Tíminn - 03.05.1995, Qupperneq 2
2
ÉKie 4** itr«rm»rw
WWfwW
Mi&vikudagur 3. maí 1995
Tíminn
spyr...
Á a& leyfa sölu áfengs bjórs í
Laugardalshöllinni?
Helgi Seljan, Öryrkjabanda-
laginu:
Nei, alveg tvímælalaust ekki.
Menn hafa úti í löndum verib
að foröast afleiöingar áfengis-
neyslu á kappleikjum og því
ættu íslendingar ekki aö taka
það upp hér. Það er reyndar al-
veg óskiljanlegt hvernig þetta
hefur borið að, þ.e.a.s. að látið
sé sem þetta sé einhver knýj-
andi nauðsyn. Hingað til hafa
íþróttafélög gefib sig út fyrir að
reyna ab hamla á móti neyslu
af þessu tagi og þetta er einhver
hrikalegasta auglýsing sem
komiö hefur fram um að áfengi
og íþróttir eigi samleið.
Ingi Björn Albertsson, at-
vinnurekandi og fyrrverandi
þingmaður:
Já, ég held ab þab sé óhætt að
leyfa það með skynsamlegu eft-
irliti. Svo framarlega sem það
brýtur ekki gegn einhverjum
EES-ákvæðum eða öðrum slík-
um ákvæðum sem við höfum
skrifað undir.
—7—.
<■ «
:/
% Wp £ F i
‘ 4 i i
/ i
Alfreð Gíslason handbolta-
þjálfari:
Já, mér .finnst tvímælalaust
ab það eigi að gera það. Þótt
löggjöfin hjá okkur sé frábrugð-
in löggjöf margra annarra
þjóða þá getum við ekki breytt
venjum útlendinga sem koma
hér til landsins í tilefni þessa
móts. Erlendis er viðtekin venja
að áhorfendur fái sér bjór er
þeir horfa á kappleiki og mér
finnst því fáránlegt að banna
hann hér. Ef bjór yrði ekki seld-
ur, myndi það kalla á enn meiri
vandræbi, þar sem áhorfendur
myndu e.t.v. taka flöskur með
sér og það myndi bjóða þeirri
hættu heim að einhverju yrði
kastað inn á völlinn.
Álfadrottningin frumsýnd á Borgarfiröi eystri:
Um þri&jungur heimamanna
tekur þátt í sýningunni
Það fjallar m.a. um umdeilda
kirkjubyggingu uppi á Álfaborg-
inni, meintum bústað álfa-
drottningar íslands, og inn í það
fléttast svo skemmtilegar frá-
sagnir af ýmsum furðuvættum,
svo sem Gellivör tröllskessu,
Nadda ógnarvætti og fleiri
furðuverum. Andrés Sigurvins-
son leikstýrir sýningunni en
hann á ættir sínar að rekja til
í gær var frumsýnt í félags-
heimilinu Fjarbarborg á Borg-
arfirbi eystri, leikverkib Álfa-
borgin — margt er þab í stein-
inum sem menn ekki sjá.
Leikverkib er samið í tilefni af
100 ára verslunarafmæli stab-
arins og koma um 50 manns
að sýningunni meb einum eba
öðrum hætti.
Sesselja Traustadóttir, formað-
ur Leikfélagsins Vöku á Borgar-
firði, segir að hugmyndin að
leikritinu hafi kviknað í fyrra
þegar Borgfirðingarnir og syst-
urnar Kristín og Sigríður Eyjólfs-
dætur skrifuðu stuttan leikþátt
fyrir Útileikhúsið á Egilsstöð-
um. Boltinn rúllaði hægt af stað
en nú hafa þær í sameiningu
Iokið við að skrifa fyrsta leik-
verk sitt í fullri lengd, sem bygg-
ir á þeirri trú Borgfirðinga að
ýmislegt sé fleira í þessum
heimi en menn fái greint og þ.á
m. álfar og huldufólk. Kristín og
Sigríður eru á sjötugs- og átt-
ræðisaldri.
Leikritið er í stuttu máli um
samskipti álfa og manna á liðn-
um öldum í Borgarfjarðarbyggð.
Frá æfingu á Alfaborginni. Mynd: Pétur Eibsson.
Brgarfjarðar eystri. „Það hefði
enginn annar getað gert það
sem Andrés hefur gert hér," seg-
ir Sesselja. „Hann er búinn að
kreista það mesta og besta úr öll-
um fyrir þessa sýningu."
Það þarf grettistak til að setja
upp verk af þvílíkri stærðargráðu
og segir Sesselja að mikinn stór-
hug og samheldni fjölmargra
handa hafi þurft til. Samkvæmt
manntali búa 183 manns á
Borgarfirði og má ætla að um
10-15% þeirra séu í námi annars
staðar. Leikararnir eru 25 talsins,'
frá 3ja ára aldri og upp undir sjö-
tugt, en alls koma 50 manns að
sýningunni eins og áður er get-
ið. Það er nálægt þriðjungi
starfshæfra einstaklinga á staðn-
um og geri aðrir betur.
Sesselja vonaðist í gær eftir að
frumsýningin gengi snurðulaust
fyrir sig en henni var frestað sl.
föstudagskvöld þegar veikindi
og tæknivandamál komu
skyndilega upp. „Álfarnir voru
að hrekkja okkur," segir Sesselja
en hún segir Borgfirbinga al-
mennt ekki afneita sögum um
álfa og huldufólk. M.a. nefnir
hún sérstakan stað, Hvolshól-
inn, þar sem vinnuvélar bili ít-
rekað er þær fari um og tengist
það tiltrú fólks á ab þá sé veriö
ab hrófla við leiksvæði barna í
álfabyggð.
Næst verður Álfaborgin sýnd
tvisvar á laugardag en síöan ekki
fyrr en haldið verður upp á 100
ára verslunarafmæli Borgarfjarð-
arhrepps 22. júlí. ■
„lcelandic Films" gefm út af Kvikmyndasjóbi:
Hundraö ára afmæli
I síöustu viku kom út á vegum
Kvikmyndasjóðs íslands bókin
„Icelandic Films". Höfundurinn
er Pete Cowie, ritstjóri alþjóba-
deildar kvikmyndablabsins „Vari-
ety". Bókin kemur einungis út á
ensku og stefnt er að því að selja
hana mest á almennum markaði.
Á þessu ári er þess minnst víða
um heim, að eitt hundrað ár eru
liðin frá því að fyrsta kvikmyndin
var sýnd í heiminum. Útgáfa Ice-
landic Films er meðal þess sem ís-
lendingar leggja af mörkum í til-
efni þessara tímamóta. Þá er einn-
ig í undirbúningi farandsýning
gamalla íslenskra kvikmynda,
bæði heimildarmynda og leik-
inna kvikmynda.
Gert er ráð fyrir að farandsyn-
ingunni verði hleypt af stokkun-
Bryndís Schram, framkvœmdastjóri
Kvikmyndasjóbs íslands, meb eintak
af „ lcelandic Films ". Tímamynd, GS
um um það leyti sem skólahald
hefst í haust, en meðal mynda á
sýningunni er „79 á stöðinni" eft-
ir Indriba G. Þorsteinsson, sem
Kvikmyndasafnið fékk styrk frá
UNESCO til að endurgera. ■
| Sagt var...
„ Ég œtlabi upphaflega ab vera gagnrýn-
andi í eitt ár en þau urbu fimm og nú er
nóg komib... Þab eina sem ég veit er ab
ég mun finna mér starf þar sem ég vek
ekki athygli, því ab ég er hundþreytt á
henni og vil bara fá frib,"
segir Súsanna Svavarsdóttir í Mánudagspóst-
inum í gær en hún er hætt sem leiklistar-
gagnrýnandi Morgunbla&sins.
■
„ Um árabil hefur ástandib í millilanda-
flugi verib þannig ab Flugleibamenn
þurfa ekki ab hafa áhyggjur af sam-
keppni. Þeir hafa því mebhöndlab neyt-
andann eins og þeir œttu hann."
Úr lei&ara MP í gær.
■
„ Þab er hrœbilegt þegar börn eru ab leika
í kvikmyndum. Þau eiga ekki ab þurfa ab
hafa áhyggjur af því ab bóla á andlitinu
kalli á breytta lýsingu eba fresta verbi
myndatökum til morguns."
Wiona Ryder í Svibsljósi DV í gær.
■
„ Ég hef ekki gert handarvik í mörg ár og
gerí ekki heldur á afmœlisdaginn," sagbi
Þorbjörg S. lónsdóttir í Morgunblabinu á
sunnudag en hún varb 100 ára þann
dag.
■
„ Ég er orbinn hálf hrœddur umþababég
komi íslandi í annan flokk,"
segir Björgvin Halldórsson stórsöngvari og
hlær í sunn'udagsblabi Mogga um þátttöku
hans í Júróvisjón.
■
„ Ég þekki mitt lib þab vel ab ég er viss um
ab vib munum toppa á réttum tíma,"
segir Þorbergur toppþjálfari Abalsteinsson (
DV í gær.
■
„ Clöggir menn hafa tekib eftir því ab dýr
þab sem einkennir fána Irving-olíufyrir-
tœkisins er ekkert annab en búrhvalur.
Þeir sem eru vel ab sér í dýrafrcebinni eru
búnir ab komast ab því ab uppáhatds-
fœba og abalfœba búrhvalsins er ekkert
annab en smokkfiskur og krabbil"
MP í gær.
í heita pottinum...
... var verib a& deila um tengsl
Framsóknarflokksins við Sam-
vinnuhreyfinguna og þ.m.t. Sam-
vinnuskólans gamla á Bifröst. Eins
og venjulega neitu&u framsóknar-
mennirnir í pottinum öllum
tengslum en einn baðgesta haf&i
verið á Bifröst um helgina þar sem
afmælisárgangarfyrrverandi nem-
enda hittust og var sá á öðru máli.
Fulltrúi 30 ára nemenda haf&i ver-
iö sposkur á svip í ræ&u sinni er
hann sagðist ekki minnast þess að
sérstakur framsóknaráróður hefði
verið rekinn í skólanum. Téöur
ræöumaður var Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra en auk hans
voru staddir þarna Finnur Ingólfs-
son iðnaðar- og viðskiptaráðherra
og Valgerður Sverrisdóttir, for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins. Þá mun Guðmundur
Bjarnason, landbúnaöar- og um-
hverfisráðherra, einnig hafa stund-
ab nám við skólann og auk þess
eiginma&ur Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigbisráðherra.
•
... var verið ab ræða ab samningar
væru frágengnir milli KSÍ og Sjóvá
Almennra í sumar. Mun úrvals-
deildin í knattspyrnu væntanlega
heita Sjóvá/Almenna deildin eða
eitthvaö því um líkt en gárungarn-
ir eru komnir með slagorð vertíð-
arinnará hreint. Nefnilega: „Þú
skorarekki eftirá."
•
... eru menn mikið aö spá í meiri-
hlutasamstarfið í Hafnarfiröinum.
Þar er nú allt á suðupunkti milli Al-
þýöubandalags og Sjálfstæöis-
flokks ekki síst eftir að jóhann
Bergþórsson kom aftur inn í bæj-
arstjórnina og lýsti því yfir ab
stuöningur sinn við meirihlutann
væri skilyrtur því að breytingar
yrðu geröar á fjárhagsáætlun. Alla-
ballar tala nú um að vera komnir í
gíslingu hjá Jóa Begg og á fundi
hjá hafnfirskum Allaböllum um
daginn mun það hafa veriö form-
lega lagt til að samstarfinu yröi
slitiö. Sú tillaga var þá naumlega
felld. Nú bíba menn haustsins
þegar fjárhagáætlun verður end-
urskoðuð enda spá menn að þá
muni draga til tíðinda.