Tíminn - 13.08.1995, Side 7
Þriðjudagur 15. ágúst 1995
7
PJETUR SIGURÐSSON
Alþjóölegt GSM rall í Reykjavík:
Þrír breskir Land Rover her-
j eppar hingað til lands
Nú er ljóst að þrjár áhafnir frá
flutningadeild breska hersins
(British Army Rally Team)
munu verða meðal þátttakenda
í Alþjóðlega GSM ralli Reykja-
víkur sem haldið verður dagana
8.-10. september. Munu þeir
flytja meö sér sex Land Rover
herjeppa, þrjá keppnisbíla og
þrjá þjónustubíla. Alls eru 20-
25 manns í hópnum, með
þjónustuliði, en einnig verður
tækifærið notað og farið víðar
um landið bæði fyrir og eftir
rallið, en þeir verða hér á landi
dagana 4-14. september. Að
auki hafa þrír aðrir öflugir bílar
og ökumenn verið skráðir til
keppni, en um er að ræða bíla
sem eru á bilinu 250- 300 hest-
öfl og því líklegir til sigurs.
Ástæða þess að breskir her-
menn taka þátt í keppnum sem
þessum er að litið er á þær sem
hluta af þjálfun hermannanna í
akstri. Land Rover jepparnir eru
allir óbreyttir, eru með mis-
munandi vélarstærðum og allir
að styttri gerð þessara bíla.
Tryggvi Þórðarson, keppnis-
stjóri rallsins, segir að hingað
til hafi breska sveitin einbeitt
sér að þátttöku í tveimur
keppnum, annarri í Þýskalandi
og svo Skoska rallinu. Nú hins
vegar hafi þeir tekið þá ákvörð-
un að taka þátt í íslenska rall-
inu, sem sé í raun nokkur við-
urkenning á sérstöðu þessarar
keppni með hliðsjón af þeim
leiðum sem eknar eru.
Eins og áður sagði mun
breska sveitin nota ferðina
einnig til æfinga bæði fyrir og
eftir keppni og þá munu aðrir
meðlimir sveitarinnar einnig
aka um hina erfiðari vegi lands-
ins undir leiðsögn íslenskra að-
ila.
Þeir þrír erlendu ökumenn
sem þegar hafa skráö sig, eru
allir mjög sterkir ökumenn.
Einn þeirra er íslendingum að
góðu kunnur, Philip Walker frá
Englandi, en hann ekur Mözdu
bifreið í flokki óbreyttra bíla,
en um er að ræða tæplega 300
hestafla bifreið. Þá verður Eng-
lendingur að nafni David
Mann, en hann ekur á Toyotu
Celicu, sem er 300 hestafla bif-
reið. Að síðustu kemur hingað
Skoti, sem er álitinn mjög
sterkur og er meðal annars til-
raunaökumaður hjá Subaru-
verksmiðjunum.
Bragi Bragason, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra akstursíþróttafélaga,
segir að komu Bretana megi
rekja til öflugrar kynningar á
keppninni erlendis og samband
hafi náðst við þá í Skoska rall-
inu í sumar.
Allt stefnir í að með þeim sex
erlendu áhöfnum sem þegar
hafa verið skráðar að alls verði
um 25 bílar með í rallinu og er
búist við að allir bestu íslensku
ökumennirnir veröi á meðal
keppenda. Skráning er reyndar
nýhafin og skipuleggjendur
rallsins eru enn að vinna í því
að fá erlenda keppendur til
landsins. ■
Knattspyrna:
Umboösmaö-
ur í bann
Norski umboðsmaðurinn Rune
Hauge, sem hefur séö um sölu á
mörgum knattspyrnumönnum á
Norðurlöndum til Englands og
fleiri landa, hefur verið settur í
bann af Alþjóba knattspyrnusam-
bandinu. Astæða þess er að upp
komst um ólöglegar greiðslur
Hauge til George Graham vegna
sölu á leikmönnum til Arsenal.
Bann þetta þýðir ab Hauge getur
eigi lengur komið nálægt neinum
viðskiptum með knattspyrnumenn
í framtíðinni. ■
Heimsmeistaramótinu í
frjálsum íþróttum lauk í
Gautaborg um helgina:
Dagskrá 01' 96
breytt vegna ár-
angurs Michael
Johnson?
Svo getur farib ab dagskrá Ólymp-
íuleikanna verði breytt vegna
hins frábæra árangurs bandaríska
hlauparans Michaels johnsons,
en hann varð þrefaldur heims-
meistari. Hann vann gullverölaun
í 200 og 400 metra hlaupum, auk
þess sem hann var í sigursveit
Bandaríkjanna í 4X400 metra
hlaupi. Samkvæmt tímatöflu
Ólympíuleikanna í Atlanta er ekki
hægt að vinna til verðlauna í 200
og 400 metra hlaupum, en nú er
verið að skoða hvort ekki sé
mögulegt að breyta því. Michael
Johnson telst tvímælalaust maöur
mótsins, en auk þeirra þriggja
gullverðlauna sem Johnson skil-
aði þeim, unnu þeir til níu ann-
arra gullverðlauna, auk tveggja
silfurverðlauna og fimm brons-
verðlauna.
Af öðmm greinum má nefna að
Jan Zelesny hafði yfirburði í spjót-
kastinu og engum dylst að hann
er enn besti spjótkastari í heimin-
um í dag, en hann kastabi 89.58
metra, sem var reyndar abeins
styttra en hann kastaði í undan-
keppninni. Steve Backley varö í
öðru sæti en hann kastaði 86.30
metra.
Það bar til tíðinda að írar náðu
í ein gullverðlaun á mótinu, þegar
írska stúlkan Sonia O'Sullivan
sigraði í 5000 metra hlaupi. Þá
sigraði Alsírbúi í 1500 metra
hlaupi Ana Fidela Quirot frá Kúbu
sigrabi í 800 metra hlaupi. ■
Evrópuboltinn:
Gott start
hjá B. Munchen
Hið stjörnum prýdda lið Bayern
Munchen byrjaði vel í þýsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu um
helgina, en liðið sigraði Hamburg
3- 2 í hörkuleik. Jurgen Klinsmann
lék sinn fyrsta leik með liöinu, en
hann var þó ekki á meðal marka-
skorara. Þýsku meistararnir Boruss-
ia Dortmund byrjuðu ekki eins vel,
en þeir gerðu jafntefli við Kaisers-
lautern, 1-1.
í Belgíu tapaði Anderlecth fyrir
Charleroi 0-2, sem hefur hins vegar
byrjab mun betur og trónir nú á
toppi deildarinnar ásamt fimm
öðrum liðum, með tvo sigra að
baki. Anderlecht hefur hins vegar
tapað báðum sínum leikjum.
íslendingaliðin í Svíþjóö léku
bæði um helgina. Örebro sigraði
Malmö 5- 0, en íslendingarnir
þrír, þeir Hlynur Stefánsson, Arn-
ór Guðjohnsen og Hlynur Birgis-
son léku ekki með. Órgryte, lib
Rúnars Kristinssonar, tapaði hins
vegar fyrir Halmstad 0-2. ■
Sigursveit Bandaríkjamanna í4x4oometraboöhiauP,sést
hér fagna sigri aö lokinni keppni á sunnudag. Árangur Bandaríkjamanna á Heimsmeistaramótinu í frjálsum
íþróttum var mjög góöur og unnu þeir til flestra verölauna, þar af 12 gullverölauna. Maöur mótsins var einnig í
þeirra herbúöum en þaö er Bandaríkjamaöurinn Michael johnson, sem var ísigursveit í4X400 metra boöhlaupi,
auk þess sem hann sigraöi í200 og 400 metra hlaupum. símamynd Reuter
Leikur um Góögeröarskjöldinn í ensku knattspyrnunni:
Meistararnir lágu í lélegum leik
Englandsmeistarar Blackburn
lágu gegn bikarmeisturum Ev-
erton í leik um góðgerðar-
skjöldinn á Wembley leik-
vanginum í Lundúnum á
sunnudag, 1-0 í afspyrnuléleg-
um leik. Það var Winny Sam-
ways sem skoraði sigurmarkið
á 57. mínútu og var þar um
sérlega glæsilegt mark að
ræða. Eftir að mark Everton
leit dagsins ljós sóttu leik-
menn Blackburn án afláts en
tókst ekki að nýta sér þau færi
sem gáfust.
Undir lokin vildu leikmenn
Blackburn fá víti, þegar varn-
armaður Everton, Dave Wat-
son, virtist brjóta á Alan She-
arer innan vítateigs, en dóm-
ari leiksins var ekki á sama
máli. Þrátt fyrir að Blackburn
ætti meira í leiknum undir
lokin, verða úrslit leiksins að
teljast sanngjörn, en þess skal
þó getið að Blackburn saknaði
nokkurra lykilleikmanna.
Um helgina var einnig leikið
í ensku 1. deildinni og léku
þeir Þorvaldur Örlygsson og
Lárus Orri Sigurðsson báðir
með Stoke gegn Reading og
léku nokkuð vel. Úrslit leikja
voru annars eftirfarandi:
Birmingham-Ipswich .....3-1
Crystal Pal.-Barnsley...4-3
Millwall-Grimsby........2-1
Oldham-Huddersfield ....3-0
Portsmouth-Southend ...4-2
Stoke-Reading...........1-1
Sunderland-Leicester....1-2
Tranmere-Wolves.........2-2
Watford-Sheff.Utd.......2-1
WBA-Charlton............1-0
Derby-Port Vale.........0-0
Luton-Norwich...........1-3