálfur nema í réttstöðulyftu, en þar átti Auðunn Jónsson metið. Aðrir sig- urvegarar í mótinu urðu Jóhannes Eiríksson (í 60kg flokki), Helgi Gíslason (67,5), Halldór Eyþórsson (75), Bárður B. Olsen (82,5), Ingi- mundur Ingimundarson (90), Flosi Jónsson (110), Gunnar Ólafsson (125) og Jón B. Reynisson (+125). ■ 25. meistaramót í kraftlyftingum: jón setti þrjú Islandsmet Urslit Handknattleikur 1. deild kvenna — úrslitakeppnin FH-Víkingur............28-25 Haukar-Fram............19-29 Ármann-Stjarnan........16-27 ÍBV-KR ................26-21 Fram, Stjarnan og ÍBV eru kom- in í undanúrslit, en þriöja leik- inn þarf til hjá FH og Víkingi. 1. deild karla — úrslitakeppnin Stjarnan-KA .............23-26 í 4ra liða úrslitum mætast í kvöld Valur og Afturelding, en annað kvöld spila Víkingur og KA. 2. deild karla — úrslitakeppnin Þór-Grótta ........19-25 (8-12) Fylkir-Fram......22-21 (10-10) ÍBV-Breiðablik....28-24 (13-12) Staöan Grótta .... 4 4 10 90-80 9 ÍBV 4 4 0 0 106-91 8 Fram 4 103 74-77 6 Fylkir 4 2 11 90-90 5 Breiðablik ....4 103 89-93 3 Þór Ak ....4 00 4 81-99 0 Næstu leikir á morgun: Fram- Þór, Grótta-ÍBV, Breiðablik-Fylk- ir. Körfuknattleikur 1. deild kvenna Tindastóll-Breiðablik......57-76 Tindastóll-Breiðablik......54-98 KR-ÍS .....................76-56 Valur-ÍR ..................77-30 Staðan, leikjafjöldi í sviga: Kefla- vík 38 (22), Breiöablik 36 (22), Grindavík 30 (23), KR 30 (22), Valur 22 (22), Tindastóll 20 (23), ÍS 16 (21), Njarðvík 8 (22), ÍR 0 (23). Fjögur efstu liöin fara í úr- slitakeppni. 1. deild karla KFÍ-ÍS......................77-80 KFÍ-ÍS.....................78-81 Þór Þ.-Höttur...............88-53 Selfoss-Höttur..............73-69 ÍH-Breiöablik .............74-133 ÍS og Breibablik fara í úrslita- keppnina úr A-riðli, en Þór Þ. og Leiknir R. úr B-riðli. Sigurvegar- inn fer í úrvalsdeildina, en lið í öðru sæti spilar við Akranes um laust sæti í úrvalsdeild. Blak 1. deild karla Þróttur R.-Þróttur N........3-1 (15-9, 12-15, 15-12, 15-8) KA-ÍS........................0-3 (11-15, 8-15, 7-15) Stjarnan-HK..................2-3 (15-13, 15-12, 7-15, 9-15, 10-15) Staban Þróttur R......18 16 2 52-15 52 HK.............18 15 3 47-19 47 KA............ 18 10 8 33-38 33 Stjarnan ......18 5 13 30-40 30 ÍS.............18 6 12 26-39 26 Þróttur N......18 2 16 13-50 13 Knattspyrnumót á Kýpur: Island vann íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, sigraði á 4ra liöa móti sem lauk á Kýpur um helgina. í síbasta leiknum vann ísland lið Eistlendinga 7-0 og Noregur vann Finnland 2-0. ís- land og Noregur urðu jöfn að stigum, en ísland hafði betri markatölu. Eiður Smári Guö- johnsen gerði tvö mörk gegn Eistlandi, en þeir Kári Steinn Ragnarsson, ívar Bjarklind, Gubmundur Benediktsson, Sig- urbjörn Hreiðarsson og Sigur- vin Ólafsson eitt mark hver. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.