Tíminn - 11.04.1995, Blaðsíða 9

Tíminn - 11.04.1995, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 11. apríl 1995 TSp' VWr^fVPf Ögmundur Jónasson alþingismaöur: Samstjórn félagshyggju meb krötum „Eg er því mjög eindregið fylgj- andi að mynduð veröi sam- stjórn þeirra flokka sem kenna sig við félagshyggju og að því máli þarf Alþýðuflokkurinn aö Kosningar í sameinubu sveitarfélagi á Suöurnesjum: Nafnamálið í lausu lofti Samhliða alþingiskosningum í sameinubu sveitarfélagi Kefla- víkur, Hafna og Njarðvíkur, var kosib um nafn á sveitarfélaginu. Kosið var um nöfnin Reykjanes- bær og Suðurnesjabær. AIls kusu rúmlega fimm þúsund í kosning- um um nöfnin, en þar af voru að- eins 1.514 gild og voru því 3.385 atkvæbi ógild. Um 7% atkvæba- seðla voru auðir. Á flesta seðla sem ógildir voru var ritað nafn Keflavíkur, eba Kefla- vík- Njarðvík, en ef aðeins eru tek- in gild atkvæði, þá fékk nafnib Reykjanesbær 55% atkvæöa og Suðurnesjabær 45%. Segja má í framhaldinu að nafnamálið sé í lausu lofti. Ljóst er að meirihluti kjósenda er óánægö- ur með bæði nöfnin sem í boöi voru og mun bæjarstjórn samein- aðs sveitarfélags nú skoða málið. ■ Skák: Heimsmeistarar safna 2,5 millj. Með áheitum vegna blindskáka- reinvígis heimsmeistaranna Garrys Kasparovs og Helga Áss Grétarsson- ar, hafa safnast um 2,5 milljónir króna, en einvígið verbur sýnt í Ríkissjónvarpinu á annan í pásk- um. í einvíginu tefla þeir báðir án þess ab hafa taflmenn og borð við höndina. Einvígib var tekið upp þegar Kasparov var hér á landi á dögunum og hefur mikil leynd hvílt yfir úrslitum þess. Þetta hefur hvorugur þeirra gert fyrr og er því um heimsviðburð að ræða. Ríkissjónvarpib og skákmennirnir tveir gerðu einvígi þetta að nokk- urs konar góðgerðarleik og veittu þessir abilar Námssjóði blindra góbfúslegt leyfi til að afla styrkja í tilefni einvígisins. Viötökurnar voru mjög góðar og með þessu tvöfaldast námssjóöurinn í einu vetfangi, en hann styrkir blinda og sjónskerta námsmenn fjár- hagslega. ■ Skýrsla um samfélag, bók Tómasar Cmnarssonar, sr um layndarbróf Hjsstaróttsr, mslnt lögbrot aóstu ambmttlsmanna og þógn ksrflslns. Verð kr. 1.980. VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN FJÖLDI VINNINGAR VINNINGSHAFA 1.- 2.\ 3.. 4. 3al5 117 3.271 UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 2.010.590 55.370 4.890 400 Helldarvinnlngsupphæð: 4.223.340 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR koma," segir Ögmundur Jónas- son, nýkjörinn þingmaður AB og óháðra í Reykjavík. Hann segist hafa vænst þess að ríkisstjórninni hefðu verið gefin afdráttarlausari skilaboö, en raun varð á í niburstöðum alþingis- kosningana. Hinsvegar sé ljóst að ríkisstjórnin tapaði töluverðu fylgi og m.a. tapaði Sjálfstæðis- flokkurinn 4% atkvæða í Reykja- vík undir forystu Davíðs Odds- sonar. Aftur á móti sé ómögulegt að spá í hvab gerist í framhaldinu og eins víst að stjórnarflokkarnir viti þab ekki einu sinni sjálfir. Ögmundur segist ekki hafa haft mikla trú á ríkisstjórn síðastá kjörtímabils og finnst það því ekki sniðugt að lappað verði upp á ríkisstjórn sömu flokka. Hann segir að vegna verka ríkisstjórnar- innar á síðasta kjörtímabili muni blasa við nýju þingliði óþrjótandi verkefni við margvíslegt endur- reisnar- og uppbyggingarstarf. Ögmundur jónasson. Tilkynning til handhafa Debetkorta frá Landsbanka íslands * Að höíðu samráði við Samkeppnisstofnun og Neytendasamtökin hafa verið gerðar nokkrar breytingar á viðskiptaskilmálum vegna Debetkorta. Til að gefa sem gleggsta mynd af því í hverju breytingarnar eru fólgnar, birtast hér að neðan þær greinar, sem taka efnislegum breytingum þann 25. apríl nk. og til samanburðar eldri skilmálar. Sérstök athygli er vakin á ákvæðum greinar 14.1. ELDRI SKILMÁLAR - útg. í desember 1993 NYIR SKILMALAR - taka gildi 25. apríi 1995 A. ALMENNT UM DEBETKORT A. ALMENNT UM DEBETKORT 6.4. Korthafi ber ábyrgð á öllum greiðslum/úttektum, sem verða vegna notkunar Debetkorts hans, sbr. þó 10. gr. 2. mgr. 6.6. Korthafi ábyrgist tjón gagnvart bönkum og sparisjóðum, sem verður vegna vanrækslu hans við vörslu eða notkun Debetkorts eða ieyninúmers þess. 7.3. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni, sem verður vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, náttúruhamfara, stríðs, verkfalls, verkbanns, skæruverkfalla eða annarra slíkra aðstæðna, rafmagnstruflana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana í símkerfi eða öðrum boðleiðum eða samgöngum. Tjón, sem gæti orðið af öðrum ástæðum, bætist ekki af útgefanda hafi hann sýnt eðlilega aðgæslu. 7.4. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni né óhagræði, sem verður vegna þess að móttöku Debetkorts er hafnað. 9.1. Notkun Debetkorts erlendis er heimil þar sem merki MAESTRO/CIRRUS eða VISA ELECTRON er uppi. Af erlendum viðskiptum og úttekt reiðufjár erlendis reiknast þjónustugjald, skv. gjaldskrá. 10.2. Sjálfsábyrgð korthafa takmarkast við jafnvirði ECU 150 í ísl. krónum, ef kort hans er notað af óviðkomandi aðila, áður en hvarf þess | uppgötvast og er tilkynnt skv. 1. tölulið. 10.3. Sérstök athygli er vakin á aö korthafi ber fulla ábyrgð á úttektum með glötuðu korti, sé tilkynningaskyldu ekki fullnægt strax og hvarf þess uppgötvast. 11.2. Við útgáfu korts greiðir korthafi sérstakt stofngjald auk venjulegs ] árgjalds. 11.3. Banka/sparisjóði er heimilt að færa korthafa til gjalda a viðskiptareikningi hans mánaðarleg færslugjöld fyrir notkun kortsins, kostnaö vegna reikningsyfirlita, kostnað vegna endurnýjunar korts, árgjöld á 12 mánaða fresti og gjald vegna útvegunar afrits af sölunótu.j allt samkvæmt gjaldskrá hverju sinni. 6.4. Korthafi ber ábyrgð á öllum greiðslum/úttektum, sem verða vegna notkunar Debetkorts hans, sbr. þó 10.2. og 13.1. og 13.2. 6.6. Korthafi ábyrgist tjón gagnvart bankanum, sem verður vegna vanrækslu hans við vörslu eða notkun Debetkorts eða leyninúmers þess, sbr. 10.2. 7.3. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni, sem verður vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, náttúruhamfara, stríðs, verkfalls, verkbanns, skæruverkfalla eða annarra slíkra aðstæðna, rafmagnstruflana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana í símkerfi eða öðrum boðleiðum eða samgöngum. 7.4. Útgefendur Debetkorta eru ekkí ábyrgir fyrir tjóni né óhagræði, sem verður vegna þess að móttöku Debetkorts er hafnað sem greiðslu hjá söluaðila eða í sjálfsafgreiðslutæki, né öðrum skaða, sem leitt getur þar af, sbr. þó 13.1. og 13.2. 9.1. Notkun Debetkorts erlendis er heimil þar' sem merki MAESTRO/CIRRUS eða VISA ELECTRON er uppi. 10.2. Sjálfsábyrgð korthafa takmarkast við jafnvirði ECU 150 í ísl. krónum, ef kort hans er notað af óviðkomandi aðila, áður en hvarf þess er tilkynnt. Þetta á ekki við ef um stórfellt gáleysi eða svik af hálfu korthafa hefur verið að ræða. Tilkynningaskyldu ber að fullnægja svo fljótt sem verða má eftir að hvarf korts uppgötvast. 14.1. Bankar/sparisjóðir áskilja sér rétt til að breyta notkunarreglum þessum og skilmálum, enda séu þær breytingar auglýstar. Ef Debetkortið er notað eftir að breytingar hafa verið auglýstar, skoðast það sem samþykki korthafa á þeim. Að öðrum kosti skal notkun kortsins hætt og það tilkynnt bankanum/sparisjóðnum. Ef engin slík tilkynning berst innan fjórtán daga frá auglýstri breytingu, skoðast hún samþykkt af korthafa. 11.2. Bankanum er heimilt að færa korthafa til gjalda á viðskiptareikningi hans gjöld skv. gjaldskrá, sbr. grein 11.1. 13.1. Telji korthafi að hann hafi orðið fyrir skaða vegna tæknilegrar bilunar í hraðbanka eða öðrum sjálfsafgreiðslutækjum, þá ber bankanum fyrir hönd viðkomandi sölu- eða þjónustuaðila að færa fram fullgild rök fyrir því að búnaðurinn hafi starfað rétt þá er umrædd viöskipti fóru fram, en er ella ábyrgur fyrir tjóninu. 13.2. Ábyrgð bankans takmarkast við beint fjárhagslegt tjón korthafa, en nær ekki til annars skaða eða óþæginda, sem leitt geta af bilun sjálfsafgreiðslubúnaðar. Bankinn ábyrgist ekki tjón þegar tæknibilun á að vera korthafa Ijós, svo sem þegar skilaboð þess efnis koma fram á tölvuskjá. 14.1. Bankinn áskilur sér rétt til að breyta notkunarreglum þessum og skilmálum, enda séu þær breytingar tilkynntar korthafa með minnst 15 daga fyrirvara. í tilkynningu um breytta skilmála skal vakln athygli á því í hverju breytingarnar felist og á rétti korthafa til að segja samningi upp. Noti korthafi kort sitt eftlr að breyttir skilmálar hafa tekið gildi, telst hann samþykkur breytingunni. B. DEBETKORT SEM GREIÐSLUKORT B. DEBETKORT SEM GREIÐSLUKORT 5. Greiðslur með Debetkorti koma fram á reikningsyfirliti þess viðskiptareiknings, sem kortið er tengt og korthafi fær sent frá banka/sparisjóði með umsömdu millibili. Á yfirlitinu kemur fram nafn seljanda, þar sem kortið var notað, ásamt dagsetningu og upphæð. Ef um erlend viðskipti er að ræða kemur einnig fram upphæð kauplandsins. Ef korthafi hefur athugasemdir við reikningsyfirlit sitt, ber honum að tilkynna það banka/sparisjóði sínum innan 20 daga frá móttöku þess. 5. Greiðslur með Debetkorti koma fram á reikningsyfirliti þess viðskiptareiknings, sem kortið er tengt og korthafi fær sent frá bankanum með umsömdu millibili. Á yfirlitinu kemur fram nafn seljanda, þar sem kortið var notað, ásamt dagsetningu og upphæð. Ef um erlend viðskipti er að ræða kemur einnig fram upphæð kauplandsins. Ef korthafi hefur athugasemdir 'við reikningsyfirlit sitt, ber honum að tilkynna það bankanum innan 20 daga frá móttöku þess. í vafatilvikum hvílir sönnunarbyrðin á kortaútgefanda. Reglur og skilmálar um Debetkort liggja frammi á öllum afgreiðslustöðum bankans. L Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna ■HMMHBHS98BKIQP8M9SS5SHS9BHÍ PA/SÍA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.