Tíminn - 23.09.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 23.09.1995, Blaðsíða 3
Laugardagur 23. september 1995 gefnHt-w-w Boröaklippingar ódýrt gaman — 130 milljóna mannvirki og dýrari fá „vígslu": SamgönguráÓherra klippir og klippir Halldór Blöndal samgöngu- ráöherra hefur veriö önnum kafinn viö ab klippa á silki- bor&a a& undanförnu eins og sést hefur í fréttum. Mörg og gó& vegamannvirki hafa liti& dagsins ljós og fengi& form- iega vígslu sem kallaö er, jafn- vel iöngu eftir a& mannvirkib hefur veri& tekiö í notkun. Um vígslur þessar gilda reglur eins og flest annab í þjó&félaginu og Ijóst a& ekki kemst hva&a brúarspor&ur sem er í fréttir fjölmi&Ia. Mikilvægi hans fer eftir þeim peningum sem til hans var varib. Á vegaáætlun, sem nú er unn- ið eftir, er beinlínis ætlast til ab framkvæmdir, stórbrýr og önn- ur slík stórvirki í vegagerð, sem fá sérstaka meðhöndlun í fjár- veitingum, séu opnub með vib- höfn. Miðað er við ákveðna lág- marksupphæð ef mannvirkið á að „vígjast" með viðhöfn, þar sem toppmenn þjóðfélagsins mæta til borðaklippingar baðað- ir ljósum sjónvarpstökumanna. Jón Rögnvaldsson, abstobar- vegamálastjóri, sagbi í samtali vib Tímann í gær að miðað væri við 130 milljón króna fram- Frumlegt — eba ekki? Stöb 3 varö fyrir valinu Besta nafnið á nýja sjónvarps- stöð íslenska útvarpsfélagsins hf. reyndist vera Stöð 3. Á ann- að þúsund sendu tillögur um nafn. „Niðurstaðan úr samkeppn- inni hefur sannfært stjórn félags- ins um ab skíra nýju stjónvarps- stöðina Stöb 3 sé skynsamlegt og að sú nafngift sé rökrétt framhald á ljósvakaþróuninni á íslenska markaðnum, sögðu talsmenn fé- lagsins í gær. Margir stungu upp á þessu nafni, frumlegu eöa ófrumlegu, en nafn Guðrúnar ívarsdóttur á Akranesi var dregið úr pottinum og fær hún 100 þús- und krónur ab launum. ■ kvæmdir og dýrari, og þá miðað við brú meb nauðsynlegum tengingum. „Það má segja að þetta sé nokkuð að okkar frumkvæði ab menn gera sér dagamun, ekki síst fyrir okkar fólk sem hefur unnið að verkinu," sagbi Jón Rögnvaldsson. Þess skal getið að nýjustu athafnir hafa verið kaffi- boð og áfengi ekki veitt, sem mörgum starfsmönnum hefur reyndar þótt þunnur þrettándi. Jón sagði að menn vildu helst ekki vígja mannvirkin fyrr en að allt væri tilbúið. Dæmi um þab væri brúin yfir Jökulsá á Dal, sem var tekin til notkunar fyrir ári. Menn hefðu viljað bíða eftir lúkningu vegarins með slitlagi sitt hvoru megin brúar. Framundan er vígsla fleiri „gamalla" brúa. Brúin yfir vestu- rós Héraðsvatna verður senn vígð, hún var notuð í vetur. Þá má auðvitað búast við borða- klippingu á brúnni við Höfða- bakka. Borðaklippingar eru ódýr skemmtan. Breiðir, gullfallegir satínborðar hjá Vogue kosta ekki nema 110 krónur metrinn. Sá kostnaður fer varla nema upp í þúsund krónur, en borðinn mun einnota að best er vitað. Við vígsluna á brúarmann- virkinu á Jökulsá á Dal spurbist Hjörleifur Guttormsson alþing- ismaður fyrir um reglur um vígslur, hvab vígja ætti og hvab ekki. Svæðisskrifstofa Vegagerð- arinnar á Reyðarfirði hafði ekki getað frætt Hjörleif um þessar reglur. Vegamálastjóri svaraði þessu í samkvæminu og munu fæstir viðstaddra hafa vitað um reglurnar. „Ég var nú aðallega að róma fyrri tíðarmenn sem stóðu í vegagerð við allt aðrar og erfið- ari aðstæður. Handarverk þeirra sjást nú enn þá á Breiðdalsheiði og Berufjarðarskarði. Menn ættu nú að minnast þeirra, það sem menn gera nú með tækninni er leikur einn miðað við hitt," sagöi Hjörleifur Guttormsson í gær. Þorsteinn Ólafsson framkvæmdastjóri og Benedikt Axelsson formabur Styrktarfé- lags krabbameinssjúkra barna, Einar Bollason áhugamabur um körfu og Pétur Hrafn Sigurbsson framkvœmdastjóri Körfuknattleikssambands íslands. Tímamynd CS --- Meistarakeppnin í körfuknattleik: Til styrktar krabba- meinssjúkum bömum Meistarakeppnin í kröfuknatt- Ieik fer fram í Keflavík í dag, laugardag, og hefur verið ákveðib að allur hagnaður af leikjunum skuli renna til Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna. í þessari keppni mætast ís- lands- og Bikarmeistarar karla og kvenna frá sl. keppnistímabili og keppa um sæmdarheitið meistar- ar meistaranna. í kvennaflokki eigast við lið Breiðabliks og Keflavíkur en Njarövík og Grindavík í karlaflokki. Auk þess verður boðið upp á ýmis skemmtiatriði og einnig verður hægt að hringja inn áheit til Styrktarfélagsins. Þeir sem gefa meira en 1000 kr. fara í pott þar sem dreginn verður út einn heppinn gefandi. Sá heppni fær ferð til London og miða á McDonalds mótið í körfu þar sem meðal þátttökuliða em NBA- meistararnir Houston Rockets og Evrópumeistarar Real Madrid. ■ Cjörbylting í skólastarfi grunnskóla í Eyjum: Einsetning þrátt fyrir plássleysiö Frá Þorsteini Cunnarssyni, fréttaritara Tímans í Vestmannaeyjum: Gjörbylting hefur or&ið á skóla- starfi í grunnskólunum tveimur í Eyjum í haust, en þá var í fyrsta skipti boðið upp á samfelldan skóladag. Þótt ekki sé komin mikil reynsla á þetta nýja fyrir- komulag er mikil ánægja ríkj- andi með það og gengið vonum framar, að sögn Halldóm Magn- úsdóttur, skólastjóra Hamars- skólans. í Hamarsskóla byrja nemendur milli 8 og 9 á morgnana og er hver krókur og kimi í skólanum nýttur til hins ýtrasta. í Barnaskóla byrja nemendur hins vegar á mismun- andi tíma á morgnana vegna pláss- Ieysis en eru með samfellda skóla- töflu. í fyrsta skipti er grunnskóla- nemendum í Eyjum boðið upp á hádegisverð í skólunum og gengur það fyrirkomulag einnig vel. Halldóra segir að með þessu sé verið að þjónusta heimili og veit hún dæmi þess ab foreldrar hafi breytt vinnutíma sínum vegna þessa, en hingaö til hafa yngstu bekkirnir verið eftir hádegi. ■ Hækkun SVR samþykkt Hækkun fargjalda Strætisvagna Reykjavíkur var samþykkt á fundi borgarstjórnar í fyrradag. Fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæbi gegn hækkuninni. Hækkunin tek- ur gildi 1. næsta mánabar. ■ Alþingi sett 2. október Alþingi mun koma saman til fund- ar mánudaginn 2. október næst- komandi. Þetta hefur forseti ís- lands ákveðið að tillögu forsætis- ráðherra. Hefðbundin þingsetning- arathöfn hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 13.30 og verður Alþingi- sett ab athöfn í kirkjunni lokinni. ■ Akureyri: Sparnabur í rekstri um 15 milljónir Umhverfismálaráö býöur borgarbúum til gönguferöar meö leiösögn: Gönguferð um náttúru- og söguslóöir Rauðavatns Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt tillögu frá bæjar- stjóra um 15 milljóna króna sparnað og hagræðingu í rekstri bæjarsjó&s Við gerð síðustu fjárhags- áætlunar Akureyrar var sam- þykktur sérstakur frádráttarliður þar sem forstöðumönnum deilda og stofnana bæjarins var gert að hagræða í rekstri og lækka kostn- að ef ekki væri unnt að auka tekj- ur. í tengslum við þessa hagræð- ingu hefur verið samþykkt að hækka fæðiskostnað á leikskólum um 15% en rúmlega einnar milljón króna tekjuauki hefur náðst í rekstri leikskólanna vegna fjölgunar barna. Bæjarfulltrúar allra flokka tóku undir þörfina á að hækka greiðslur vegna fæðis leikskólabarna en fæðiskostnaður hefur ekki dugað fyrir kaupum á hráefni. Fulltrúar minnihlutaflokkanna í bæjarstjórn gagnrýndi hagræð- ingartillöguna harðlega á fundi bæjarstjórnar og töldu að ekki tækist að ná fram svo mikilli hagræðingu í rekstri á skömmum tíma. Slíkt leiddi ekki til raun- verulegs sparnaðar heldur væri aðeins verið að fresta kaupum á vöru og þjónustu á milli ára til þess að sýna betri rekstrartölur um áramót. Þeir gagnrýndu einnig að í flestum tilvikum væri um lágar upphæðir að ræða sem koma ættu til niðurskurðar á mörgum stöðum. ÞI. Umhverfismálaráð Reykjavík- ur býður borgarbúum í göngu- ferð meb Ieiösögn um útivist- arsvæ&ib við Rauðavatn, nk. sunnudag. Tilefnið er Náttúru- verndarráð Evrópu en með því er ætlunin ab m.a. vekja at- hygli á nauðsyn þess að vernda náttúruna í nágrenni þéttbýlis. Gangan á sunnudag hefst klukkan 14 við vesturenda vatnsins, skammt frá nýju brúnni yfir Suöurlandsveg. Fána- borg verður þar sem lagt verður af stað þannig að fólk ætti að finna staðinn auðveldlega. Á Rauðavatnssvæðinu em leif- ar af sumarbústaðabyggð og þar eru víða gróðurlundir sem áður tilheyrðu sumarbústöðúm. Fyrsta skógræktin á Reykjavíkur- svæöinu hófst við Rauðavatn um aldamótin og hafa tré verib gróðursett þar allt fram á þenn- Bryndís Kristjánsdóttir, formabur umhverfismálarábs. an dag. Að öðm leyti er svæðið náttúmlegt. Undanfarin ár hafa verið lagðir malarstígar um svæðið og þar hefur útigrillum ásamt borðum og bekkjum verið komib fyrir á tveimur stöðum. í gönguferðinnni á sunnudag munu leiðsögumenn segja frá því helsta sem fyrir augu ber. í ferðinni verða jarðfræðingur og líffræðingur, maður sem þekkir til örnefna á þessu svæbi og elnn íbúi á svæðinu sem allir munu fræða göngumenn. Um létta göngu er ab ræða sem ætti aö henta öllum aldurshópum og benda má að stígarnir eru „barnavagnafærir" þótt ekki sé mælt með léttum kerrum á þeim. Hægt veröur að komast í göng- una með strætisvagni númer 10, sem mun taka á sig krók í ferð- inni sem fer klukkan 13.35 frá Hlemmi og frá Rauðavatni kl. 15.52. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.