Tíminn - 09.03.1995, Qupperneq 8
8
Vtntftm
Fimmtudagur 9. mars 1995
Fyrrverandi for-
stjóri leyniþjón-
ustu írakshers
segir írak enn
eiga birgöir
sýklavopna, eld-
flaugar sem
draga mörg
hundruö kíló-
metra og palla
til oð skjóta
þeim af
Wafiq al-Samarra'i er
maður nefndur, írask-
ur hershöföingi og
um margra ára skeið æðsti mað-
ur njósnaþjónustu írakshers.
Þar með var hann einn þeirra
sem næst gengu Saddam forseta
Hussein að völdum í því ríki. En
í nóvember s.l. flýði hann til
íraska Kúrdistans, sem nú hefur
einskonar sjálfstæði. Samarra'i
er sagður háttsettastur þeirra ír-
aka sem til þessa hafa flúið land
undan Saddam.
Rökstutt almannamál er að
hryllingurinn í stjórnarfari íraks
sé með mesta móti eftir því sem
gerist og gerst hefur. Ástæða er
til að ætla aö Samarra'i, svo
háttsettur sem hann var, hafi
lagt eitthvað af mörkum til þess
stjórnarfars, annars hefði hon-
um vart orðiö svo mikils frama
auðið. Eftir flóttann á náðir
Kúrda kom hann sér í sambönd
við CIA, bandarísku leyniþjón-
ustuna, erindreka Sameinuðu
þjóöanna og vestræna fjöl-
miöla.
200 miltisbrands-
sprengjur
Við þessa aðila hefur hers-
höfðinginn flúni verið greiöur í
svörum og þótt eðlilegt sé að
spurningar vakni um sannsögli
hans, er víst að viðmælendur
hans leggja trúnað á flest sem
hann segir þeim. Og þeim
finnst margt af því ærnum tíð-
indum sæta.
Samarra'i fullyrðir m.a. að ír-
ak eigi enn um 200 sýkla-
sprengjur, ætlaöar til að valda
miltisbrandi, a.m.k. 80 Scud-
eldflaugar og eina 10 færanlega
skotpalla fyrir þær. Þetta hafi
írökum tekist að fela fyrir
njósnahnöttum Vesturlanda og
eftirlitsmönnum S.þ., skotpall-
ana með því að færa þá stöðugt
frá einni byggingu til annarrar.
Miltisbrandssprengjurnar em
að sögn hershöfðingjans faldar í
jörðu skammt frá Tikrit, norðar-
lega í landi viö fljótið Tígris.
Þaöan er Saddam ættaöur og
treystir best fólki þaðan, helst
því sem honum er skylt. Scud-
flaugar íraka em sumar taldar
draga 600-700 kílómetra.
Eftirlitsmenn frá S.þ. halda
því fram fyrir sitt leyti að írak
ráði enn yfir tækni til að fram-
leiða meira af sýklavopnum. Að
sögn Samarra'i hefur það að
vísu tækni til að framleiða
kjarnavopn, en vantar til þess
efni og þar er engin kjarna-
sprengja falin, að sögn hers-
höfbingja þessa.
Miltisbrandur er sjúkdómur
sem þekktastur er að því að
leggjast á nautgripi, en menn
geta sýkst af honum gegnum
öndunarfærin. Vib miltis-
brandssýkingu fyllast lungun af
eitruðum vökva sem veldur
lömun og dauða innan fjögurra
daga. Að nota sjúkdóm þennan
sem vopn í stríbi mun fyrst hafa
komið til álita í síöari heims-
styrjöld, en þá framkvæmdu
Bretar og Bandaríkjamenn
rannsóknir meb hliösjón af
þeim möguleika.
Mestu mistökin
írak hafði að sögn Samarra'i
efna- og sýklavopn til reibu í
stríðinu út af Kúveit („Flóabar-
daga"), en hann segir Saddam
ekki hafa þorað að grípa til
þeirra, af ótta við að þá myndu
Bandaríkjamenn tortíma ríki
hans með kjarnavopnum. Sadd-
am muni þó hafa ætlaö að beita
miltisbrandssprengjum ef óvin-
ir hans hefbu fylgt eftir sigri sín-
um algerum í landormstunni
um Kúveit með því að hertaka
írak. Það geröu andstæöingar ír-
aks ekki, líklega helst af því að
þeir töldu íraska sjíta, sem þeir
álitu að hallir væm undir íran,
líklegasta til ab ná völdum í ír-
ak, ef Saddam yrði steypt.
Eftirlitsmenn S.þ., sem í fjög-
ur ár hafa reynt ab fylgjast meö
hermálum íraks, hafa undanfar-
ib hrósað Saddam og kallað
hann samvinnuþýðan við að
eyba gereybingarvopnum íraks
og möguleikum þess á að fram-
leiða slík vopn. Horfur vom því
til skamms tíma á því að við-
skiptabanninu á írak yrbi aflétt
ab meira eba minna leyti. Frakk-
ar og Rússar hafa verib þess
hvetjandi. En þaö, sem haft er
eftir Samarra'i, gæti breytt því
öllu, Saddam í óhag.
Samarra'i lýsir Saddam, sem
hann ætti ab þekkja sæmilega
Samarra'i: flýbi á nábir Kúrda.
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
eftir margra ára náið samstarf
þeirra, svo ab hann lifi mikib til
í draumaheimi. Innrásin í Kú-
veit hafi í hans augum verið
upphaf ab sigurför meb þab fyr-
ir augum ab gera írak að arab-
ísku stórveldi. í framhaldi af
hertöku Kúveits hafi átt að her-
taka olíulindir Saúdi-Arabíu,
sem eru flestar á strandsvæði
hennar að Persaflóa, suöur af
Kúveit. Hussein Kamil, tengda-
sonur Saddams, hafi sagt að
mestu mistök íraka í því stríði
hafi verið að halda ekki sókn-
inni viðstöðulaust áfram suður,
eftir ab Kúveit hafði verið her-
tekið.
Treystir aöeins
tveimur alveg
En Samarra'i segir Saddam
hafa gert sér vonir um, að meb
því ab hafa vestrænt fólk í írak
í gíslingu gæti hann neytt
óvini sína til eftirgjafar. Kallar
hershöfðinginn það dæmi um
„mibaldalegt hugarfar" Sadd-
ams, en hvab sem því líður er
ekki víst að þesskonar hernað-
araðferðir séu með öllu fráleit-
ar í augum sumra múslíma. Sa-
marra’i segir ennfremur að
Saddam hafi, eftir ab vestrænn
her var kominn til Saúdi-Arab-
íu, fyrirskipab her sínum að
taka til fanga um 5000 banda-
ríska og breska hermenn, sem
skyldu bundnir framan á skrið-
dreka er haföir yröu í farar-
broddi sóknar inn í Saúdi-Ar-
abíu. Hafi Saddam trúað því
staðfastlega að það dygði til
þess ab Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra létu skrið-
drekana óáreitta. En úr þessu
hafi ekkert orðið, þar eð Irakar
tóku ekki nema sárafáa stríðs-
fanga.
Að sögn Samarra'i er Saddam
nú svo tortrygginn orðinn að
hann treystir engum fullkom-
lega nema áðurnefndum Kamil
og Qusai, uppáhaldssyni sín-
um. Sé til marks um það ab
þeir einir manna megi hafa á
sér skammbyssur í návist hans.
í innsta hringnum í kringum
Saddam séu nú 25 menn, allir
nánir frændur hans og vensla-
menn eða vinir hans frá Tikrit.
Samarra’i segist hafa komist í
ónáb hjá Saddam fyrir að hafa
sagt við hann að ósigur íraks í
Flóabardaga væri einn af mestu
hernaðarósigrum sögunnar.
Miðað við það sem af Saddam
er sagt, kann að virbast ótrú-
legt ab þessi leyniþjónustu-
stjóri hans hafi gerst svo djarf-
ur. Samarra'i hefur m.a. sagt
svo frá, að eitt sinn meðan
Flóabardagi stób yfir hafi Sadd-
am kallaö fyrir sig fimm hátt-
setta herforingja, sem höfðu
talið óráðlegt af írökum að
leggja til landorrustu um Kú-
veit, og skotið þá alla sjálfur.