Tíminn - 04.01.1996, Síða 6

Tíminn - 04.01.1996, Síða 6
6 Fimmtudagur 4. janúar 1996 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Landsvirkjun tel- ur Kröflu ekki vænlegasta virkjunarkostinn „Krafla er einn af þeim kostum sem eru á lista yfir framkvæmdir eftir því sem orkumarkaðurinn stækkar, en ekki það sem við mynd- um setja inn á framkvæmda- áætlun vegna hugsanlegs ál- vers á Grundartanga," segir Þorsteinn Hilmarsson, upp- lýsingafulltrúi Landsvirkjun- ar, í framhaldi af þeim um- mælum sérfræbings Orku- stofnunar í sjónvarpsfréttum að ódýrasti virkjunarkostur, sem til boða standi, sé að taka í notkun ónýttan hluta Kröfluvirkjunar. I viðtali við dag kveðst Þorsteinn halda að þab sé ekki rétt að Krafla sé ódýrasti kosturinn í stöb- unni, þótt hann geti ekki al- gerlega fullyrt það. Hann bendir á að á Nesjavöllum megi koma á fót 30 mega- vatta virkjun meb skömm- um fyrirvara. „Öll mannvirki eru til staðar, sem og borholur og lagnir. Aðeins er eftir að kaupa túrbínuna og tengja hana. í Kröflu er túrbínan til, en þab þarf að bora til að finna gufuna og leggja síðan pípur fyrir hana. Ég held að menn telji Nesjavelli upp- lagðari hlut," segir upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar. Glit í Ólafsfirbi: Hlutafé aukiö um 7,5 milljónir Þrátt fyrir mikla rekstrar- erfiðleika hjá leirmunaverk- smiðjunni Gliti hf., sem bæj- arsjóbur Ólafsfjarðar keypti í fyrra, hefur verið ákveðið ab auka hlutafé um 7,5 milljón- ir. Bæjarsjóburinn er einn eigandi, nema hvað nokkrir einstaklingar eiga 1,5% hlutafjárins. Hálfdán Kristjánsson, bæj- arstjóri á Ólafsfirði, upplýsir í viðtali við Dag að sam- kvæmt bráðabirgðauppgjöri hafi tap á rekstrinum fyrstu tíu mánubi ársins í fyrra Cestur Matthíasson, nýráöinn verkstjóri hjá Arnesi á Dalvík. numið um tíu milljónum króna, eða um milljón á mánuði. Blaðið segir að helsta ástæða þessa taps sé sú að markaðsmál hafi ekki þróast á þann veg sem ráð var fyrir gert. Tíu manns starfa í Gliti hf. á Ólafsfirði. Dalvík: Spildu fyrir hrossagrafreit úthlutaö Skipulagsnefndin á Dalvík hefur samþykkt að Hesta- mannafélaginu Hring verði úthlutað afmörkuðu svæði vestan gróðurreits á Holts- mótum fyrir dýragrafreit. Hétu hestamenn því í um- sókn sinni ab ganga vel frá svæðinu og hlíta reglum Dalvíkurbæjar um frágang. Er því jafnframt heitið að fjarlægja hugsanleg minnis- merki, ef taka þarf svæðið til mikilvægari nota síðar. Arnes meö útibú á Dalvík Útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækið Árnes hf. í Þor- lákshöfn ætlar að hefja vinnslu sjávarafurða á Dal- vík um miðjan janúar, en Árnes keypti nýlega fasteign- ir og tæki þrotabús Fiskverk- unar Jóhannesar og Helga hf. þar á staðnum. Hefur Gestur Matthíasson, áður skipstjóri á Blika EA-12 frá Dalvík, verið ráðinn til að stjórna vinnslunni. Hráefni til vinnslunnar verður keypt af bátum nyrðra, auk þess sem um miðlun verður að ræða milli fiskvinnsluhúsanna í Þor- lákshöfn og á Dalvík. Um tuttugu manns verba í vinnu hjá fyrirtækinu. Blákaldar sálna- veiöar í popp- messum „Vib leggjum samt sem áð- ur áherslu á að hámessan, klukkan tvö á sunnudögum, er þungamiðjan í lífi og starfi safnaðarins. Poppmess- an er einskonar andlegt kon- fekt, en vilji menn fasta fæðu eiga þeir ab koma í messu," segir séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Vestmannaeyjum, í tilefni af því að annan veturinn í röð er nú boðiö upp á popp- messu í Landakirkju síðasta sunnudag hvers mánaðar. „Við höfum farið þá leiö ab prédikunin fjallar um grundvallarþætti í kristinni trú þar sem kjarni fagnaðar- erindisins er boðaður á lif- andi og einfaldan hátt til þess að kalla fólk til aftur- hvarfs. í sannleika sagt eru þetta blákaldar sálnaveiðar, ef svo mætti ab orði kom- ast," segir prestur í viðtali við Fréttir. 1 1 ' flÍ 1 ■ \ í r ri W % w 'ji f f. Hljómsveitin Prelátarnir sér um söng og tónlist ípoppmessunni. Fjölmenni var á samkomu sem haldin var til styrktar ungum lungna- og hjarta- þega úr Borgarfiröi. ímamyndir: TÞ, Borgarnesi Styrktarsamkoma fyrir ungan lungna- og hjartaþega: í Svíþjóö yfir hátíöarnar Haldin var styrktarsamkoma í Logalandi í Reykholtsdal fyrir ungan lungna- og hjartaþega úr Borgarfiröi, Halldór Bjarna Ósk- arsson frá Krossi í Lundarreykja- dal. Halldór Bjarni hefur dvalist undanfarna mánu&i í Svíþjóö ásamt mó&ur sinni, þar sem hann bí&ur eftir nýju hjarta og lungum. Um hátíðarnar sameinaðist fjöl- skyldan í Svíþjóð, en fa&ir Halldórs Bjarna og yngri systkini heimsóttu þá mæðginin og dvöldust hjá þeim. Ríflega þrjú hundruð manns komu saman í Logalandi, en kenn- arar við Kleppjárnsreykjaskóla áttu frumkvæðið að samkomunni. Fjöldi heimamanna lagöi sitt af mörkum til skemmtunar. Kvenfé- lög Hálsasveitar og Reykholtsdals sáu um kaffiveitingar. Alls söfnuðust 280 þúsund krón- ur. Heiðrún Óladóttir, kennari við Kleppjárnsreykjaskóla, sagðist í samtali viö Tímann vera mjög ánægð með þessar undirtektir, miðað við hvað sveitin væri fá- menn. TÞ, Borgamesi Fjöldi fólks lagöi hönd á plóginn til aö styrkja Halldór Bjarna og fjölskyldu hans. Hér leika þeir Davíö Hauksson og Guöjón Guömundsson saman á gítar. Sex lög og 4 embætti Forseti íslands sta&festi sex lög á ríkisrá&sfundi á Bessastö&um á gamlársdag. Fyrst er þar a& nefna fjárlög fyrir 1996, fjáraukalög fyrir 1995 og lánsfjárlög fyrir 1996. Þá staðfesti forseti lög um breyt- ingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, um Þróunar- sjóð sjávarútvegsins og um stjórn fiskveiða. Ýmsar ákvarðanir sam- eiginlegu EES-nefndarinnar hlutu sömuleiðis staðfestingu, sem og skipanir í fjögur embætti: í emb- ætti sendifulltrúa og embætti deildarstjóra í ráðuneytum við- skipta, landbúnaðar og sjávarút- vegs. ■ Fimmta úthlutun úr Minningarsjóöi Karls j. Sighvatssonar: Kári Þormar hlýtur styrk í gær var úthlutab í fimmta sinn úr Minningarsjó&i Karls J. Sig- hvatssonar tónlistarmanns. A& þessu sinni kom styrkurinn, a& upphæ& 200 þúsund krónur, í hlut Kára Þormars, sem stundar nám í orgelleik vi& Robert Schu- mann-tónlistarháskólann í Diisseldorf í Þýskalandi. Það var bróðir Karls, Sigurjón Sighvatsson, sem afhenti styrkinn í gær, en eins og kunnugt er þá er Minningarsjóðnum ætlað aö styðja við bakið á ungum og efnilegum orgel- og hljómborðsleikurum til náms erlendis. Auk þess hefur sjóð- urinn veitt styrk til orgelkaupa í kirkju. { stjórn Minningarsjóðsins, sem stofnaður var árið 1991, eru þau Ellen Kristjánsdóttir, Sigurður Rúnar Jónsson, Sigrún Karlsdóttir og Haukur Guðlaugsson, sem jafn- framt er formaður stjórnar. -grh

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.