Tíminn - 06.02.1996, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 6. febrúar 1996
3
Hjónin cþHvoli I í Ölfusi borin út ásamt börnum. Húsfreyjan á bœnum:
Atti aldrei von á að
;;
þetta myndi gerast"
Eins og sjá má af myndinni var allstór hópur vina og vandamanna hjónanna á Hvoli mættur til oð sýna þeim
stuöning er þau voru borin út í nepjunni í gær. Tímamynd Brynjar Cauti
„Innst inni átti ég aldrei von á
aí> þetta yr&i a& veruleika. Vi&
erum rei& og sár og teljum a&
þaö sé greinileg mismunun í
gangi eftir því hva&a aöilar eiga
í hlut," sag&i húsfreyjan á Hvoli
í samtali vi& Tímann í gær eftir
a& lögreglumenn framfylgdu
hæstarréttardómi um útburö
hjónanna undir stjórn fulltrúa
sýslumannsins á Selfossi.
Það var mikil spenna í loftinu
rétt fyrir klukkan 11 í gærmorgun
innan veggja heimilisins á Hvoli I
í Ölfusi. Björgvin Ármannsson og
eiginkonan Hrönn Bergþórsdóttir
bi&u ásamt þremur börnum sín-
um eftir að fulltrúi sýslumanns
framkvæmdi útburb en Hvoll 1 er
ríkisjörð, sem þau hjónin hafa
verið með refarækt á, auk annars
búskapar síðan 1985. Fjöldi vina
var saman kominn á heimilinu til
ab sýna heimilisfólkinu táknræn-
an stuðning og ljóst var að út-
burðurinn mætti einarðri for-
dæmingu hjá viðstöddum. Dóttir
Björgvins og Hrannar, Lilja Dögg,
hafbi útbúið tertu í tilefni dagsins
og við hlið hennar á tertufatinu
hafbi hún skrifað á lítinn miba:
„Til hamingju með að nauðga
heilli fjölskyldu og komast upp
með það". Þá má nefna sem dæmi
um samheldnina að kalla þurfti á
sendibifreið frá Reykjavík undir
búslóð heimilisfólksins þar sem
enginn aðili á Suðurlandi vildi
sinna beiðni lögreglunnar um
slíkt.
Laust eftir 11 komu svo fulltrúi
sýslumanns ásamt þremur lög-
reglumönnum inn í húsib þar
sem Karl Gauti Hjaltason sýslu-
mannsfulltrúi tilkynnti að hann
væri kominn til að framfylgja út-
burbinum. Hann bab heimilis-
fólkið og viðstadda að yfirgefa
húsið en húsfreyjan á bænum
brást þannig við að ítreka við
gestina að þeir rituðu nöfn sín í
gestabók, Fulltrúi sýslumanns
svaraði þá að bragði: „Það er ég
sem hef tekiö yfir völdin í þessu
húsi, þú ert ekki lengur húsráð-
andi hér og ykkur er gert að yfir-
gefa húsið samstundis." Björgvin
og Hrönn önsuðu engu og kallaði
fulltrúinn þau þá afsíðis á fund.
Skömmu síðar komu hjónin aftur
fram og lögreglumenn byrjuðu að
rýma húsib. Fyrst voru fjölmiðla-
menn beðnir að ganga út en síð-
an vóru vinir og ættingjar hjón-
anna leiddir út í lögreglufylgd.
Síðast yfirgáfu Hrönn og Björgvin
húsib og var þá liðið á aðra
klukkustund síðan útburðurinn
átti að koma til framkvæmdar.
Ekki kom til beinna átaka við
útburöinn en allmargir vina
hjónanna á Hvoli mótmæltu
gjörningnum með yfirlýsingum.
Einn þeirra var Bjarnfreður Ár-
mannsson, bróbir Björgvins, en
hann sagði að hér hefði verið
framinn réttarfarslegur glæpur og
aðgerðin væri skömm fyrir dóms-
kerfi og réttarfar landsins. Ragnar
Böðvarsson loðdýrabóndi, fyrr-
um ábúandi á Kvistum, sagði aö
líkt og þegar honum hefði verið
gert að yfirgefa sína jörb á dögun-
um hefðu hér verið búnar til for-
sendur fyrir dómnum og engu
minni hneisa væri ab Hæstiréttur
fylgdi því eftir. Þá sagbi hann það
einsdæmi að hjónin á Hvoli
hefbu boðið í búið sjálf og átt
hæsta tilboö eftir að þau lentu í
erfibleikum vegna loðdýraeldis-
ins, en tilboðinu hefði verið hafn-
að. Þess í stað hefði næsthæsta til-
boðinu verið tekið.
Yfirlýsing íslenska álfélags-
ins í Straumsvík um lóöirnar
nor&anvert viö álveriö hafa
leitt til þess a& áhugi hús-
byggjenda fyrir ló&um á því
svæ&i hefur dofnaö a& sögn
Tryggva Har&arsonar bæjar-
fulltrúa Alþý&uflokksins í
Hafnarfir&i. Þarna á aö rísa
100 íbúöa byggö. Hafnar-
fjar&arbær útilokar ekki mál-
sókn á hendur ísal hf. komi
þaö í ljós a& byggingarló&ir
seljist ekki vegna þessarar yf-
irlýsingar sem sannarlega
gyllir ekki vonir húsbyggj-
enda um gott umhverfi.
Strax eftir samninga ísal við
kaupstaðinn, þann 21. nóvem-
ber í fyrra, fékk Ingvar Viktors-
son í hendur bréf álfélagsins
þar sem fundið er að skipulagi
bæjarins sem þá var hjá Skipu-
lagi ríkisins og beið staðfest-
ingar.
Isal segist vilja benda á að
stækkun verksmiðjunnar þýði
60% aukningu á eiturefnum,
'aukinn hávaða og aukna um-
ferð á svæðinu. Tekið er fram
að enda þótt eiturefnin muni
ekki skaða umhverfið þá sjái
Björgvin og Hrönn voru slegin
eftir útburðinn en sögðust þó ekki
gefast upp þrátt fyrir að loforð
hefðu verið svikin. Þau eru búin
að koma refunum fyrir á Kirkju-
íslenska álfélagið möguleg
ágreiningsefni geta risið verði
byggt nær álverinu. Slík mis-
tök hafi átt sér stað í Evrópu
fyrrum og leiðréttingar hafi
reynst kostnaðarsamar. Er bæj-
aryfirvöldum ráðlagt að byggja
ekki nær álverinu en orðið er.
Á bæjarstjórnarfundi á
þriðjudaginn fluttu þeir Magn-
ús Jón Árnason og Lúðvík
Geirsson tillögu sem samþykkt
var með 11 atkvæðum að vísa
til bæjarráðs. í tillögunni segir
að upplýsingar íslenska Álfé-
lagsins í bréfinu gjörbreyti
þeim forsendum sem lágu til
grundvallar velvilja bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar vegna
stækkunar ísal hf. Menn hafi
haldið að umhverfismati væri
treystandi sem og starfsleyfi í
kjölfar þess. Fullyrðingar ísal
hafi þegar valdið Hafnarfjarð-
arbæ verulegum skaða.
„Vegna þessa sér bæjarstjórn
Hafnarfjaröar sig knúna til að
tilkynna hinu íslenska Álfélagi
hf. að hún sjái sér ekki fært að
staðfesta útgáfu byggingarleyf-
is fyrir nýjum kerskála fyrr en
ísal hf. hefur sýnt fram á það
ferjuhjáleigu en óljóst sé með
framhaldið á öðrum bústofni
þeirra. Þau hafa nú fengið tíma-
bundið húsnæði í Hveragerði.
með óyggjandi hætti hvernig
félagið hyggst koma í veg fyrir
eða takmarka þá loft- og hljóð-
mengun sem ísal hf. telur nú
að muni skerða verulega land-
notkun aðalskipulags Hafnar-
fjarðar sem staðfest var árið
1982."
„Við getum byggt upp um
fjöll og firnindi. En þetta er
ódýrasti og besti kosturinn
varðandi byggingalóðir eins og
stendur, skjólsælar og góðar
lóðir og verðmæti landsins
upp á hundruð milljóna
króna. Það yrði mikill skellur
fyrir okkur ef landið yrði ekki
nýtt til bygginga. í rauninni
Heimilt verö-
ur að veðsetja
greiðslumark
bújarða
Heimilt veröur a& veösetja
grei&slumark bújar&a sam-
kvæmt frumvarpi til laga um
samningsveö sem nú er til um-
ræöu á Alþingi. í 29. grein
frumvarpsins segir aö þegar
jörö sé ve&sett ver&i litiö svo á
a& ve&setningin nái einnig til
greiöslumarks jar&arinnar,
nema annaö sé tekiÚ fram í ve&-
bréfi.
Athygli hefur vakið að í þessu
frumvarpi er ekki grein um heim-
ild til veðsetningar aflakvóta
fiskiskipa en í þau þrjú skipti sem
fumvarpið hefur áður komið fram
á Alþingi hefur grein um slíka
heimild verið inni. Sighvatur
Björngvinsson, þingmaður Vest-
fjarða, sagði í umræðum á Alþingi
að ólíku væri saman að jafna.
Samkvæmt lögum um stjórnun
fiskveiða væru fiskimiðin skil-
greind sem sameign ailrar þjóðar-
innar en greiðslumark bújarða
væri eign viðkomandi bænda.
Engum hafi komið til hugaö að
þjóðnýta bújarðir á sama hátt og
kveðið er á um í fyrstu málsgrein
laga um stjórnun fiskveiða. Réttur
til framleiðslu landbúnaðarafurða
sé ekki sameiginlegur öllum
landsmönnum.
erum við að verða nokkuð að-
krepptir með byggingalóðir.
Við vitum ekki hver endanleg
áhrif þessarar yfirlýsingar
verða. En við merkjum þegar
óánægju þeirra sem fyrir eru
næst svæðinu. Líka höfum við
orðið varir við að menn eru
farnir að skila inn lóðum
vegna þess að yfirlýsing Álvers-
ins komi þannig við þá," sagði
Tryggvi Harðarson. „Bygginga-
verktakar sem höfðu lýst
áhuga á að byggja á svæðinu
segja núna að þeir hafi ekki
lengur áhuga," sagði Tryggvi.
-JBP
Þorrablót 10. febrúar
Þorrablót framsóknarfélaganna í Reykjavík verbur haldib laugardaginn 10. febrúar.
Stabsetning: Ibnabarmannasalur, Skipholti 70.
Heibursgestur: Steingrímur Hermannsson.
Veislustjóri: Ólafur Örn Haraldsson.
Verb kr. 2.600 (matur, ball). Bara ball: kr. 1.000.
Húsib opnar kl. 19.30, en borbhald hefst kl. 20.00.
Tekib er á móti mióapöntunum á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 562-4480
eba hjá Ingibjörgu í síma 560-5548.
Ýmis skemmtiatribi verba og svo aubvitab hljómsveit. Öll umsjón er í höndum FUF í
Reykjavík.
Allir velkomnir. Stjórn FUF Reykjavík
Opiö hús á
fimmtudagskvöldi
Framsóknarfélag Reykjavíkur verbur meb opib hús á flokks-
skrifstofunni öll fimmtudagskvöld í febrúar frá kl. 20.30-
23.30.
Ólafur Örn Haraldsson alþingismabur verbur gestur okkar
og bjóbum vib alla framsóknarmenn velkomna til okkar til
skrafs og rábagerba. Heitt á könnunni og alltaf er von á
óvæntum gestum.
Framsóknarféiag Reykjavíkur
Ölafur Örn
Valgerbur
Akureyri og
nágrenni:
Almennur
stjórnmála-
fundur
Finnur
verbur haldinn á Hótel KEA fimmtudagskvöldib 8. febrúar kl. 20.30.
Gestir fundarins verba Finnur Ingólfsson, ibnabar- og vibskiptarábherra, og Val-
gerbur Sverrisdóttir alþingismabur.
Allir velkomnir. Framsóknarflokkurinn
-BÞ
-Þ1
Dramatísk yfirlýsing Isals um byggingarlóöir í grennd viö álveriö hefur skaöaö Hafnarfjarö-
arbœ, segir Tryggvi Haröarson bœjarfulltrúi:
Einstaklingar farnir aö skila
lóöum og verktakar hætta viö