Tíminn - 11.04.1995, Side 5
Þri&judagur 11. apríl 1995
SíílNÍtfðl
5
Jens Gubmundsson í Kaldalóni:
Lengi getur illt versnab:
Það fæddist lítil mús
Ég get ekki neitaö því, að ég hef
ætíð borið virðingu fyrir nafn-
inu Stéttarsamband bænda, sem
var eitt hið magnþrungnasta
fyrirtæki sem bændasamtökin
hafa nokkru sinni átt. Það blés
oft hraustlega um þetta fyrir-
tæki bændanna, og það var
mikil gæfa að fyrstu foringjar
þess voru ötulir dugnaðarmenn.
Þeir áttu oft við ofurefli að etja,
en með seiglunni en engum
handahlaupum náðu þeir for-
ingjar oftast heilir til hafnar,
sem þar við þó oft blasti að tví-
sýnt gat orðið í mörgum þeim
sóknarferöum, sem ekki var
ávallt auðhlaupið útúr að kom-
ast.
Svo var það á s.l. ári að fædd-
ist útaf þessu mjög svo geðuga
fyrirtæki lítil mús, sem einskon-
ar baráttu- og sameiningartákn
fyrir alla bændastéttina, þar sem
svo hópur hennar líka tísti út-
um allar grundir, í sinni himna-
sælu hve þessi íslenska okkar
bændastétt væri illa á sig komin
í öllu sínu framleiðsluformi.
Slátruðu fé sínu og nautgripum
í stóru formi heima í kotunum
sínum, sviku undan sköttum og
seldu í óleyfi framleiðslu sína í
stórum stíl, og hótuðu að senda
þeim einskonar lögregluvald
með ótal merkjum í vösum sín-
um til að merkja og skrásetja
hverja einustu kind, kú og kálfa,
sem og þá auðvitað að sækja
slíkt lögvald til að kanna og
votta ef kind dytti niður í snjó-
huldu á læk og dæi þar drottni
sínum og ekki síður leita á öllu
landi eftir, ef dytti merki úr
VETTVANGUR
4
„En þær sakir sem þessir
háttvirtu bœndafidltrúar
sáu sig helst hafa bestan
skilning á, að níða
bændur niður og sverta í
ennþá forkastanlegri dúr
en svœsnustu hælbítar
þeirra, og ég segi það
satt, að svo má brýna
deigt jám að bíti."
lambi, eða þá látið bóndann
sverja og sárt við leggja að ekki
hefði hent merkinu úr því, því
hvert merki yrði að færa til
skráningar hvert haust, ef til
skila ætti að koma hver einasta
tutla undan hverri einustu kind,
svo ekki mætti fyrir koma að
lambi yrði slátrað í pottinn, án
þess að telja það fram til tekna,
og því síður gefa það fátækum
þó fyrir góðan greiða væri.
Þetta er nú í stórum dráttum
það sem fjölmiðlarnir hafa fært
okkur í fréttum af þessu fræg-
asta búnaðarþingi íslandssög-
unnar eftir hina marg svo gæfu-
legu sameiningu þeirra höfuð-
hópa sem frægastan garðinn
gera í þeim margslungnu mála-
flokkum okkar íslenska land-
búnaðar, og sem þar að auki
sýna skal þá óhemju gæfu, vel-
sæld og virðingu sem sameining
allra hluta í þessu landi skal
færa þjóðinni í sínu samfélags-
kapítali.
En þær sakir sem þessir hátt-
virtu bændafulltrúar sáu sig
helst hafa bestan skilning á, að
níða bændur niður og sverta í
ennþá forkastanlegri dúr en
svæsnustu hælbítar þeirra, og ég
segi það satt, að svo má brýna
deigt járn að bíti og ef þessir
blessuðu máttarstólpar og trún-
aðarstólpar bænda telja það sitt
háleitasta mark, að níða og
rægja umbjóðendur sína á
þennan hátt, þá getur það
kannski orðið frægasta spegil-
myndin af þeirri faglegu kunn-
áttu stjórnvalda að telja skatt-
svik landa sinna nema minnst
12 miljörðum króna á ári, án
þess að geta sannað þar um einn
einasta staf.
Ég þekki þá sálma allra manna
best, þá slátrað var heima, sem
svo var kallað, og bændur voru
að ganga fyrir hvern mann til
að selja þessa kjötskrokka sína á
haustin, áður en hin faglegu
sölusamtök komu til skjalanna,
og ég er sjálfur mjög vel vitandi
um það, að heimaslátrun langar
engan til að standa í, enda sem í
stórum dráttum var svo til nið-
urlagt. En sá djöfulskapur allur,
sem á borð bænda borinn hefur
verið undanfarin ár, er svo yfir-
þyrmandi í öllu formi búinn að
vera, að þá tekur steininn úr
þegar fulltrúar bændanna byrja
þá eftiröpun sem farsælastan
fararstuðul í framvindu þeirra
mála sem þeim er trúað fyrir úr
að leysa þeim til handa api þar
eftir.
Ég lét slátra fyrir mig 9 lömb-
um í sláturhúsi á s.l. hausti.
Sláturlaun og flutningskostnað-
ur nam á þessi 9 lömb kr.
16.717 eða kr. 1.858 á lamb. En
þá var eftir heimflutningur, svo
það kostaði þrjú lambsverðin að
slátra þessum 9 lömbum. Það
kostar rúmar 20 þúsund kr. að
slátra og flytja kálf með 200 kg
skrokk í sláturhús. Tvö hangi-
læri af lambi kostuðu fyrir jólin
kr. 8.600, en bóndinn fær fyrir
slíkt lamb um 7.500 krónur.
Ætli hitt, sem eftir var af lamb-
inu, hafi ekki lagt sig í sölunni
allt að því öðru eins, eða svona
ca. á sautján þús. kr. lambs-
skrokkurinn, þegar hann var
kominn á boröið hjá neytand-
anum, og enginn fann að því þó
einn biti kostaði 1.000 kr. í ann-
arri búðinni, en samslags biti
kostaði svo 1.800 kr. í hinni.
Sigrún Birgisdóttir:
Skapandi hugsun
Það finnst öllum eðlilegt og
sjálfsagt að böm séu skapandi.
Langflest börn eru það líka, þau
eru sískapandi: í sandkassanum,
við málningartrönurnar, með
kubbana o.fl. Sum börn eru líka
sísyngjandi, jafnt lærö lög sem
sjálfsprottin. Ekki má heldur
gera lítið úr þeirri fjölbreyttu
sköpun sem fram fer í öllum
þeim hlutverkaleikjum sem
börn geta skellt sér í nánast fyr-
irvaralaust.
Þessu öllu tökum við sem
sjálfsögðum hlut og eðlilegum,
en kippum okkur heldur ekki
upp við þaö, þegar smám saman
dregur úr þessum skapandi
krafti hjá allflestum þegar þeir
eldast.
Ósjaldan heyrist þó talað um
„barnið í okkur" meö söknuði,
og eftirsjá er í mörgum „barns-
legum" eiginleikum/hæfileik-
um.
í dag horfir svo við, að vegið
er að þessum „barnslegu" eigin-
leikum. Gífurlegt framboð á af-
þreyingu, tímaleysi, áhugaleysi
eba þekkingarskortur verbur til
þess ab börnin okkar verða
meira og meira að óvirkum
áhorfendum í tæknivæddu
þjóðfélagi nútímans. Þetta er
uggvænleg þróun, sem margir
uppalendur þekkja vel og hafa
áhyggjur af. Þetta er þróun sem
óþarfi er að sætta sig við og
nauðsynlegt er aö snúa vib.
En hvað ér til ráða? Hvaba
VETTVANGUB
„Gmndvöllurinn fyrir
því að kynnast og virða
sköpunargleði bama er
að hafa á einhvem hátt
upplifað hana sjálfur,
gengið í gegnum sköpun-
arferlið og fundið
ánægju, nautnina og
jafhframt þekkinguna
sem slík vinna/upplifun
veitir."
leið er fær til að ala upp börnin
okkar, sem við öll viljum ab séu
virkir, sjálfstæðir og ánægðir
þátttakendur í sköpunarverk-
inu?
Ein leiðin er leið skapandi
hugsunar.
Að beita skapandi hugsun fel-
ur í sér: gagnrýna hugsun, afst-
rakt hugsun, hæfni til rökfærslu
og leiðir til skapandi lausnar.
Til að átta okkur á hvað felst í
skapandi hugsun og hvernig
stuðla megi að henni, er gott að
hafa til hliðsjónar fjögur svið
sköpunar sem Frank E. Williams
setti fram:
Frjó hugsun: það er að geta
komib fram með margar hug-
myndir til lausnar ákveðnu
verkefni, finna mörg svör við
spurningum — festa sig ekki í
einhverri lausn eða svari.
Sveigjanleiki: það er hæfileik-
inn til að finna mismunandi
hugmyndir við sama verkið —
geta skipt frá einni hugsun yfir í
aðra, þróa verkið.
Frumleiki: það er hæfileikinn
til að tjá sig á nýjan og einstak-
an hátt — koma fram með
snjallar hugmyndir, frekar en
ljósar og almennar.
Útfærsla: þaö er að geta full-
gert einhverja hugmynd — að
setja hugmyndina í efni, læra ab
þróa ákvébið verk.
Það þurfti ekki stóran mann
eða sterkan til að sjá það, að
þegar útflutningsbætur á kjöt-
inu voru afnumdar þá var búið
um leið að skera landbúnaðinn
svo á háls, að ekki tolldi blóð-
dropi í þeim skrokk lengur. Það
hefur enda farið svo að nú eru
síðustu andköfin tekin í þeirri
grein framleiðslunnar, og ekkert
komið í staðinn annað en að
landbúnaðarráðherra hefur sót-
ast yfir síðustu ríkisstjórn, að
fella þetta niður, en ekki litið
við í sín síðustu fjögur ríkis-
stjórnarár að rétta þaö við aftur.
En að leggjast svo lágt í eymd
sinni og rætni, af fulltrúum
bænda á þetta virðulega búnað-
arþing, ab tala um bann á
heimaslátrun, sem tíðkast hefur
frá landnámsöld að slátra heima
á bæjunum, er svo sannarlega
réttur baggi á Bakkabrúnkuna
látinn á móti þeim sem einn
valdamesti dýralæknirinn hér
tjáði, og tók mönnum vara fyr-
ir, að hættulegt gæti verið að
neyta heimaslátraðs kjöts, vit-
andi vits að slíkur matur hefur
aldrei nokkurntímann orðið
nokkrum manni að skaða í
nokkru formi.
En það er sama hvaðan á
þetta mál er litið. Þetta er eitt-
hvert það óhönduglegasta mál
þeim til smánar sem falið var að
standa í fylkingarbrjósti bænd-
um til handa, í allri neyð og
kúgun, rógi og níði úr öllum átt-
um.
Höfundur er bóndi.
Forðumst að spyrja börnin
spurninga sem hægt er að svara
með já eða nei. Spyrjum heldur
spurninga eins og: Hvar?
Hvernig? Hvers vegna? Þess
háttar spurningar krefjast virkni
og sveigjanleika og leiða af sér
skapandi hugsun. Tökum þátt í
leik barnanna, veitum athygli
því smáa og því stóra sem vekur
undrun þeirra og forvitni. Skob-
um saman, prófum, uppgötvum
og ræbum um það sem fyrir
augu og eyru ber. Lærum hvert
af öðru, bæði börn og fullorðn-
ir, njótum og síðast en ekki síst:
gleðjumst saman.
Grundvöllurinn fyrir því að
kynnast og virða sköpunargleði
barna er að hafa á einhvern hátt
upplifað hana sjálfur, gengið í
gegnum sköpunarferlið og
fundið ánægju, nautnina og
jafnframt þekkinguna sem slík
vinna/upplifun veitir.
Það er nauðsynlegt ab uppal-
endur búi yfir þekkingu og
skilningi á mikilvægi skapandi
hugsunar fyrir þroska barna.
Góbur leikskóli, sem hefur á að
skipa metnaðarfullu fagfólki,
hefur alhliba þroska barna að
leiöarljósi. Þar skipar skapandi
starf stóran sess í starfi leikskól-
ans.
En hvort sem við erum leik-
skólakennarar, foreldrar eða
aðrir uppalendur í umhverfi
barnanna okkar, þurfum við alls
ekki að kunna og vita allt fyrir-
fram.
Beitum sjálf aðferðum skap-
andi hugsunar, leyfum barninu
í okkur að þróast, þroskast og
glebjast með börnunum okkar.
Höfum hugföst þau fleygu orð:
„Þab er aldrei of seint að byrja."
Höfimdur er leikskólakennari í Reykjavík.