Tíminn - 11.03.1995, Síða 9
Laugardagur 11. mars 1995
SíttlÉWII
9
Tekjulitlir einhleypir elli- og örorkulífeyrisþegar missa 5.304 króna
heimilisuppbót. Landssamtök aldraöa:
Stjómvöld fara of-
fari í niburskurði
Gubrí&ur Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
aldraba og Félags eldri borgara,
segir ab niburskurbur stjórnvalda
á 5.304 króna heimilsuppbót tii
tekjulítilla einhleypra lífeyris-
þega sé enn eitt dæmi um ab
stjómvöld fara offari í sínum nib-
urskurbi. Hún segir ab þessi
skerbing bitni á þeim sem síst
skyldi og hafa lægstu framfærsl-
una. Heilbrigbisrábherra ákvab í
gær ab framkvæmd greibslu sér-
stakrar heimilisuppbótar yrbi
óbreytt frá því sem var í byrjun
ársins þangab til alþingi kemur
saman og hefur fengib tækifæri
til ab skoba málib.
Gubríbur segir að samtök og fé-
lög aldraða muni mótmæla þessum
niðurskurði stjórnvalda harðlega,
enda sé þarna um að ræða tekjutap
um allt að 10%-12%. En þær
greiðslur sem tekjulitlir einhleypir
lífeyrisþegar hafa haft rétt á án
skerðingar á heimilisuppbótinni
eru um 48.664 krónur, sem lætur
nærri að séu lágmarkslaun.
Þá hafa allar tilraunir forystu-
manna aldraða til að ná sambandi
við Sighvat Björgvinsson, heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra, reynst ár-
angurslausar. Hinsvegar tókst að ná
sambandi við Rannveigu Guð-
mundsdóttur félagsmálaráöherra
sem lofabi að athuga þetta mál.
Framkvæmdastjóri Landssam-
bands aldraða segir að þegar frum-
varp til laga um Félagslega aðstoð
var til mebferðar á Alþingi, hafi ekki
annað komið fram en ab tilgangur
þess hafi verib að koma í veg fyrir
að réttur til bóta héldi áfram eftir
flutning lögheimils til annars ríkis,
vegna EES-samningsins. Þar hefði
aldrei komið fram að fella ætti nib-
ur eða skerba greiðslur til einhleyp-
inga sem búa einir hérlendis.
Guðríöur segir að fyrir utan þessa
aðför að kjörum einhleypra elli- og
örorkulífeyrisþega sé allt í „klessu"
hvað varðar skoðun á sérstöku upp-
bótinni með tilliti til húsaleigubót-
anna. Hún segir ab þetta ástand
komi sér afar illa fyrir elli- og ör-
orkulífeyrisþega og það virðist ekki
orðið skipta neinu máli hvar borið
sé niður í kjörum þeirra. Á sama
tíma og aðrir þjóðfélagshópar eru
að fikra sig aðeins uppávið í kjörum
séu kjör hinna öldruðu sífellt að
færast neðar.
„Þau eru að verða eins og var þeg-
ar gömlu framfærslulögin voru í
gildi," segir Guðríður. Hún segir að
þau lög hafi gilt í rúma eina öld, eða
frá 1874 og þangað til lögin um fé-
lagslega þjónustu sveitarfélaga tóku
gildi fyrir fáeinum árum. ■
Listvinafélag Hallgrímskirkju:
Steinunn segir
frá Guöríði
„Ég ætla ab reyna ab draga upp
einhverja mynd af Gubríbi Sím-
onardóttur í þó nokkuð löngu
máli, þótt aldrei verbi komist
ab neinni niburstöbu um þab
hvernig manneskja hún hafi
verib nákvæmlega," segir Stein-
unn Jóhannesdóttir rithöfund-
ur sem flytur hádegiserindi um
Gubríbi á vegum Listvinafélags
Hallgrímskirkju á sunnudaginn
kemur.
„Ýmsar ályktanir má þó draga
af örlögum hennar þótt varla geti
þab orðið annað en vangaveltur
um svo löngu látna konu. Hún
lendir í mörgu og seiglast í gegn-
um lífið. Ég held að hún hafi ver-
ið gædd mörgum góbum eigin-
leikum og býst við að framlag
hennar hafi á margan hátt verið
svipað og framlag svo margra
frægra listamanna. Það eru þær
sem skapa þeim skilyrðin og
skapa kannski skilninginn líka.
Ég varpa líka fram þeirri spurn-
ingu, hver það hafi verið sem
skrifaði niður síðustu ljóð Hall-
gríms Péturssonar, þegar hann
var orðinn sjúkur maður, og kom
þeim áfram til eftirlifandi kyn-
slóða," segir Steinunn Jóhannes-
dóttir.
Erindið flytur hún að lokinni
messu, eða kl. 12.30, og er gefinn
kostur á léttum hádegisverði. ■
Hagvangur spyr 1.000 íslendinga: Hver viltu aö veröi nœsti forsœtis-
ráöherra?
52,5% vilja Davíð,
22,5% vilja Halldór
Hagvangur hefur nýlokið vib
könnun á vibhorfum íslend-
inga til næstu Alþingiskosn-
inga. Af 1.000 aöspuröum svör-
ubu 713 manns, en nettósvar-
hlutfall var 75,7%.
Fram kom að 85,8% íslendinga
telja ab Davíð Oddsson verði
næsti forsætisráöherra, en 9,7%
telja ab Halldór Ásgrímsson muni
skipa þá stöbu. Hins vegar vilja
52,2% að Davíð verði forsætisráð-
herra næstu ríkisstjórnar, en
næstur kemur Halldór Ásgríms-
son sem 22,5% vilja að taki við
stjórnartaumunum. Þeir tveir eru
langefstir, í þriðja sæti er Jóhanna
Sigurðardóttir, 2,5% halda að
hún verði forsætisráðherra, en
9% vilja fá að sjá hana í stólnum.
í næstu sætum koma Ólafur
Ragnar, Jón Baldvin og Svavar
Gestsson, þá Þorsteinn Pálsson,
Guðmundur Árni og Rannveig
Guðmundsdóttir.
Fram kom í könnuninni að
41,6% af kjósendum annarra
flokka en Sjálfstæbisflokksins
vilja Halldór Ásgrímsson sem for-
sætisráðherra, en 22% vilja Davið
Oddsson.
Spurt var um fylgi flokka. Sjálf-
stæbisflokkur fékk 40,2%; Fram-
sóknarflokkur 21,2%; Alþýðu-
bandalag 14%, Þjóðvaki 11,1%;
Alþýðuflokkur 7%, Kvennalisti
6,1% og Suöurlandslisti 0,4%.
Hlutfall óákveðinna var 20,9% ■
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður haldinn mánudaginn 20. mars kl. 20:30
á Hótel Sögu, Súlnasal.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
111 Leikskólar
jjj Reykjavíkurborgar
Ný staða á skrifstofu
Dagvistar barna í Reykjavík
Starf þjónustustjóra er laust til umsóknar.
Þjónustustjóri verður yfirmaður þjónustusviðs, þar sem
m.a. ferfram innritun í leikskóla, almenn afgreiðsla, um-
sjón með daggæslu á einkaheimilum og gæsluleikvöll-
um.
Viðkomandi þarf að hafa:
• góða almenna menntun eða sérmenntun, sem
nýtist í starfi;
• þekkingu og reynslu í stjórnun og samskiptum;
• færni í tölvu- og upplýsingatækni;
• áhuga og kunnáttu til að leiða og skipuleggja
þjónustustarf stofnunarinnar.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem
fást á skrifstofu Dagvistar barna, Tryggvagötu 17, sími
27277.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bergur Felixson
framkvæmdastjóri eða Garðar jóhannsson skrifstofustjóri
kl. 10-12 daglega.
Umsóknarfrestur um starfið er til 24. mars.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
Húsverndarsjóður
í apríl verður úthlutab lánum úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur.
Hlutverk sjóðsins er ab veita lán til viögerða og endurgerbar
á húsnæði í Reykjavík, sem hefur sérstakt varðveislugildi af
sögulegum eba byggingarsögulegum ástæbum.
Umsóknum um lán úr sjóbnum skulu fylgja verklýsingar á fyr-
irhuguðum framkvæmdum, kostnabaráætlun, teikningar og
umsögn Árbæjarsafns.
Umsóknum stíluðum á Umhverfismálaráb Reykjavíkur skal
komið á skrifstofu Garðyrkjustjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykja-
vík, fyrir 20. mars 1995.
Farþega- og vöru-
flutningar á vegum
innan Evrópska
efnahagssvæöisins
í framhaldi af aðild íslands að samningnum um hið Evr-
ópska efnahagssvæði geta íslensk fyrirtæki stundað far-
þega- og vöruflutninga í aðildarríkjum Evrópska efna-
hagssvæðisins með þeim skilyrðum sem reglugeröir þess
kveða á um. Annars vegar er um að ræða leyfi til flutn-
inga á milli aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins og
hins vegar leyfi til gestaflutninga, þ.e. innanlandsflutn-
inga í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins.
Fram til 1. júlí 1998 er kvóti á leyfum til gestaflutninga í
vöruflutningum. Samgönguráðuneytinu er heimilt að
veita 13 gestaflutningaleýfi fyrir árið 1995. Hvert leyfi
gildir í tvo mánuði fyrir eitt ökutæki í senn. Þau fyrirtæki,
sem hafa hug á að sækja um leyfi til vöruflutninga innan-
lands í öðrum aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins
á árinu 1995, skulu fyrir 15. apríl nk. senda samgöngu-
ráðuneytinu umsókn þar um.
Þau fyrirtæki, sem hug hafa á að hasla sér völl á þessum
vettvangi, geta fengið nánari upplýsingar hjá sam-
gönguráðuneytinu.
Samgönguráðuneytið,
10. mars 1995.
Utankjörfundar
atkvæöagreiösla
í Reykjavík vegna kosninga til Alþingis 8. apríl n.k. verð-
ur að Engjateigi 5, sími 5885605, frá mánudeginum
13. mars og verður opið þar alla daga kl. 10:00-12:00,
14:00-18:00 og 20:00-22:00. Kjósendum er bent á að
hafa með sér fullnægjandi skilríki.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.