Tíminn - 14.05.1996, Blaðsíða 1
80. árgangur
Þriðjudagur 14. maí
* * ‘
XWREvró//
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
90. tölublað 1996
Þórarinn Þórarinsson, fyrrum
ritstjóri Tímans og alþingismaö-
ur, lést í Reykjavík í gær.
Þórarinn fæddist -árið 1914 og
var því orðinn 82 ára þegar hann
lést.
Þórarinn útskrifaðist frá Sam-
vinnuskólanum 1933 og gerðist
það ár blabamaður á Tímanum.
Hann varð ritsjóri Tímans árið
1938 og var það allt fram til sjö-
tugs árið 1984. Þessi langi rit-
stjóraferill Þórarins varð til þess að
hann var iðulega kenndur við
Tímann.
Þórarinn starfaði mikið og lengi
með Framsóknarflokknum. Hann
var formaður Sambands ungra
framsóknarmanna 1938-1944.
Þórarinn sat í fjölmörgum nefnd-
um og rábun fyrir flokkinn og
gegndi mörgum trúnaðarstörfum
fyrir hann. Hann varð þingmaöur
árið 1959 og sat á þingi í 19 ár
samhliða ritstjórn á Tímanum.
í formála bókarinnar „Svo
varstu búinn til bardaga" segir
Ingvar Gíslason fyrrum ráðherra
og ritstjóri um Þórarin: „ „Hitt er
vert að leggja áherslu á, að Þórar-
inn hefur lifað og hrærst í kviku
viðburðanna og tekib fyrir sitt
leyti fullan þátt í því sem var og er
að gerast. Ef staðnæmst er við sögu
Framsóknarflokksins sérstaklega
fer ekki milli mála að þar var Þór-
arinn í fremstu röb áhrifamanna,
ekki aðeins vegna stöðu sinnar
sem ritstjóri Tímans, heldur sem
forystumaður í félagsmálum, m.a.
fyrsti formaður Sambands ungra
framsóknarmanna, málsvari og
ræðumabur á almennum pólitísk-
um umræbuvettvangi áratugum
saman og alþingismaöur í nærri
tvo áratugi."
Eftirlifandi eiginkona Þórarins er
Ragnheiður Vigfúsdóttir Þormar.
Þau eignuðust þrjú börn. Fyrrum
samstarfsmenn Þórarins á Tíman-
um votta þeim samúð sína. ■
Kartöflurœktendur á höfuöborgarsvœöinu eru farnir oð setja niöur sumir
hverjir, en Haukur Sigurösson var aö undirbúa jaröveginn meö áburöargjöf í garöinum viö Korpúlfsstaöi í gœr. Kartöflugarövinnan er óvenju snemma í
ár enda voriö einstakt. Haukur segir þetta í síöasta sinn sem hann hefur kartöflur í landi Korpúlfsstaöa en hann er búinn aö fá tilkynningu um aö hann
þurfi aö flytja sig upp í Skammadal næsta vor. ' ■ • Timamynd: cva
Opinberir framleibslustyrkir til menningarmála rúmlega 1,3 milljaröar árib 1994:
• ■ f • M • •
• e
hraöaren
Framleiðslustyrkir hins opinbera
til menningarmála nærri áttföld-
uðust á árunum 1985 til 1994, úr
rúmlega 170 milljónum í nærri
1.320 milljónir. í heild hækkuðu
opinberir framleiðslustyrkir á
þessu árabili úr 4,1 milljarbi í 9,6
milljarba, þannig ab hlutur
menningarinnar jókst úr rúmlega
4% á árunum 1985/86 upp í
nærri 14% árib 1994. Svo nefrid sé
önnum margumrædd vibmibun
má t.d. benda á ab opinberir
menningarframleibslustyrkir
hækkubu tvöfalt hrabar en opin-
ber heilbrigbisútgjöld.
Þannig hækkuðu heilbrigðisút-
gjöldin „aðeins" um 290% á sama
tíma og meinningarstyrkirnir
hækkuðu um 670%. Menningar-
styrkirnir hækkuðu sömuleiðis
rúmlega tvöfalt hraðar en heildar-
tekjur hins opinbera á þessu tíma-
bili. Þessar athygliverðu upplýsing-
ar má lesa i nýrri skýrslu Þjóðhags-
stofnunar, Búskapur hins opinbera
1994-1995. Þar er m.a. að finna
margvíslegar upplýsingar um þróun
opinberra tekna og útgjalda, í
mörgum tilfelum allt aftur til ársins
1980. Framleiðslustyrkir hins opin-
bera til menningarmála skiptust
þannig árið 1985 og síðan 1994:
Menningarm.: 1985 1994 Hækk.
m.kr. m.kr. %
Þjóðleikhús 46 319 594%
Sinfónían 43 150 250%
ísl.óperan 3 41 1250%
Kvikm./menn.sj. 33 101 210%
Ö.menningarm. 47 708 1405%
Hinir ýmsu þættir „ménningar-
framleibslunnár" hafa þannig verið
misjafnlega mikið í náðinni hjá
fjárveitingavaldinu á . umliðnum
áratug. Hlutur Sinfóníuhljómsveit-
arinnar og Kvikmyndasjóðs hefur
vaxið nokkuð minna heldur en
tekjur hins opinbera, og þannig
minnkað heldur að raungildi.
Styrkir til Þjóðleikhússins hafa stór-
hækkað að raungildi, þótt ekki
komist það nema í hálfkvisti við
Óþemna og aðra menningarfram-
leiðslu. ■
Ólafur K. Nielsen fuglafrœöingur staöfestir oð illa
horfi meb fálkavarpiö í ár:
Eru bara geldir"
Samtals:
171 1.318 670%
Gamla 0-lista hjartað kættist"
//
„Ég get ekki neitab því ab gamla
O- lista hjartaö sló hraðar vib
þessi óvæntu úrslit þótt. Þab er
ljóst ab það eru breytingar í
nánd," sagbi Gunnlaugur Ást-
geirsson, frumkvöbull O-listans
sem baub fram í sveitarstjórnar-
kosningunum árib 1971 án þess
ab ná inn manni, en framboðið
vakti á sínum tíma mikla at-
hygli og þótti skemmtilegt.
Gunnlaugur segir að mjög
skrýtnir hlutir séu að gerast í ís-
lenskum stjórnmálum þessa dag-
ana og nefnir niðurstoðu skoð-
anakannana um forsetaframboö
sem dæmi. Enginn hafi getaö átt
von á þeirri niðurstöðu sem kann-
anir leiði nú í ljós. Það að Funk-
listinn á ísafirði hafi náð inn
tveimur mönnum um helgina
sýni að eitthvað sé ekki í lagi hjá
þeim sem hafa haft völdin fyrir.
-BÞ
Ólafur K. Nielsen fuglafræbing-
ur staöfesti í gær frétt Tímans sl.
laugardag, ab fálkavarp virtist
ætla ab verba léle§t, „þeir eru
bara geldir," sagbi Olafur. Hann
er nú á yfirreiö um Norbaustur-
land, m.a. til ab kanna ástand
fálkavarps og telja rjúpur. Ólaf-
ur var staddur í Bárðardal í gær
þegar Tíminn nábi tali af hon-
um og hafbi abeins fundib 4
hreibur meb eggjum á Norb-
austurlandi.
Þegar svo fer ab fálkinn verpir
lítið eða ekki, kenna menn helst
um tíðarfari eða fæðuskorti.
Fálkinn lifir einkum á rjúpu og
hefur rjúpnastofninn verið í
lægö að undanförnu. Tíðarfarið
sl. vetur var mun hagstæðara en
árið á undan en stofnstærð rjúp-
unnar svipuð. í fyrra var fálka-
varpið þokkalegt og því kemur á
óvart hve illa horfir nú.
Ólafur sagði ab þótt varpið
yrbi lélegt í ár ylli langlífi fálkans
því að mögulegra áhrifa á stofn-
tærð mundi ekki gæta fyrr en
eftir 3-5 ár. Nokkur slæm ár
þyrfti í röð til að hafa veruleg
neikvæð áhrif.
Milli 300 og 400 pör eru talin
vera í íslenska fálkastofninum.
Ekki kemur í ljós fyrr en eftir 3-
4 vikur hve mörg varppörin
verða. -BÞ
Þórarinn Þórarinsson, fv. ritstjóri
og alþingismaöur.
Tímamynd: Árni Bjarna
Þórarinn Þór-
arinsson rit-
stjóri látinn