Tíminn - 28.12.1995, Qupperneq 8
8
Fimmtudagur 28. desember 1995
NYJAR
BÆKUR
Fríöa fram-
hleypna og
Fróoi
„Gulur grísaskítur og græn
skrímsli! Vonlausu vesalingar
og vitlausu vitfirringar! Ætlist
þið til að ég éti þetta hálfsoðna
óæti?"
Þetta er það fyrsta sem Friða
heyrir þegar hún kemur inn í
herbergi Ulfs gamla. Samt verba
þau perluvinir og leysa í sam-
einingu sérstætt sakamál, þar
sem eplalykt reynist hafa úr-
slitaþýöingu.
Þetta er áttunda bókin í bóka-
flokknum um Fríbu fram-
hleypnu, sem notið hefur
óhemju vinsælda.
Útgefandi er Skjaldborg. Verð
kr. 1.280.
Vib eigum
valiö, ef viö
viljum
Skjafdborg hefur gefib út bók-
ina Vib eigum valið, ef við viljum
— Saga Guðrúnar Óladóttur reiki-
meistara. Birgitta H. Halldórs-
dóttir skráði.
Guðrún Óladóttir er landskunn
fyrir störf sín sem heilari og fræð-
ari. Hún kennir reiki, vinnur meö
sjálfsstyrkingarhópa og rekur
andlegan skóla heima hjá sér.
Gubrún hefur kennt mikið er-
lendis, auk þess sem fjölmargir ís-
lendingar hafa notið fræðslu
hennar.
í bókinni segir Guðrún frá starfi
sínu og hvernig hún vinnur, frá
erfiðu hjónabandi, sjúkdómum
sem hún vann sjálf bug á með já-
kvæðu hugarfari og heilun. Hún
rekur þróun hæfileika sinna frá
barnæsku og segir frá baráttu
sinni á hispurslausan hátt. Þetta
er hreinskilin saga þar sem ekkert
er dregið undan.
Bókin kostar 2.980 krónur.
Grasalæknir
segir frá
Erlingur grasalæknir eftir Giss-
ur Ó. Erlingsson er komin út hjá
Skjaldborg.
Bók þessi segir frá lífi og starfi
manns, sem hér á landi átti drýgri
þátt en flestir aðrir þessarar aldar
menn í því að endurvekja notkun
lífgrasa og önnur úrræði, sem
kynslóðirnar hafa af hyggjuviti
sínu þróað frá aldaöðli til græðslu
mannlegra meina, oft með næsta
undraverðum árangri. í henni er
rakin í stórum dráttum ævisaga
Erlings, drepið á hina hörðu lífs-
baráttu í Skaftafellssýslum á upp-
vaxtarárum hans og viðureign
fólksins við óblíð náttúruöfl. Síð-
an víkur sögunni til Austurlands
Þeir sem keyptu hlutabréf í Hlutabréfasjóðnum
Auðlind hf. hafa aukið eign sína um 60% á síðustu
12 mánuðum.
Kaupverð 1. des. 1995 260.000
Gengishækkun á einu ári 60.000
Arður 5% gr. í okt. 95 11.111
Skattaafsláttur gr. í ágúst 95 90.000
Samtals eign 1. des. 1995 421.111
Heildaraukning 62%
Þú þarft aðeins eitt símtal til þess að tryggja þér hluta-
bréf í Hlutabréfasjóðnum Auðlind hf. Kaupverðið má
setja á boðgreiðslur VTSA/EURO.
Auðlindarbréf fást hjá Kaupþingi hf., Kaupþingi Norðurlands hf.,
í Búnaðarbankanum og sparisjóðunum.
KAUPÞING HF
- elsta ng stærsta
verðbrófajyrirtæki landsins
og loks til Reykjavíkur, sem varð
meginstarfsvettvangur Erlings Fil-
ippussonar.
Verð bókarinnar er 2.980 krón-
ur.
Föndurbók
Skjaldborg hf. hefur gefið út
föndurbókina Hvernig á að búa
til falleg vinabönd. Höfundur er
Moira Butterfield og þýðandi
Áslaug Benediktsdóttir.
Ef þið eruð byrjendur, þá
mun það koma ykkur á óvart
hversu fljót þið eruö að komast
upp á lag með að búa til ótrú-
lega falleg vinabönd, sem munu
gleöja vini ykkar.
Ef þið eruð vön, reynið þá
einhver af nýju vinaböndun-
um, sem voru hönnuð sérstak-
lega fyrir þessa bók (efni til aö
búa til vinabönd fylgir).
Verð bókarinnar er 790 krón-
ur.
Óviöjafnan-
legur Bert
Afrek Berts eftir Anders
Jacobsson og Sören Olsson er
meðal jólabókanna í ár.
Þetta er fimmta bókin um
Bert. Fyrri bækurnar urðu allar
metsölubækur. Þab kemur eng-
um á óvart, enda er Bert óvið-
jafnanlegur.
Nú er hann orðinn 14 ára og
Emilía skiptir mestu máli í lífi
hans. Nema ... náttúrlega skelli-
nöörur. Skólinn er hins vegar
andstæða lífsins. Bert hefur
engu gleymt. Hann skrifar af
sama tilfinningahita og áður
um ástina, fótboltann, skelli-
nöðrur, hjólagólarana og sum-
arvinnuna í Kaffihúsi Bengt-
sons.
Jón Daníelsson þýddi bókina,
sem kostar 1.380 krónur. Útgef-
andi er Skjaldborg hf.
Svanur og
svarti maöur-
inn
Skjaldborg hefur gefið út bók-
ina Svanur og svarti maöurinn
eftir Anders Jacobsson og Sören
Olsson. Jón Daníelsson þýddi.
Nú er Svanur orðinn níu ára
og hlakkar mikið til að fara í
sumarbúðir í fyrsta sinn. Bara
aö hann þyrfti ekki ab hafa
áhyggjur af svarta manninum,
sem sagt er að læðist milli tjald-
anna á kvöldin og smiti börn
með heimþrárbakteríum
Þetta er fjórða bókin um prakk-
arann Svan, sem er eftir sömu
liöfunda og metsölubækurnar
um Bert.
Þess má geta að þýðandinn,
Jón Daníelsson, fékk nú í ár
þýöendaverðlaun skólamála-
rábs Reykjavíkurborgar fyrir
þýbingu sína á síðustu bókinni
um Svan, „Ab sjálfsögöu, Svan-
ur".
Bókin kostar 1.280 krónur.