Tíminn - 24.10.1995, Síða 9
Þri&judagur 24. október 1995
9
PjETUR SIGl'RÐSSON
Spánski dómarinn Antonio Lopez Nieto, sem dœmdi leik Dynamo Kiev og Panathinaikos, sem haföi þá eftirmála aö Kiev
var rekiö úr Evrópukeppninni vegna mútumáls, segir sögu sína:
Boðnar 2 milljónir króna
fyrir sigur Dynamo Kiev
Ottaöist um líf sitt og félaga sinna
Úkraínska libib Dynamo Kiev
var fyrir nokkru rekib úr
meistaradeild Evrópukeppn-
innar í knattspyrnu, eftir a&
Knattspyrnusamband Evrópu
taldi þab sannab ab forrába-
menn libsins höfbu reynt ab
múta spönskum dómurum
leiksins. Leikurinn umræddi
var gegn Panathinaikos frá
Grikklandi og fór fram á
heimavelli fyrrnefnda libsins í
Kiev. Dómarinn var Antonio
Lopez Nieto, ásamt línuvörb-
um tveimur og fjórba dómara.
í vibtali vib tímaritib World
Soccer rekur dómarinn sögu
sína og hvernig hann óttabist
um líf sitt og félaga sinna, eftir
samskipti vib menn sem hann
lætur ab liggja ab séu meblim-
ir mafíunnar þar í landi.
Engin tollskoðun
Antonio Lopez Nieto segir ab
þab hafi strax vakib undrun sína
og línuvarba sinna, ab viö kom-
una til Kiev hafi þeir ekki þurft
ab fara í gegnum vegabréfa- og
tollskoöun. Á móti þeim hafi
tekiö Vasili Babishuk, varaforseti
Dynamo Kiev, ásamt abstoöar-
manni sínum og þeir hafi séö
fyrir þessu. Engu aö síbur hafi
þetta ekki í raun þýtt aö eitt-
hvaö óeölilegt myndi gerast.
Lopez Nieto segir aö hann
ásamt félögum sínum hafi viljaö
fara beint á hóteliö, eftir erfiba
ferö, en samkvæmt venju komu
þeir til Kiev daginn fyrir leikdag.
Babishuk þessi haföi hins vegar
gert abrar ráöstafanir, því um
leiö og inn í bifreiö hans var
komiö spuröi hann hvort dóm-
ararnir fjórir vildu ekki heim-
sækja heilsuklúbb, fara í gufu-
bab og fleira. Þeir afþökkuöu
kurteislega. Samt sem áöur fór
Babishuk meö þá í minjagripa-
verslun. Lopez Nieto segir þá
ekki hafa séö neitt sérstakt, tekið
til nokkra penna og póstkort, en
hins vegar þegar kom að því að
borga hafi þeim verið tilkynnt
ab þetta færi á reikning Dynamo
Kiev.
„Viö tókum viö þessu sam-
Handbolti
Úrslit
UMFA-Grótta .............26-24
Valur-KR.................30-23
Víkingur-ÍBV............18-21
Selfoss-FH...............24-34
ÍR-KA ..................23-28
Haukar-Stjarnan.........27-25
Staban
KA 5 5 0 0 152-130 10
FH 5 3 1 1 143-119 7
Valur 5 3 1 1 116-106 7
Haukar 5 3 1 1 117-114 7
Stjarnan .... 5 3 0 2 127-121 6
ÍR 5 2 1 2 103-110 5
Grótta 5 2 0 3 113-114 4
ÍBV ,...5 2 0 3 110-111 4
Selfoss 5 2 0 3 126-131 4
UMFA 5 2 0 3 124-124 4
Víkingur 5 1 0 4 110-115 2
KR .... 5 0 0 5 115-153 0
kvæmt þeirri venju aö taka megi
viö gjöfum s.s. merkjum, penn-
um og ýmsu smávægilegu frá fé-
lögunum," segir Lopez Nieto.
Þegar komið var aftur í bílinn
segir hann þá ósk þeirra félaga
enn hafa verið heitasta aö kom-
ast heim á hótel, en þaö varö
heldur ekki raunin nú, því nú
var þeim ekið aö íbúðablokk í
úthverfi Kiev, þar sem þeir voru
leiddir upp á 9. hæö hússins,
inn í íbúð þar sem í var mikið
úrval Ioðfelda.
Lobfeldir skoðaðir
„Líkar ykkur þeir?" segir Lopez
Nieto að Babishuk hafi sagt, en
dómarinn hafi þá spurt hvað
þeir þyrftu að borga fyrir þá, en
ekkert svar hafi kornib við þeirri
spurningu. í framhaldinu hafi
dómarinn ásamt línuvörbum
sínum farib aftur til bifreiðar
sinnar og þeim var loks ekið til
hóteisins.
Þegar þarna var komið segir
Lopez Nieto að hann hafi enn
verið grunlaus og því orbið mjög
ánægður þegar hann komst að
því að honum var úthlutað lúx-
usíbúð, á meðan línverbirnir og
fjórði dómari hafi verið í venju-'
legum hótelherbergjum.
Hann hafi síðan farið í sturtu,
en á meðan hafi verið bankab á
hurðina. Hann hafi farið til
dyra; enginn var fyrir utan, en á
gólfinu stóð hins vegar stór inn-
kaupapoki. Hann leit í pokann
og vom þar komnir tveir minka-
loðfeldir, sem hann hafði séð
áður um daginn. Lopez Nieto
reyndi nú að ná í eftirlitsmenn
UEFA, sem vom tveir vegna um-
fangs leiksins, en það tókst ekki.
Hann sagði félögum sínum hvað
gerst hefði og beiö með þeim
eftir ab fulltrúar Kiev-liðsins
kæmu til ab fara með þá til
kvöldverðar.
Bobib aftur í heilsu-
klúbb
í þetta skiptið var það maður
ab nafni Surkis, bróðir forseta fé-
lagsins, sem sótti þá félaga til að
fara með þá til kvöldverðar, en
hann átti ab vera á veitingastað
15 km utan Kiev-borgar, þar sem
eigandi staðarins væri stuðn-
ingsmaöur félagsins. Á leiðinni
vom þeir afmr spurbir hvort þeir
vildu ekki fara í gufubab, sem
þeir þáðu, þar sem þeir voru
orðnir dálítið smeykir. Heilsu-
klúbburinn hinsvegar reyndist
með dálitlu öðm sniði en Spán-
verjarnir höfbu gert sér grein
fyrir og neitubu þeir að fara inn.
Afram var haldið til kvöldverðar,
en nú var klukkan orðin svo
margt að búið var að loka eld-
húsinu og því aðeins hægt að fá
braub með smjöri. Eftir matinn
fóm línuverðirnir og fjórði dóm-
ari í ballskák, en Surkis tók Lop-
ez Nieto afsíðis og rétti honum
orðalaust miba sem á var ritað:
„Antonio. Win for Kiev, $30.000
for you". (Antonio. Sigri Kiev,
færðu 30.000 dollara, eða um 2
milljónir íslenskra króna.)
Myndir teknar af
lobfeldunum
Lopez Nieto segir að ekkert
slíkt hafi komið fyrir sig áður og
fór hann strax til félaga sinna og
heimtaði aö verða keyrður heim
á hótel, þar sem hann fann eftir-
litsmenn UEFA og sagði þeim
sögu sína, auk þess sem myndir
voru teknar af loðfeldunum.
Á þessum tímapunkti voru
fulltrúar Kiev búnir ab gera sér
grein fyrir því að þeir höfðu mis-
reiknað dómara leiksins og
reyndu að breiða yfir gjörðir sín-
ar. Tóku þeir lobfeldina til baka
og afsökuðu mistök sín. Lopez
Nieto segir sig og félaga sína
hafa hins vegar orðið hrædda,
því það væri í raun aldrei að vita
til hvaða bragða Úkraínumenn-
irnir myndu taka og þeir óttuð-
ust svo sannarlega um líf sitt.
Nóttinni fyrir leikinn eyddu þeir
í lúxusíbúð Lopez Nieto og
skiptust þeir á að vaka. Daginn
eftir hringdi dómarinn í fram-
kvæmdastjóra UEFA, Gerd Aign-
er, og sagði sögu sína. Aigner
sagði um þrjá kosti að velja: (1)
að hann dæmdi leikinn, (2)
fenginn yrði nýr dómari, (3)
leiknum yrði aflýst. Þab fór svo
að Lopez Nieto dæmdi leikinn,
sem endaði með 1-0 sigri Kiev.
Kiev úr leik
Skaðinn var hins vegar skeður
og spánski dómarinn kærbi for-
ráðamenn úkraínska liðsins. En
fyrir dómstóli UEFA sögöu þeir
Babishuk og Surkis að dómarinn
væri einungis að reyna að breiða
yfir mistök sín. Hann hefði vilj-
Evrópuboltinn
Danmörk
Álborg-Ikast...............3-0
Bröndby-Vejle .............4-0
Næstved-Lyngby.............1-4
Odense-Herfölge ...........0-2
Silkeborg-Árhus............0-3
Viborg-FC Kaupmannahöfn .2-2
Staban
Árhus......15 10 4 1 30-9 34
Lyngby ....15 8 4 3 31-14 28
Bröndby ...15 83432-22 27
Odense ....15 8 3 4 23-14 27
Álborg..... 15 8 25 32-15 26
FC Kaupmh. .15 7 4 4 27-19 25
Noregur
Bodö/Glimt-Viking.........6-2
Kongsvinger-Rosenborg.....1-1
Molde-Brann...............4-2
Start-Lilleström .........2-1
Strindheim-Hoedd .........1-5
Tromsö-Ham-Kam ...........4-1
VIF Fotball-Stabekk.......2-2
Staban
Rosenborg ..26 19 5 2 78-29 62
Molde......26 14 5 7 60-47 47
Bodö/Glimt 26 12 7 7 65-43 43
Lilleström ...26 11 8 7 50-36 41
Viking.....26 12 4 10 55-42 40
VIF Fotball ..26 11 5 10 53-42 38
að fá minnkapelsana, en ekki
haft efni á þeim, pelsum fyrir 30
þúsund dollara.
UEFA trúði hins vegar
spönsku dómurunum og vísaði
Kiev úr meistaradeildinni í
knattspyrnu nú, auk tveggja
næstu skipta sem liðið næði að
tryggja sér þátttöku í Evrópu-
keppninni. Að auki voru þeir Ba-
bishuk og Surkis settir í bann.
Það eru ýmsar spurningar sem
vakna. Hvaða ástæður höfðu
forráðamenn Dynamo-liðsins til
að reyna að múta dómurunum
til að knýja fram sigur í leikn-
um, þar sem fyrirfram var það
ljóst að liðið yrbi sterkari abilinn
í leiknum, á heimavelli sínum?
Hvab ætti spænskur dómari að
gera meb þab að knýja út úr
Úkraínumönnum loðfeldi, mið-
að við það hitastig sem er við-
varandi á Spáni? Viðbrögb Spán-
- verjanna og samstarf þeirra við
eftirlitsmenn UEFA og fram-
kvæmdastjóra sambandsins gefa
til kynna að þeir hafa hreinan
skjöld. Þá er það einnig spurn-
ing, hversu oft lið eins og Dyn-
amo Kiev hafa reynt ab múta
dómurum áður og það ekki
komist upp. Það er alveg ljóst að
þrátt fyrir að það hafi ekki kom-
ið fram, þá muni Knattspyrnu-
samband Evrópu fara ofan í
saumana á þessum málum í
framtíðinni.
Þátttaka Dynamo Kiev verður
ekki lengri í Evrópukeppninni í
ár, en sæti liðsins tók lið Ála-
borgar frá Danmörku.
Þýtt og endursagt úr World Soccer
VINNIN LAUGA (j)( (z
GSTÖLUR RDAGINN 21.10.1995
í)(37) (23)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 sf 5 0 4.203.353
O 4 af 5 r' Plús ^ agí~ 731.010
3. 4 3(5 94 7.690
4. 3 al 5 2.686 620
Heíldarvinningsupphæö: 7.322.543
JH BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR