Tíminn - 10.01.1996, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.01.1996, Blaðsíða 6
6 Mibvikudagur 10. janúar 1996 Landlœknir: Eru fordómar mebal heilbrigöisstétta? „Ólafur, kom þú ekki nálægt þessu! “ „Eru fordómar mebal heil- brigbisstétta?" Undir þessari fyrirsögn í Læknablabinu fjallar Ólafur Ólafsson land- læknir um nokkur dæmi þessa, er varba gebsjúka af- brotamenn, eybni og kyn- skiptinga. Hvab þá síbast- nefndu varbar segir Ólafur ab búast megi vib einu tilfelli á 5 til 10 ára fresti, þótt nú sé ab vísu nokkur uppsafnabur vandi til stabar. Vegna um- sagnar „sérfræbings" hafi ein- um slíkum verib neitab um abstob til undirbúnings ab- gerbar erlendis. „Er landlækn- ir hóf afskipti af málunum og kallabi saman hóp lækna, er fúslega veittu abstob í þessu efni, voru vibbrögb sumra stjórnenda og yfirmanna: „Ól- afur, kom þú ekki nálægt þessu!",, Að mati landlæknis veröur aö gera þá kröfu til yfirmanna heil- brigðisstofnana aö þeir vinni bug á fordómum sínum í garö þeirra er skera sig úr fjöldanum. Ársvistun á Sogni 10 milljónir „Flestum er kunnugt um mót- stööu er vart varö meðal „lærö- ustu manna", þegar barátta var hafin fyrir aö skapa geðsjúkum Ólafur Ólafsson. afbrotamönnum mannsæm- andi meðferðarumhverfi," segir Ólafur. Sjálfsögö ósk um stofn- un göngudeildarmeðferðar fyrir þá, sem útskrifist af meðferöar- heimilinu á Sogni, líklega um 80% þeirra sem þar vistast, „hef- ur mætt verulegri mótspyrnu meöal vissra stjórnenda og „læröra manna" úr heilbrigöis- stéttum". Ólafur segir 6 sjúk- linga, sem falla í þennan flokk geðsjúkra afbrotamanna, þegar hafa verið útskrifaöa. Þeir lifi allgóöu lífi, ef góöri meöferö sé fylgt. Skriður virðist hafa komiö á þetta mál eftir að þaö var skýrt fyrir fjárlaganefnd Alþingis. Öl- afur segir rétt aö hafa í huga aö ársvistun á Sogni kostar 10 milljónir króna á ári. Megi því allir skilja að utanspítalameð- ferö sé æskileg þjóðfélagslega séð, „en aö öörum kosti sitjum við uppi með æ stærri lokaða og dýra stofnun er fram líða stund- ir". HlV-hræbsla „Nokkuð hefur boriö á óþarfa hræöslu vegna HlV-smitaðra einstaklinga," segir landlæknir. Embætti hans hafi rætt við for- ráðamenn vinnustaöa vegna starfsmanna sem misst hafi vinnuna vegna HlV-smits. Öll- um, og ekki síst heilbrigðis- starfsfólki og stjórnendum, ætti að vera ljóst að smithætta sé hverfandi lítil. Ólafur hefur þab eftir félagsfræbingi, sem stund- aöi HlV-smitaöan starfsmann á deild, aö vitneskjan um HIV- smitið hafi orsakað allmikinn titring hjá yfirstjórninni. í um- sögn sinni leggi þessi félags- fræðingur til „að fræðsla verði aukin mebal heilbrigbisstarfs- fólks og væri sennilega áhrifa- ríkast í forvarnarstarfi að beina þeirri fræðslu til stjórnenda stofnana og deilda!" ■ Gestur '96 — handbók erlendra feröamanna: Róbert ráöinn Róbert Mellk hefur verib ráb- inn ritstjóri bókarinnar GEST- UR '96, sem gefin er út á ensku af Líf og sögu hf., og verbur þab í 5. skipti sem hún kemur út. Eins og ábur mun Gesturinn einkum höfba til erlendra ferbamanna meb vandabri Iandkynningu í formi ljósmynda og greina. Mikið brautryðjandastarf hef- ur veriö unnib á síðustu fjórum árum með Gestinum, sem er um 250 blaðsíöur í hörðu bandi, og nú þykir sjálfsagt að bók í þessum gæbaflokki liggi frammi á langflestum gistiher- Mellk ritstjóri bergjum landsins og að henni sé dreift á ferðaskrifstofur innan- lands og erlendis. Róbert hefur í á annan áratug unnib við útgáfu sem tengist ís- lensku þjóðlífi. Hann hefur rit- stýrt ýmsum blöðum og tímarit- um, svo sem Modern Iceland, Foreign Living og Iceland — The Cutting Edge of Fisheries Technology. Greinar eftir hann hafa birst í tímaritum heima og erlendis, m.a. EX, World Fis- hing og Scandinavian Guide. Róbert er fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum, en móbir hans er íslensk. Eftir háskóla- Róbert Mellk, nýr ritstjóri Cests '96. próf fluttist hann til íslands og kenndi m.a. fyrstu árin ensku og bókmenntir við Menntaskól- ann viö Hamrahlíð og Náms- flokka Reykjavíkur ábur en hann sneri sér að skriftum og ritstjórnarstörfum. ■ Framboö stjórnar og trúnaöarmannaráös hjá Verkamannafélaginu Dagsbrún: Rífa fílabeinsturninn Ef þab er ríkjandi skobun fé- lagsmanna um skrifstofu Dagsbrúnar og þá, sem þar eru æbstrábandi, ab þeir sitji þar í fílabeinsturni, þá þarf ab breyta því meb því ab rífa turninn. Þetta er skobun A- listans, sem er frambob stjórn- ar og trúnabarmannarábs til stjórnarkjörs í Verkamannafé- laginu Dagsbrún, en B- lista- menn hafa gagnrýnt sitjandi stjórn harblega fyrir ab vera úr tengslum vib félagsmenn og ab forystumenn félagsins sitji í fílabeinsturni á skrif- stofu félagsins. Það er stefna A-listans ab gera úttekt á rekstri félagsins og að ráöa í framhaldi af því skrif- stofustjóra til þess fyrst og fremst að annast rekstur og af- greiöslu á skrifstofunni, þannig ab formaöur og varaformaður geti sinnt félagsmálum og samningamálum að fullu. Það kemur fram í minnis- punktum um helstu stefnumál A-listans, að Dagsbrúnarmenn þurfi að huga að hugsanlegri sameiningu eba samstarfi við önnur verkalýðsfélög á höfuð- borgarsvæöinu og nefna þar Verkakvennafélagið Framsókn. Það sé ljóst að hinn mikli fjöldi ófaglærðs verkafólks myndi standa mun sterkar ab vígi gagnvart atvinnurekendum og innan Alþýbusambands íslands og Verkamannasambands, ef þessi félög væru sameinuð. Ennfremur segir að ef listinn nær kjöri, þá mun verða lögð áhersla á nokkur atriði í kjara- málum á næstunni. Þar koma fyrst kröfur um beinar launa- hækkanir, þá taxtahækkanir í stab eingreiðslna, grunnkaup sem nálgast raunverulegar launagreiðslur og stóreflingu starfsmenntunar. ■ Ungu börnin nutu sín á jólatrésskemmtuninni í Borgarnesi. Tímamynd: tþ, Borgamesi Jólatrésskemmtun í Borgarnesi: Gestirnir mættu meb kökurnar Jólatrésskemmtun var haldin í Borgarnesi á þrettándanum, en nokkur ár eru libin síðan almenn jólatrésskemmtun hefur verið haldin meb þessu sniði í Borgar- nesi, enda var skemmtunin fjöl- sótt. Nokkur félagasamtök tóku sig saman um að halda skemmtunina: Hestamannafélagið Skuggi, Starfs- mannafélag KB, Starfsmannafélag Afurðasölunnar, Sinawikklúbbur- inn Drífa, Sparisjóður Mýrasýslu og Búnaöarbankinn Borgarnesi. Ekki varð annað séð en þessi uppákoma væri kærkomin hjá fjölskyldufólki í Borgarnesi og nágrannabyggðum og nutu ungir sem aldnir sín vel við að dansa og syngja í kringum jóla- tréb, en aðgangur var ókeypis. Sam- komugestir komu sjálfir meb kökur á kaffihlaöborb, en kaffi og kakó var á staðnum. Ab sjálfsögbu komu svo jólasveinarnir til að kveðja og færðu börnunum sælgæti. TÞ, Borgarnesi Ráöstefna um unglinga og áfengi: „Stöbvum unglinga- drykkju" slitib Átakinu „Stöbvum unglinga- drykkju" verbur slitib formlega í dag með rábstefnu undir kjör- orbinu „Mannrækt — mann- aubur" í Borgartúni 6, Rvík. Á rábstefnunni verbur árangur átaksins dreginn saman og hvab af því megi læra. Ráðstefnan verður sett kl. 14 að viðstöddum verndara átaksins, forseta íslands Vigdísi Finnboga- dóttur. í upphafi ráðstefnunnar verður kynnt uppeldisbókin Lengi muna börnin, sem átakið hefur látið gera í 30 þúsund ein- tökum fyrir foreldra barna fæddra 1983 og síðar. Höfundar bókarinnar, sálfræð- ingarnir Sæmundur Hafsteinsson og Jóhann Ingi Gunnarsson, munu flytja erindi á ráðstefn- unni. Auk þess verða erindi um forvarnir, um hlutverk foreldra, skóla og fjölmiðla o.fl. Ráðstefnan er opin öllu áhuga- fólki. ■ Atriöi úr Kardemommubænum, sem flutt var á þrettándahátíö Lunddælinga: Bæjarbúar gefa Tóbíasi í turninum afmœlisgjöf. Tímamynd: tþ, Borgamesi Þrettándabrennur víöar en í þéttbýli: Fjör í sveitinni Þab er víbar en í bæjum og borgum sem jólin eru kvödd meb þrettándabrennum. íbú- ar í Lundarreykjadalshreppi taka sig saman árlega á þrett- ándanum og halda brennu og hátíb. Þab eru krakkarnir í sveitinni, eba Orkan, yngri deild Ungmennafélagsins Da- grenningar, sem standa fyrir skemmtuninni. Hefðbundin þrettándabrenna var haldin með flugeldum og blysum. Síöan færðist hátíðin inn í félagsheimilið þar sem unga fólkið flutti kafla úr leikrit- inu Kardemommubærinn. Eftir sýninguna gæddu gestir sér á kökuhlaðborbi og kakói. TÞ, Borgamesi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.