Tíminn - 26.10.1995, Side 13
Fimmtudagur 26. október 1995
13
■■ ■■
"jmm.
í-'Sí&í'Mm
Kjartan Cunnar Kjartansson, œttírœbingur DV, og kona hans, Marta
Cubjónsdóttir.
Svavar Sveinsson, bóndi á Drumb-
oddsstöbum: Siglingar á ám og
vötnum skemmtileg nýsköpun í
atvinnulífi sveitanna.
Bátafólkinu
fjölgar stööugt
Svavar Sveinsson, bóndi á
Drumboddsstöbum í Ámes-
sýslu, sagbi ab stöbugt fjölg-
abi þeim, sem sigldu nibur
Hvítá á bátum. Nær tvö þús-
und manns sigldu í sumar,
þar af þúsund útlendingar.
Samvinnuferbir-Landsýn og
Úrval-Utsýn markabssetja
þessar ferbir.
Farið væri af stað í Hvítár-
gljúfrunum hjá Brattholti eba
hjá Brúarhlöbum og siglt niður
að Drumboddsstöðum. 8 bátar,
10 til 14 manna, væru í förum,
en líka 5 kanóar og 5 kajakar.
Möguleiki væri á fjórum ferð-
um á dag, misjafnlega löngum.
Mest væri um gesti um helgar,
annars væri verið að alla daga
sumarsins. Þetta væri auðvitað
gleðileg nýsköpun í búskapn-
um, milljóna gjaldeyrisöflun
fyrir þjóöarbúið og atvinna fyr-
ir heimilisfólkið. Þannig sæi
yngsta dóttirin á heimilinu,
Dóra, um kaffiveitingarnar fyrir
gestina; önnur dóttir, Anna, er
reyndar í Nepal að kynna sér
frekar svona siglingar, en elsta
dóttirin, Jórunn, er í Búvísinda-
deildinni á Hvanneyri. Sonur-
inn, Sveinn, hjálpar pabba enn-
þá við heyskapinn.
Björn Gíslason, sem starfræk-
ir þennan rekstur á Drumb-
oddsstöðum, sagbist hafa byrj-
ab fyrir tíu árum með einn bát
og prófað sig áfram. Reynslu
hefði hann aðallega sótt til
Noregs og Nepals, annars væru
Frakkar, Kanadamenn og
Bandaríkjamenn framarlega í
þessu sporti. Siglingar á vötn-
um og ám væri alþjóðlegt sport
og íslendingar væru ab taka viö
sér. Siglingar í Skagafirði væru
einnig á döfinni hjá fyrirtæk-
inu. ■
Helga Sigvaldadóttir, deildarstjóri á DV, og Tímameyjarnar Gubbjörg H.
Sigurbardóttir, Gubfinna Kristjánsdóttir og Eygló Stefánsdóttir.
Staff-félag-
ar kætast
Staff-félagar (félagar í Starfs-
mannafélagi Frjálsrar Fjölmiðl-
unar) hittust á Óðali á laugar-
dagskvöld, snæddu salsamat og
tequila, sungu og dönsuðu fram
yfir miðnætti. Tilefnið var
„uppákoma" hjá félaginu, en að
sögn formanns félagsins, Jen-
nýjar Davíðsdóttur, er alltaf
eitthvað skemmtilegt á döfinni.
Á næstunni er ráðgerð leikhús-
ferð — Kardemommubærinn
eða Möguleikhúsið. Farin var
helgarferð á Flúðir í sumar og
svo eru bíóferðir. Kór er starf-
andi, gefið út fréttabréf og síðan
er það aöalhátíðin sjálf, árshátíð
Staff, eftir áramót og undirbún-
ingur á fullu.
A þriðja hundraö manns eru í
Staff, þ.e. starfsfólk fjölmiðl-
anna DV og Tímans og svo ísa-
foldarprentsmiðju. Jenný sagði
það mjög gefandi að vera for-
maður Staff, félagsandinn frá-
bær og allir alltaf í stuði. ■
Efst tróna Marta og Kjartan Cunnar og nebar eru Elín, Kristján Ari Ara-
son, jóhanna Margrét Einarsdóttir og Ásgeir fréttamabur RUV.
Elín Albertsdóttir, ritstjóri Helgarblabs DV, og fréttamabur RÚV, Ásgeir
Tómasson.
Cubmundur Helgason prentsmibur, Sigríbur jónsdóttir setjari (Gutenberg)
og Álfhiidur jónsdóttir, prentari í ísafoldarprentsmibju.
Mann-
lífs-
spegill
GUÐLAUGUR
TRYGGVI
KARLSSON
Frá vinstri: Astrid Sigurbardóttir, Sigrún J. Leifsdóttir, Sonja Magnúsdóttir, jenný Davíbsdóttir, Jónína Pálmadóttir, Ásdís Rafnsdóttir, Sigurlaug Þórbar-
dóttir, Sigríbur Aubunsdóttir og María Omarsdóttirígóbum gír.
, UtJi"*