Tíminn - 28.12.1995, Qupperneq 9
Fimmtudagur 28. desember 1995
mmrr.—
WWwflPl
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Svisslendingar í vandræðum með trúfrelsið
Genf— Reuter
16 lík meðlima sértrúarsafnað-
ar, sem fundust í Frakklandi í
síðustu viku, hafa vakið upp
miklar deilur og vangaveltur í
Sviss um umburðarlyndi í trú-
málum og efasemdir hafa jafn-
vel vaknað um gildi þess að fullt
og óskert trúfrelsi verði áfram
tryggt í stjórnarskrá landsins.
Frá því að stjórnarskrá sviss-
neska sambandsríkisins var
leidd í lög árið 1848 hefur trú-
frelsi verið þar í hávegum haft,
en í stjórnarskránni er skýrt
kveðiö á um aö trúfrelsi megi
ekki skerða með neinum hætti.
í ljósi þess aö á 16. og 17 öld
logaði allt í trúarbragðastyrjöld-
um í Sviss er ekki að furða þótt
Svisslendingar vilji halda fast í
þetta ákvæði. Trúfrelsisákvæðið
hefur tvímælalaust átt ríkan
þátt í að tryggja frið og stöðug-
leika í landinu.
Eftir að líkin 16, sem öll eru af
meðlimum Safnaðar sólarhofs-
ins, fundust í frönsku ölpunum
hefur farið af stað mikil umræöa
í svissneskum fjölmiðlum um
þetta ákvæði stjórnarskrárinnar:
„Trúfrelsið, menningarleg rétt-
indi sem áunnust eftir að óum-
burðarlyndið hafði ráðiö ríkjum
um aldir, bannar lagavaldinu að
skipta sér af málefnum trúar-
innar," segir í leiöara dagblaös-
ins Nouveau Quotidien. „Enda
þótt trúfrelsið sé ómetanlegt, er
það engu að síður tvírætt. Það
gefur trúarleiðtogum frjálsar
hendur um aö þurrausa bæði
heila og bankareikninga áhang-
enda sinna."
Söfnuður sólarhofsins komst í
heimsfréttirnar í október árið
1994 þegar 48 meðlimir hans
fundust látnir í tveim svissnesk-
um þorpum, þar á meðal voru
lík tveggja helstu leiðtoga trú-
flokksins, Luc Jouret og Joseph
Di Mambro. Einnig fundust
skömmu síðar fimm lík í Kan-
ada.
Eins og þá eru líkin sem nú
fundust þannig útleikin að ekki
er hægt aö fullyrða svo óyggj-
andi sé hvort um morð eða
sjálfsmorð hafi verið að ræða.
Þau voru illa brennd og mörg
Róttcekir múslimar unnu frcekiiegan kosningasigur í Tyrklandi:
Stefnt ab hægri samsteypustjórn
Ankara — Reuter
Eftir frækilegan kosningasigur
tyrkneska Velferðarflokksins,
sem er flokkur róttækra mús-
lima, nú um helgina, hafa leið-
togar hægri- og miðflokkanna
tveggja ákveðið aö stefna að
samsteypustjórn til þess að
koma í veg fyrir að múslimar
verði ráðandi í stjórn landsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem
stjórnmálaflokkur, sem leggur
áherslu á íslamstrú, nær góbum
árangri í kosningum á þeim 72
árum sem Tyrkland nútímans
hefur verið við lýði, en stjórn-
völd þar hafa haft veraldleg
málefni að leiðarljósi allt frá
VINNIN LAUGA % GSTÖLUR RDAGINN 23.12.1995
))(34) (19)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 af 5 0 8.139.930
2. piús5 í m~ 225.510
3. 4al5 109 10.700
4. 3al5 4.297 630
Heildarvinningsupphæð: 12.689.870
m BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
stofnun ríkisins árið 1923 þrátt
fyrir að 99% landsmanna séu
múslimar.
„Markmiö okkar er ab stefna
að stjórn sem er byggð á breið-
um grunni," sagði Tansu Ciller
forsætisráðherra, sem sagöi af
sér í kjölfar kosningaúrslitanna,
að loknum fundi með Mesut
Yilmaz, leiðtoga Móburlands-
flokksins, flokks íhaldsmanna,
sem verið hefur í stjórnarand-
stöðu.
Velferöarflokkurinn hlaut
21,33% atkvæða í kosningun-
um, sem fram fóru á aðfanga-
dag, og er það fjórum sinnum
meira en hann fékk í síöustu
þingkosningum. Þar með hefur
flokkurinn fengið 158 þingsæti,
en alls sitja 550 þingmenn á
tyrkneska þinginu. Móöur-
landsflokkurinn hlaut 19,66%
atkvæða og 132 þingsæti, en
hægriflokkur Tansu Ciller, sem
nefnist Hinn sanni vegur, hlaut
19,20% og 135 þingsæti.
Samanlagt hafa Móðurlands-
flokkurinn og Hinn sanni vegur
því 267 þingsæti, sem nægir
ekki til að mynda meirihluta-
stjórn. Ef af stjórnarmyndun á
að verða þurfa þeir því að fá til
liðs vib sig annan tveggja
vinstriflokka sem náðu á þing,
en þab eru Vinstriflokkur lýð-
ræðissinna sem hlaut 75 þing-
sæti og Sósíaldemókratar sem
hlutu 50 þingsæti.
Myndun samsteypustjórnar
hægriflokkanna hefur hingað til
strandað á því að stirt hefur ver-
ið á milli leiðtoganna, þeirra
Tansu Ciller og Mesut Yilmaz.
Síðast í september á þessu ári
lauk stjórnarmyndunarviðræð-
um þeirra meb því ab Yilmaz
rauk í fússi út af fundi þeirra og
sakaði hana um að sýna sér lít-
ilsvirðingu.
Kúrdar náðu að þessu sinni
engum manni á þing, sem tví-
mælalaust veröur ekki til þess að
auðvelda það að lausn finnist á
þeim vanda sem Kúrdar eiga við
að glíma í Tyrklandi og er jafn-
vel óttast að líkur aukist á að
þeir grípi til ofbeldisaðgerða þar
sem rödd þeirra mun ekki heyr-
ast á þingi.
Þjóöernissinnar náðu heldur
ekki manni á þing. ■
•ýnlr nýtt (ileiukt lclkrlt I TJamarbíói
efUr KrUtinn Óaarsdóttur
fonýningGm. 4/1, Id. 20.00
fhraiýntng ffls. 5/1, Id. 20.00
2.ýa laa 6/1 kl. 20.30 - 3 sýn. sun. 7/1 kl. 20.30
miSoverfSkr.1000-1500
miöasalan cr opin frá kl. 18 sýningadaga
miK=sssjii
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
með skotsárum.
Svissnesk yfirvöld gerðu þó
ekkert í því að banna trúflokk-
inn eða koma á einhvern hátt í
veg fyrir aö þeir meölimir hans
sem eftir voru gætu lagt á ráðin
um að senda fleiri meðlimi á vit
eilífðarinnar. Lögreglan segist
hafa vitað af því að söfnuðurinn
starfaði áfram en hefði ekki get-
að gert neitt því öll áreitni hefbi
veriö talin misnotkun á valdi.
Ásakanir í frönskum fjölmiðl-
um um aðgerðarleysi sviss-
neskra stjórnvalda hafa komið
illa við svissneska embættis-
menn. „Hvernig getum við
komið í veg fyrir svona atburði
án þess að hafa neina lagastoð?"
spuröi Andre Piller, dómarinn
sem stjórnaði rannsókninni á
líkfundinum í þorpinu Cheiry.
„Við getum ekki komiö í veg
fyrir aö fólk hittist, fari eftir
kennisetningum eða iöki trú
sína."
Engu ab síður er gert ráb fyrir
því í stjórnarskránni aö hægt sé
aö setja ákveðnar hömlur á trú-
frelsið: trúariðkun verði að vera
samræmanleg almennri reglu
og góöu siðferði. En kantónurn-
ar veröa sjálfar ab framfylgja eft-
irliti meö því að eftir þessu sé
fariö, sambandsstjórnin sjálf
getur ekki bannað nein samtök
nema hægt sé að sýna fram á aö
þau ógni innra öryggi sam-
bandsríkisins.
Jacques Barillon, lögmaður í
Genf sem hefur stofnaö sérstök
samtök til þess að verja fórnar-
lömb Safnaðar sólarhofsins,
heldur því þó fram aö lögreglan
hafi engu að síður getað gert
eitthvað til þess að koma í veg
fyrir harmleikinn í síöustu viku,
og hún hefði tvímælalaust átt
að gera það. Kona, sem missti
fjóra ættingja sína í drápunum
árið 1994, hafi Iagt fram kæru
vegna morös, hvatningar til
morbs og hvatningar til sjálfs-
morðs. Það aö hún skuli hafa
gert þab hafi verið næg ástæba
fyrir yfirvöldin til þess ab grípa
til aðgeröa gegn söfnuðinum.
M,J3SK1PTAIV1ANNA
0G SPARISJÓÐA
Lokun 2. janúar og eindagar víxla.
Afgreiðslur banka og sparisjóða
verða lokaðar þriðjudaginn
2. janúar 1996.
Leiðbeiningar um eindaga
víxla um jól og áramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, desember 1995
Samvinnunefnd banka og sparisjóða
SÖLUHÆSTI HLUTABRÉFASJÓÐURINN Á ÍSLANDI
Núna hafia yfir 900 aðilar um allt land
keypt meira en 220 milljónir
í Hlutabréfasjóðnum hf....
... og aðeins 2 dagar til stefnu.
HUJTÁBRÉFA
SJÖÐORINN
ÍORYSTA1 ijarmái.um:
VÍB
VERDBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili m3 Verðbréfaþingi Islands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Simi: 560-89Ö0, myndsendir: 560-8910.
Hlutabréf í Hlutabréfasjódnum hf. eru seld hjá
VÍB á Kirkjusandi, i ísíandsbanka um allt land,
í afgreidslu Hlutabréfasjódsins hf. á Skóla-
vörðustig 12 og öðrum fyrirtœkjum á verdbréfa-
markaði.