Tíminn - 10.01.1996, Blaðsíða 11
Mi&vikudagur 10. janúar 1996
11
Mm
32 sveitir etja kappi í Reykjavíkurmótinu í bridge:
Sveit Búlka meö yfirburöastööu
11 umferöir eru nú búnar í
Reykjavíkurmótinu í sveita-
keppni, en keppnin er einnig
forkeppni reykvískra spilara
fyrir íslandsmót. Mjög góö
þátttaka er í mótinu, sem fer
fram í húsnæöi BSI, Þöngla-
bakka 1, en alls taka 32 sveit-
ir þátt.
Staöa efstu sveita eftir 11.
umferö:
A-riöill
1. Búiki 245 stig
2. VÍB 231 stig
3. Sigmundur Stefánsson 187
4. Tíminn 181 stig
B-riöiIl
1. Olafur Lárusson 214 stig
2. Samvinnuf.-Landsýn 208 stig
Landsbréf 207
Lyfjaverslun íslands 207
Fjórar efstu sveitirnar úr
hvorum riöli fara í úrslita-
keppni mótsins, en enn er fjór-
um umferöum lokiö og gæti
staöan breyst verulega í báöum
riölum. Þó er nánast öruggt að
sveitir Búlka og VÍB í A-riðli
fara áfram, en næstu 7 sveitir
eiga allar möguleika á úrslita-
sæti. Risaskor Búlka og reyndar
einnig VIB vekur nokkra at-
hygli. Búlki er meö 22,2 vinn-
ingsstig aö meðaltali úr leik,
sem hlýtur aö vera fáheyrt.
Liösmenn sveitarinnar eru
kjarninn úr sveit Trygginga-
miðstöövarinnar, sem óþarft er
aö kynna. í B-riölinum er jafn-
ari keppni, enda skilja aöeins 7
stig á milli 1. og 4. sætisins.
Eins og áður sagöi er Reykja-
víkurmótið jafnframt undan-
keppni fyrir íslandsmótið og
fara þær sveitir beint áfram,
sem enda í 5.-6. sæti í hvorum
riöli, auk efstu fjögurra. Þær
sveitir, sem enda í 7.-9 sæti,
keppa um þrjú sæti í sérstakri
millikeppni sem fram fer á
sama tíma og úrslit Reykjavík-
urmótsins, eða aðra helgi.
Öryggib á oddinn
I 11. umferð kom upp
skemmtilegt slemmuspil, sem
olli furöu víða sveiflum.
Spil 5; Noröur, NS á hættu
Noröur Austur SuÖur
pass ltígull pass
pass lspaöi pass
pass 4hjörtu pass
pass 5hjörtu pass
Þannig gengu sagnir í leik
Tímans og Vatnsveitunnar:
Vestur
lhjarta
4tíglar
4grönd
óspaöar
allir pass
AV spila standard og voru
þrjár fyrstu sagnirnar eölilegar,
en fjórir tíglar splinter meö
samþykkt á spaöa sem tromp-
lit. 4 hjörtu sýndu fyrirstööu, 4
grönd spuröu um ása og 5
hjörtu sýndu tvo ása af fimm,
en ekki trompdrottningu.
Slemman vannst í lokaða
salnum án erfiðleika eftir
spaöaútspil suðurs, en í þeim
opna fékk sagnhafi aöeins 11
slagi vegna óvandaðra vinnu-
bragöa. Segjum að lauf komi
út, sem er besta útspilið fyrir
vörnina. Sagnhafi drepur og
spilar litlum spaöa úr blindum
og drepur á ás. Nú er tempó að
spila tígulás og litlum tígli, en
þess voru dæmi að menn spil-
uðu spaðadrottningu fyrst úr
blindum og síðan tíguldrottn-
ingu! Oft komast menn upp
með slíkt, en eins og spilin
liggja fer spilið niður með því
móti. Meö vandvirkninni fást
hvorki fleiri né færri en 13 slag-
ir, 5 á spaða, 3 á hjarta (með
svíningunni), þrír á tígul og
tveir á lauf.
Bridgehátíð 1996:
Skráning hafin í tvímenn-
ing og sveitakeppni
Fimmtánda Bridgehátíð BSÍ,
Bridgefélags Reykjavíkur og
Sveit Ólafs Lárussonar hefur spilaö vel í Reykjavíkurmótinu og trónir á
toppi B-riöilsins.
þeirra er staðfest.
Skráning er á skrifstofu BSÍ
(Sólveig) í síma 587-9360 og er
skráningarírestur í tvímenn-
inginn til miövikudagsins 31.
janúar nk.
Bridgesambandið þarf margt
starfsfólk á Bridgehátíð við
dreifingu spila og ýmislegt
fleira. Þeir, sem vilja leggja
hönd á plóginn, hafi samband
við skrifstofu BSÍ. Öll sjálf-
boðavinna er vel þegin.
Bragi Hauksson myndar ásamt Sigtryggi Sigurössyni eitt af akkerispör-
um Búlka, sem hefur skoraö 22,2 stig aö meöaltali í leik. Tímamyndir Bjom
BRIDGE
BJÖRN ÞORLÁKSSQN
Flugleiða verður haldin á Hótel
Loftleiðum dagana 16.-19.
febrúar nk. Sveitakeppnin er
öllum opin eins og áður, en
nýtt keppnisform er í tvímenn-
ingnum — Monrad-Barómeter
— 90 spil spiluð og parafjöldi
120 að hámarki. Eins og und-
anfarin ár áskilur Bridgesam-
bandsstjórn sér rétt til að velja
pör í tvímenningi Bridgehátíð-
ar, en keppt verður sérstaklega
um einhver sæti í vetrarmitc-
hell BSÍ föstudagskvöldið 10.
febrúar.
Verðlaun verða samtals
$18000.
6 erlendum pörum hefur ver-
ið boðið til keppninnar, þ.ám.
ítölsku Evrópumeisturunum
og sveit Zia Mahmood. Koma
íslandsmótið í
parakeppni
Skráning er hafin í fjórða ís-
landsmótið í parasveitakeppni,
en það fer fram í Þönglabakka
1, helgina 27.-28. janúar nk.
Eins og fyrri ár verður spiluð
Monrad- sveitakeppni með 16
spila leikjum og fer fjöldi spila
eftir þátttöku. Miðað er við að
keppnin sé um 110 spil, eins og
undanfarin ár. Spilamennska
hefst kl. 11.00 bába dagana.
Keppnisgjald er kr. 10.000 á
sveit og er spilað um gullstig í
hverjum leik. Skráning er hafin
hjá BSÍ og verður skráð til
fimmtudagsins 25. janúar. ■
Ný endurvarpsstöb
Ný endurvarpsstöö Ríkisútvarps-
ins hefur veriö tekin í notkun aö
Auösholti í Ölfushreppi og þjónar
hún Hveragerbi, Selfossi, Eyrar-
bakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn
og nærliggjandi sveitum. Útsend-
ingar eru sem hér segir: Sjónvarp
á rás 49 UHF, Rás 1 á FM 91,3
MHz og Rás 2 á FM 95,3 MHz.
Jafnframt er fyrirhugað á næst-
unni að leggja niður sendingar á
Selfossi, Rás 1 á FM 90,6 og Rás 2 á
93,2 og einnig sendingar frá Hlíðar-
enda við Þorlákshöfn, Rás 2 FM
101,6.
Einnig verba lagðar niður sjón-
varpssendingar frá núverandi end-
urvörpum fyrir Hveragerði og Þor-
lákshöfn.
Notendum er bent á að stilla sem
fyrst inn á hina nýju stöð til að
komast hjá óþægindum.
Ennfremur voru fyrr á árinu sett-
ir upp eftirtaldir FM-endurvarpar:
Fyrir Rás 1 í Vatnsdal, V- Húna-
vatnssýslu (93,5 MHz) og Fljótsdal
(95,5), og fyrir Rás 2 í Hörgárdal
(90,4 MHz), Öxnadal (97,2 MHz),
Fljótsdal (92,0 MHz), Vatnsdai
(97,3 MHz), Ennishöfða við Bitru-
fjörð (101,4 MHz) og á Hraunhóli
við Vík í Mýrdal (95,6 MHz). ■
Brautskráning
stúdenta frá MH
21. desember sl. brautskráðust frá
Menntaskólanum vib Hamrahlíö
65 stúdentar, 42 konur og 23 karl-
ar. Af þessum nemendum voru 42
skrábir í dagskóla og 23 í öld-
ungadeild.
í ræöu sinni nefndi rektor, Örn-
ólfur Thorlacius, nokkra áfanga í
sögu skólans, sem verður þrjátíu ára
næsta haust. Að því loknu minntist
hann eins af nemendum skólans,
Þorsteins Sigurðssonar, sem fórst í
snjóflóðinu á Flateyri.
Hæstar einkunnir hlutu þau
Bjarni Rúnar Einarsson og Steinvör
Þöll Árnadóttir. Fengu þau bæði
bókaverðlaun frá skólanum. Nokkr-
ir nýstúdentar aörir hlutu líka verð-
laun fyrir ágætan námsárangur í
einstökum greinum. Baldur Ragn-
arsson ávarpaði samkomuna fyrir
hönd kennara og Birna Ósk Einars-
dóttir af hálfu nýstúdenta. Bæði
kvöddu þau Örnólf Thorlacius, sem
lét af störfum rektors sakir aldurs
nú um áramótin. Hann baub síðan
nýjan rektor, Sverri Einarsson, vel-
kominn til starfa.
Strengjasveit nemenda skólans
flutti nokkur jólalög í upphafi sam-
komunnar. Ab vanda flutti kór skól-
ans vandaba söngdagskrá undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
25 ára
Starfsmenn og eigendur Iselco.
íselco
íselco sf. varð 25 ára í október sl.
og hefur í öll þessi ár þjónað ís-
lenskum ibnaöi, kröfuhörðum
ibnaðarmönnum og handlögnum
einstaklingum.
íselco hóf starfsemi 1969 undir
nafninu ísel, og þá af Ragnari Jóns-
syni og Gísla Ólafs, en var formlega
stofnað 1970 og nafninu breytt í
Iselco snemma árs 1971, vegna
ágreinings við ísal um nafnib sem
þótti full líkt.
Um árabil var íselco leiðandi
firma í innflutningi og sölu tré-
smíðavéla ásamt tilheyrandi hlut-
um, svo sem sagarblöðum og hefil-
tönnum, slípiefni, þ.e. sandpappír,
slípibeltum og skífum alls konar,
brýni og demantsskífum og mörgu
fleiru.
Fyrst fór starfsemin fram í iitlu
plássi við Garðastræti, en flutti
1973 í Ármúlann og var í fyrstu rek-
ib sem heildsölufyrirtæki þar til um
áramót 1981-82 er reksturinn var
fluttur í eigið húsnæði að Skeifunni
lld þar sem þab er enn, og var þá
opnuð verslun með vélar, verkfæri,
slípivörur og rekstrarvörur fyrir
flesta iðnaðarmenn og almennan
iðnað í tré og járnverki, rafvirkja,
málarameistara, bifreiðasmiði og
hinn almenna laghenta borgara. ■