Tíminn - 13.03.1996, Page 6

Tíminn - 13.03.1996, Page 6
6 ffiffFfflrflr Miðvikudagur 13. mars 1996 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM vmmm FíiETTnni nn in SELFOSSI Pálmar á Borg í Grímsnesi og bró&ir hans stofna endur- vinnslufyrirtækiö Pappís: Húseinangrun úr endurunnum pappír í sam- vinnu vib Dani Pálmar Sigurjónsson á Borg í Grímsnesi og bróðir hans Svanur í Reykjavík hafa stofn- að fyrirtækið Pappís ehf. til að endurvinna pappír í stórum stíl í samvinnu við danskt fyr- irtæki. Pappís hyggst fram- leiða húseinangrun og fleira úr pappírnum. Pálmar og Svanur hafa unn- ið aö þessu verkefni í tvö ár og hafa að undanförnu átt í samningaviðræðum við danska fyrirtækið. Pálmar vonast til að innan tíðar verði skrifað undir samninga viö Danina um að Pappís kaupi af þeim vélar til að endurvinna pappírinn. Jafnframt mun Pappís hafa aðgang að tækni- legum upplýsingum hjá danska fyrirtækinu. Pálmar segir að Pappís muni fyrst í stað flytja inn húseinangrun- ina, en framleiðsla hefjist lík- lega hér á landi næsta vetur. Hann segir aö Iðntæknistofn- un hafi gefið einangruninni bestu meömæli sem bruna- vörn. Pappísmenn hafa einnig rætt við Landgræðslu ríkisins um uppgræðsluefni sem þeir hyggjast framleiða úr pappírn- um. I þá blöndu yrði hægt að blanda fræjum og áburði. Þá segir Pálmar mögulegt að vinna bindiefni í malbik úr pappírnum með þeim tækja- búnaöi sem Pappís hyggst kaupa. Áætlanir Pappísmanna gera ráð fyrir 600-800 tonna fram- leiðslu á ári af þessum vöru- tegundum, þegar starfsemin er komin í fullan gang. Pálm- ar segir að 4-7 menn fái vænt- anlega vinnu við fyrirtækið, gangi dæmiö upp. Hann segir ekki ljóst hvort það verður á höfuðborgarsvæðinu eða fyrir austan fjall. „Dagblaðapappír er besta hráefnið, en viö gerum líka ráð fyrir að taka viö afskuröi frá prentsmiöjum. Við notum ekki bylgjupappa," segir Pálm- ar. Sem stendur er mikiö af dagblaöapappír fluttur óunn- inn úr landi og Pálmar á ekki von á að neinn hörgull verði á hráefni til framleiðslunnar. KEFLAVÍK Reykjanessalt og Jurtagull til Kan- ada Um hálft tonn af íslenskum heilsu-, jurta- og náttúruvör- um var sent til Kanada í síð- ustu viku. Það er fyrirtækið Iceherbs í Kanada sem hefur gert til- raunasamning viö fjögur ís- lensk fyrirtæki. Þar af eru tvö á Suðurnesjum. íslensk sjóefni hf. á Reykjanesi, sem fram- Siguröur Halldórsson hjá íslenskum sjóefnum á Reykjanesi meö Eöal- saltiö og Hrafnhildur Njálsdóttir meö jurtagulliö. leiöa Eöalsalt og Jurtagull sem eru nýjar hársnyrtivörur, en Hrafnhildur Njálsdóttir í Keflavík hóf framleiðslu á þeim á síöasta ári. Eðalsaltið frá Reykjanesi hefur vakið at- hygli í útlöndum og greinar um það hafa birst í fagtímarit- um og fréttablöðum og segir Siguröur Halldórsson hjá Is- lenskum sjóefnum að margar fyrirspurnir hafi borist. „Við höfum verið í miklu kynning- arstarfi undanfarin ár og út- flutningur í litlu magni er haf- inn til nokkurra landa." Eðalsaltið hlaut nýlega sam- þykki FDA, matvæla- og lyfja- eftirlits Bandaríkjanna, sem er nauðsynlegur „stimpill" til að komast inn á harðan markaö Bandaríkjanna. Hrafnhildur Njálsdóttir seg- ir að Jurtagull hafi nýlega ver- ið kynnt á tveimur sýningum í Kanada og hlotið góðar við- tökur. Tvær hárgreiðslustofur hafa fengib Jurtagullið til prófunar og ef þeir aðilar verða ánægðir með Suöur- nesja- hársnyrtivörurnar, gæti þaö þýtt samning við þrjátíu hárgreiðslustofur í Kanada. Iceherbs er með aösetur í Vancouver í Kanada og rekur m.a. stærstu heilsuvöruverls- un í landinu auk þess að reka heildverslun. Þau Sigurður og Hrafnhildur sögðust bæði bjartsýn á frekari útflutning, ekki síst í ljósi mikillar heilsu- vakningar í heiminum. Auk Eðalsalts og Jurtagulls voru sendar vörur frá íslensk- um fjallagrösum í Reykjavík, sykurlausar fjallagrasahálstöfl- ur og áburður frá fyrirtækinu Móa í Hvammi í Vatnsdal. Erfíbur rekstur hjá Gunnarstindi Aðalfundur Gunnarstinds hf. á Stöövarfirði var haldinn fyrir skömmu. Tap af reglu- legri starfsemi félagsins nam rúmum 34 milljónum króna, en hagnaður af rekstrinum var 294,5 milljónir, þegar reiknaöur var inn í hagnaður af sölu eigna í sumar. Að sögn Ævars Ármanns- sonar stjórnarformanns geng- ur rekstur Gunnarstinds erfiö- lega. Aðalframleiðsla fyrirtæk- isins eru frystar bolfiskafurðir, en verð á þeim hefur farið lækkandi. Fullri vinnu hefur verið haldib uppi hjá fyrirtæk- inu allt árið, en um 70-80 manns eru þar við störf bæði á landi og sjó. Jónas Ragnarsson hefur undanfarna mánuði sinnt starfi framkvæmdastjóra, en hann er lausráðinn og var starfið auglýst laust til um- sóknar í vetur. Nokkrar um- sóknir bárust, en ekki hefur verið tekin ákvöröun um ráöningu. Stöðvarhreppur á 33% hlutafjár í Gunnarstindi, sem er að nafnverði rúmar 42 milljónir króna. Hlutabréfin voru auglýst til sölu í haust. Þrjú kauptilboð bárust og hafnaði sveitarstjórn tveimur, en einn dró tilboð sitt til baka. Að sögn Björgvins Vals Guðmundssonar oddvita er sala á bréfunum ekki inni í myndinni sem stendur. Húsavík: Kristileg sjón- varpsrás í loftib í vor Ákveðiö er að hefja útsend- ingar á kristilegu sjónvarps- efni á Húsavík með vorinu, í maí eba júní. Að útsending- unum standa kristilegu sam- tökin Ljós heimsins á Húsavík í samvinnu vib Húsvíska fjöl- miðlun hf. Norman Dennis hjá Ljósi heimsins segist lengi hafa haft augastað á að sjónvarpa kristi- legu efni, en horfiö frá því vegna kostnaðar. Meö nú- tímatækni, örbylgjusending- um, séu forsendurnar allt aðr- ar og í samstarfi við Húsvíska fjölmiðlun hf. hafi þótt fýsi- legur kostur að fara út í dreif- ingu kristilegs sjónvarpsefnis á sérstakri rás. Til að byrja með munu sendingar nást aðeins á Húsa- vík og verður sent út efni frá kristilegu sjónvarpsstöðinni Omega í Reykjavík, auk þess sem Norman Dennis segist hafa orbið sér úti um efni er- lendis frá endurgjaldslaust. Þá er hugmyndin að vinna og senda út efni frá Húsavík. Hann tók fram að allir, sem ab þessu máli hafi komib, hafi verið mjög jákvæðir og Iagt því liö. Norman Dennis sagbi að ekki væri ætlunin að hafa starfsmann við sjónvarpsút- sendingarnar, í það minnsta ekki til að byrja með. Þetta yrði allt unnið í sjálfboða- vinnu. Rætt hafði veriö um að hefja útsendingarnar um páskana, en Norman Dennis segir nú ljóst að það verði tæpast fyrr en í maí eða júní. Flestir Reykvíkingar vilja fara á einkabílnum til vinnu en: Meirihluti lítur áumferðina sem vandamál Um 60% Reykvíkinga líta á umferbina í borginni sem vandamál. Tæplega 60% telja æskilegt aö borgaryfirvöld dragi úr bílaumferð með beinum aðger&um. Flestir kjósa samt sem áður a& fara með einkabíl milli heimilis og vinnu/skóla. Skipulagsnefnd Reykjavíkur lét í desember sl. gera könnun á ferðamáta og viðhorfi íbúa Reykjavíkur til umferöar. Könnunin var framkvæmd af Félagsvísindastofnun og náði til 600 Reykvíkinga á aldrinum 15-70 ára. Svör fengust frá 464 sem er 77,33% svarhlutfall. Helstu niðurstöður könnun- arinnar eru að flestir kjósa að fara með einkabíl til vinnu/skóla eða um 66% svar- enda. Heldur fleiri fara þó með honum eða um 70%. Um 15% kjósa helst að fara með stræti- svögnum sem eru fleiri en fara yfirleitt meö þeim en þeir reyndust 10,7% svarenda. Fleiri sögðust líka helst vilja hjóla en þeir sem gera þab. Hins vegar eru fleiri sem ganga en kjósa það sem ferðamáta. Hærra hlut- fall gangandi og hjólandi eru í Vesturbæ og Miðbæ/Hlíðum en í öðrum hverfum og strætis- vagnar eru meira notabir í Ár- bæjar/Ártúnshverfi en í öðrum hverfum. Af þeim sem fara yfirleitt með einkabíl til vinnu/skóla eru 53,9% áð jafnaði einir í bílnum. Nokkur munur er þar á kynjum. Algengara er að karlar séu einir í bílnum, eða 60% þeirra á móti 46,6% kvenna. Þrátt fyrir mikla notkun einkabílsins segist um helming- ur svarenda geta skilið bílinn eftir heima þegar þeir fara til vinnu/skóla án þess að það valdi þeim verulegum töfum eða óþægindum. Um 70% segj- ast tilbúin til að taka þátt í degi með kjörorðinu „Bíllinn heima". Umferbin of þung Um 60% svarenda líta á um- ferö í borginni sem vandamál. Um helmingur þeirra telur að vandamálið felist í „þungri um- ferð" og rúm 40% nefna atriði sem flokka má undir lélega um- ferðarmenningu, svo sem van- hæfni ökumanna, tillitsleysi o.s.frv. Rúmur helmingur svarenda telur æskilegt að borgaryfirvöld reyni að draga úr bílaumferð með beinum aðgerðum. Um 65% þeirra eru hlynnt því að veita strætisvögnum frekari for- gang á götunum og nánast allir eru hlynntir því að borgaryfir- völd bæti og fjölgi göngu- og hjólreiöastígum. Þá telja rúm 82% æskilegt aö fjölga mislæg- um gatnamótum innan borgar- innar. Á hinn bóginn vilja fáir draga úr bílaumferð með því að auðvelda ekki frekar umferð á aöalumferðargötum, fækka bílastæðum í mibborginni, stækka gjaldtökusvæöi bíla- stæða og hækka gjald á bíla- stæðum. Könnunin sýndi að um 82% Reykvíkinga á aldrinum 17-70 ára eiga bíl eða hafa bíl til um- ráða. Að meöaltali telja þeir það kosta rúmar 17 þúsund krónur að eiga og reka bíl á mánuði. Nokkuð sterkt samband reynd- ist á milli tekna svarenda og þess hvað þeir telja það kosta sig ab eiga og reka bíl en svo virðist sem flestir telji að u.þ.b. 10% af tekjum þeirra fari í rekstur bíls. -GBK

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.