Tíminn - 09.07.1996, Page 7
Þriðjudagur 9. júlí 1996
7
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
Alvarlegt ástand í uppsiglingu vegna vatnsskorts í subvesturríkjum Bandaríkjanna:
Verstu þurrkar í áratugi
Falcon Lake nefnist stöbuvatn í
Bandaríkjunum sem þekur um
87.000 ekrur. Vatnið er nánar til-
tekið á landamærum Bandaríkj-
anna og Mexíkó við ána Rio
Grande. Þaö er þama þó ekki frá
náttúmnnar hendi, heldur var
þab búib til á sjötta áratug þessar-
ar aldar í því skyni ab hafa betri
stjóm á flóbum og áveitufram-
kvæmdum.
Á síðustu ámm hefur vatnsborbib
hins vegar lækkab smám saman um
rúma 15 metra, og er nú svo komið
að ýmsir leyndardómar úr fortíð-
inni em ab koma í ljós. Þannig em
heilu bæirnir bandaríkjamegin
landamæranna, sem legib hafa
undir vatni áratugum saman, famir
að skjóta upp kollinum aftur, en
nokkur landamæraþorp vom flutt
um set þegar vatnib var myndað,
t.d. Zapata og Lopeno. Og mexíkó-
megin em krossar á leibum í göml-
um kirkjugarði nálægt bænum
Benevides farnir að teygja sig upp
yfir vatnsyfirborðib og minna með
hálfdraugalegum hætti á fortíbina.
Þab sem veldur þessu em mestu
þurrkar sem orðib hafa á þessu
svæbi í áratugi. Og lækkun vatnsyf-
irborbsins í Falcon Lake er abeins
eitt merki um þá kreppu sem er í að-
sigi vegna þurrkanna, en miklir erf-
iðleikar em að myndast við að sjá
hraðstækkandi borgunum í Suð-
vesturríkjunum fyrir nægu vatni,
og sömuleiðis nautgripabúunum
þar á sléttunum. Nú er svo komib
ab alvarlegt þurrkaástand ríkir um
allan suðvesturhluta Bandaríkj-
anna, á svæði sem nær yfir suður-
hluta Kaliforníu og Nevada, allt Ar-
izona, Nýju-Mexíkó og Texas, og
megnib af Utah, Koloradó og Okla-
homa. Sums staðar á þessu svæði
hafa þurrkarnir verib allsráðandi í
allt að fimm ár, en annars stabar
ekki nema í um 10 mánuði.
Sér ekki fyrir endann
Ástandið veldur því að hver
höndin verður uppi á móti annarri,
fylkin fara að togast á innbyrðis,
borgarbúar rísa upp á móti bænd-
um og öfugt, og bændur fara allir
sem einn að fjandskapast út í vebur-
kerfi jarbarinnar sem skyndilega em
farin ab gerast fjandsamleg brölti
mannskepnunnar.
En veðurfræðingar em allir á einu
máli um ab alls ekki sé farib ab sjá
fyrir endann á þessu ástandi.
„Reiknab er meb því ab þetta muni
halda áfram út sumarið og fram á
haust," segir dr. Don Wilhite við
National Drought Mitigation Cent-
er í Lincoln, Nebraska. „Eftir þab
em allar ágiskanir jafn góðar."
Þab sem er ab gerast er þab sem
veburfræbingamir kalla öfug „E1
Nino" áhrif. E1 Nino er risastórt
veðrakerfi í Vestur-Kyrrahafinu sem
í góðu árferði dælir vetrarrigning-
um inn yfir subvesturríkin og slétt-
urnar miklu. Þegar „E1 Nino" lætur
ekki sjá sig, eins og gerðist á síðasta
ári, þýbif þab enn minni úrkomu
en venjulega á öllu þessu svæði,
sem þó er frá náttúmnnar hendi
mebal þeirra þurrkasömustu á jörð-
inni. Frá því í ágúst á síðasta ári hef-
ur varla mælst nokkur úrkoma á
svæðinu, hvorki rigning né snjór.
Jarðvegurinn þornar og ástandib er
að verba alvarlegt.
í Texas, Oklahóma, austurhluta
Koloradó og vesturhluta Kansas
brást vetramppskeran af hveiti ab
miklu leyti. Jafnframt varb tölu-
verður skortur á nautgripafóbri sem
neyddi fjöldann allan af bændum
til þess að skera nibur nautgripa-
hjarbir sínar. Talið er ab tjónib fyrir
landbúnaðinn í Texas geti orðið allt
ab sex og hálfum milljarði Banda-
ríkjadala á þessu ári, sem þýddi ab
um væri að ræða mesta fjárhagstjón
sem orðiö hefur af völdum náttúm-
hamfara í fylkinu.
Gengið á grunnvatnib
Það sem hefur bjargað bændun-
um hingað til frá gjaldþroti em
áveitukerfin, en þau em stórtækari
en nokkur getur ímyndað sér. Þau
gætu hins vegar reynst skammgób-
ur vermir og afleibingarnar orbið
afdrifaríkar ef enn er gengið á
vatnsforðann undir yfirborði jarðar
meb sama hætti og hingað til. I þrjá
áratugi hafa bændur á svæðinu frá
Montana í norbri til Texas í suðri
verið að dæla vatni úr jarðlagi sem
nefnist Ogallala Aquifier. Gmnn-
vatnið í þessu jarðlagi lokaðist inni
á síðusm ísöld og endurnýjun er af
skomum skammti vegna lítillar úr-
komu. Gmnnvatnsborbið hefur
sums staðar lækkaö um nærri 15
metra á síðustu 15 ámm.
í suður- og miðhluta Texas er
reyndar fengið gmnnvatn úr öðm
jarðlagi, svonefndum Edwards
Aquifier, en þurrkamir núna ganga
meira á vatnsforðann undir yfir-
borði jarðar en gerst hefur nokkm
sinni fýrr. Marc Reisner hefur kynnt
sér sérstaklega vatnsveituffam-
kvæmdir á þessum slóðum, og
hann telur ab í Texas, Nevada og
Arizona og e.t.v. víðar stefni allt í að
alvarlegur vatnsskortur verði til
langframa sem gæti stofnað öllum
landbúnaði þar í hættu. „Þurrkur-
inn hefur flýtt fyrir því sem annars
er óhjákvæmilegt," segir Reisner.
„Þá á ég vib að landbúnaður á stór-
um hluta þessa svæðis mun leggjast
af. Þetta á sérstaklega við um syðri
helminginn af Ogallala Aquifier
svæðinu, þ.e. háslétturnar suður af
Lubbock og austurhluta Nýju-Mexí-
kó. Það sem þeir em að gera getur
ekki staðið undir sér til langframa
— og spumingin er bara hve lengi?"
-gb/Newsweek
Þurrkarnir í Texas eru þegar farnir að hafa óskemmtilegar afleiðingar.
Hversu örugg eru kreditkortin?
Barnaleikur að falsa kreditkort
Það er aubveldara en margur
heldur að falsa kreditkort.
Blaðamaður frá The Sunday
Times fór á stúfana um daginn
og komst að því ab sá útbúnaður
sem til þarf er ekki margbrotinn.
í fyrsta lagi þurfa menn ab út-
vega sér plastkort með segulrönd.
Þau eru nánast á hverju strái nú-
orðið. Það færist t.d. í vöxt að stór-
verslanir, bensínstöðvar og fleiri
aðilar gefi út sérstök viðskiptakort
sem jafnvel er hægt að tengja við
bankareikning, og ekki er erfitt að
nálgast þau. Svo geta menn líka
notab sín eigin kreditkort eba de-
betkort, jafnvel gömlu útmnnu
kortin sín ef þeir hafa ekki klippt
þau í sundur og hent í ruslið, eins
og allir hafa þó vafalaust gert.
í öðm lagi þurfa menn að eiga
ð að HEIMA ER BEZT
t hvert tölublað
Tfmaritið HEIMA ER BEZT hefur komið út óslitið síðan árið 1951.
„Blaðinu er ætlað að vera þjóðlegt heimilisrit og vettvangur ritfærra
alþýðumanna, kvenna sem karla, sem eitthvað vilja láta til sín heyra,"
var m.a. sagt um tilgang ritsins í upphafi ferils þess. Það vill byggja
tilveru sfna á þjóðlegu efni, segja frá lffsbaráttu fólksins í landinu til
sjávar og sveita, fyrr og nú, hugðarefnum þess og skemmtunum.
HEIMA ER BEZT er kjörið tímarit fyrir alla
þá sem unna þjóðlegum fróðleik og vilja lesa
og fræðast um daglegt líf og hugðarefni
íslensks alþýðufólks, fyrr og nú, eins og það
segir frá því sjálft.
Áskriftarsimi
HEIMA ER BEZT
Þjóðlegt heimilisrit - <
tölvu með aðgang að Internetinu.
Ef hún er til staðar er hægðarleikur
að næla sér í forrit í gegnum Inter-
netib sem býr til kreditkortanúm-
er samkvæmt sömu stærðfræði-
formúlum og bankarnir nota, en
hver banki ku hafa sérstaka form-
úlu til þeirra hluta. Yfir 90% af
þeim númerum sem forritið býr til
eru þegar í notkun.
Á kreditkortum eru segulrendur
þar sem upplýsingarnar um reikn-
ingana eru geymdar, og næsta
skrefið er því að útvega sér sérstakt
tæki, svokallaðan „encoder", sem
skráir upplýsingar inn á kortið.
Þetta tæki er hægt að panta á full-
komlega löglegan hátt, a.m.k. í
Bretlandi, fyrir innan við 100 þús-
und íslenskar krónur. Ekkert sér-
stakt leyfi þarf til.
Þegar allt þetta er komið tekur
ekki nema örfáar mínútur að búa
til eitt stykki kreditkort sem mað-
ur getur labbað sér með í næstu
verslun eða jafnvel hraðbanka —
ef mabur er þannig innstilltur á
annab borð.
Blaðamaburinn frá The Sunday
Times var með kort frá Tesco og
Sainsbury. Tesco-kortinu var á
svipstundu breytt í Visa-kreditkort
sem átti að hafa veriö gefið út af
Southern Bank í Virginíufylki í
Bandaríkjunum, og Sainsbury-
kortinu var sömuleiðis snarað yfir
í debetkort frá NatWest bankan-
um. Engin vandkvæði komu upp
við þessar tifæringar.
Með „Visa-kortinu" frá Tesco
tókst honum að fá aðgang að
kortareikningi einhvers einstak-
lings, sem vitaskuld var gjörsam-
lega grunlaus um þessa aðför að
einkalífi sínu og fjárhagsmálum.
Blaðamaðurinn heldur því þó
fram að engar millifærslur á pen-
ingum hafi átt sér stab.
Hins vegar tók hann í hrað-
banka 100 pund út af sínum eigin
bankareikningi hjá NatWest með
því að nota „debetkortið" frá Sa-
insbury. Á næsta yfirliti frá bank-
anum var þessi millifærsla skráð
eins og allt hefði verið meb eðli-
legum hætti.
Ef hér hefðu óprúttnir aðilar
verið á ferð hefðu fórnarlömbin
ekki haft hugmynd um að þau
hefðu verið rænd fyrr en næsta
reikningsyfirlit bærist þeim.
-gb/The Sunday Times