Tíminn - 10.01.1996, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.01.1996, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 10. janúar 1996 5 Halldór Eyjólfsson: Hugleiðingar um sam- göngumál á jólaföstunni VETTVANGUR „Áhugavert vœri að koma jámbraut (rafknú- inni) út í Viðey frá Gufunesi að Viðeyjar- stofu og spara þar með rekstur á Viðeyjarferju og flotbryggjum. Þama vom litlir vönivagnar á teinum knúnir afhand- afli fyrr á öldinni, eftil vill em teinamir ennþá nothœfir." Stööugt versnar aðgengi til höfuöborgarinnar, sérstak- lega í gegnum nágrannabæ- ina. Er þá helst aö nefna: Hafn- arsvæðin, Reykjavíkurflugvöll, Bifreiðastöð íslands, Bænda- höllina, Þjóðminjasafnið, Há- skóla íslands og fleira. Sú stað- reynd að Sunnlendingar, Reyk- nesingar, Kjalnesingar og Kjós- verjar sækja daglega vinnu og skóla til höfuðstaðarins (með tilkomu Hvalfjarðarganga munu Borgfirðingar geta gert hið sama). Nú í dag tekur oft á tíðum jafnlangan tíma að aka frá Selfossi að Baldurshaga (Rauðavatni) og þaðan vestur að Bændahöll. Þessar sívaxandi taf- ir á þjóðvegum þurfa að minnka með einhverju móti, svo sem að fækka innáakstri og auka vega- girðingar þar sem seinlegast er að komast áfram. Þjóbvegir í þéttbýli Norðan Rauðavatns var lagt í umtalsverðan kostnað 1993 og 1994 með því að sprengja skurð í gegnum dálitla hæð og byggja vegbrú þar yfir. Þarna er umtals- verð hætta á snjóþyngslum, sem ævinlega er verið að forð- ast. Síðan var lagður vegur norður á Vesturlandsveg sunn- an Grafar, en í því gili sem er á milli Grafar og vegamóta Vest- urlandsvegar og Suðurlandsveg- ar eru náttúrulegar aðstæður til vegbrúargerðar mjög góðar (jarðgöng fyrir gangandi, hjó!- andi, akandi). Ekki varð af þess- ari augljósu samgöngubót í Grafarvog nú. Næsta vegbrú er ca. 1 km vestar og var byggð í sumar, Hálsabraut er undir. Svo er hið gríðarlega mannvirki Höfðabakkabrú og breikkun vegarins beggja vegna. Þetta eru umtalsverðar samgöngubætur, en hvaö kostar kílómetri í svona vegalagningu? Næst er Breið- höfðavegbrú austan ESSO- olíu- stöðvarinnar, hana veröur að lengja töluvert þegar vegurinn niður Ártúnsbrekku breikkar. Þá munu Elliðaárbrýrnar vera of þröngar ásamt Sæbrautarveg- brú, 5 vegbrýr eru á þessum stutta kafla. Því læðist sá grunur að manni að ekki séu önnur vegstæði í nágrenninu könnuð, svo sem frá Súðarvogi þvert í Sævarhöfða norðarlega, inn Grafarvog og á Vesturlandsveg nálægt hitaveitustöð. Aðal umferðaræðar úr borg- inni fara um Ártúnsbrekku, en þar myndast oft umferðarhnút- ur líkt og gerðist á Þingvallahá- tíðinni 1994. Úrbóta erþörf. Miklabraut Breikkun Miklubrautar ásamt* lengingum afreina og aðreina eru umferðinni mjög til bóta og auka öryggi þeirra sem koma úr hliðargötum. En fækka þarf in- nákeyrslum á þessum aðalvegi sem liggja milli bæjarfélaga og íbúðarhverfa. Einnig þyrfti ab minnka tafir af gangbrautum með undirgöngum fyrir gang- andi og hjólandi vegfarendur. Þegar kemur ab Miklatorgi (Hringbraut-Snorrabraut-Mikla- braut- Bústaðavegur), nánar til- tekið að gatnamótum Eskihlíð- ar, væri hagkvæmast að fram- lengja Miklubrautina niður og undir Bústaðavegsbrú og áfram beint á væntanlega Flugvallar- braut, sunnan I.æknagarðs. Þessi breyting mun létta veru- lega á umferðarþunga Hring- brautar og Miklatorgs. Frá Rauð- arárstíg og á móts við Eskihlíð þrengist gatan vegna húsa, sem skaga út í aksturslínuna, og er algeng sjón víða í þéttbýli, þótt þjóðvegir hafi rétt til 20m lands utan vegkants. Þessi þrengsli neyba húseigendur til ab leggja bílum sínum á miðja götu, upp á graseyju, svo ömurlegt sem þab nú er. (Það er ólík gerð vega í íbúðar- hverfum eða milli héraða, þungaflutningar.) Þjóbveginn í Mosfells- bæ verbur ab færa Hagkvæmustu lagfæringar þar til aldamóta sýnast vera að færa Vesturlandsveg ca. 0,5 km sunnan Leirvogsár niður í botn Leirvogs móts vib hesthúsa- hverfi Mosfellinga, síðan vestur fjöruborð vogsins að Korpuós, þaðan beint upp á Vesturlands- veg sunnan Korpu-tengivirkis. Með þessari breytingu færist umferðarþunginn úr miðbæ Mosfellinga og klýfur bæinn ekki að endilöngu, eins og nú lítur út fyrir að verði. Geta bæj- arbúar þá skipulagt sín hring- torg, hjóla- og göngustíga að vild. Kjalnesingar þurfa að skipuleggja gegnumakstur í sínu byggðarlagi innan fárra ára, svo ekki hljótist óþægindi af þegar umferðarþunginn eykst. (Verður ríkissjóður að kosta verslunargötur og torg í sumum bæjar- og sveitarfélögum? Mib- bæjartorg Mosfellsbæjar mun kosta allt að 200 milljónir, ef af verður.) Vegur af Kjalarnesi til Reykjavíkur árib 2010 Kollafjörð yrði þá trúlega að brúa nálægt raflínustæðinu, ásamt vegarlagningu suður Álfs- nesib að Gunnunesi. Þar kæmi brú yfir í Geldinganes, en suð- vestan í því er talin ákjósanleg hafskipa-hafnaraðstaða á kom- andi öld. Úr Geldinganesi myndi vegurinn liggja um Eiðið beint að Gufuneshöfða, en þar útaf myndi Kleppsvíkin brúub. Er þá aðkoma af Vestur- og Norðurlandi inn til höfuðstað- arins mun betri. Áhugavert væri að koma járnbraut (rafknúinni) út í Viðey frá Gufunesi ab Við- eyjarstofu og spara þar meb rekstur á Viðeyjarferju og flot- bryggjum. Þarna voru litlir vöruvagnar á teinum knúnir af handafli fyrr á öldinni, ef til vill eru teinarnir ennþá nothæfir. Óráðlegt er að leggja bílveg í eyjuna, en göngu- og reiðhjóla- stíga vantar þar. Banna þarf um- ferð gæludýra þar. Reyknesingar í bibröb- um á Hafnarfjarbarvegi Það er krókótt og eftir því taf- samt að aka í gegnum Hafnar- fjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík, ætli maöur t.d. ab Raunvísindastofnun Háskólans eba í flugafgreiðslu innanlands, sem er einstaklega illa staðsett miöað við hlutverk sitt (í her- námsskála) við Þorragötu í Skerjafirði. Sýnist því tímabært að stöðin fái aðra staðsetningu og aðgengilegri, t.d. austan N-S brautar en sunnan A-V brautar, þar er autt og ónotað svæði. Augljóst óhagræði er ab núver- andi fyrirkomulagi Flugleiða á utan- og innanlandsafgreiðsl- um. Verulegar úrbætur í að- komu umferðarstöðva lofts og láðs má gera með eftirtalinni vegarlagningu: Af Hafnarfjarð- arvegi við Fossvogslæk nibur að sjávarmáli, sunnan ESSO- stöðv- arinnar eftir sjávarmálinu norb- ur á sjávarbakkann og eftir hon- um neðan kirkjugarðsins, vestur ab Hlíðarvegi og norður hann að Flugvallarbraut móts við skrifstofur Flugleiða og eftir henni að vesturhorni Valsvallar, þá í sveig að Læknagarði með tengingu við Miklatorg undir Bústaðavegsbrú (framlenging Miklubrautar). Sunnan Lækna- garðs og Umferðarmiðstöðvar- innar er sveigt norður að Hring- braut vestan stöðvarinnar, svo vestur meb henni (með graseyju á milli) að Sæmundargötu og áfram að Jarðfræðihúsi Háskól- ans, meöfram suðurhlib þess að Suðurgötu, en þar þarf undir- göng fyrir gangandi og hjólandi fólk, ásamt 3 akreinum smærri bíla (ca. 2,30 m lofthæð), 2 ak- reinar í austur og 1 akrein í vest- ur. Er þá komið að Hótel Sögu og Þjóðarbókhlöðu (vegarheiti Flugvallarbraut). Eitthvað þarf að lagfæra vegamótin í Engidal, líklega meb því að færa þau ca. 100 m norður á Hafnarfjarðar- veg, þannig að Álftanesvegur komi á Reykjavíkurveg. Þarna kemur möguleiki á vegbrú í framtíðinni. Ofanbyggbavegur (öryggisvegur) Af Reykjanesbraut sunnan Straums, á Suburlandsveg við Geitháls. Frá Straumi um Kap- elluhraun, sunnan Hamraness, beint ab Hvaleyrarvatni, norðan þess og þvert yfir Smyrlabúðar- hraun á nýgerðan veg austan Hjalla, eftir honum neðan Heið- merkur að Jabri, austan við hann en vestan dælustöðva Vatnsveitunnar, svo beint á Veg I við Geitháls, en austan at- hafnasvæðis nýju vatnsverk- smiðjunnar. Öfluga girðingu þarf að reisa beggja vegna vegar- ins frá Jaðri að Suðurá. Mann- held verður hún að vera og í alla staði vönduð. Öryggisvegur af Vesturlandsvegi Sunnan Úlfarsárbrúar upp með ánni, norðan Reynisvatns- áss suður með honum ab Langa- vatni, vestan þess en austan Stóraskyggnis, síðan beint að Vegi I við Geitháls. Bót væri að brúa Úlfarsá móts við Fellsmúla. Höfundur er áhugamabur um sam- göngu- og umhverfismál.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.