Tíminn - 11.03.1995, Blaðsíða 14

Tíminn - 11.03.1995, Blaðsíða 14
14 æ—i-- VnwHNI Laugardagur 11. mars 1995 Haavrbingaþáttur Gísl hjá Stasí Heimdellingar í fréttamannastétt hafa veriö að draga fram sannanir fyrir því að íslenskir námsmenn í Aust- ur-Þýskalandi fyrir aldarþriðjungi hafi stundað upp- lýsingastarfsemi fyrir leyniþjónustuna þar í landi. Einn, sem borinn var þessum sökum, sagði í viðtali við Moggann að hann hafi fengið út úr þessu frið til að læra og leyfi til að flytjast heim til Islands með konu sína þýska og son þeirra. Þetta mál allt varð til- efni eftirfarandi vísu undir limruhætti: Effrœðunum lengi hann las í, með lestrinum kíkti hann glas í. Og œtti hann konu og eignaðist sonu, hans œra vargísl hjá Stasí. Gestur í Vík Af Ólafi og Merði Sú var tíðin að miklir dáleikar voru með Ólafi Ragnari Grímssyni og Merði Árnasyni. Þeir áttu það sameigin- lega áhugamál að drífa alla vinstri menn í eina breið- fylkingu, sem þýddi nánast að víkka Alþýðubandalag- ið út í það óendanlega undir stjórn Ólafs Ragnars. En allt er í heiminum hverfult. Mörður hefur nú sagt skil- ið við Ólaf og gengið til liös við samfylkingarhugsjón Jóhönnu Sigurðardóttur. Fer nú lítið fyrir vinskapn- um milli Ólafs og Marðar. Því var þetta ort: Áttu saman innstu þrá sem öllum vonum gagnar. Mjög að einu mátti sjá Mörð og ÓlafRagnar. Urðu síðan átök stinn með öldum stórra veðra, eins og hitti andskotinn ömmu sína í neðra. Gestur í Vík Bull Við mörlandar erum sköruleg þjóð og þurftafrek; höf- um í mörg horn að líta og þurfum að kaupa mikið af bensíni, tölvum og rakadrægum hreinlætistækjum af útlendingum. Það gæti orðið snúið þegar búið verður að drepa allan fisk í sjónum, og því verður að krefjast þess af stjórnvöldum að þau setji á stofn auðugar gull- námur og olíulindir. Illskufull er veröld vor, vantar gullið okkur. Um það bullar annarhvor aumur drullusokkur. Búi Samrunaþula Sjálfstœðið er þungur þáttur, þjóðarskömm og fíflaháttur. Varla er Nonni við það sáttur, vísastur til aðgerða, þó eigi hann fáa samherja. Illa er komið fyrir Fróni fiskiríið veldur tjóni, fylkjum okkur fast með Jóni og fórum strax í ESB, látum vanda þeim í té. Þá vœri engin þörfað kvarta, þó hingað kœmi fólkið svarta. Skrýtnir menn um götur skarta, skáeygir með rauða rós, Jón á skilið mikið hrós. Ópal Þegar nær dregur kosningum, hleypur hagyröingm kapp í kinn og verða býsna pólitískir, eins og sjá má á því sem hér er fram reitt. Vafalaust láta þeir ekki deig- an síga, en leggja sitt til mála og láta frambjóðendur ekki eina um pólitíkina. Yrkið nú og sendið þættinum háleitar leiðbeiningar fyrir kjósendur að velta fyrir sér. Botnar og vísur sendist til Tímans Brautarholti 1 105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA Passið ykkur á ótískunni Eru Ameríkanar subbuþjóö? er fyrirsögn á ítarlegri umfjöllun á klæðaburöi Bandaríkjamanna í nýútkomnu Newsweek. Þar er fjallað um ótrúlega frjálslegt fata- val, sem margir nútímamenn vestur þar temja sér. Er margir dregnir fram í reglulega ljótum frístundafötum, svo sem Clinton forseti og forríkir mógúlar Holly- woodbæjar. En þeir eru líka illa klæddir í vinnunni. Birtar eru myndir af Ameríkönum í Evrópu, þar sem þeir klæða sig eins og út- burðir í fínum listasöfnum. Það er enginn munur á efnuðum há- stéttarkörlum og strákum í fá- tækrahverfum hvað klæðaburð snertir. Heiðar Jónsson er spuröur hvort svona ótíska sé komin til ís- lands eða sé að breiðast út um heiminn, einsog svo margt sem á upptök sín í henni Ameríku. Hann telur svo ekki vera, enda séu Ameríkanar ólíkir öðmm þjóðum um margt. Heibar: Þetta er aubvitað þetta ameríska flop og slob. Ameríkan- arnir eru að fara út í svo ofboðs- legar andstæbur að flestum þykir nóg um. Frægustu og fínustu konur í heimi eru labbandi á Broadway í ódýrum strigaskóm og fínustu dragtinni og fara ekki á háu hælana nema þegar þær nauðsynlega þurfa. Hér er aðeins fariö aö brydda á þessu meðal yngra fólks, sem klæðir sig í alltof stórar og billeg- ar flíkur, en svona tíska nær aldr- ei fótfestu hér. Evrópa sýnir þetta svolítið líka. Þetta er þróun og ég er ekki alveg viss hvort Ameríka er að hafa áhrif á þetta. Hormónakeppir út í loftib Ég held aö þetta sé visst and- svar við tísku, ekki bara í Banda- ríkjunum, en þetta „flop og slob" hefur lengi verið viðloðandi Bandaríkin. En ég held að þetta komi upp hér og í Evrópu yfirleitt sem viss tíska, og er þá tímabund- in. í Bandaríkjunum er fullt af fólki sem ekkert hugsar um útlit sitt og framkomu. Hver kannast ekki vib allt feita fólkið með hormónarassana, sem gerir ekki tilraun til að klæða þá af sér og fitukeppirnir standa út í allar áttir og dingla framan í hvern mann á almannafæri? En þetta fólk er oft afskaplega opið og glatt og það bjargar. Ef feita fólkiö okkar hér á ís- landi mundi hegba sér svona, mundi það flaska á því ab vera feimið og fúlt. Ameríkanarnir ná sér alltaf svolítið upp á sjarma. Öfgar Annars ebég með kenningu um Ameríkana. Ef maður er staddur einhvers staðar í Evrópu og sér skelfilegt par, jafnvel tvö eða þrjú, í köflóttum buxum með hamborgararassana út í loftið og Heiðar jónsson, snyrtir, svarar spurningum lesenda Hvernig áég aö vera? keppina út fyrir og í rósóttri skyrtu þar yfir og í skelfilegum striga- eba íþróttaskóm sem passa engan veginn við, og maður fer hreinlega að hlæja að þessum út- gangi, þá er hægt að bóka ab þar eru Ameríkanar á ferð. Síðan labbar maöur fyrir næsta horn og rekur þar í rogastans þeg- ar mabur sér par, sem er svo glæsilega til fara aö annab eins sést varla í Evrópu. Stíllinn og allt fas er svo glæsilegt að maöur get- ur ekki ímyndað sér ab ná því nokkru sinni sjálfur. Þetta eru líka Ameríkanar. Viss prósenta af Bandaríkja- mönnum er albest klædda og mest súperelegant fólk í heimi. En þetta er mjög lítil prósenta. í Ameríku eru öfgar á öllum sviðum. Þetta, sem hér er talað um, er aðeins gagnvart útliti, en þeir eru verstir og bestir allra, þeir eru stærstir og minnstir allra. Ameríkanar eru siblausastir allra, en þeir eru sibsamastir allra, þeir eru mest sexí allra og þeir eru kynlausustu skepnur í heimi. Það er alveg sama hvar komið er ab Ameríkönum, öfgarnar eru mjög áberandi í fari þeirra og hátterni. Sveiflur Þess vegna a maður aldrei að taka mark á því, sem sagt er eöa skrifaö um að eitthvab sé svona og svona í Ameríku og alhæft að þeir hugsi og hagi sér allir eins. Þetta er tóm vitleysa, því maður alhæfir aldrei um Ameríku, þar eru undantekningar frá öllu. Þá er þess ab gæta að það skipt- ir miklu máli lífsmátalega séð og útlitslega séð hvar í Bandaríkjun- um maður klæðist eða hegðar sér á einhvern sérstæðan hátt. Svo eru sveiflur á því innan landsins. Nú er t.d. Flórída oröin mikil tískumiöstöö, er að verða eins og London í mínu ungdæmi. Frægu módelin og hönnuðirnir flytja frá New York til Flórída. ítalirnir og Frakkarnir í tískuheiminum eiga orðib hús á Flórída. Þar ljósmynd- ar allur heimurinn fyrir verðlist- ana og þar eru allir voða smart. Subbur í Reykjavík Á þessu má sjá að subbutískan í Ameríku er ekkert algild og engin ástæða til að taka hana upp hér eða annars staðar. Hér ber kannski á henni þegar fólk er að hlaupa erinda sinna, að skjótast út í búð eða svoleiðis. Fólk er ekki eins upptekiö af því eins og það var, aö dressa sig upp áöur en skroppið er út í búð. Ég varb fyrir því um daginn að keyra fram á konu, sem var að skreppa milli húsa með rúllurnar í hárinu og netskuplu yfir. Mér varð á að~hugsa að mabur í minni stöðu segði við sjálfan sig: Ægi- legt er að sjá þetta. En ég brosti og hugsaði: En indælt. Þetta rifjar upp gamlar minningar. En Ameríka er öfgafull, því aö óvíða sér maður fólk eins óskap- lega fínt í vinnunni. Karlar í hvít- um skyrtum og jakkafötum með bindi og kvenfólkiö óskaplega flott í tauinu. En allt er þetta heldur stíft og er kannski von að fólki slappi af í víðum og ljótum fötum, sem ekki þarf að passa að óhreinkist ekki. Gætið þess að subbutískan er ekki algild, ekki heldur í Amer- íku. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.