Tíminn - 26.10.1995, Page 10

Tíminn - 26.10.1995, Page 10
10 iBclflMSllffltffítf W f fWWWW Fimmtudagur 26. október 1995 llfi Framsóknarflokkurinn Valgerður páll Kiördæmisþinq framsóknar- manna í Noröurlandskjör- dæmi eystra ver&ur haldiö a& Hótel Húsavík 3. og 4. nóvember og hefst kl. 20 á föstudagskvöldi& meö hef&bundinni dagskrá og erindi félagsmálarábherra Páls Péturssonar, sá dag- skrárli&ur verbur opinn öllum þeim sem áhuga hafa. Á laugardag ver&a ávörp gesta þingsins og þingmanna flokksins í Nor&urlandi eystra, afgreiösla mála og kosningar. Um kvöldib ver&ur hátíb í umsjón Framsóknarfélags Húsavíkur. Stjórn K.F.N.E. Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu A&alfundur félagsins ver&ur haldinn mánudaginn 30. október kl. 20.30 a& Eyrar- vegi 15, Selfossi. Venjuleg a&alfundarstörf. Kosning stjórnar. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. Önnur mál. Stjórnin Aðalfundur Mibstjórnar A&alfundur Mi&stjórnar Framsóknarflokksins verbur haldinn dagana 24. nóvember nk. Fundurinn hefst föstudaginn 24. nóvember kl. 20.00. Dagskrá auglýst sf&ar. Framsóknarfíokkurinn. Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna í Austur- Húnavatnssýslu ver&ur haldinn á Hótel Blönduósi laugardaginn 28. október kl. 16.00. Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Gu&mundsson mæta. Einnig Gu&jón Ólafur jónsson, forma&ursUF. Allir velkomnir. Ungt fólk er sérstaklega hvatt til a& mæta. Kjördæmisþing framsóknar- manna á Reykjanesi Ver&ur haldiö í félagsheimili Seltjarnarness 11. nóvember nk. og hefst kl. 9.00. Dagskrá auglýst si&ar. Stjórn KFR Framsóknarfélag Kópavogs A&alfundur ver&ur haldinn mánudaginn 30. október kl. 20.30 a& Digrarresvegi 12. Venjuleg a&alfundarstörf. Stjórnin Aöalfundur FUF Reykjavík A&alfundur FUF Reykjavík ver&ur haldinn á Kornhlö&uloftinu mánudaginn 30. okt. n.k. og hefst hann kl. 20.30. Dagskrá: 1. Skýrsla fdrmanns. 2. Skýrsla gjaldkera. 3. Lagabreytingar. 4. Afgreibsla stjórnmálaályktunar. 5. Kosning formanns og stjórnar. 6. Önnur mál. Kjördæmisþing Framsókn- arfélaganna í Vestfjarba- kjördæmi haldib ab Reykhólum dagana 27. og 28. október 1995. Dagskrá: Föstudagurinn 27. október Kl. 14.00 Þingsetning — skipan starfsmanna þingsins. Kl. 14.05 Skipan þingnefnda. Kl. 14.15 Skýrsla stjórnar. Kl. 14.45 Ávarp þingmanns. Kl. 15.15 Ávarp formanns flokksins. Kl. 15.45 Kaffi. Kl. 16.00 Málefni þingsins: „Vestfirbir — okkar framtíb?" Framsaga — almennar umræ&ur. Kl. 18.30Ávörpgesta. Kl. 19.00 Þingmál kynnt og vísab til nefnda. Kl. 20.00 Kvöldver&ur. Laugardagurinn 28. október Kl. 09.00 Nefndarstörf. Kl. 12.00 Hádegisverbur. Kl. 13.15 Afgrei&sla mála og umræ&ur. Kl. 15.00 Kosningar. Kl. 16.00 Önnur mál. Kl. 17.00 Þingslit. Stjórnin Gubmundur Þorsteinn Pálsson dómsmálaráöherra flutti ávarp vib vígsluna. Nýja byggingin á Litla=Hrauni fyrsta sérstaka fangelsiö síöan 1875: Merkilegur áfangi í 260 ára sögu fangelsismála í fyrradag var brotiö blað í sögu fangelsismála á íslandi, þegar nýtt fangelsi var tekib í notkun á Litla- Hrauni, fyrsta sérstaka fangelsiö síban Hegningarhúsib var byggt fyrir 120 árum. Rými verbur fyrir 55 fanga í nýju bygging- unni í eins manns klefum í fimm deildum. 20 klefar í elsta hluta Litla-Hrauns, frá 1929, verba teknir úr notkun í stabinn. Fangelsismálastjóri segir ástand fangelsismála orbib gott, en brýnt sé ab reisa nýtt hús á höfubborgar- svæbinu til ab leysa Hegning- arhúsib og Síbumúlafangelsib af hólmi. Upphaf byggingarfram- kvaemdanna á Litla-Hrauni má rekja til skýrslu Fangelsismála- nefndar til dómsmálarábherra frá því í marsmánuöi 1992, um stöbu fangelsismála og framtíb- arstefnu. I lok þess árs tilkynnti dómsmálarábherra að afplán- unarfangelsi landsins skyldi vera á Litla-Hrauni. Fyrsta skóflustungan var svo tekin 20. apríl 1994. Fram til áramóta er heildarkostnaður áætlabur 236 miljónir. Alls er rábgert að heildaruppbygging Litla- Hrauns kosti um 380 milljónir króna og verði byggingarfram- kvæmdum ab fullu lokib árið 1987. Reist á methra&a og innan kostnaðarmarka Bygging nýja fangelsisins tók abeins eitt og hálft ár og var verkib innan kostnabaráætlun- ar. Þaö var Arkitektastofa Finns og Hilmars sem teiknaöi húsiö, en aðalverktaki var Ástré hf., Hveragerði. Fangelsið er þrjár hæbir, sem skiptast í fimm deildir eins og fyrr segir. Á 1. hæb eru eldhús, matstofa fangavaröa og salur, auk einnar fangadeildar. 2. og 3. hæð eru nýttar fyrir fangaklefa. Á hverri hæð er eldhús og sameiginlegt rými fanga. Varbturn og mið- stöb eftirlits er í mibju hússins. Heildarflatarmál byggingarinn- Haraldur johannessen fangelsis- málastjóri. ar er 1450 fm og er stærö sér- hvers af 55 fangaklefum húss- ins 10 fm. Þar af er einn klefi sérhannaður fyrir fatlaða. Hverjum fangaklefa fylgir sal- erni, sturta, borö, stóll, rúm, hillur, skápur, innbyggt kall- kerfi og útvarp. Öll herbergin eru meb rimlalausum gluggum. „Ósýnilegt" öryggiskerfi Kappkostaö var vib hönnun byggingarinnar ab gera öryggis- málin sem best úr garði. Hefur mikið þróunarverk veriö unnið á því sviði, sem er ætlab ab nýt- ast viö byggingu nýs fangelsis í Reykjavík. Þrátt fyrir mikla áherslu á öryggismál eru þau að mestu leyti ósýnileg og virbast vistarverur hússins eins óþving- andi og kostur er. Til aö mynda eru ekki rimlar fyrir gluggum, heldur sérstyrkt gler. Aukin hagræðing Stabib hefur fangelsismálum fyrir þrifum hve litlar rekstrar- einingar fangelsa eru hér á landi. Meö nýju byggingunni á Litla-Hrauni er hægt aö ná fram ýmissi hagræöingu í inn- kaupum, eldhúsi og starfs- mannahaldi. Ekki er gert ráb fyrir auknum starfsmanna- fjölda á Litla-Hrauni og til að ná því markmiði hefur verið rábist í endurskipulagningu starfsmannamála. Stefnt er að því ab kostnaður á hvert fanga- pláss lækki frá því sem nú er. Menntun og at- vinna nau&synleg föngunum Á Litla-Hrauni fer ýmis iön- aöarframleiösla fram, auk verk- efna viö þrif og viðhald. Án vinnu og náms er lítil von til að fangavist sé föngum til upp- byggingar. Jafnframt hagnast þjóðfélagið beint, því með öfl- ugri atvinnustarfsemi og aukn- um tekjum kerhur minni skatt- byrði á þjóðina. Sem dæmi um vinnuna á Litla-Hrauni má nefna hellu- framleiðslu, bílnúmerafram- leiðslu og tré- og járnsmíði. Hvað menntun varðar er fang- elsið í samstarfi við Fjölbrauta- skóla Suðurlands og auk þess gefst föngum kostur á starfs- tengdum námskeiðum, s.s. vinnuvélanámskeiðum. Deildaskiptingin mikilvæg Jón Sigurðsson, yfirfanga- vörður á Litla-Hrauni, segir helstu umbótina við nýbygg- inguna þá að fangaklefarnir frá 1929 séu lagðir af. Þeim verður breytt í heimsóknarherbergi auk aðstöðu fyrir lækna, sál- fræöinga, lögmenn og lögreglu. Þetta húsnæði hafi verið mjög úr sér gengið og brýnt að end- urnýja vistarverur. Um fyrirkomulag nýbygging- arinnar segir yfirfangavörður að helsti ávinningurinn sé deilda- skiptingin. „Þarna verða aldrei nema 11 fangar á sama gangin- um og þeir hafa aldrei samneyti viö aðra eftir að vinnu- eða skóladegi lýkur. Þetta verða alls 9 deildir á svæðinu þegar allt verður tilbúiö."

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.