Tíminn - 16.03.1995, Síða 6
6
Fimmtudagur 16. mars 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Gubmundur Örn Ingólfsson framkvœmdastjóri og franski fiskifrœbing-
urinn dr. Frederic Gaumet, starfsmabur stöbvarinnar, meb dauba
barra í stöbinni hjá Máka.
Óhapp í hlýsjávareldinu
Máka:
Vibvörunarkerfi
brást og fiskarnir
drápust
Þegar starfsmaöur hlýsjávar-
eldisins Máka á Sauöárkróki
mætti til vinnu fyrir nokkrum
dögum, voru allir 2300 hrygn-
ingarfiskarnir í stööinni dauö-
ir vegna súrefnisskorts.
Dæling haföi stöövast og
safnker tæmst, en þar er dæl-
an staösett. Orsakir tjónsins
eru raktar til þess að viövör-
unarkerfi brást, en fram til
þessa haföi þaö reynst áreiö-
anlegt.
Guömundur örn Ingólfs-
son, framkvæmdastjóri Máka,
segir þetta áfall ekki fyrst og
fremst felast í fjárhagslegu
tjóni vegna dauða fiskanna,
þótt þriöjungur fiskanna heföi
komist í sláturstærö í sumar,
heldur miklu frekar aö nú
þurfi að færa núverandi og
verðandi fjárfestum sönnur á
aö þann árangur, sem þegar
heföi náöst. Þ.e. aö verkefniö
hefði veriö búiö aö sýna fram
á að eldið hefði tekist og til-v
raunaeldinu hefði í raun verið
lokiö, þótt þaö hefði ekki átt
að enda á þennan hátt.
Óhappið þýðir aö framleiðslu-
eldinu seinkar um 10 mánuði.
Borgfirbingar slá met í
kirkjurækni:
Kirkjusóknin
73%
Borgfiröingar létu illviöri og
ófærð lönd og leið og fjöl-
menntu til kirkju sl. sunnu-
dag. Er sóknarpresturinn Þór-
ey Guðmundsdóttir, sem hóf
störf í byrjun vetrar, aö von-
um ánægð með kirkjusókn-
ina, sem slegið hefur öll met
og verib í fjórum fyrstu kirkju-
athöfnunum 73,3%.
Á Borgarfiröi hefur barna-
starfib verið með miklum
blóma undanfarin ár. Nær öli
börn sækja sunnudagaskóla
og þar sem enginn fastur
kirkjuorganisti eöa kirkjukór
hefur starfaö undanfarib, hafa
börnin leitt messusöng viö
guösþjónustur í vetur meö
miklum ágætum meö aðstoð
Margrétar Bragadóttur tónlist-
arkennara. Hjá sóknarpresti
og sóknarnefnd er mikill
áhugi á aö efla sönglíf á staön-
um og var þess fariö á leit viö
söngmálastjóra þjóökirkjunn-
ar aö hann legöi málinu liö.
Málalok uröu farsæl og eiga
Borgfiröingar nú von á Margr-
éti Bóasdóttur söngkonu, sem
af miklum eldmóöi og dugn-
aöi hefur eflt sönglíf víba um
land.
Auk þess aö þjálfa börnin í
söng, veröur fullorönum bob-
iö upp á ókeypis söngtíma og
sagðist séra Þórey vonast til ab
sem flestir nýttu sér þessa
kennslu, sem vonandi yröi til
þess ab kirkjukórinn á staön-
um yrbi endurvakinn.
Enginn atvinnu-
laus á Djúpavogi
frá áramótum
Mikið hefur verib aö gera
hjá Búlandstindi á Djúpavogi
frá áramótum. Búiö er aö
frysta um 550 tonn af lobnu
og er loðna einnig fryst um
borö í togara fyrirtækisins,
Sunnutindi SU 59, viö
bryggju.
Aö sögn Jóhanns Þórs Hall-
dórssonar, framkvæmdastjóra
Búlandstinds, hefur loönu-
verksmiöja fyrirtækisins, þótt
gömul sé, hjálpað viö lobnu-
frystinguna, en hún getur
brætt um 140 tonn á sólar-
hring. Hann sagði að ef verk-
smiðjunnar heföi ekki notib
viö, hefði þurft aö sækja hrá-
efnið á bílum og ekki víst aö
eins mikið hefði verið fryst.
Má segja aö nánast enginn
hafi verið á atvinnuleysisskrá
á Djúpavogi frá áramótum, en
töluvert hefur verib um aö-
komufólk í vinnu.
Yfirlitssýning á
verkum Steinþórs
í tilefni af átt-
ræbisafmælinu
í tilefni af áttræöisafmæli
Steinþórs Eiríkssonar listmál-
ara á árinu, hefur Myndlistar-
félag Fljótsdalshéraðs ákveöið
að efna til yfirlitssýningar á
verkum hans. Sýningin verö-
ur sett upp í Menntaskólan-
um á Egilsstöðum og mun
standa yfir í allt sumar.
Sýningin á ab spanna allan
feril Steinþórs og þar sem
verk hans eru dreifð um allt
land, óskar Myndlistarfélagið
liösinnis allra sem einhverjar
upplýsingar geta gefiö um
einstök verk eöa annaö sem
aö notum gæti komið.
Blaöamaður Austra hafði
samband við Steinþór, sem
nú liggur á sjúkrahúsinu á
Neskaupstaö, en hann er á
batavegi eftir veikindi. Hann
telur aö myndir sínar skipti
þúsundum og m.a. hafi tölu-
vert^af myndum hans fariö
utan landsteinanna og sé þær
að finna í öllum heimsálfum.
í áranna rás hefur Steinþór
haldið fjölda sýninga í
Reykjavík, á Akureyri og á
öllum þéttbýlisstööum aust-
anlands.
Fjárveiting Akureyrarbæjar
til snjómoksturs á árinu á
þrotum:
„Getum aubvitab
ekki hætt ab
moka"
„Þaö er auövitaö alveg ljóst
aö viö getum ekki hætt snjó-
mokstri, viö verðum aö moka
eins og nauðsynlegt er þrátt
fyrir að fjárveitingin sé á
þrotum," sagði Jakob Björns-
son, bæjarstjóri á Akureyri,
um þann vanda sem menn
standa frammi fyrir varðandj
kostnað viö snjómokstur í
bænum.
„Þaö liggur fyrir að viö
endurskoðun fjárhagsáætlun-
ar síöar á árinu verður aö
leysa þetta mál á einhvern
máta. Til greina kemur að
færa fjármuni á milli liöa til
þess að mæta þessu, skera
niöur eöa skekkja fjárhags-
áætlunina sem þessu nemur.
En þaö er aö sjálfsögöu alveg
ljóst að við getum ekki hætt
aö moka, þótt fjárveitingin sé
búin. Það er hreint öryggisat-
riði aö snjómokstri sé vel
sinnt, t.d. hvað varðar sjúkra-
flutninga, eldvarnir og
fleira," sagöi Jakob.
Jakob sagöist ekki hafa ná-
kvæmar upplýsingar um
kostnaö viö snjómokstur þaö
sem af er árinu mibað viö
fyrri ár, en hann sagðist
reikna meö ab sá kostnaður
væri viö hærri mörkin.
0LÍS opnar nýja
þjónustumiðstöð
Olíuverzlun íslands hf. (OLÍS) [~ __
hefur opnaö sérstaka þjón-
ustumiöstöb þar sem tekib er
á móti öllum vöru- og þjón-
ustupöntunum frá vibskipta-
vinum, bensínstöbvum og
birgbastöbvum félagsins á
einum stab.
Þjónustumiðstöðin, sem tek-
ur á móti skilaboðum sem ber-
ast símleibis, í pósti, í faxi, á
Interneti og meö tölvupósti,
veitir einnig allar upplýsingar
um vörur, þjónustu, verö, opn-
unartíma, dreifileiöir og þjón-
ustustaði auk þess sem tekið er
á móti kvörtunum og ábend-
ingum frá viöskiptavinum.
Fyrst um sinn er sími þjónustu-
borðs 689800 og fax 672921,
en frá 1. júní n.k. er bein lína
þangaö 515-1100 og fax 515-
1110. Tölvupóstfang er olis@m-
media.is og Internet-fang er
http//www/mmedia is/olis.
Samtímis opnun þjónustu-
miöstöövarinnar hefur OLÍS,
fyrst íslenskra olíufélaga, tengst
Internetinu. Á heimasíöu fé-
lagsins er aö finna almennar
upplýsingar og landakort, sem
sýna starfsemi félagsins og þær
vörur og þjónustu sem í boöi
eru. í gegnum Intemetiö veröur
í náinni framtíð hægt aö ganga
frá pöntunum á öllum vöru-
flokkum sem OLÍS hefur að
Einar Þorsteinsson, Finnur Gunn-
arsson og Fljalti Bjarnfinnsson,
starfsmenn þjónustumibstöbvar-
innar.
bjóða.
OLÍS hefur einnig tengst
tölvupóstkerfinu ísgátt, en sú
tenging auöveldar enn frekar
aðgang viöskiptavina félagsins
aö fyrirtækinu.
Meö opnun þjónustumið-
stöövar og ofangreindum
tölvutengingum er stefnt aö því
að pantanir og upplýsingaflæöi
milli OLÍS og viðskiptavina á
sjó og landi veröi auöveldara og
skilvirkara en áöur. ■
Bílanaust hf. yfir-
tekur rekstur Smyrils
Bílanaust hefur keypt bílaversl-
unina Smyril á Bíldshöfba 14 í
Reykjavík, ásamt lager, vib-
skiptavild og húsnæbi. Verslun
Smyrils verbur breytt í útibú
Bílanausts, sem á ab þjóna ibn-
fyrirtækjum í nálægb, en á Ár-
túnshöfba eru mörg af stærri
bílaverkstæbum á höfubborg-
arsvæbinu.
Vöruúrvalið á Bíldshöfða verö-
ur aukið, en jafnframt veröur
þjónusta við eigendur vörubíla
aukin, m.a. meö því að bjóöa
Koni-dempara í alla vörubíla, en
Koni er einn þekktasti framleib-
andi sérhæföra dempara fyrir
flutningabíla og flutnirigatæki,
enda notaðir í fleiri vörubíla hér-
iendis en aðrar tegundir. Meö því
aö bæta Koni við frambobið frá
Monroe, Gabriel, Trailmaster
o.fl. getur Bílanaust afgreitt dem-
para af lager í svo til allar teg-
undir, geröir og stæröir af bílum
og flutningatækjum.
Bílanaust starfrækir nú verslan-
ir meö varahluti, efni, verkfæri,
tæki og bílvörur á 4 stööum: í
iðnaðarhverfinu viö Bæjarhraun
í Hafnarfirði, í Skeifunni í
Reykjavík og á Bíldshöfða 14,
auk vöruhússins viö Borgartún.
Um og yfir 95% af þeim vara-
hlutum og vömm, sem Bílanaust
selur, flytur fyrirtækiö inn milli-
libalaust frá framleiðendum.
Beinn innflutningur frá heims-
þekktum framleiöendum vara-
hluta hefur gert kleift aö lækka
verö á varahlutum í hæsta gæba-
flokki.
Bílanaust selur meira af bíla-
varahlutum og bílavörum en
nokkur annar aðili á íslandi.
Magninnkaup tryggja bíleigend-
um þannig hagstæöasta verö á
hverjum tíma. Gallup-könnun
leiddi í ljós aö innkaupsverb Bíla-
nausts á varahlutum er lægra en
gengur og gerist hjá bíiaverslun-
um í nágrannalöndum og útsölu-
verö varahluta er lægra í Bíla-
nausti en t.d. sambærilegri versl-
un í Ósló, Stokkhólmi og Kaup-
mannahöfn. ■
Norrœna félagib tekur vib umsóknum heimamanna
um Nordjobb 1995 og:
Leitar sumarstarfa fyrir
80-90 norræn ungmenni
„Gert er ráb fyrir ab um 80-90
norræn ungmenni komi til starfa
hér á landi á vegum Nordjobb
1995 og ab álíka fjöldi íslenskra
ungmenna fari til starfa á hinum
Norburlöndunum á vegum Nor-
djobb."
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Norræna félaginu, sem vonar
aö atvinnurekendur taki vel í ab
rába norræn ungmenni til starfa í
sumar. Norrænu félögin sjá um
Nordjobb hvert í sínu landi, meb
styrk frá Norrænu rábherranefnd-
inrý,, Nordjobb, sem er á tíunda
starfsári, miblar sumarvinnu milli
landanna fyrir 18-25 ára fólk og sér
einnig um útvegun húsnæbis og
býbur upp á dagskrá til kynningar
á landi og þjób.
Störf á vegum Nordjobb eru mib-
ub vib faglært jafnt sem ófaglært
fólk, í allt frá 4 vikum upp í 4 mán-
ubi á tímabilinu 15. maí til 15.
september. Launakjör mibast vib
kjarasamninga í hverju landi og
skattar eru greiddir samkvæmt sér-
stökum samningi. Umsóknarfrestur
fyrir Nordjobb er til 1. apríl og sótt
um til Norræna félagsins. ■