Tíminn - 09.03.1995, Blaðsíða 1
SIMI 631600
79. árgangur
Samkomulag nábist ekki
um takmörkun á birt-
ingu auglýsinga stjórn-
málaflokkanna fyrir
komandi kosningar:
Alþýðuflokk-
urinn rauf
samstöðuna
Fulltrúar stjórnmálaflokka,
sem eru í framboói til alþing-
iskosninga, reyndu ab ná
samkomulagi um þab hvern-
ig auglýsingamálum yröi
háttað fyrir komandi kosn-
ingar. Um þetta nábist ekki
samstaöa og var það Alþýðu-
flokkurinn sem klauf sig út úr
viðræðunum. Siguröur Tóm-
as Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýbuflokks-
ins, segir að flokkurinn hafi
verib reibubúinn til sam-
starfs, en hafi ekki getað sætt
sig vib þær takmarkanir sem
gert var ráð fyrir að yrbu í
samkomulaginu.
í fyrirhuguðu samkomulagi
var gert ráð fyrir að engar leikn-
ar auglýsingar yrðu í sjónvarpi,
en hins vegar yröu skjáauglýs-
ingar leyfðar. Gert var ráð fyrir
að þess utan yröi settur kvóti á
birtingar á auglýsingum í dag-
blööum og var þá talaö um aug-
lýsingamagn sem næmi 15
tieilsíðum á hvern flokk.
Samkvæmt heimildum Tím-
ans eru flokkarnir misvel í stakk
búnir til að mæta kostnaði við
komandi auglýsingaherferð.
Heimildir herma að t.d. Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi eytt
miklu fé til sveitarstjórnakosn-
inga á síðasta ári og því haldi
menn dálítið aö sér höndum,
, enn sem komið er.
Sigurður Tómas segir Alþýðu-
flokkinn vera betur á sig kom-
inn fjárhagslega en oft áöur og
að áætlanir þeirra gangi út á
það að greiða niður kostnaðinn
á þeim fjómm árum sem aö
jafnaði líða á milli kosninga. ■
Akureyri:
Tvennt slas-
ast í tveimur
slysum
Maður lenti á milli vörubíls og
lyftara á Oddeyrarbryggju á Ak-
ureyri í gærmorgun og var flutt-
ur á sjúkrahúsið á Akureyri. Tal-
iö var að maðurinn hefði fót-
brotnað. Óhappið atvikaðist
þannig að maðurinn stóð á
stígbretti á vörubifreiðinni,
þegar lyftaranum var ekið með-
fram bifreiðinni of nálægt, með
fyrrgreindum afleiðingum.
Seinni part dags í gær varð
annað óhapp á Hamarstíg þar
sem vörubifreið átti í hlut.
Kona lenti þar undir bifreiö-
inni, þar sem verið var að moka
snjó af götunni. Þegar vörubif-
reiðin ók af stað gekk konan í
veg fyrir hana og lenti undir
henni. Konan var ekki mikib
slösub, kvartaöi undan eymsl-
um í mjöbm, en var þó flutt á
sjúkrahús meb sjúkrabifreið. ■
STOFNAÐUR 1917
Brautarholti 1
Fimmtudagur 9. mars 1995
47. tölublað 1995
Fulltrúar námsmanna
Tímamynd CS
afhjúpubu ígær 700 kílóa grjóthnullung sem komib var fyrir á Austurvelli meb áletruninni
„Menntun er Hornsteinninn" og er œtlunin ab láta steininn standa þar fram yfir alþingiskosningar. Dagur Eggertsson formabur Stúdentarábs segir ab
hugmyndin sé ab fá stjórnmálamenn til ab meitla för sín í steininn til ab minna þá á mikilvœgi menntamála, en talib er ab allt ab 20 þúsund náms-
menn séu á kjörskrá. Auk þess munu námsmenn standa fyrir fundum og öbrum „óspektum" til ab minna á þennan málaflokk, jafnframt þvísem skorab
verbur á kjósendur ab kjósa um menntamál. En þab hefur farib nokkub í taugarnar á námsmönnum meint þagnarbandalag um samrœmda stefnu
stjórnmálaflokka í menntamálum sem oft hefur leitt til þess ab engin átök hafa veríb um menntamálin — meb þeim afleibingum ab þeim er gjarnan ýtt
út í horn vegna annarra og brýnni málefna.
íbúöarhús í snjóflóöahœttu á noröanveröum Vestfjöröum eru þau glœsi-
legustu sem þar hafa veriö byggö og veröa trauöla rifín. ísafjöröur:
Verða líklega seld
sem sumarhús
Arnar Geir Hinriksson hdl. og
fasteignasali á ísafiröi segir
ab menn sjái þaö nokkurn
veginn í hendi sér ab íbúbar-
hús á snjóflóbahættusvæð-
um, sem ríkissjóbur kann ab
kaupa, veröi síðan seld á al-
mennum markaöi sem sum-
arbústaðir. Þar með opnast
möguleikar fyrir brottflutta
Vestfirbinga og aðra þá sem
hafa áhuga að dvelja þar
vestra yfir sumartímann, ab
gera góö kaup á fyrsta flokks
einbýlishúsum.
Hann segist ekki geta ímynd-
að sér að þessi hús verbi rifinn,
því mörg þeirra séu þau glæsi-
legustu sem byggð hafa verið,
t.d. við Ólafstún á Flateyri. Svip-
aöa sögu er að segja af þeim
húsum sem íbúar í Hnífsdal
hafa þurft að rýma hvab eftir
annað í vetur. En þessi íbúðar-
hús em flest hver byggb eftir
1980. Aftur á móti sé nokkuð
ljóst að þessi hús munu seljast
ódýrt og vel fyrir neðan kostn-
aðarverð.
Arnar segir að eigendur þess-
ara húsa hafi ekki verið að koma
með þau á söluskrá, enda seljast
þau ekki einu sinni á matsverði.
Hinsvegar sé enn óljóst hvert
framhaldið verður í málefnum
þeirra sem eiga fasteignir á þess-
um hættusvæðum. Ekki er gert
ráb fyrir því að ríkisstjórnin
muni taka ákvörðun um húsa-
kaup fyrr en sveitarfélögin á
viðkomandi svæðum hafa lagt
fram tillögur um nýtt skipulag
fyrir íbúðabyggð á öruggum
svæðum. Hann segir ab menn
geti ekki ætlast til þess ab íbúar
þessara húsa búi í þeim næsta
vetur, eftir það sem á undan er
gengiö.
Þrátt fyrir afar erfiðan vetur
þar vestra hefur fasteignasala á
Isafirði verið með eðlilegu móti
ab sögn Arnars. Hann segir að á
síðustu tíu árum hafi ekkert fjöl-
býlishús verið byggt á isafirbi í
frjálsa kerfinu heldur nær ein-
göngu í félagslega íbúðakerfinu.
Þá sé lítið um þaö að menn ráð-
ist í byggingu nýrra einbýlis-
húsa.
Hann segir að fasteignasalan á
ísafirði einkennist töluvert af
því að eldra fólk sé að minnka
við sig og flytji úr efri byggðun-
um, innan úr firði og á sína
gömlu staði niður á eyri. Hann
telur jafnframt að þab séu fá
byggðarlög í landinu þar sem
jafn mikil hreyfing er á fólki til
og frá bænum. Sem dæmi þá
nefndir Arnar ab aðkomufólk
sem fluttist til bæjarins fyrir 15-
20 ámm sé ab flytja suður á eft-
ir börnunum sínum á háskóla-
aldri og öfugt. Þá sé fasteigna-
verð á Isafirði nokkuð hátt, þoli
vel samanburð við höfuöborg-
arsvæðið og sé hærra en í Kefla-
vík og á Akureyri. Hinsvegar
hallar töluvert á þegar um er að
ræða sölu fasteigna í Bolungar-
vík, á Suðureyri og Flateyri. ■
Samstarfsnefnd sjó-
manna og útvegs-
manna. Sjávarútvegs-
ráöherra:
Ekki tímabært
að fella dóm
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segist ekki vilja leggja
neinn dóm á niðurstöbur Sam-
starfsnefndar sjómanna og út-
vegsmanna. Hann segir að menn
verði að bíða meb ab meta árang-
ur af starfi nefndarinnar þangab
tíl lögin um bana renna út úm
næstu áramó.t.
Ráðherra segir að samkvæmt lög-
unum hafi nefndin algjört sjálf-
stæði í sínum niöurstöðum og því
sé ráðuneytinu með öllu óheimilt
að hlutast til um þær. Auk þess sé
það alfarið komiö undir sjómönn-
um og útvegsmönnum hvernig
þessum málum verður fyrirkomið
eftir gildistíma laganna.
En eins og kunnugt er þá hefur
Helgi Laxdal formaður Vélstjórafé-
lagsins islands fullyrt m.a. að bar-
áttan gegn meintu kvótabraski og
þátttöku sjómanna í kvótakaupum
útgerða sé í nákvæmlega sömu
sporum og hún var áður en sjó-
menn á fiskiskipaflotanum gripu til
verkfallsaögerða í ársbyrjun í fyrra.
Þetta sagði Helgi eftir að oddamað-
ur Samstarfsnefndarinnar og tveir
fulltrúar útvegsmanna í nefndinni
sögðu ekkert óeðlilegt við síldar-
verð til áhafnar á Hólmaborginni
sl. haust, öndvert viö sjónarmib
sjómanna. ■