Tíminn - 25.10.1995, Blaðsíða 5

Tíminn - 25.10.1995, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 25. október 1995 wmwm 5 Avarp utanríkisráöherra á hátíö í Ráöhúsi Reykjavíkur hinn 24. október 1995 í tilefni af fimmtíu ára afmceli Samein- uöu þjóöanna: Aöildin aö S.Þ. ein megin- stoö utanríkisstefnunnar Hálf öld er nú liðin frá því að þjóðir heims komu saman, að loknum ein- um hrikalegasta hildarleik mannkynssögunnar, og stofn- uðu með sér samtök, sem ætlað var að stuðla að varanlegum friði í heiminum og velferð alls mannkyns. Sameinuðu þjóðirn- ar hafa nú starfaö í fimmtíu ár og enn eru markmið þeirra í fullu gildi. Þau eiga sér enga hlið- stæöu sem virkur vettvangur næstum allra ríkja heims, og engin önnur alþjóðleg samtök geta betur tekist á við hin miklu vandamál, sem vib okkur blasa á næstu áratugum. Abildin að Sameinuðu þjóð- unum var fyrsta þátttaka íslend- inga í alþjóðastjórnmálum af al- vöru eftir lýðveldisstofnun. Allt frá 1946 hafa allar íslenskar ríkis- stjórnir litið svo á, ab aðildin að samtökunum sé ein af megin- stoðum utanríkisstefnunnar. Mikill fjöldi íslendinga hefur tekið þátt í störfum samtakanna með einhverjum hætti, og sam- þykktir þeirra hafa haft víðtæk á- hrif hér á landi sem annars stab- ar. Ekki er ætlun mín í þessu stutta ávarpi að gera sögu sam- takanna skil, þótt verbugt væri. Þess í stab vil ég nota tækifærið og minnast stuttlega á nokkur atriði, sem ég tel mikilvæg varð- andi framtíð Sameinuðu þjób- anna, svo samtökin megi vinna áfram að markmiðum sínum af fullum krafti. Mikilvæg atri&i varb- andi framtíö samtak- anna Nauðsynlegt er ab endurskoða ýmislegt í skipulagi samtakanna í því skyni að gera þau virkari. Norðurlöndin hafa sameiginlega gert ýmsar tillögur um endur- bætur, til dæmis á starfsemi Ör- yggisráðsins. Að baki þeirra ligg- ur sú hugmynd, að samsetning Öryggisráðsins endurspegli breytta heimsmynd, og ríki og ríkjahópar, sem áður stóðu til hlés, verði virkari þátttakendur í starfi samtakanna. Gæta veröur þess þó, að þetta verði ekki á kostnab þess stöðugleika, sem skapast hefur í starfi Sameinuðu þjóðanna. Ég vil einnig nefna hinn mikla fjárhagsvanda samtakanna. Mörg ríki standa ekki við skuld- bindingar sínar og nema skuldir aðildarríkjanna við samtökin rúmlega þremur miljörðum dala. Hluti vandans er sá, að sum ríki eru ekki sátt við að þurfa ab greiða upphæðina, sem þeim er ætlab. Mikilvægur þáttur í lausn fjárhagsvandans hlýtur því ab vera að endurskoða hinn svo- kallaða framlagaskala og reyna að ná sátt um þau mál. Á síðustu árum hafa kröfurnar til friöargæslu samtakanna auk- ist. Víba um heim er litið til sam- takanna sem þess eina afls, sem stillt gæti til friðar. Friðargæsla þeirra hefur aukist að sama skapi og renna nú um tveir þriðju hlutar útgjalda þeirra til friðar- gæslu. Við íslendingar höfum skilvíslega greitt okkar framlag til friðargæslunnar og lagt til hjúkrunarfólk í heilsugæslu- sveitir norska hersins í Bosníu. Það nú orðið langt síban mönnum varð ljóst, ab ýmis vandamál, sem varba velferð alls mannkyns, veröa ekki leyst nema með sameiginlegu átaki allra þjóða. Sameinuðu þjóðirn- ar eru því eina aflib, sem getur af alvöru tekist á við vanda eins og vaxandi fólksfjölda, þverrandi náttúruauölindir og mengun umhverfisins. Landlæg vanþró- un í sumum heimshlutum við- heldur fátækt, sem leiðir til spennu og stundum ófriðar. Víg- búnaðarkapphlaup og umhverf- isspjöll fylgja í kjölfarið. Þab er ekki á valdi einstakra ríkja eða ríkjahópa að fást vib viðfangs- efni af þessu tagi. Þegar fjallað er um Sameinuðu þjóðirnar, beinist athyglin oftast að þeim deilumálum, sem efst eru á baugi í fjölmiðlum, en hið mikla starf, sem unnib er í fjölda stofnana af þúsundum manna, fellur í skuggann. Þeir, sem harð- ast gagnrýna Sameinuðu þjóð- irnar, skyldu hafa þetta í huga. Sameinuðu þjóðirnar hafa náð á- þreifanlegum árangri á þessum fimmtíu árum. Þau hafa greitt götu ríkja til sjálfstæðis, unnið að þróunar- og mannúðarað- stoð, skilgreint og löghelgab mannréttindi og verið í fylking- arbrjósti í baráttunni gegn hungri og fátækt. Stofnanir Sameinuðu þjóð- anna, eins og Flóttamannastofn- unin, Barnahjálpin, Þróunará- ætlunin og Matvæla- og land- búnaðarstofnunin, gegna miklu hlutverki í þessu sambandi. Á vegum Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar hefur verið unn- inn bugur á landlægum sjúk- dómum, og enn er mikið verk að vinna í þeirri baráttu, t.d. gegn útbreiðslu eyðni. Sameinuðu þjóðirnar hafa sinnt menntunar- og menningarmálum og vakið meðvitund um alþjóðleg menn- ingarverðmæti. Þær hafa enn- fremur orbið vettvangur alþjób- legrar umfjöllunar um orkumál, eins og friðsamlega nýtingu kjarnorku á vegum Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar og framkvæmd sáttmálans gegn útbreiðslu kjarnavopna. Sameinuðu þjóðirnar hafa á markvissan hátt reynt að fá hið alþjóblega samfélag til að takast á við mörg vandamál, sem við þurfum ab fást vib. Fram- kvæmdastjóri þeirra hefur gefið út starfsskrá um frið og starfsskrá um þróun, þar sem bent er á að þetta verði að haldast í hendur til að árangur náist. Haldnar hafa verið alþjóðlegar rábstefnur í þessu skyni, nú síðast kvenna- ráðstefnan í Peking. Það er undir okkur sjálfum komið, hvort við látum tækifær- in ganga okkur úr greipum. Ekki má sitja við orðin tóm í réttinda- baráttu kvenna, og hef ég boðað til norrænnar rábstefnu hér á landi um þab, hvernig vinna megi að framkvæmdaáætlun- inni, sem samþykkt var í Peking. Halldór Ásgrímsson utanríkisráöherra. Áherslur íslendinga Okkur íslendingum er það lífs- nauösynlegt að taka þátt í starfi Sameinuðu þjóðanna og leggja fram okkar skerf til ab stuðla að sjálfbærri þróun og skynsamlegri í dag fagna þjóðir hinna Sam- einuðu þjóba 50 ára afmæli einu raunverulegu heimssam- taka í sögu mannkyns. í aldanna rás eru fimmtíu ár skammur tími. En engin önnur samtök í sögunni hafa tengt eins margar þjóðir. Engin önnur samtök hafa staðið af sér jafn mikla storma, né lagt grunn að bjartari framtíb eins og Samein- uðu þjóðirnar. Á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna urðu til hugmyndir um friðargæslu, sem endurspegla aldagamla leit að friðsamlegum lausnum. Hjá Sameinubu þjóð- unum hafa raddir hinna fátæku og þeirra sem minna mega sín fengið áheyrn. Á þeim vett- vangi hafa hin erfibu mál sem tengjast þróun hlotið frjóa um- fjöllun. A vettvangi Sameinuðu þjóðanna hafa nýfrjálsar þjóbir tekið það sæti sem þeim ber sem fullgildir aðilar að samtökun- um. Hér hafa frjáls og fullvalda ríki lagt hornstein að alþjóðlegu samfélagi þjóðanna. Aðildarríki nýtingu auðlinda. Gerð hafrétt- arsamningsins hefði veriö ó- hugsandi á öðrum vettvangi en á vettvangi Sameinuðu þjób- anna. Frekara alþjóðlegt sam- starf um skynsamlega nýtingu auðlinda hafsins, eins og til dæmis úthafsveiöar, verbur ab- eins byggt á hafréttarsamningn- um. Hér á landi hefur Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóbanna starfað vib góðan árangur um árabil og von- ir standa til að hægt verbi að koma á fót Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna á Islandi. Nauðsyn ber til þess ab athuga vel, hvernig við Islendingar get- um aukið starf okkar innan Boutros Boutros-Chali. Sameinuðu þjóðanna standa á málefnalegum krossgötum. Vib þennan áfanga minnumst við og metum raunsætt tilveru Sameinuðu þjóðanna í hálfa öld. í dag ber okkur skylda til að varða veginn í starfi samtak- anna í framtíðinni. Brýn nauðsyn er að koma á stofnana Sameinuðu þjóðanna, til dæmis á sviöi þróunarmála, sérstaklega á sviöi sjávarútvegs, jarðhita og tækniþekkingar. Eg tel að fjárfesting í slíku starfi geti skilað sér aftur í viðskiptasam- vinnu milli íslands og viðkom- andi ríkja. Niburlag Allt frá því ísland gerðist aðili ab Sameinuðu þjóðunum hafa samtökin verið íslendingum vettvangur til að leggja sitt af mörkum til velferðarmála mannkyns. Ólafur heitinn Jóhannesson utanríkisrábherra átti sæti, þá ungur lögfræðingur, í fyrstu sendinefnd íslands hjá Samein- uðu þjóðunum 1946. Þremur árum síöar ritabi hann grein um samtökin í Almanak Þjóbvinafé- lagsins og á margt þar enn við. Ólafur ritar, aö starfseminni sé „... í ýmsu áfátt og árangurinn í ýmsum efnum minni en menn höfbu gert sér vonir um. En Róm var ekki byggð á einum degi. Menn veröa að hafa það hugfast, að það hlýtur að taka langan tíma ab skapa þjóðabandalag, sem hafi þau völd og þann styrk, að það geti haldið uppi friði og réttlæti í heiminum. Slík samtök hljóta að verða lengi í deigl- unni". Góðir áheyrendur! Við getum tekib undir þetta; Sameinuöu þjóbirnar eru enn í deiglunni. Ef vib viljum vera gjaldgeng í samfélagi þjóðanna, verðum viö að taka þátt í mótun þeirra og starfi sem aðrar þjóbir. Þaö er okkar siðferðislega skylda. Takk fyrir. ■ friði, en til að tryggja árangur er þróun nauðsynleg. Við verðum að leita róta vandans og skoða efnahagsmál, umhverfismál, fé- lagslegt réttlæti og Iýðræðisþró- un. Lærum af mistökum okkar, en það sem er mikilvægara er að byggja á þeim árangri sem náðst hefur. Árangur hefur nábst á mörgum sviðum, árangur sem er margvíslegur og oft þess eölis ab hann vekur ekki mikla al- menna athygli. Árangur sem oft verður einungis sýnilegur þegar til lengri tíma er litib. Árangur í friöargæslu, þróun og lýðræðis- umbótum, árangur sem oft er ekki virtur sem skyldi. Okkur vex ásmegin. Samein- uðu þjóöirnar eru vettvangur sameiginlegs átaks alþjóðasam- félagsins. Hér eru heimssamtök sem voru stofnuð í því skyni ab þjóna öllu mannkyni. Hér höf- um við kerfi sem við getum um- breytt í tæki sem getur gert glæstustu vonir mannkyns að veruleika. Ávarp aöalframkvœmdastjóra Sameinuöu þjóöanna, Boutros Bout- ros-Chaii, á degi Sameinuöu þjóöanna í gœr, 24. október 1995: Grunnur bjartrar framtíðar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.