Tíminn - 04.05.1995, Síða 9

Tíminn - 04.05.1995, Síða 9
Fimmtudagur 4. maí 1995 WífflfflVM t 9 Fallast á kröf- ur ísraela Jerúsalem — Reuter Jitsak Rabin, forsætisráöherra ísraels, sagði í gær ab Sýrlend- ingar hefðu fallist á kröfu ísraela um að landamæri milli ríkjanna yrðu opnuð og þau tækju upp opinbert stjórnmálasamband. ísraelar hafa litið svo á að þetta tvennt sé skilyröi þess að friður geti komist á milli ríkjanna. Orbrétt sagði Rabin: „Sem lokamarkmið, það er rétt: opin landamæri, stjórnmálasam- band. Þannig skil ég þetta mál, eins og Ameríkanar skýrðu okk- ur frá því." Rabin var spurður hvort þetta þýddi að Sýrland hefði fallist á að „alger friður" ríkti gagnvart ísraelsmönnum sem ferðast til Damaskus. „Já," var svarið. „Ég get ekki sagt hve- nær það verður, en já." ■ Hátt á annað þúsund í svelti Palestmumenn minntust þess meb fögnubi í gær ab eitt ár er libib frá því ab PLO tók ab sér löggœslu á Gasasvœb- inu 3. maí í fyrra. Mebal annars var hvítum dúfum sleppt lausum og ungmenni báru líkan af Kletthvolfinu íjerúsalem, sem er ein helgasta bygging múslima. Reuter Angóla: Andstæðingar hittast Kigali — Reuter Hátt á annað þúsund Hútú- ar, sem lifðu af fjöldamorðin í apríl, eru einangraðir í Kibeho- búðunum í Rúanda. Búbirnar eru umkringdar af hermönn- um Tútsí-stjórnarinnar, en að- stæbur í þar eru ömurlegar og algjör skortur á mat og vatni. Alþjóbanefnd Rauða krossins hefur reynt að fá leyfi til að koma nauðþurftum til Hútú- anna, en stjórnin virbist stab- ráðin í að svelta þá uns þeir gefast upp. Alls eru 1.738 Hútúar í búð- unum, þar af 311 karlar, 518 konur og 954 börn. Þeir krefjast þess að fá leyfi til ab fara til Za- íre þar sem 1.200 þúsund Hútú- ar eru í útlegð. Herinn heldur því fram að meðal þeirra sem í búðunum eru séu vopnabir ófriðarseggir sem tóku þátt í þjóðarmorðinu í fyrra, þegar allt að ein milljón Tútsía og hóf- samra Hútúa voru myrtir. Þessa menn verði ab handtaka svo hægt sé að refsa þeim. Ríkis- stjórnin hefur ennfremur heitið því að refsa hverjum þeim sem gerst hefur sekur um ódæðis- verk í Kibeho. ■ Lúanda — Reuter Á morgun, föstudag, munu Jose Eduardo dos Santos forseti Angólu og Jonas Savimbi, leið- togi UNITA-hreyfingarinnar, hittast í Lusaka, höfubborg Sam- bíu, þar sem friðarsamkomulag þeirra var undirritað í nóvember síbastlibnum. Ætlunin er að renna frekari stobum undir frib- inn í landinu, sem enn þykir nokkuð fallvaltur. Dos Santos sagðist í vikunni vonast til að fundurinn „marki upphafib að langvarandi þjóðarsátt." Borgarastyrjöld hefur ríkt í iandinu nánast óslitið í 20 ár, allt frá því það losnaði undan nýlendustjórn Portúgala árið 1975. Ríkisstjórnin hefur á valdi sínu þéttbýliskjarnana en dreif- býlið í suður- og vesturhluta landsins er undir stjórn UNITA- hreyfingarinnar. Miklar vonir eru bundnar við fund leiðtoganna, þótt margir séu tortryggnir á árangurinn. Antonio Joao Correia, sem er 35 ára þjónn með fimm börn á framfæri, sagði: „Við öðlumst aftur frelsi til að stjórna lífi okk- ar. Þegar friður færist yfir verða vegirnir opnabir og fólk getur aftur haldið til starfa. Matur fer ab berast til borgarinnar og verð lækkar." Viðbrögð 25 ára hótel- eiganda í Lúanda voru hins veg- ar önnur: „Nú, ætla þeir loksins að hittast? Þessir tveir menn, frekar en ab nota menntun sína og þau verðmæti sem portú- gölsku nýlenduherrarnir skildu eftir sig ... hafa þeir ekki gert annað en að leiða landið út í styrjöld sem engan enda tekur." Enn er ekki Ijóst hvað leibtog- arnir vonast til að fá út úr fund- inum, annað en að binda loks enda á borgarastyrjöldina. Sam- kvæmt samkomulaginu frá í nóvember, sem nábist fyrir milligöngu Sameinuðu þjóð- anna, er gert ráö fyrir að sameig- inleg ríkisstjórn verði mynduð, þar sem UNITA-hreyfingin fái nokkur rábuneyti: heilbrigðis- ráðuneyti, viðskiptaráðuneyti, rábuneyti feröaþjónustu og hót- elmála og ráðuneyti námu- vinnslu og jarðfræði. Auk þess fái hún í sinn hlut sjö vararáð- herra, sex sendiherra, þrjá af 18 héraðsstjórum landsins og sjö varahéraðsstjóra, ásamt ýmsum öðrum af æbri embættismönn- um landsins. Sumir þykjast hafa tekib eftir því að frá því í nóvember hafi ríkisstjómin, hvort sem þab er með ráðum gert eða ekki, sleppt hendinni af þeim ráðuneytum sem eiga ab fara undir stjórn UNITA og þar ríki nú algjört stjórnleysi. í Angóla er nú 40% verðbólga á mánuði, 80% allra matvæla eru innflutt og styrjöldin hefur nánast lagt allt samgöngu- og samskiptakerfi landsins í rúst. ■ Kari Jalas frá UNICE: 6% hagvöxtur á fyrsta ari Finna innan ESB Fréttamenn í lífshættu UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. Kari Jalas, fastafulltrúi Finna hjá Samtökum atvinnu- og iðnrek- enda í Evrópu (UNICE) og vara- maður í Efnahags- og félagsmála- nefnd Evrópusambandsins, var erlendur gestur Iðnþings. í ræðu hans á þinginu kom fram að hag- ur Finna af aðild aö Evrópusam- bandinu hefur þegar reynst mun meiri en ráð var fyrir gert áður en hún gekk í gildi um áramótin síð- ustu og stefnir nú í aö hagvöxtur á árinu verði um 6%, en hagvöxt- ur hér á landi var 3%. Gert er ráð fyrir að hann veröi svipaður í ár. Kari Jalas sagði að þennan mikla hagvöxt mætti rekja beint til ESB-abildarinnar. Þegar um miðjan febrúar hafði orðið 7% lækkun á matvöru í Finnlandi en nú er áætlab ab lækkunin nemi um 10 af hundraði á árinu 1995. Minnst hefur lækkunin orðib á mjólkurvörum, eba 3%. mest hef- ur hún orðið á eggjum, eöa 48%. Kjöt og unnin kjötvara hafa lækkaö um 13%. Kari Jalas segir ab þrátt fyrir þab að mjög hafi verið deilt um ESB-aðild í Finnlandi fyrir nokkrum mánuðum sé sá ágreiningur úr sögunni nú, eins og ráða megi af því aö fyrir þing- kosningar sem fram fóru í mars sl. hafi málið varla komib til um- ræðu. Þó sé of snemmt ab hrósa happi þar sem forsendur kunni að taka breytingum á ríkjaráð- stefnunni sem hefst ab ári, en Finnar leggi mikla áherslu á að hafa áhrif á þá endurskobun sem þar á að fara fram. ■ París — Reuter Árið 1994 létu a.m.k 103 fréttamenn lífið af manna- völdum víða um heim, en 1993 var sambærileg tala 63. Þetta kemur fram í ársskýrslu frá samtökunum Fréttamenn án landamæra, sem hafa að- setur í París. Þar segir einnig að í flestum hinna 185 aðildar- ríkja Sameinuðu þjóðanna séu þeir fréttamenn sem „til vand- ræða eru" ýmist ritskoðaðir, fangelsaðir, pyntir eða jafnvel drepnir. Ab mati samtakanna virða einungis 50 aðildarríkj- anna fjölmiðlafrelsið. „1994 var hræbilegt ár í sögu fréttamennskunnar," segir í skýrslunni. „Það eru ekki leng- ur slysaskot og jarðsprengjur sem verða fréttamönnum að bana. Hér eftir reyna öfga- menn að koma í veg fyrir að þeir segi frá því sem þeir verða vitni að." Ennfremur segir í skýrsl- unni: „Á nokkrum svæðum í heiminum (Alsír, fyrmmjúgó- slavíu) er kerfisbundib unnið að því að útrýma fréttamönn- um þar sem nærvera þeirra ein veldur óþægindum." í Rúanda hafa 48 fréttamenn látið lífið, en það er helmingurinn af öll- um fréttamönnum í landinu. í Alsír hafa 35 fréttamenn verið myrtir frá því í maí 1993, og átta drápust í Bosníu á sl. ári. Auk þess kemur fram aö í síðasta mánuði vom 98 frétta- menn á bak vib lás og slá, þar af þriðjungurinn í Asíu, og 19 þeirra sátu í kínverskum fang- elsum. Lýbíski fréttamaðurinn Abdullah Ali al-Sanussi al- Darrat hefur setið í fangelsi frá því 1973, eða í 22 ár, án þess að ákæra hafi verið lögð fram eða réttarhöld haldin yfir hon- um. Sums staðar hefur fjölmiöla- frelsi aukist á sl. ári, m.a. í Suö- ur- Afríku, Haítí, Jórdaníu, Marokkó, Nepal og Slóveníu. En annars staðar hefur ástand- ið versnað, t.a.m. í Alsír, Búr- úndí, Egyptalandi, Mexíkó, Serbíu, Rúanda og Túnis. Á þessu ári hafa 16 frétta- menn verið drepnir, helming- urinn í Alsír.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.