Tíminn - 04.05.1995, Side 7
Fimmtudagur 4. maí 1995
7
Vegsummerki snjóflóösins eru greinileg, grunnar húsanna sem flóbib hreif meb sér. Tímamyndir: Pétur Bjarnason
Ný byggö á Súðavík:
Vigdís forseti tók
fyrstu skóflustunguna
Frá Pétri Bjarnasyni, fréttaritara Tímans á
ísafirbi:
Sunnudaginn 30. apríl sl. hófst
formlega uppbygging nýrrar
byggðar í Súðavík, með því aö Vig-
dís Finnbogadóttir forseti tók
fyrstu skóflustunguna að nýrri
gatnagerð á byggingarsvæðinu.
Mikið fjölmenni var við athöfnina
og veður eins og best veröur á kos-
ið, glaðasólskin og logn.
Rétt fyrir klukkan tvö á sunnu-
daginn fór forsetinn ásamt þing-
mönnum kjördæmisins og ráða-
mönnum í Súðavík á staðinn þar
sem mest tjón varð í snjóflóðunum
þann 16. janúar síðastliðinn. Þar
var staldrað við um stund, veg-
summerki skoðuö og síðan haldið
inn á hið væntanlega bæjarstæði í
Eyrardalslandi.
Þar hófst athöfnin síðan klukkan
tvö með því að forsetinn, frú Vig-
dís Finnbogadóttir, tók fyrstu
skóflustungu að nýju vegarstæði
og óskaði þorpinu og íbúum þess
guðs blessunar í því uppbyggingar-
starfi sem framundan er.
Sr. Magnús Erlingsson flutti síð-
an hugvekju, bæn og blessunarorð
og viöstaddir báðust sameiginlega
fyrir.
Að þessari athöfn lokinni var
gengið til hins nýja og glæsilega
íþróttahúss, þar sem hreppsnefnd
baub öllum gestum til kaffisam-
sætis, en veg og vanda af fram-
kvæmd þess hafði kvennadeild
Slysavarnarfélagsins á staðnum.
Þess má geta að þetta vandaða
íþróttahús hefur verið notað í um
eitt ár, en það var byggt í fyrravet-
ur og libu um sex mánuðir frá
fyrstu skóflustungu þar til það var
tekib í notkun og þab er nú full-
byggt. Bygging þessa húss og fram-
Vigdís Finnbogadóttir skobar vegs-
ummerki og uppbyggingu á Súba-
vík í fylgd Elmu Daggar Frostadótt-
ur. Elma Dögg grófst undir snjó-
flóbinu og fannst ekki fyrr en eftir
15 klst. nokkub slösub. Hún var sú
nœst síbasta sem fannst á lífi.
Orðrétt sagði hún síðan: „Ég varð
fyrir djúpum áhrifum þegar ég
kom hér og var með ykkur á mikl-
um sorgarstundum og mér hefur æ
síðan fundist ég vera vinur ykkar
allra og það vil ég að þið vitið."
Af ráðherrum ríkisstjórnarinnar
mátti sjá auk félagsmálaráöherra,
heilbrigðisráöherra, Ingibjörgu
Pálmadóttur, menntamálaráð-
herra, Björn Bjarnason, landbún-
aðar- og umhverfisráöherra, Guð-
mund Bjarnason, og utanríkisráð-
herra, Halldór Ásgrímsson.
Atvinna hefur verið næg í Súða-
vík eftir að starfsemi hófst eftir
snjóflóðin í vetur en það má raun-
ar segja að svo hafi verið mörg
undanfarin ár.
Framundan eru geysimikil verk-
efni, bæði á sviðum sjávarútvegs-
ins og fiskvinnslunnar, sem fyrr,
svo og byggingarframkvæmdir við
hið nýja hverfi og hreinsun og frá-
gangur á snjóflóðasvæbunum.
Ekki hefur enn verið gengið frá
því til fullnustu hvaba hús verða
flutt úr hinni „gömlu" Súöavík á
nýja byggingarsvæðið, en í skipu-
lagi er gert ráð fyrir tveimur götum
þar sem pláss verður fyrir hús sem
kunna að verða flutt af gmnnum
sínum.
Almennt gætir bjartsýni í máli
Súðvíkinga, sem horfa fyrst og
fremst fram á við og einbeita sér að
þeim verkefnum sem nú blasa vib.
Eftir ab forsetinn hafbi tekib skóflustungu ab nýju vegstœbi og sr. Magnús Erlingsson flutt bæn og blessunarorb
gekk mannfjöldinn til hins nýja og glœsilega íþróttahúss og þábi veitingar íbobi hreppsnefndar sem kvennadeild
Slysavarnarfélagsins sá um.
kvæmdahraði hennar ber stórhug
íbúa Súbavíkur gott vitni og þess er
að vænta að þeir geti tekist á vib
verkefni komandi tíma meb sama
hugarfari.
Yfir boröum flutti Jón Gauti
Jónsson sveitarstjóri ávarp og tvær
ungar stúlkur úr Tónlistarskóla
Súðavíkur, þær Alda Óskarsdóttir
og Kristrún Guðmundsdóttir léku
á blokkflautur. Einnig fluttu ávörp:
forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrsti þingmabur Vest-
fjarða, Einar Kr. Guðfinnsson, og
félagsmálaráðherra Páll Pétursson.
Viðstaddir vígsluna voru vel-
flestir íbúar Súðavíkur auk fjölda
gesta úr nágrannasveitarfélögum,
fulltrúar sveitarstjórna ásamt full-
trúum Sambands íslenskra sveitar-
félaga, forsvarsmenn ýmissa stofn-
ana og félagasamtaka.
Jón Gauti Jónsson sagði m.a. að
Nýja „Bústabahverfib" íSúbavík.
á næstu dögum yrði boðab til borg-
arafundar til þess að ræba næstu
skref í uppbyggingunni, en vonir
stæðu til þess að framkvæmdir
gætu hafist af fullum krafti á næst-
unni. í ávarpi Vigdísar forseta kom
fram að þetta væri meðal gleðileg-
ustu starfa sem hún hefði tekist á
hendur. Hún sagði að ekki hefði
liðið sá dagur síðan hún kom vest-
ur eftir hamfarirnar í vetur að hún
hefði ekki hugsað til Súbvíkinga.
Akureyrarbær leggur fe til rekstrar Foldu hf.
Frá Þór&i Ingimarssyni, fréttaritara Tím-
ans á Akureyri:
Framkvæmdasjóður Akureyr-
arbæjar mun leggja fram 25
milljónir króna til rekstrar foldu
hf. og skuld við Landsbanka ís-
lands að upphæð um 40 millj-
ónir króna verður breytt í hluta-
fé er veröur í eigu Regins hf. Auk
þessara fjármuna munu nýir að-
ilar koma að rekstri fyrirtækisins
og leggja því til rúmar 20 millj-
ónir króna. Núverandi hlutafé í
Foldu hf. er 79 milljónir króna
og verður það fært niður að
fullu. Eftir þessar breytingar
verður nýtt hlutafé í fyrirtækinu
87,5 milljónir króna og eigin-
fjárstaða þess jákvæð um 40
milljónir króna.
Ástæður þessarar endurskipu-
lagningar á fjármálum fyrirtæk-
isins eru erfiðleikar í rekstri,
einkum á fyrsta starfsári þess en
einnig á síðastliðnu ári. Fyrir-
tækið var stofnað eftir að Álafoss
hf. varð gjaldþrota á árinu 1991
og markmið þess og tilgangur er
að fullframleiða ullarvörur til út-
flutnings, en fyrirtækið íslensk-
ur textíliðnaður hf. í Mosfellsbæ
var stofnað um frumvinnslu ull-
arinnar. Strax á fyrsta starfsári
Foldu sköpuðust erfiðleikar sem
rekja má til þjóðfélagsumróts í
Rússlandi er varð þess valdandi
að áætlanir um sölu á fram-
leiðsluvörum þangað urðu ekki
að veruleika. Af þeim ástæðum
eyddist þáverandi eigið fé fyrir-
tækisins að mestu og gerði því
erfitt fyrir um áframhaldandi
rekstur og einkum að taka á sig
fleiri áföll. Á síðasta ári varð síð-
an einn af stærri viðskiptavin-
um Foldu hf. gjaldþrota er or-
sakaði um 30 milljóna króna tap
sem fyrirtækið var vanbúið að
taka á sig. Af þeim ástæðum var
hafist handa við endurskipu-
lagningu á rekstri þess sem nú er
lokið með framangreindum ráð-
stöfunum. Stjórnarformaður
Foldu hf. er Ásgeir Magnússon,
framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar en hann hefur
jafnframt gegnt framkvæmda-
stjórastarfi hjá Foldu hf. frá ára-
mótum. Hann hefur nú verið
ráðinn framkvæmdastjóri til
frambúðar og mun láta af störf-
um hjá iðnþróunarfélaginu, en
ný stjórn verður kosin á aðal-
fundi Foldu hf. sem fram fer í
byrjun maí. ■