Tíminn - 03.05.1995, Side 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gaer)
mmm
Mibvikudagur 3. maí 1995
afiaröar: Austan og :
skýjab og smáskúrir eba dálítil súld meb köflum. Vaxandi austan og
subaustan átt þegar líbur á daginn. Hiti víbast 5 til 10 stig.
• Vestfirbir til Austurlands ab Clettingi: Austan gola eba kaldi, skýj-
ab og víba þokuloft. Hiti 1 til 6 stig.
• Austfirbir: Subaustan gola og þokusúld. Vaxandi subaustan átt
þegar líbur á daginn. Hiti 2 til 7 stig.
austan <
Subausturland: Sunnan qola eba kaldi og þokusúld. Vaxandi sub
an átt og rigning þegar líour á daqinn. Hiti 6 til 10 stiq.
daginn.
I stig.
Sjálfstœöar konur ánœgöar, en sjálfstœöiskonur óánœgöar meö hlut sjálfstœö-
iskvenna í stjórn landsmála. Arndís Jónsdóttir um heitan fund í Borgarnesi:
Framsókn gerir konum
mun hærra undir höfbi
Um 40 sjálfstæöiskonur víba
ab af landinu komu saman til
hitafundar í Borgarnesi um
helgina. Til umræbu var rýr
hlutur sjálfstæbiskvenna í rík-
isstjórn. Arndís Jónsdóttir,
vígslubiskupsfrú í Skálholti,
er formabur Landssambands
sjálfstæbiskvenna. Tíminn
spurbi hana í gær hvort Sjálf-
stæbisflokkurinn væri karl-
rembuflokkur.
Stórbruni í
Kópavogi
Stórbruni varö í iönabarhús-
næöi viö Kársnesbraut í Kópa-
vogi laust eftir miönætti abfara-
nótt sunnudags. Allt tiltækt
slökkvliö var sent á staöinn og
var mikill eldur í húsinu þegar á
staöinn var komiö. Eldsupptök
voru í húsnæði Bæjarbrauða, en
í öörum hlutum hússins eru
starfrækt byssusmiöja, tré-
smíöaverkstæði og bifvélaverk-
stæöi. Mikiö tjón varð í brunan-
um, en rjúfa þurfti þak á hús-
inu, auk þess sem mikið tjón
varö vegna elds, vatns og reyks.
Talið er aö eldurinn hafi kvikn-
að út frá rafmagni. ■
„Það viröist alla vega ekki
vænlegur kostur fyrir konur í
flokknum aö taka þátt í próf-
kjörum. Em sætin bara ekki frá-
tekin yfirleitt? Alla vega er ekki
að sjá eina einustu konu í efsta
sæti í neinu kjördæmi," sagði
Arndís í gær.
„Ég tel aö margar sjálfstæöis-
konur skorti hvorki menntun
né hæfileika og margar hafa þær
góöa reynslu í stjórnmálum,"
sagöi Arndís.
„Þetta er mjög viðkvæmt'inál
fyrir okkur sjálfstæöiskonur,
ekki síst þar sem samstarfsflokk-
urinn í ríkisstjórn er með einn
ráöherra, og formann þing-
flokks síns og gerir konum mun
hærra undir höfði en okkar
flokkur. Framsóknarflokkurinn
hefur skipt um stefnu og ímynd
til hins betra. Þó hefur sá flokk-
ur þótt nokkuð íhaldssamur,"
sagöi Arndís.
A Borgarnesfundinum var að-
allega rætt um embætti sem
núna verða ákveöin á vegum
þingflokks Sjálfstæðisflokkins,
en þingflokksfundurinn veröur
haldinn í dag. Arndís á rétt á aö
sitja þann fund sem formaður
Landssambands sjálfstæöis-.
kvenna en haföi ekki verið boð-
uö í gærmorgun.
Innri-Akraneshreppur:
Jarbir seldar vegna
H valfj arðarganga?
„Þab gæti alveg farib svo, mér
sýnist þab," sagbi Halldór
Jónsson abspurbur um hvort
vegur, sem til stendur ab
leggja frá munna Hvalfjarbar-
ganga um Innri- Akranes-
hrepp, gæti orbib þess vald-
andi ab jarbir þar yrbu til sölu.
En Halldór er einn þeirra íbúa
í hreppnum, sem mótmælt
hafa fyrirhugubu vegarstæbi.
Hann sagði aö menn væru
ekkert sáttir viö eignaupptöku á
jöröum meö þessum hætti,
enda væri þaö „mjög flókiö
mál, og aö því er mér skilst á
lögfræöingum líka."
Ekkert hefur veriö komiö til
móts viö kröfur íbúanna, aö
sögn Halldórs, en hann reikn-
aði með því aö eitthvað yröi
rætt viö nýja landbúnaðarráð-
herrann, fyrst búiö væri aö
skipta embætti landbúnaöar-
og samgönguráöherra í tvennt,
enda færu sumar jarðir mjög
illa, ef af þessari vegarlagningu
yröi. TÞ, Borgamesi
MAL DAGSINS
Alit
lesenda
Síbást var spurt:
_ _ Q Aab þrengja möguleika
1)5/0 fámennra stétta s.s. flugfreyja
til ab lama heilu starfsgrein-
arnar meb verkföllum?
Nú er spurt: Er„karlremba" meiri íSjálfstcebisflokknum
en í öbrum flokkum?
Hringiö og látið skoðun ykkar í Ijós. Mínútan kostar kr. 25.-
SÍMI: 99 56 13
Sjálfstæðar konur er hópur
innan Sjálfstæöisflokksins, en
þar fara ungar konur, flestar í
háskólanámi eða nýkomnar út á
vinnumarkaðinn og í gríni eru
þær kallaðar Ungar skólastúlkur
innan flokksins. Þær eru ýmist
starfsmenn flokksins, eöa dætur
feðra sinna, sem eru margir í
góðum embættum. Þessar ungu
konur hafa lýst sig ánægðar
meö oröinn hlut. Er ekki laust
viö aö grunnt sé á því góöa milli
hinna Sjálfstæöu kvenna og
sjálfstæðiskvenna um þessar
mundir.
„Stjórn Hvatar er aö mestu
skipuö ungum konum. Við er-
um hættar aö baka kleinur og
útvega meðlæti fyrir fundina,"
sagöi Hrefna Ingólfsdóttir, for-
maöur Hvatar í samtali viö Tím-
ann í gær. Hvöt er stærst félaga
kvenna innan Sjálfstæöisflokks-
ins.
Hrefna segist ekki skilja hvers
vegna Sjálfstæöar konur koma
fram fyrir skjöldu og lýsa yfir
ánægju sinni meö þróun mál-
efna kvenna innan flokksins.
„Er hugsunarhátturinn sá aö
þaö borgi sig að vera þæga og
góða stelpan og vonast eftir
verðlaunum. Við vitum að það
þarf aö berjast fyrir bættum hlut
kvenna. Þaö hvarflar ekki að
okkur aö lýsa yfir ánægju meö
þaö sem við erum hund-
óánægöar meö," sagði Hrefna.
Óánægöu konurnar innan
Landssambands sjálfstæöis-
kvenna hafa sent Davíð Odds-
syni bréf þar sem bent er á aö
konur í flokknum heföu vænst
þess aö hlutur kvenna yrði væn-
legur eftir kosningar. Nú virtist
ekki stefna í stóran hlut kvenna
en enn væri möguleiki á aö nýta
þaö, ella gæti þaö haft ófyrirséð-
ar afleiðingar í för með sér fyrir
flokkinn.
Landsfundur Sjálfstæöis-
flokksins verður í haust og þá
ætla sjálfstæðiskonur aö mæta
brennandi í andanum og vinna
aö leiðréttingu mála. Sá var andi
fundarins í Borgarnesi.
Frá slysstab. Snjóslebarnir eru á þeim stab sem slebinn fór fram af en
nibri íbotni gjárinnar stendur Pálmi Sigurbsson bóndi á Klúku á þeim
Stab sem slebinn lenti. Tímamynd: Einar Ól.
Vélsle&aslys vib
Hallárdalsgljúfur
Frá Einari Olafssyni, fréttaritara Tímans á
Drangsnesi.
Þaö var margt um manninn á
Laugarhóli í Bjarnarfiröi, en þar
gistu margir ferðalangar og hugö-
ust fara í ýmsar vélsleðaferðir út frá
staðnum. Á laugardagsmorgun fór
svo Smári Sigurösson frá Akureyri
út á undan félögum sínum og
hugöist taka af þeim myndir er þeir
legöu af staö. Ók hann sem leið
liggur austur hlíöina frá Laugar-
hóli, en varaði sig ekki í gljúfrinu,
sem Hallárdalsá rennur í um hálf-
an kílómetra austan Klúku. Kom
hann á fullri ferö og kastaðist á
austurvegg gljúfursins, en losnaði
af sleöanum. Viö þetta úlnliðs-
brotnaði hann á báðum úlnliöum,
missti meðvitund, féll niður á
gljúfurbotninn og mun hafa legið
þar um stund, því að félagar hans
uröu einskis varir er þeir héldu á
brott.
Næst gerist þaö aö Smári kemur
aö Klúku og biöur Pálma Sigurös-
son bónda þar aö ná sambandi við
félaga sína. Þegar Pálmi verður þess
var að hann getur ekki hreyft
hendurnar, hringir hann í lækni á
Hólmavík, sem kom á staðinn og
bjó um Smára. Hann treysti hon-
um hinsvegar ekki til flutnings í bíl
og kallaði þyrluna á vettvang.
Slysiö hafði orðiö um ellefuleyt-
ið, en þyrlan kom á vettvang um
hálf fjögur. Varö Pálmi á Klúku að
reka vorgæsirnar úr túninu, áður
en þyrlan gæti lent.
Félagar Smára dvöldust áfram á
Laugarhóli og héldu suður mánu-
daginnl.maí. ■
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss:
Sýslumaöur afturkallar
gjaldþrotabeiöni
Sýslumaburinn á Selfossi hefur
afturkallab beibni sína um
gjaldþrotaskipti á hendur
handknattleiksdeild og júdó-
deildum Ungmennafélags Sel-
foss. Áfram verbur þó unnib ab
heildarendurskoðun á fjármál-
um félagsins og deilda þess.
Krafa sýslumannsins um
gjaldþrotaskipti var tilkomin
vegna vangoldins virðisauka-
skatts sem skattstjóri Suöur-
landsembættis áætlaöi á deild-
irnar. Lausn hefur nú fundist í
málinu eftir viöræöur forráða-
manna þessara félaga, auk for-
ystumanna Selfossbæjar, meö
skattayfirvöldum. Fjármál
deilda félagsins veröa endur-
skoöuð og reikningsskil og bók-
hald samræmt.
Knattspyrnudeild Umf. Sel-
foss hefur einnig glímt viö tals-
verðan fjárhagsvanda síðustu
misseri og krafðist sýslumaöur
jafnframt gjaldþrotaskipta þar.
Unnið er aö lausn þess máls og
vonast er til aö hún geti orðið á
svipuðum nótum og hjá hand-
knattleiks- og júdódeildunum. ■