Tíminn - 25.10.1995, Page 5
Miðvikudagur 25. október 1995
wmwm
5
Avarp utanríkisráöherra á hátíö í Ráöhúsi Reykjavíkur hinn 24. október 1995 í tilefni af fimmtíu ára afmceli Samein-
uöu þjóöanna:
Aöildin aö S.Þ. ein megin-
stoö utanríkisstefnunnar
Hálf öld er nú liðin frá því
að þjóðir heims komu
saman, að loknum ein-
um hrikalegasta hildarleik
mannkynssögunnar, og stofn-
uðu með sér samtök, sem ætlað
var að stuðla að varanlegum friði
í heiminum og velferð alls
mannkyns. Sameinuðu þjóðirn-
ar hafa nú starfaö í fimmtíu ár og
enn eru markmið þeirra í fullu
gildi. Þau eiga sér enga hlið-
stæöu sem virkur vettvangur
næstum allra ríkja heims, og
engin önnur alþjóðleg samtök
geta betur tekist á við hin miklu
vandamál, sem vib okkur blasa á
næstu áratugum.
Abildin að Sameinuðu þjóð-
unum var fyrsta þátttaka íslend-
inga í alþjóðastjórnmálum af al-
vöru eftir lýðveldisstofnun. Allt
frá 1946 hafa allar íslenskar ríkis-
stjórnir litið svo á, ab aðildin að
samtökunum sé ein af megin-
stoðum utanríkisstefnunnar.
Mikill fjöldi íslendinga hefur
tekið þátt í störfum samtakanna
með einhverjum hætti, og sam-
þykktir þeirra hafa haft víðtæk á-
hrif hér á landi sem annars stab-
ar.
Ekki er ætlun mín í þessu
stutta ávarpi að gera sögu sam-
takanna skil, þótt verbugt væri.
Þess í stab vil ég nota tækifærið
og minnast stuttlega á nokkur
atriði, sem ég tel mikilvæg varð-
andi framtíð Sameinuðu þjób-
anna, svo samtökin megi vinna
áfram að markmiðum sínum af
fullum krafti.
Mikilvæg atri&i varb-
andi framtíö samtak-
anna
Nauðsynlegt er ab endurskoða
ýmislegt í skipulagi samtakanna
í því skyni að gera þau virkari.
Norðurlöndin hafa sameiginlega
gert ýmsar tillögur um endur-
bætur, til dæmis á starfsemi Ör-
yggisráðsins. Að baki þeirra ligg-
ur sú hugmynd, að samsetning
Öryggisráðsins endurspegli
breytta heimsmynd, og ríki og
ríkjahópar, sem áður stóðu til
hlés, verði virkari þátttakendur í
starfi samtakanna. Gæta veröur
þess þó, að þetta verði ekki á
kostnab þess stöðugleika, sem
skapast hefur í starfi Sameinuðu
þjóðanna.
Ég vil einnig nefna hinn mikla
fjárhagsvanda samtakanna.
Mörg ríki standa ekki við skuld-
bindingar sínar og nema skuldir
aðildarríkjanna við samtökin
rúmlega þremur miljörðum
dala. Hluti vandans er sá, að sum
ríki eru ekki sátt við að þurfa ab
greiða upphæðina, sem þeim er
ætlab. Mikilvægur þáttur í lausn
fjárhagsvandans hlýtur því ab
vera að endurskoða hinn svo-
kallaða framlagaskala og reyna
að ná sátt um þau mál.
Á síðustu árum hafa kröfurnar
til friöargæslu samtakanna auk-
ist. Víba um heim er litið til sam-
takanna sem þess eina afls, sem
stillt gæti til friðar. Friðargæsla
þeirra hefur aukist að sama skapi
og renna nú um tveir þriðju
hlutar útgjalda þeirra til friðar-
gæslu. Við íslendingar höfum
skilvíslega greitt okkar framlag
til friðargæslunnar og lagt til
hjúkrunarfólk í heilsugæslu-
sveitir norska hersins í Bosníu.
Það nú orðið langt síban
mönnum varð ljóst, ab ýmis
vandamál, sem varba velferð alls
mannkyns, veröa ekki leyst
nema með sameiginlegu átaki
allra þjóða. Sameinuðu þjóðirn-
ar eru því eina aflib, sem getur af
alvöru tekist á við vanda eins og
vaxandi fólksfjölda, þverrandi
náttúruauölindir og mengun
umhverfisins. Landlæg vanþró-
un í sumum heimshlutum við-
heldur fátækt, sem leiðir til
spennu og stundum ófriðar. Víg-
búnaðarkapphlaup og umhverf-
isspjöll fylgja í kjölfarið. Þab er
ekki á valdi einstakra ríkja eða
ríkjahópa að fást vib viðfangs-
efni af þessu tagi.
Þegar fjallað er um Sameinuðu
þjóðirnar, beinist athyglin oftast
að þeim deilumálum, sem efst
eru á baugi í fjölmiðlum, en hið
mikla starf, sem unnib er í fjölda
stofnana af þúsundum manna,
fellur í skuggann. Þeir, sem harð-
ast gagnrýna Sameinuðu þjóð-
irnar, skyldu hafa þetta í huga.
Sameinuðu þjóðirnar hafa náð á-
þreifanlegum árangri á þessum
fimmtíu árum. Þau hafa greitt
götu ríkja til sjálfstæðis, unnið
að þróunar- og mannúðarað-
stoð, skilgreint og löghelgab
mannréttindi og verið í fylking-
arbrjósti í baráttunni gegn
hungri og fátækt.
Stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna, eins og Flóttamannastofn-
unin, Barnahjálpin, Þróunará-
ætlunin og Matvæla- og land-
búnaðarstofnunin, gegna miklu
hlutverki í þessu sambandi. Á
vegum Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar hefur verið unn-
inn bugur á landlægum sjúk-
dómum, og enn er mikið verk að
vinna í þeirri baráttu, t.d. gegn
útbreiðslu eyðni. Sameinuðu
þjóðirnar hafa sinnt menntunar-
og menningarmálum og vakið
meðvitund um alþjóðleg menn-
ingarverðmæti. Þær hafa enn-
fremur orbið vettvangur alþjób-
legrar umfjöllunar um orkumál,
eins og friðsamlega nýtingu
kjarnorku á vegum Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar
og framkvæmd sáttmálans gegn
útbreiðslu kjarnavopna.
Sameinuðu þjóðirnar hafa á
markvissan hátt reynt að fá hið
alþjóblega samfélag til að takast
á við mörg vandamál, sem við
þurfum ab fást vib. Fram-
kvæmdastjóri þeirra hefur gefið
út starfsskrá um frið og starfsskrá
um þróun, þar sem bent er á að
þetta verði að haldast í hendur
til að árangur náist. Haldnar
hafa verið alþjóðlegar rábstefnur
í þessu skyni, nú síðast kvenna-
ráðstefnan í Peking.
Það er undir okkur sjálfum
komið, hvort við látum tækifær-
in ganga okkur úr greipum. Ekki
má sitja við orðin tóm í réttinda-
baráttu kvenna, og hef ég boðað
til norrænnar rábstefnu hér á
landi um þab, hvernig vinna
megi að framkvæmdaáætlun-
inni, sem samþykkt var í Peking.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráöherra.
Áherslur íslendinga
Okkur íslendingum er það lífs-
nauösynlegt að taka þátt í starfi
Sameinuðu þjóðanna og leggja
fram okkar skerf til ab stuðla að
sjálfbærri þróun og skynsamlegri
í dag fagna þjóðir hinna Sam-
einuðu þjóba 50 ára afmæli
einu raunverulegu heimssam-
taka í sögu mannkyns.
í aldanna rás eru fimmtíu ár
skammur tími. En engin önnur
samtök í sögunni hafa tengt
eins margar þjóðir. Engin önnur
samtök hafa staðið af sér jafn
mikla storma, né lagt grunn að
bjartari framtíb eins og Samein-
uðu þjóðirnar.
Á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna urðu til hugmyndir um
friðargæslu, sem endurspegla
aldagamla leit að friðsamlegum
lausnum. Hjá Sameinubu þjóð-
unum hafa raddir hinna fátæku
og þeirra sem minna mega sín
fengið áheyrn. Á þeim vett-
vangi hafa hin erfibu mál sem
tengjast þróun hlotið frjóa um-
fjöllun. A vettvangi Sameinuðu
þjóðanna hafa nýfrjálsar þjóbir
tekið það sæti sem þeim ber sem
fullgildir aðilar að samtökun-
um.
Hér hafa frjáls og fullvalda
ríki lagt hornstein að alþjóðlegu
samfélagi þjóðanna. Aðildarríki
nýtingu auðlinda. Gerð hafrétt-
arsamningsins hefði veriö ó-
hugsandi á öðrum vettvangi en
á vettvangi Sameinuðu þjób-
anna. Frekara alþjóðlegt sam-
starf um skynsamlega nýtingu
auðlinda hafsins, eins og til
dæmis úthafsveiöar, verbur ab-
eins byggt á hafréttarsamningn-
um.
Hér á landi hefur Jarðhitaskóli
Sameinuðu þjóbanna starfað vib
góðan árangur um árabil og von-
ir standa til að hægt verbi að
koma á fót Sjávarútvegsskóla
Sameinuðu þjóðanna á Islandi.
Nauðsyn ber til þess ab athuga
vel, hvernig við Islendingar get-
um aukið starf okkar innan
Boutros Boutros-Chali.
Sameinuðu þjóðanna standa á
málefnalegum krossgötum. Vib
þennan áfanga minnumst við
og metum raunsætt tilveru
Sameinuðu þjóðanna í hálfa
öld. í dag ber okkur skylda til að
varða veginn í starfi samtak-
anna í framtíðinni.
Brýn nauðsyn er að koma á
stofnana Sameinuðu þjóðanna,
til dæmis á sviöi þróunarmála,
sérstaklega á sviöi sjávarútvegs,
jarðhita og tækniþekkingar. Eg
tel að fjárfesting í slíku starfi geti
skilað sér aftur í viðskiptasam-
vinnu milli íslands og viðkom-
andi ríkja.
Niburlag
Allt frá því ísland gerðist aðili
ab Sameinuðu þjóðunum hafa
samtökin verið íslendingum
vettvangur til að leggja sitt af
mörkum til velferðarmála
mannkyns.
Ólafur heitinn Jóhannesson
utanríkisrábherra átti sæti, þá
ungur lögfræðingur, í fyrstu
sendinefnd íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum 1946. Þremur
árum síöar ritabi hann grein um
samtökin í Almanak Þjóbvinafé-
lagsins og á margt þar enn við.
Ólafur ritar, aö starfseminni sé
„... í ýmsu áfátt og árangurinn í
ýmsum efnum minni en menn
höfbu gert sér vonir um. En Róm
var ekki byggð á einum degi.
Menn veröa að hafa það hugfast,
að það hlýtur að taka langan
tíma ab skapa þjóðabandalag,
sem hafi þau völd og þann styrk,
að það geti haldið uppi friði og
réttlæti í heiminum. Slík samtök
hljóta að verða lengi í deigl-
unni".
Góðir áheyrendur!
Við getum tekib undir þetta;
Sameinuöu þjóbirnar eru enn í
deiglunni. Ef vib viljum vera
gjaldgeng í samfélagi þjóðanna,
verðum viö að taka þátt í mótun
þeirra og starfi sem aðrar þjóbir.
Þaö er okkar siðferðislega skylda.
Takk fyrir. ■
friði, en til að tryggja árangur er
þróun nauðsynleg. Við verðum
að leita róta vandans og skoða
efnahagsmál, umhverfismál, fé-
lagslegt réttlæti og Iýðræðisþró-
un.
Lærum af mistökum okkar, en
það sem er mikilvægara er að
byggja á þeim árangri sem náðst
hefur. Árangur hefur nábst á
mörgum sviðum, árangur sem
er margvíslegur og oft þess eölis
ab hann vekur ekki mikla al-
menna athygli. Árangur sem oft
verður einungis sýnilegur þegar
til lengri tíma er litib. Árangur í
friöargæslu, þróun og lýðræðis-
umbótum, árangur sem oft er
ekki virtur sem skyldi.
Okkur vex ásmegin. Samein-
uðu þjóöirnar eru vettvangur
sameiginlegs átaks alþjóðasam-
félagsins. Hér eru heimssamtök
sem voru stofnuð í því skyni ab
þjóna öllu mannkyni. Hér höf-
um við kerfi sem við getum um-
breytt í tæki sem getur gert
glæstustu vonir mannkyns að
veruleika.
Ávarp aöalframkvœmdastjóra Sameinuöu þjóöanna, Boutros Bout-
ros-Chaii, á degi Sameinuöu þjóöanna í gœr, 24. október 1995:
Grunnur bjartrar framtíðar