Tíminn - 24.05.1996, Qupperneq 1
Rauðamöl vib sumarhús
Raubamöl í gangstíga við sumarhús er afar smekkleg eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd. Ekki er auðvelt að fá rauðamöl, en þó
er hægt að fá hana hjá nokkrum aðilum á Laugarvatni og í Gríms-
nesi. Það eru þó ekki allir á eitt sáttir um notagildi hennar við
sumarbústaði og hýblýli manna yfirleitt, því hún er talin smita
inn í húsin. Það myndast fínn salli sem er mjúkur, sem ku geta
litað gólfefni. Það er hins vegar engin launung að rauðamölin fer
afar vel á gangstígum, en þessi mynd er tekin við sumarhús í
Brekkuskógi.
Tímamynd Pjetar
Ræktunar-
dúkur skiptir
sköpum
bls. 7
Kamínur —
prýba og
eru nota-
drjúgar
bls.6
Grillmeistarar og
allt um grillib
Meistarakokkarnir á Argentínu, þeir Óskar Finnsson og Ingvar Sigurðsson, hafa um nokkra hríð séð
um að fræða landsmenn um hvernig á grilla. í blaðinu í dag fara þeir í gegnum það hvernig á að með-
höndla grillið, þrífa það, grilla, hvaða meðlæti hentar best og ýmislegt fleira. Auk þess gefa þeir les-
endum nokkrar notadrjúgar uppskriftir, sem svíkja örugglega engan. Þeir Óskar og Ingvar eru lands-
frægir grillmeistarar og ætti ekki neinn áhugamaður um grillmennsku láta þennan pistil framhjá sér
fara.
Sjábls. 14-15
Merkingar
sumarbú-
staba
bls. 5
Grillib sam-
ansett og
heim ab
dyrum
bls. 12
NYTT HEFTIA ÖLLUM SÖLUSTÖÐUM
HVAR ERTU. PABBI?
Lifsreynslusaga fra Flateyri
IMBAKUBBURINN
Þrívíddarsjónvarpstæki eru á næstu grösum
ÞAÐ SEM ALLAR KONUR ÞURFA AÐ VITA UM HJATARSJÚKDÓMA
Fleiri konur deyja af völdum hjartaáfalla en karlar
AF HVERJU FITNUM VIÐ A VETURNA?
Skammdegisþunglyndi er vel þekkt fyrirbæri, en hversu margir vissu að það er fitandi?